Hvað er í gangi?

Bensínverð - Er þetta ekki komið gott?

Bensínverð - 147,9 kr.

Héldu þið að ég væri að grínast? En já, ég held að ég sé búinn að mótmælast nóg ;) Ég neyðist til að rjúfa þögnina til að mótmæla öðru, mikilvægara málefni: Bensínverðinu! Hvað er mufkn málið?!

Núna í byrjun vikunnar fór allt í bál og brand - krónan í frjálsu falli og það mætti halda að Kreppan Mikla 2 sé á leiðinni í bíóhús nálægt þér…

Það er rúmlega ár síðan ég keypti bílinn sem þýðir að ég er búinn að vera taka bensín reglulega í rúmlega ár. Til að reikna út hvað bíllinn var að eyða hélt ég smá bensínbókhald. Ég var að ná alveg úr 9,8 L per 100 km niður í 7,8 lítra núna síðast - meðaltal var kringum 8,8. En það sem var mest sjokkerandi var hækkun bensínverðs þessa ~13 mánuði. Svona lítur þetta út:

Bensínverð - tafla

Ég var reyndar meiri hlutann af þessu tímabili í einhverjum Atlantsolíu pakka með svona dælulykil þannig að ég fékk 2 kr. afslátt en 14.3.2008 var ég í Shell pakka þar sem afslátturinn kemur eftir á… þannig að ef við segjum að þetta hafi verið 110,40 kr. 28.2.2007 - síðan samkvæmt síðu Atlantsolíu þá kostar líter af bensíni 145,80 kr. Sem þýðir að á rúmlega ári er bensínverð búið að hækka um 35,40 kr. eða 32,1%! Er ekki hægt að segja það sé frekar freaking míkið? Mun bensínlíterinn kosta 192,55 kr. eftir ár?! Hvenær segir fólk bara stopp og hættir að keyra bíla? Þegar bensínið kostar 250 kr.?

Núna kostar það mig tæpar 400 kr. á dag bara að keyra í vinnuna. Ég er virkilega farinn að fylgjast með akstrinum og reyna að keyra sem sparneytast. Það væri ágætt ef maður gæti haldið meðaltalinu undir 8 lítrum á hundraðið.

Bjössi ráðlagði mér að keyra alltaf á 50 km/klst og ekki fara yfir 3000 snúninga. Ekki slæm ráð - er fólk með einhver fleiri góð ráð til að lifa af þessa kreppu? Maður þarf að læra á öll ljósin í borginni til að sleppa að þurfa að stoppa á rauðu ljósi - eða bara hakka sig inn í stjórnkerfið og búa til fjarstýringu til að setja alltaf grænt ljós þegar maður er að nálgast ;) En það lítur allt út fyrir að ég þurfi að hætta í spyrnukeppnum út á Granda, maður getur ekki endalaust verið að spreða bensíni í þetta - og ég sem var á góðu róli, kominn með pink slip fyrir alveg helling af imprezzum…

Ég held að málið sé að kaupa 20 tunnur af bensíni og geyma út í garði - ég meina, bensínverðið er ekkert að fara lækka… Hvernig gengur annars hjá okkur Íslendingum að finna olíu? Er það ekki alveg að fara koma?

Er metro-lestarkerfið síðan ekki alveg að verða tilbúið? Allar kúl borgir þurfa að hafa neðanjarðarlestarkerfi.

Hver er til í að reyna fá magnafslátt á rafmagnsbílum? Ég held að það verði pottþétt heitasta trendið eftir smá… Eða fá sér einhverja hybrid græju…

Já, gleðilega páska og ekki vera að keyra neitt að óþörfu ;)

Inflation is a bitch.

11 athugasemdir varðandi “Bensínverð - Er þetta ekki komið gott?”

  1. maple hefur þetta að segja:

    Ef þú ætlar eitthvað að sleppa við þetta bensíndæmi þarftu að flytja frá íslandi - yfir í borg sem er með almenningssamgöngur (þá er ég ekki að tala um strætó, sem er system sem virkar ekki), kíktu á ny eða london eða eitthvað álika, ekki kíkja á LA eða SF. Eða bara - búa hliðina á vinnunni, þannig að þú getir labbað/hjólað þangað.

  2. maple hefur þetta að segja:

    p.s. mótorhjólapróf - it’s the shit these days

  3. Hannes hefur þetta að segja:

    Já, ég held að það sé alveg málið - flytja bara í New York. Þarf að finna einhvern töff skóla þar…

    Labbað í vinnuna segiru, hmm… kannski ætti ég bara að sækja um hjá CCP ;) Eða Landsbankanum - man ekki eftir öðrum vinnustöðum í göngufjarlægð sem koma til greina.

    Mótorhjól segiru… eyða þau eitthvað minna bensíni? En þá þarftu samt að vera með bíl yfir veturinn þegar þú getur ekkert verið að hjóla.

  4. Trausti hefur þetta að segja:

    varstu að mótmæla með vörubílstjórunum í dag?

  5. Bjössi hefur þetta að segja:

    Kortið sem gefur mér frítt í strætó er farið að heilla mig þessa dagana. Fyrir fátækan námsmann er bensínverðið löngu búið að ná sársaukamörkum. Ætli maður sé ekki bara sadómasó gaur.

    Kannski maður fái sér bara hjól.

  6. maple hefur þetta að segja:

    ég mótmælti með þeim

    það var snilld, brjálað gott veður og ég skrúfaði bara niður gluggann og hækkaði í sterióinu - chillaði - chillaxaði

  7. Hannes hefur þetta að segja:

    @Trausti: Já, algjörlega - ég var þarna fremstur í flokki, flautandi á fullu ;) Eitthvað þarf að gera - þetta gengur ekki svona lengur…

  8. Hildur hefur þetta að segja:

    Málið með mótorhjól er að manni er bara nákvæmlega sama hvað bensínið kostar…

    Mótorhjól er ekkert annað en leið til að breyta peningum í hamingju

    eða eins og maðurinn sagði, mótorhjól eyða ekki bensíni, þau nota það.

  9. Bjössi hefur þetta að segja:

    23. mars?!?!!?!?!?!??!?!?!!??!?!?!?!?!?!?!

  10. Hannes hefur þetta að segja:

    I know, I know. My bad… ég hef bara verið busy við annað. Ég skal taka mig til - ég skal dúndra inn færslu eins fljótt og ég get. Ekki vil ég nú bregðast dyggum lesendum mínum - úff, meira en mánuður, að maður skuli láta svona gerast, skandall!

  11. Dexter kominn til Íslands » I am official station hefur þetta að segja:

    [...] þetta er stupid “filler” blogg - en þetta er bara svona rétt svo dyggir lesendur fari ekki algjörlega yfirum yfir þessari bloggþögn. Ég hlýt að geta fundið mér tíma til að dúndra út almennilegu [...]

Skildu eftir skilaboð eftir bípið

XHTML: Það er hægt að nota þetta til að skreyta komment: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Hannes - Just walkin'... I am official station Pen and paper I am Hannes, I'm a code monkey Aðgangur bannaður fyrir fólk með dökkt hár Iceland Airwaves 2006 - Reykjavik Art Museum Just grillin'... Here fishy, fishy... Attention: Keep gun holstered. FIRE KILLS CHILDREN! Erpur Blazroca - I am Hannes, I'm creative Iceland Airwaves 2005 - Nasa Gin and tonic Mary Jane vodka Turn me on

 

© 2008 Hannes · Hafðu samband / Contact me