I am station, I am official station…
Loksins, loksins! Loksins eitthvað nýtt, ferskt og spennandi á netinu! Núna hefur maður einhverja ástæðu fyrir að kveikja á tölvunni…
Já, fólk er aldeilis ánægt með að fá nýtt blogg á netið. Netið er náttúrulega búið að vera nokkurn veginn eins síðan 1998.
Ég var búinn að fá leið á brinkster blogginu og vildi bara breyta til þannig að ég flutti mig hingað. Undir húddinu leynist WordPress sem er bara nokkuð töff blogg-græja. Ég byggði template-ið mitt á default dótinu en hreinsaði það með smá hjálp. Þetta er auðvitað CSS-að í köku og fer eftir öllum helstu stöðlum.
Það tók nú alveg slatta tíma að koma þessu template-i í almennilegt form. Alls konar fifferingar, fullkomnunarárátta, böggar milli Firefox og Internet Explorer - hlutir ekki að birtast eins og bleh, bleh. En þetta er komið fínt í bili, bara opna kvikindið og fiffa í þessu síðar meir.
Mér finnst alveg möst að vefsíður séu með link á hvaða síðu sem er sem færir fólk aftur á “byrjunarreit” - eðlilegasti staðurinn er logo eða bara texta-linkur í efra vinstri horninu. Þar finnið þið einmitt » official station sem tekur ykkur aftur á aðalsíðuna - svona ef þið týnist.
Vinstra megin eru líka linkar á svalasta fólkið á netinu. Þar sem linkarnir eru eins og börnin mín þá elska ég þá alla jafn mikið - þess vegna er totally random röð á þessu, meira að segja ný röð í hvert skipti sem þú refreshar.
Síðan ætla ég að finna mér eitthvað sniðugt plug-in eða eitthvað til að birta nokkrar myndir hérna - jafnvel Kýpur myndirnar sem ég er búinn að lofa í 3 ár ;)
Fasti dagskrárliðurinn random quote hefur fengið fallegt pláss í ramma í lok hverrar færslu.
Ef þið rekist á einhverjar villur eða lendið í einhverju böggi endilega látið mig vita.
- ég veit um einn bögg og sá sem er fyrstur að finna hann er greinilega ekki að nota réttan vafra.
Ef fólk er að undra sig á léninu þá mun ég útskýra það síðar…
July 2nd, 2006 at 23:49
Sjitt
Ég er að fíl’etta.
Kúl stöff
I like.
Sjitt
July 3rd, 2006 at 0:09
Úhhh.. fensí!
Ég fæ gæsahroll af spenningi! Kemur greinilega allt með kalda vatninu.. og djamminu næstu helgi að sjálfsögðu!
July 3rd, 2006 at 16:29
voða er þetta fínt ;) og jájá við viljum myndir! :)
July 3rd, 2006 at 20:11
ég tel löngu hafa verið kominn tími á þetta. Tel ég fulljóst að til að fagna þessu þurfi að bjóða til teitis þarnæstu helgi, ég bíð spenntur eftir boði.
congrats buddy
July 4th, 2006 at 8:48
Eii!! mjög gott. Og já. styð myndir. Mjög góð breyting og flott nafn.
yeah!
July 4th, 2006 at 12:29
ánægður með að komment systemið muni mann bara eins og ekkert sé, sjálfvirkni er það sem tölvur eiga að gera