Hvað er í gangi?

Archive for February, 2007

Ron Jeremy

Wednesday, February 21st, 2007

Ron Jeremy kom til Íslands fyrir nokkrum árum… Hann var eitthvað að plögga myndina sína og standup sem hann var með í Háskólabíó.

Maður var í Verzló á þeim tíma og það kom skemmtilega á óvart þegar Ron Jeremy valsaði inn til okkar með Sveppa, Audda og einhverju camera crew-i. Hann spjallaði eitthvað við okkur og “kenndi” okkur í smá tíma - þetta var allt tekið upp og sýnt á Popp Tíví. Hann var víst kennari áður en hann fór í dóna bransann og ef ég man rétt var hann m.a. að kenna okkur um ameríska mannkynssögu eða eitthvað.

Þar sem ég er náttúrulega fan #1 þá bað ég hann um eiginhandaráritun. Hann reyndar misskildi mig eitthvað og skrifað hana til Johannes ;)

Ron Jeremy autograph

Þetta er náttúrulega priceless gripur en ég er tilbúinn til að selja þetta fyrir 97.000 kr. (stgr.) eða í skiptum fyrir eitthvað annað - eins og t.d. eiginhandaráritun frá Jack Bauer …uh, ég meina Kiefer Sutherland.

My name is Domino Harvey… I am a bounty hunter.

Prince Polo

Saturday, February 17th, 2007

Já, Einar er ekki einn um það að vera orðinn stoltur bíleigandi… Eftir alltof margar strætóferðir er maður loksins kominn á sinn eigin bíl. Ekkert meira að bíða í nístingskulda eftir strætó eða að öskra á eftir strætó af því að hann kom of snemma - og maður þarf ekki lengur að reiða sig á aðra til að skutla manni (alla veganna minna um það). Nýjir og betri tímar, já, já…

Þetta er græjan:

Sweet ride - Prince Polo

VW Polo (árg. 2002) og eins og þið sjáið er hann grænn. Síðan stendur 74,8 hö (veit ekkert hvað hö er…) og 1390 slagrými (huh? hvað á maður að vera að slá?). En þetta er náttúrulega flottasti bíllinn á götum borg óttans og mun valda öngþveitum þar sem fólk mun ekki geta tekið augun af honum.

Ég er náttúrulega búinn að skrá mig í Live2Cruize - öllum boðið á hafnar-planið næsta fimmtudag þar sem ég verð innvígður. Næst á dagskrá er síðan að fá sér almennilegt spoiler-kit og henda 27″ keilu í skottið.

Girl we off in this jeep, fogging windows up, blasting the radio, in the back of my truck…

I’m bringing sexy back…

Monday, February 5th, 2007

Justin Timberlake er ekki svo galinn gaur. Hann og hans crew kunna alveg að gera mjúzík. Margt nýtt og frumlegt í gangi á nýjustu plötunni… En það tók nú smá tíma að venjast fyrsta sínglinum SexyBack

Það lag var svona temmilega vinsælt og fyrir nokkrum mánuðum fann ég þessa skemmtilegu paródíu, Paxilback:

Síðan heyrði ég nýlega í útvarpinu cover af SexyBack - svona rólega kassagítars útgáfu: Rock Plaza Central - SexyBack. Það er líka búið að mixa video fyrir þetta:

Smá credit: Rock Plaza Central | fann mp3 hérna

Dance like nobody’s watching…
Hannes - Just walkin'... I am official station Pen and paper Aðgangur bannaður fyrir fólk með dökkt hár Iceland Airwaves 2006 - Reykjavik Art Museum Just grillin'... Here fishy, fishy... Attention: Keep gun holstered. FIRE KILLS CHILDREN! Iceland Airwaves 2005 - Nasa Gin and tonic Mary Jane vodka Turn me on

 

© 2008 Hannes · Hafðu samband / Contact me