Nú er ekki langt síðan að verð í bíó hækkaði upp í 900 kr… Þeim tókst nú að lauma þessu inn án þess að mikið væri gert úr því - sá nú ekki mikið í fjölmiðlum um þetta eins og var þegar þeir hækkuðu upp í 800 kr. Reyndar fínt að fá alltaf 20% afslátt í gegnum Svarta kortið þegar maður fer í Sambíóin eða Háskólabíó - síðan verður maður bara að vera duglegur að redda sér frímiðum hér og þar…
En núna er búið að hækka verðið í strætó upp í 280 kr. (úr 250 kr.) fyrir eina ferð út í bæ og það kostar núna 650 kr. að leigja sér mynd á flestum video leigum. Maður þarf nú ekki að horfa á mynd oft til að það borgi sig bara að kaupa hana á DVD - Nýjar myndir kosta rúmlega 2.000 kr. og maður getur oft fundið klassískar myndir á ca. 1000 kall. Hvað þá með að kaupa þetta bara á netinu eða þegar maður fer til útlanda…
Síðan eru náttúrulega “aðrar leiðir” til að nálgast svona efni - og þá átt þú ekkert á hættu að þurfa að borga sekt af því að þú náðir ekki að skila myndinni… Ég ætla alla veganna að hugsa mig tvisvar um áður en fer næst út í leigu.
Með þessu áframhaldi sé ég alveg fram á að video leigur verði nokkurn veginn dauðar eftir 2-3 ár. Þær þurfa alla veganna að breyta eitthvað til ef þær vilja krafsa í bakkann aðeins lengur - Gefa manni einhverjar góðar ástæður fyrir því að fara til þeirra í staðinn fyrir að nota aðrar leiðir. Hvernig væri t.d. að leyfa manni að vera með gömlu myndina í viku? Eða gefa manni nýja mynd (að eigin vali) þegar maður er búinn að leigja 10-20 myndir hjá þeim (og skila fyrir 9)? Gefa manni snakk og/eða gos með hverri mynd - eitthvað þannig… Það að hækka verðið er alla veganna ekki rétta leiðin.
Já, það er ekki ókeypis að lifa…
Hei, ég á hálfs-árs afmæli í dag, vúhú!!!
Do I still like cheese? - Not if you want to stay alive you don’t.