Hvernig losna ég við kvef og hálsbólgu?
Það virðist sem ég hafi nælt mér í smá kvef. Oft þegar ég fæ svona (massívt) kvef þá fæ ég líka smá hálsbólgu (eða svona erting í hálsinum). Það sem ég geri oftast til að losna við svona kvef vesen er t.d.:
- Fá sér helling af C-vítamíni
- Drekka nóg – bæði vatn og heitt te (jafnvel með smá hunangi)
- Drekk líka svona “Cold & Flu relief” te sem maður getur keypt t.d. í Bretlandi – það inniheldur Paracetamol sem á víst að vera voða sniðugt. Það er hægt að fá Panodil te duft í apótekum hérna sem ég held að sé nokkuð svipað.
- Fá sér Listerine (kvölds og morgna) – það er sótthreinsandi/bakteríueyðandi
- Reyna að fá nægan svefn (klassískt ráð sem maður nær kannski ekki alltaf að fylgja nógu vel)
- Hvítlaukur á víst að vera gífurlega læknandi – maður getur fengið sér svona hvítlaukshylki
- Fara í gufuna ef ég fer í ræktina
- Saltvatnsskolun á nefgöngum – var að prófa þetta í fyrsta skipti í langan tíma. Frekar skrítið en svínvirkar – hreinsar út allt hor.
Síðan náttúrulega að snýta sér reglulega (og ekki gleyma að þvo sér svo maður smiti ekki).
Hafa lesendur eitthvað við þetta að bæta – einhver húsráð sem virka vel? Hefur fólk t.d. tekið eftir því að kjúklingasúpa hjálpi við að flýta bata?
Bætt við:
Engiferte – engifer á víst að virka vel. Bara kaupa engiferrót og skera hana niður í búta, setja í svona te-síu-kúlu-eitthvað, hella heitu vatni yfir og láta liggja í nokkrar mínútur.
Önnur uppskrift:
Te sem reddar kvefinu: Sjóða sítrónusneiðar og engifer í vatni í slatta tíma, hella í bolla og bæta við hunangi. Drekka. (via @hallakol)
Frá sérfræðingunum:
