Hvað er í gangi?

Manchester

Ég veit ekki alveg hvað gerðist - það er alltof langt síðan ég bloggaði síðast… Virðist sem ég hafi verið upptekinn við eitthvað annað. En ég er búinn að vera pósta nokkuð reglulega á twitter - þannig að það er ekki eins og þið hafið ekki haft neitt að lesa ;) Ég ætla nú ekki að fara að lofa upp í ermina á mér en ég hef fulla trú á því að næsta færsla komi eftir ekki svo langan tíma - Það er náttúrulega bara skandall að láta næstum mánuð líða á milli færslna, það sæmir ekki svona A-list bloggara eins og mér. Höfum þetta spennandi - ef ég blogga ekki aftur innan 7 daga þá verð ég að blogga daglega í viku. Hvernig hljómar það? :)

Eins og ég nefndi í síðustu færslu þá skrapp ég til Manchester til að horfa á Manchester United spila gegn Sunderland. Ég er loksins búinn að henda inn myndunum sem ég tók - 161 stykki komið inn. Tékk it át píps. Ég var ekki að censor-a myndirnar alltof mikið - henti inn nánast öllum myndunum sem ég tók, sama hvort þær voru úr fókus eða ekki.

Ég var svona frekar trigger-happy á vellinum - Það eru svona 40 myndir nánast í röð sem eru bara af fótboltavellinum (basically grænn flötur og litlir kallar) á meðan leikurinn var í gangi - kannski ekki hægt að sjá fáránlega mikið, en þó eitthvað. Þeir sem hafa ekki áhuga á þeim myndum geta bara hoppað um 4 síður eða svo.

Það er svo langt síðan að ég kom heim að ég man ekkert hvað við gerðum þarna ;) Gott að hafa myndirnar til að hjálpa sér… já, við gistum á Trafford Hall Hotel sem var svona frekar spes - kannski ekki alveg það sem við bjuggumst við (og þó, miðað við hvað þetta var ódýrt) - en þetta var ágætist svefnaðstæða. Við byrjuðum laugardaginn á því að fara að Old Trafford til að sækja miðana - en það var einhver töf á þeim þannig að við fórum að leita okkur að brunch. Fundum Pizza Hut og biðum spenntir eftir því að þeir opnuðu. Það reyndist vera svolítið erfitt að fá miðana - það var alltaf “þeir koma eftir klukkutíma… eftir hálftíma…”. En það hafðist að lokum.

Við fórum aftur á hótelið en röltum stuttu seinna á völlinn. Það var múgur og margmenni sem streymdi á völlinn - enda seldust upp allir miðarnir - það voru tæplega 76.000 áhorfendur. Sætin okkar voru frekar hátt uppi en þetta var fínt - maður var alveg fyrir miðju og sá vel yfir allan völlinn. Í stuttumáli þá vann Manchester 1-0. Nokkuð spennandi leikur - nokkur dauðafæri, góð stemmning í áhorfendum og bullurnar að púa á Sunderland aðdáendurna.

Um kvöldið skelltum við okkur í bæinn til að taka púlsinn á næturlífinu í Manchester. Eitt sem maður lærði á því - maður þarf greinilega að muna að vera rétt klæddur af því að það voru nokkrir staðir sem meinuðu okkur aðgang af því að Gaui var í hvítum strigaskóm. En okkur tókst að komast á einn stað þar sem voru engir fordómar. Hann var mjög spes - Sci-Fi leikföng og aðrir minjagripir upp um alla veggi, Ghostbusters í sjónvörpunum og gaurar í Ghostbusters-búningum. Það var reyndar frekar þungt loft - þetta var niðurgrafin hola (s.s. engir gluggar) og það hefur verið einhver lágmarks loftræsting. En það var fyndið að sjá þetta :)

Daginn eftir fórum við í tour um Old Trafford og fengum að sjá m.a. búningsherbergið og fengum að labba þar sem leikmennirnir labba út á völlinn:

Eftir tour-inn fórum að versla í risastórri verslunarmiðstöð sem heitir Trafford Centre. Hún er 120.000 fermetrar og bílastæði fyrir 10.000 bíla - s.s. aðeins stærra en Kringlan ;) Við náðum að versla smá þarna - höfðum samt ekki mikinn tíma þar sem Gaui þurfti að ná flugvél til Köben. Þannig að um kvöldið röltum við Bjössi um miðbæinn og sáum meðal annars þessa skemmtilegu útipissuskál - Fólk getur tékkað á Facebook ef það vill sjá mynd sem Bjössi tók af mér að míga í þessa pissuskál ;) Síðan löbbuðum við framhjá stað sem var með svakalegt dresscode - það mátti nánast ekki neitt. Spurning hvort þetta hafi bara verið djók, ekki viss.

Daginn eftir, áður en við flugum heim fórum við í miðbæinn og versluðum alveg heilan helling. Það er eitthvað við útlönd - bara svo miklu skemmtilegra að versla þar - síðan er líka slatti af skemmtilegum búðum sem eru bara ekki á Íslandi.

Ég tók s.s. nokkur video - hérna eru þau í voða sniðugum YouTube playlista:

Líka hægt að smella hérna til að horfa á þetta á YouTube - aðeins stærra þar.

Já, þar hafið þið það… nokkuð löng færlsa, hellingur af myndum og video líka. Maður situr hérna sveittur langt fram á nótt til að klára þetta… vonandi er fólk gífurlega ánægt með þessa frammistöðu :)

Síðan er ég búinn að vera vinna í nokkrum mini-projects sem ég mun kynna von bráðar. Stay tuned!

Don’t be a sinner, be a winner!

2 athugasemdir varðandi “Manchester”

  1. Einar hefur þetta að segja:

    Sjíi, hljómar vel - Ég verð nú að fara skella mér á leik. Maancheesteh. Oi.

  2. Ella hefur þetta að segja:

    Það er næstum því sama hvað maður gerir í útlöndum… ef þú ert í útlöndum þá er það djöðveikt!

    (tek ekki með öll vondu löndin sem maður fer ekki til.. það er ekki til umræðu hér)

Skildu eftir skilaboð eftir bípið

XHTML: Það er hægt að nota þetta til að skreyta komment: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Hannes - Just walkin'... I am official station Pen and paper I am Hannes, I'm a code monkey Aðgangur bannaður fyrir fólk með dökkt hár Iceland Airwaves 2006 - Reykjavik Art Museum Just grillin'... Here fishy, fishy... Attention: Keep gun holstered. FIRE KILLS CHILDREN! Erpur Blazroca - I am Hannes, I'm creative Iceland Airwaves 2005 - Nasa Gin and tonic Mary Jane vodka Turn me on

 

© 2008 Hannes · Hafðu samband / Contact me