Hvað er í gangi?

Það sem þú misstir af

Finnst þér langt síðan ég bloggaði síðast? Þá ertu greinilega ekki að fá hinn ráðlagða dagsskammt af Hannesi frá öllum helstu stöðunum. Þetta er ekki eini staðurinn þar sem ég set inn nýtt efni…

Sem dæmi horfði ég á 20 kvikmyndir í desember, 5 í janúar og nú þegar komnar 5 í febrúar og ég er búinn að gefa þeim öllum stjörnur og rita stuttlega um þær. Reyndar finnst maple það of margar myndir - hvað segja aðrir? Of mikið? Of lítið? Reyndar, í desember sá maður líka brot (örugglega allt frá 10-75%) úr slatta af myndum - en ég er ekki að færa þær þarna inn. Þannig að ég sá í rauninni fleiri myndir ;) En ég meina, þetta eru jólin, hvað á maður að gera annað en að tjilla með fjölskyldunni og horfa á bíó? En já, ég hvet fólk til að kommenta ef það hefur eitthvað að segja/bæta við varðandi þessa “kvikmyndagagnrýni”.

Síðan er ég búinn að bæta við nokkrum myndum á flickr.

Svo er maður náttúrulega að örbloggast - microblogging is so hot right now ;)

Að lokum má ekki gleyma Tumblr blogginu sem er nánast að replace-a þetta blogg. Það er bara svo miklu skemmtilegra og auðveldara að blogga á Tumblr. Sem dæmi er það af einhverjum ástæðum búið að taka mig að eilífu að klára þessa færslu… Á Tumblr þá hendi ég bara upp einhverri mynd/video, skrifa smá texta og þá er það komið - maður þarf að hugsa sem allra minnst ;) Ég er t.d. búinn að vera bæta við nýju efni á I am not taxi nánast daglega - og stundum nokkrum sinnum á dag. Nokkur dæmi:

Síðan er líka hægt að skoða safnið. Eða bara notfæra sér þennan gífurlega skemmtilega fídus: farðu á random færslu - þú getur skemmt þér klukkutímum saman :)

Ef þú kíkir reglulega á þetta blogg hérna þá held ég að það væri ekkert vitlaust að tékka líka stundum á Tumblr blogginu ;) Síðan fyrir þá sem eru RSS áskrifendur að þessu bloggi þá er náttúrulega Tumblr líka með RSS - þannig að þið getið fóðrað ykkur hérna.

Smá viðbót (útfrá athugasemd frá Bjössa og þar sem ég held að það séu ekki allir sem lesa alltaf kommentin): En hvað segir fólk, er meiri áhugi fyrir bloggfærslum hérna heldur en kæruleysis færslum á Tumblr? Vill fólk frekar efnismeiri bloggfærslur hérna sem er kannski aðeins meira vit í heldur en einhver fyndin video og aðra vitleysu?

I’m tired of using technology, why don’t you sit down on top of me?

2 athugasemdir varðandi “Það sem þú misstir af”

  1. Bjössi hefur þetta að segja:

    Ooh, she wants it, uh uh, she wants it
    Ooh, she wants it, (so), I gotta give it to her,
    Ooh, she wants it, uh uh, she wants it
    Ooh, she wants it, (so), I gotta give it to her,

    Ég vil samt að þú bloggir meira á þessari síðu, það er alltaf áhugavert að lesa þennan skít sem þú skrifar.

  2. Hannes hefur þetta að segja:

    Ef þú vilt fá stig fyrir þessa ágiskun þá þarf ég eiginlega að fá aðeins nánari upplýsingar um uppruna þessa quote - t.d. nafn á lagi og flytjanda eða nafn á persónu/leikara og kvikmynd.

    En já, ég var einmitt að pæla í að spurja út í það - hvort að fólk hafi meiri áhuga á efnismeiri bloggfærslum hérna sem er kannski aðeins meira vit í. Gott að fá feedback, danke schön. Ég tek þetta til íhugunar. (Ég bætti aðeins við færsluna).

Skildu eftir skilaboð eftir bípið

Hannes - Just walkin'... I am official station Pen and paper Aðgangur bannaður fyrir fólk með dökkt hár Iceland Airwaves 2006 - Reykjavik Art Museum Just grillin'... Here fishy, fishy... Attention: Keep gun holstered. FIRE KILLS CHILDREN! Iceland Airwaves 2005 - Nasa Gin and tonic Mary Jane vodka Turn me on

 

© 2008 Hannes