Mér finnst alltaf gaman að uppgötva nýja og góða tónlist. Það er eins og að finna gullmola þegar maður (oft fyrir tilviljun) rekst á eitthvað sem manni finnst algjör snilld. Til að (vonandi) hjálpa lesendum að uppgötva nýja tónlist þá eru hérna nokkur lög sem ég hef rekist á…
Teddybears – Cobrastyle
Þetta var intro lagið í pilot-num á Chuck (sem eru btw frekar góðir þættir). Gífurlega hressandi lag.
Bangers & Cash – Loose
Eitthvað skemmtilegt við þetta lag – mikill kraftur í þessu – kannski ekki ósvipað og annað sem Spank Rock hefur verið að gera (hann er s.s. annar helmingurinn af Bangers & Cash).
She Wants Revenge – Tear You Apart
Heyrði þetta í The Number 23 – passaði mjög vel við myndina.
Róisín Murphy – Dear Miami
Þetta er víst gellan úr Moloko. Seiðandi lag…
Hún er nú búin að klúðra nokkurn veginn öllu sem hún gat klúðrað, þannig að það kom mér svolítið á óvart hvað ég var að fíla þetta lag… Ég held að þetta lag gæti alveg virkað í góðu hljóðkerfi á einhverjum klúbbi með dúndrandi bassa:
Bjössi kom reyndar með góðan punkt:
Tónlistarmenn búa til betri tónlist þegar þeir eru á eiturlyfjum…
(eða eitthvað þannig). Þannig að kannski er hún á réttri braut? Neh…
Talandi um eiturlyf… hérna er smá craziness:
Yo Majesty – Club Action (Chris Bagraiders Sailing to Baltimore Edit)
og meira: Herve & Yo Majesty – Get Low Club Action (Scattermish Timid Fuckup edit)
Snoop Dogg – Sensual Seduction
og dirty útgáfan af laginu: Sexual Eruption
Eins og ég sagði á I am not taxi þá skiptir ekki máli hvað Snoop Dogg gerir, það er alltaf pimp.
Seal – Amazing
Gífurlegur hressleiki í gangi. Síðan er ég líka til gamans með Kaskade Remix og Thin White Duke Main Mix
Var þetta nokkuð of mikið af lögum? :)
Ætti ég að gera meira af svona?
Síðast uppfært 15. May, 2008
Bjössi says
Mín vegna þarftu ekkert að setja svona lög, ég hlusta hvort eð er ekkert á þau.
En nú þarf Hlynur að byrja á eiturlyfjum, svo hann geti samið góða músík á hljóðgervilinn sinn. Menn hafa oft samið áhugaverða músík á sýru, svo er alltaf klassískt að nota kókaín.
Hvaða quote er þetta? Það er sniðugt.
Hvað varstu að kaupa á eBay?
Hannes says
OK, gott að vita – gott að fá feedback. Ef ég heyri ekki í neinum sem vill endilega fá fleiri svona tónlistarfærslur þá mun ég líklega ekki vera of mikið að benda á kúl lög í framtíðinni.
Já, ég hlakka til að heyra hvað hr. partý færir okkur… það er aldrei að vita, kannski er hann undrabarn og þarf ekki á eiturlyfjum að halda, hann er svo náttúrulega uppdópaður hvort eð er.
hehe, já, þetta er nokkuð sniðugt quote :) Þetta mun vera tekið úr skrípóseríunni Diesel Sweeties.
Ég held ég ætli að halda nánari upplýsingum um þessi eBay kaup leyndum í bili, láta þetta koma á óvart – fólk getur spurt mig prívat og persónulega ef það er forvitið ;)
maple says
skoooo ástæðan fyrir því að bjössi vill ekki sjá þetta er að þetta er eitthvað bölvað popp sem hann hlustar ekkert á – hann vill bara eitthvað bölvað indie rokk
ástæðan fyrir því að ég sá mér ekki fært að dánlóda nema svona einu þarna er að þetta er allt bölvað popp eða ég hafði heyrt það áður – ég fúlsa við öllu nema pumpandi tussuelektrói – mæli með yelle – a cause de garcons (look it up on http://www.hypem.com) eða bara svona allri pop up, nýútkominni plötu.
maple says
og varðandi komandi tónlistarsköpun mína á korginn þá verður það allt argasta harðhausa tegnó eða hás. Ég spái því samt að það verði svona tvö ár þangað til við fáum að heyra eitthvað almennilegt frá hr. party.
Ævar says
Urrg bloggið þitt crashar peelinu mínu.. debug debug.
En já alltaf gaman af tónlistarblogginu, mæli með því að þú splittir þeim þá svona ef þú ætlar að stunda þetta, verður svona officialstation.com/mp3 eða eitthvað. Hafa allavega nokkrir haft það þannig… líka betra fyrir parsing :)
Hannes says
OK, gott mál. Búinn að fá einn mínus frá Bjössa, einn plús frá Ævari og svona hálfan plús frá maple (er það ekki?). Þannig að ég held kannski smá áfram að pósta tónlist.
Já, er ekki fínt að Peel crashaði? ;) Þá geturu fundið villuna og gert það betra :)
Betra fyrir parsing segiru… ekki alveg viss hvað þú ert að meina. En ef þú vilt hafa tónlistar-færslur svona meira sér, út af fyrir sig þá geturu notað tónlistar flokkinn eða mp3 taggið – þar færðu bara færslur varðandi tónlist (og sem innihalda að öllum líkindum mp3 lög).
En maple, indie rokk segiru… mætti ekki alveg flokka “She Wants Revenge – Tear You Apart” sem indie rokk? Allavega ekki mikil pop lykt af því. Ég skal síðan hafa í huga að pósta næst pumpandi tussuelektrói ef ég rekst á eitthvað gott. En ég er forvitinn að vita hvaða lagi þú download-aðir…
Síðan væri ég alveg til í að heyra smá experimental frá hr. party – það þarf ekkert að vera nein snilld, bara áhugavert að fylgjast með þróuninni.