Hvað er í gangi?

Prince Polo

Já, Einar er ekki einn um það að vera orðinn stoltur bíleigandi… Eftir alltof margar strætóferðir er maður loksins kominn á sinn eigin bíl. Ekkert meira að bíða í nístingskulda eftir strætó eða að öskra á eftir strætó af því að hann kom of snemma - og maður þarf ekki lengur að reiða sig á aðra til að skutla manni (alla veganna minna um það). Nýjir og betri tímar, já, já…

Þetta er græjan:

Sweet ride - Prince Polo

VW Polo (árg. 2002) og eins og þið sjáið er hann grænn. Síðan stendur 74,8 hö (veit ekkert hvað hö er…) og 1390 slagrými (huh? hvað á maður að vera að slá?). En þetta er náttúrulega flottasti bíllinn á götum borg óttans og mun valda öngþveitum þar sem fólk mun ekki geta tekið augun af honum.

Ég er náttúrulega búinn að skrá mig í Live2Cruize - öllum boðið á hafnar-planið næsta fimmtudag þar sem ég verð innvígður. Næst á dagskrá er síðan að fá sér almennilegt spoiler-kit og henda 27″ keilu í skottið.

Girl we off in this jeep, fogging windows up, blasting the radio, in the back of my truck…

5 athugasemdir varðandi “Prince Polo”

  1. maple hefur þetta að segja:

    jáá til hamingju með það, ventoinn minn tekur þessa tík samt í rassgat hvenær sem hann vill, just so you know

  2. Trausti hefur þetta að segja:

    Til lukku með gripinn. Að vera með 74,8 hámarks ökufetssnúninga (hö) er ótrúlega gott bara svo þú vitir það.

  3. Bjössi hefur þetta að segja:

    ég legg til að við VW eigendur, Nezi, ég og Maple spyrnum um næstu helgi og sjáum hver á besta VW-inn. Það kæmi mér ekki á óvart að græna skrímslið mitt myndi svoleiðis hamra í endaþarminn á ykkur skilja ykkur eftir í ryki á sekúndubrotum!!

    En annars til hamingjum með tussutrekkjarann, þú munt örugglega geta látið rigna yfir druslurnar á þessu ofursvala tígrísdýri. Megi dollan veita þér eilífan unað og helling af kellingum um ókomna tíð.

  4. Einar hefur þetta að segja:

    Jó, til hammó. Húrra.

  5. nezi hefur þetta að segja:

    Takk, takk.

    Já, ok, hámarks ökufetssnúninga - gott að vita :)

    Hmm… þessi spyrna hljómar vel - ég var einmitt að skella Nitro á gripinn þannig að ég get tekið hvern sem er hvenær sem er.

    Jú, jú, þetta verður alveg total chick magnet - getur ekki klikkað.

Skildu eftir skilaboð eftir bípið

XHTML: Það er hægt að nota þetta til að skreyta komment: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Hannes - Just walkin'... I am official station Pen and paper Aðgangur bannaður fyrir fólk með dökkt hár Iceland Airwaves 2006 - Reykjavik Art Museum Just grillin'... Here fishy, fishy... Attention: Keep gun holstered. FIRE KILLS CHILDREN! Iceland Airwaves 2005 - Nasa Gin and tonic Mary Jane vodka Turn me on

 

© 2008 Hannes · Hafðu samband / Contact me