Hvað er í gangi?

Nýársblogg…

2007 segiru… það mun taka nokkra daga að venjast því. En já, gleðilegt nýtt ár.

Happy New Year. Glückliches neues Jahr. Feliz Año Nuevo. Godt nytt år… og ef þú skilur ekki eitthvað af þessu þá get ég ekki hjálpað þér.

Fleiri video »

Skaupið var nokkuð gott - maður gat alveg hlegið af því. Svolítið öðruvísi en hefur verið… breytingar eru alltaf góðar. Það var í rauninni gert mun minna grín að Árna Johnsen en ég bjóst við. Þessi “tæknilegu mistök” var alveg vanhugsaðasta setning ársins.

Og svona að lokum… ein áramótabrennumynd:

Bonfire on New Year's Eve 2006
Move it over dad ’cause I’m a double-dipper!

5 athugasemdir varðandi “Nýársblogg…”

  1. Ari hefur þetta að segja:

    Gleðilegt ár Hannes!

    Já, varðandi skaupið þá fannst mér synd að það hafi ekki verið gert grín að því hvað Pétur var agalega misheppnaður sem kynnir á Eddunni. Að ógleymdu kjánahrollsmómentinu hjá Bubba og what’s-her-face kærustunni hans á þessari sömu Edduhátíð. Það kostaði mig sjónvarp á sínum tíma, mitt fékk endanlega nóg og hoppaði í baðkarið einsog í X-auglýsingunum… Annars fínasta skaup :)

  2. Ella hefur þetta að segja:

    Þetta var ekki besta skaupið að mínu mati.. en það voru punktar í því sem var ekki hægt annað en að hlæja að. Eins og þegar skeletor birtist og star wars atriðið!

  3. Ævar hefur þetta að segja:

    Gleðilegt nýtt ár sömuleiðis.

    Mér fannst þetta skaup bara með bestu skaupum lengi, Skaupin hans skara skríbó voru líka snilld. Og þetta slátraði algerlega hörmunginni sem var siðast. Líka bara flott myndataka, hljóð og litir fær A+ þetta.

    Ég er eiginlega búinn að venjast 2007, þökk sé office 2007 held ég.

    Nice mynd btw (y)

  4. Ævar hefur þetta að segja:

    ps. Ari.. hver horfir eiginlega á edduna ;) ekki ég amk.

  5. Dóri hefur þetta að segja:

    Fínt skaup man allavega ekki eftir betra svona akkúrat núna.

    (Jón Gnarr) “áttu ólívur?” (Þorsteinn) “Ha ólívur ragnar grímsson?”

    Steiktasta samtal sem ég hef séð og heyrt lengi.

Skildu eftir skilaboð eftir bípið

XHTML: Það er hægt að nota þetta til að skreyta komment: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Hannes - Just walkin'... I am official station Pen and paper I am Hannes, I'm a code monkey Aðgangur bannaður fyrir fólk með dökkt hár Iceland Airwaves 2006 - Reykjavik Art Museum Just grillin'... Here fishy, fishy... Attention: Keep gun holstered. FIRE KILLS CHILDREN! Erpur Blazroca - I am Hannes, I'm creative Iceland Airwaves 2005 - Nasa Gin and tonic Mary Jane vodka Turn me on

 

© 2008 Hannes · Hafðu samband / Contact me