Hvað er í gangi?

Archive for August, 2006

Rólex peoples…

Saturday, August 26th, 2006

Já, já, það kemur bráðum blöög um flakkið á manni. Ég ætlaði bara að skrifa eitthvað þegar ég væri kominn með myndir á netið… og ég er annþá að leita að einhverri góðri lausn. Það var mælt með þessu: Gallery - ætli maður skelli sér ekki bara á það, betra en ekkert. Maður getur bara prófað eitthvað annað betra seinna.

Annars er stutt útfærsla á ferðinni á hüt - líka nokkrar flottar myndir þar.

En svo dyggir lesendur missi sig ekki alveg þá skellti ég inn nokkrum myndum: ooooh, pretty…, kallarnir í Poreć og Piccadilly Circus.

Restin af myndunum kemur síðan… einhvern tíman.

Half a mill’ for bail cause I’m African…

Mér finnst rigningin góđ…

Friday, August 11th, 2006

Jamm, mađur er ađ hanga á netkaffi hérna í Poreć af thví ađ thađ er rigning úti… Ekki alveg nógu sáttur viđ ađ vera kominn á thennan stađ sem á ađ vera svona sólstrandarstađur og síđan er bara einhver rigning. En mađur reynir ađ gera thađ besta úr thessu…

Thad var hins vegar dúndur veđur í gaer og mađur var náttúrulega ađ tan-a sig í drasl. Viđ thurftum reyndar ađ taka bát í bođi hótelsins út í eyju hérna rétt hjá thar sem mađur gat sólađ sig í klessu.

Kíktum á International Club í gaer sem á víst ađ vera vinsaelasti klúbburinn hérna. Ágaet stemmning thar en thad er pottthétt mun betri stemmning thegar klúbburinn er pakkađur - thetta var mjög stór stađur, getur örugglega tekiđ 1000-2000 manns auđveldlega. Var hinsvegar ekki sáttur viđ verđiđ á áfengi tharna - vorum ađ borga 30 kuna fyrir 0,25cl Tuborg sem er svona 360 íslenskar. Mađur er allaveganna vanur ađ borga mun minna hérna ;)

Síđan get ég vonandi skellt inn myndum hingađ úr ferđinni sem fyrst… Tharf bara ad finna eitthvađ gott system til ađ halda um myndirnar - getur fólk maelt med einhverju sérstöku kerfi?

Thetta er bloggađ á iMac - ekki alveg viss um ađ ég sé ađ fíla makkann… Tekur líklega smá tíma ađ venjast thessu. Ég meina, hvar er haegri músartakkinn ;)

Jetzt gleich…

Ostakaka í morgunmat…

Thursday, August 3rd, 2006

Stundum vaknar maður aðeins of seint og hefur ekki alveg tíma fyrir allt vakna-ferlið. Þannig að maður þarf að sleppa einhverju eða láta það taka rosalega stuttan tíma… Ég nennti ekki að fara í vinnuna með alveg tóman maga þannig að ég leit í ískápinn og þar var þessi fína ostakaka. Tók mér væna skeið af vanillu og súkkulaði ostaköku og skolaði því niður með Sprite Zero. Umm… hollur og næringaríkur morgunmatur - þetta er nú einu sinni mikilvægasta máltíðin.

Í fréttum er þetta helst… ég er að fara í ferðalag til Slóveníu og Króatíu - og ég flýg til London eftir rúmlega 31 tíma. Frá London fljúgum við til Slóveníu þar sem við ætlum að lifa eins og kóngar í Ljubljana. Síðan er förinni haldið til strandarbæjar í Króatíu þar sem við ætlum að flatmaga í nokkra daga. Maður endar þetta síðan með verslunaræði í London.

Möguleiki að maður bloggi eitthvað á meðan maður er úti.

Let me get some action from the back section
Hannes - Just walkin'... I am official station Pen and paper Aðgangur bannaður fyrir fólk með dökkt hár Iceland Airwaves 2006 - Reykjavik Art Museum Just grillin'... Here fishy, fishy... Attention: Keep gun holstered. FIRE KILLS CHILDREN! Iceland Airwaves 2005 - Nasa Gin and tonic Mary Jane vodka Turn me on

 

© 2008 Hannes · Hafðu samband / Contact me