Hvað er í gangi?

Microsoft kann þetta…

Shit, rakst á þetta illa súra kynningarmyndband frá Microsoft. Spólið á 07:00 því þá fara hlutirnir að gerast, eða eins og stendur í lýsingunni:

Boring until the 7 minute mark when the production is taken over by crack-smoking monkeys.

Þetta video hefur örugglega verið gert þegar rappið var nýorðið mainstream og allir auglýsingagúrúarnir vildu hafa smá rapp af því að það var svo gegt hipp og trendí. Njótið:

Windows 386 promo video

Gerist ekki betra. Ótrúlegt en satt þá var þetta ekki stóra tækifærið sem kom aðalleikkonunni Victoria Carver á kortið - samkvæmt imdb þá hefur hún einungis leikið í einhverri X-rated mynd og einni sjónvarpsmynd…

(frá boingboing)

The more you know who you are, and what you want, the less you let things upset you.

6 athugasemdir varðandi “Microsoft kann þetta…”

  1. Ævar hefur þetta að segja:

    hahahahahaha mæli með að textinn hjá hannesi sé lesin sem minnst áður en horft er á videoið. Og helst horfa á allan pakkann… gerir restina þeim mun fyndnari… úff tekur á að hlægja svona mikið :D

  2. Bjössi hefur þetta að segja:

    Ég verð að segja að betra sölumyndband hef ég ekki séð. Ég er jafnvel að pæla í skipta tölvunni minni út fyrir 386 vél. Ég meina þá get haft 4 glugga opna í einu án vandræða!!! Það er algjör snilld. Svo læri ég kannski að rappa. Hver veit?

    Svo legg ég til að þeir sem skrifuðu handritið verði ráðnir til að skrifa skaupið um næstu áramót. Það yrði sterkur leikur hjá Rúv.

  3. maple hefur þetta að segja:

    ég sé nú ekki neitt nema “this video has been removed”

  4. nezi hefur þetta að segja:

    Whut? Ég sé það alla veganna núna. Prófaðu aftur…

  5. Trausti hefur þetta að segja:

    ja hérna hér, þetta er ótrúlegt… Mikið er ég feginn að vera kominn á makka!

  6. Hannes hefur þetta að segja:

    hehe, já, apple er oft með fínar auglýsingar - en þessi 1984 auglýsing frá Apple er frekar spes…

Skildu eftir skilaboð eftir bípið

XHTML: Það er hægt að nota þetta til að skreyta komment: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Hannes - Just walkin'... I am official station Pen and paper I am Hannes, I'm a code monkey Aðgangur bannaður fyrir fólk með dökkt hár Iceland Airwaves 2006 - Reykjavik Art Museum Just grillin'... Here fishy, fishy... Attention: Keep gun holstered. FIRE KILLS CHILDREN! Erpur Blazroca - I am Hannes, I'm creative Iceland Airwaves 2005 - Nasa Gin and tonic Mary Jane vodka Turn me on

 

© 2008 Hannes · Hafðu samband / Contact me