Hvað er í gangi?

Bitch stole my fish

Það er bara eitthvað fáránlega fyndið við þessa mynd:


Share on Facebook

Bitch stole my fish

Gaurinn er alveg mest reiður á meðan stelpan glottir bara ánægð með góðan feng… Instant classic.

Í öðrum fréttum… ég er svo þokkalega að fara á Air tónleikana þann 19. júní. Ein af mínum uppáhaldshljómsveitum - á 3 diska með þeim og þeir eru fáránlega smooth. Hver vill koma með? Hérna er eitt hresst tóndæmi frá nýjustu plötunni þeirra, Pocket Symphony:

Mer du Japon

Síðan virðist sem ég geti ekki dansað með Matt á Ingólfstorgi þar sem ég verð víst í kokteilboði hjá HR á þeim tíma. Annars gott flipp hjá þessum Matt - ekki leiðinlegt að fá borgað fyrir að dansa eins og vitleysingur um allan heim.

I think I saw your body before I saw your face.

8 athugasemdir varðandi “Bitch stole my fish”

  1. Bjössi hefur þetta að segja:

    Mig langar meira á tónleikana með The Rapture sem er 26.júní. En ég skal koma með þér á Air ef þú kemur með mér á The Rapture, af því gefnu að það geri mann ekki gjaldþrota að fara á báða tónleikana.

  2. Hannes hefur þetta að segja:

    Hmm… Þetta er nokkuð freistandi tilboð. Það getur vel verið að ég taki því - já, ef þetta fer ekki með mann á hausinn.

    The Rapture voru að gera góða hluti á Airwaves þarna um árið - komu ferskir inn, hresst rokkband sem maður hafði varla heyrt um áður…

  3. Bjössi hefur þetta að segja:

    ódýrustu miðarnir á Air kosta 3900 kr, það er sama miðaverð og á The Rapture. Það þýðir 7800 kr. á báða tónleikanna. Í augnablikinu myndi það fara langt með að gera mig gjaldþrota. En gjaldþrot stoppar mann ekki í því að fara á góða tónleika.

  4. Hannes hefur þetta að segja:

    Hmm… já, þetta er ekki gefins. En hvað gerir maður ekki fyrir góða tónleika? Maður skellir þessu bara á visa, seinni tíma vandamál ;)

    En hvað er málið með þessa “palla” - er það eitthvað fyrir framan stúkuna sem er búið að hækka smá þannig að fólk sjái betur? Er þetta bara hugsað fyrir dverga?

  5. maple hefur þetta að segja:

    djöfull er brjálaður fídus í netvibinu maður, ég er með official í rss kubbi þar, og ef það er lag með færslunni, þá ýti ég bara á play og netvibes byrjar að spila lagið bara í heddernum hjá ser…

    vangefið kúl sko. svo er hliðina á play download, svo ég get bara downloadað því - ég þarf aldrei að fara officialstation.com aftur.

  6. maple hefur þetta að segja:

    http://www.netvibes.com

  7. Hannes hefur þetta að segja:

    Já, þetta er nokkuð nett. Mörg RSS tól með svona (eins og Google Reader - styður reyndar bara eitt lag per færslu…).

    En þetta er reyndar ekki nógu kúl - ég vil að fólk fari actually á officialstation.com ;) Þetta er ekki alltaf formað nógu töff í RSS tólum…

  8. Loft tónleikar » I am official station hefur þetta að segja:

    [...] já, dúndur tónleikar. Eins og kom fram þá er Air ein af mínum uppáhaldshljómsveitum - virkilega sáttur með að þeir hafi komið [...]

Skildu eftir skilaboð eftir bípið

XHTML: Það er hægt að nota þetta til að skreyta komment: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Hannes - Just walkin'... I am official station Pen and paper I am Hannes, I'm a code monkey Aðgangur bannaður fyrir fólk með dökkt hár Iceland Airwaves 2006 - Reykjavik Art Museum Just grillin'... Here fishy, fishy... Attention: Keep gun holstered. FIRE KILLS CHILDREN! Erpur Blazroca - I am Hannes, I'm creative Iceland Airwaves 2005 - Nasa Gin and tonic Mary Jane vodka Turn me on

 

© 2008 Hannes · Hafðu samband / Contact me