Hvað er í gangi?

Ron Jeremy

Ron Jeremy kom til Íslands fyrir nokkrum árum… Hann var eitthvað að plögga myndina sína og standup sem hann var með í Háskólabíó.

Maður var í Verzló á þeim tíma og það kom skemmtilega á óvart þegar Ron Jeremy valsaði inn til okkar með Sveppa, Audda og einhverju camera crew-i. Hann spjallaði eitthvað við okkur og “kenndi” okkur í smá tíma - þetta var allt tekið upp og sýnt á Popp Tíví. Hann var víst kennari áður en hann fór í dóna bransann og ef ég man rétt var hann m.a. að kenna okkur um ameríska mannkynssögu eða eitthvað.

Þar sem ég er náttúrulega fan #1 þá bað ég hann um eiginhandaráritun. Hann reyndar misskildi mig eitthvað og skrifað hana til Johannes ;)

Ron Jeremy autograph

Þetta er náttúrulega priceless gripur en ég er tilbúinn til að selja þetta fyrir 97.000 kr. (stgr.) eða í skiptum fyrir eitthvað annað - eins og t.d. eiginhandaráritun frá Jack Bauer …uh, ég meina Kiefer Sutherland.

My name is Domino Harvey… I am a bounty hunter.

10 athugasemdir varðandi “Ron Jeremy”

  1. maple hefur þetta að segja:

    domino nigga, domino!

  2. nezi hefur þetta að segja:

    Vííí - og það er rétt, þú færð 3 stig.

  3. Ari hefur þetta að segja:

    Hmm… skrifað í snobbið ef mér skjátlast ekki… :)

  4. nezi hefur þetta að segja:

    Ari - jú, mikið rétt. Það var svona hentugasta sem ég hafði við hendina - massívur pappír og mjög eigulegt. Ef það er enginn sem vill kaupa þetta held ég rammi þetta bara inn - en kannski prófa að selja það á eBay fyrst.

  5. Ella hefur þetta að segja:

    Ég skal kaupa þetta skjal af þér á 23 krónur og læt fyglja með eitt stykki grjónapúða!

  6. Hannes hefur þetta að segja:

    Já, þú segir nokkuð… spennandi tilboð. En hvað segiru um 47 krónur og 2 grjónapunga …og sleikjó?

  7. Ella hefur þetta að segja:

    You devious devious man!

  8. Bjössi hefur þetta að segja:

    Er ekki kominn tíma á blogg????

  9. nezi hefur þetta að segja:

    Jú, það er rétt… ég reyni að blogga amk einu sinni í viku og núna eru nánast 2 vikur síðan ég bloggaði síðast - þetta náttúrulega gengur engan veginn.

    Það er bara búið að vera svo mofo crazy að gera - og ég nenni varla að pósta einhverju “það er búið að vera svo mikið að gera” blöögi ;)

    En já, ég skal henda einhverju upp við skæri… ég meina, við tækifæri.

  10. Bjössi hefur þetta að segja:

    Ég tek engar svona afsakanir gildar, mikið að gera - smikið að mera. Það skiptir bara engu máli. Þér ber að halda lesendum þínum ánægðum og nú er amk einn lesandi ekki sáttur. Og hann vill úrbætur!!

Skildu eftir skilaboð eftir bípið

XHTML: Það er hægt að nota þetta til að skreyta komment: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Hannes - Just walkin'... I am official station Pen and paper Aðgangur bannaður fyrir fólk með dökkt hár Iceland Airwaves 2006 - Reykjavik Art Museum Just grillin'... Here fishy, fishy... Attention: Keep gun holstered. FIRE KILLS CHILDREN! Iceland Airwaves 2005 - Nasa Gin and tonic Mary Jane vodka Turn me on

 

© 2008 Hannes · Hafðu samband / Contact me