Hvað er í gangi?

Hvernig losna ég við kvef og hálsbólgu?

Það virðist sem ég hafi nælt mér í smá kvef. Oft þegar ég fæ svona (massívt) kvef þá fæ ég líka smá hálsbólgu (eða svona erting í hálsinum). Það sem ég geri oftast til að losna við svona kvef vesen er t.d.:

  • Fá sér helling af C-vítamíni
  • Drekka nóg - bæði vatn og heitt te (jafnvel með smá hunangi)
  • Drekk líka svona “Cold & Flu relief” te sem maður getur keypt t.d. í Bretlandi - það inniheldur Paracetamol sem á víst að vera voða sniðugt. Það er hægt að fá Panodil te duft í apótekum hérna sem ég held að sé nokkuð svipað.
  • Fá sér Listerine (kvölds og morgna)
  • Reyna að fá nægan svefn (klassískt ráð sem maður nær kannski ekki alltaf að fylgja nógu vel)
  • Hvítlaukur á víst að vera gífurlega læknandi - maður getur fengið sér svona hvítlaukshylki
  • Fara í gufuna ef ég fer í ræktina
  • Saltvatnsskolun á nefgöngum - var að prófa þetta í fyrsta skipti í langan tíma. Frekar skrítið en svínvirkar - hreinsar út allt hor.

Síðan náttúrulega að snýta sér reglulega (og ekki gleyma að þvo sér svo maður smiti ekki).

Hafa lesendur eitthvað við þetta að bæta - einhver húsráð sem virka vel? Hefur fólk t.d. tekið eftir því að kjúklingasúpa hjálpi við að flýta bata?

Rocking a ski mask, whether it’s June or February

9 athugasemdir varðandi “Hvernig losna ég við kvef og hálsbólgu?”

  1. maple hefur þetta að segja:

    uu já - við þetta að bæta er. ekki fara í ræktina kvefaður.

  2. Hannes hefur þetta að segja:

    Já, ég geri nú ekki mikið í því að fara í ræktina ef ég er veikur - maður fer í mesta lagi bara léttan hring og svo í gufuna. En jú, það er rétt - maður á að hvíla sig þegar maður er veikur…

  3. Einar hefur þetta að segja:

    Ég tek óverdósið á C-Vítamínið/Sólhatt. Og nóg af DVD.

  4. Hannes hefur þetta að segja:

    Já, Sólhatturinn er nokkuð vinsæll hjá sumum. Hef reyndar ekki fengið mér hann nýlega.

    DVD segiru… já, það er alveg möst ef maður er rúmliggjandi - það eða annað glápefni…

  5. Sigga hefur þetta að segja:

    oj, panodil-teið er viðbjóður. oj. en virkar. mæli með grænu tei í ástandi sem þessu.

  6. Sigga hefur þetta að segja:

    jú, og svo auðvitað viskílögg…

  7. Hannes hefur þetta að segja:

    Já, grænt te er alltaf hressandi og viskí (eða koníak) er líka alltaf bráðsniðugt þegar maður er með hálsbólgu.

  8. Dóri hefur þetta að segja:

    Kassi af bjór er það eina sem virkar fyrir mig.

  9. Hannes hefur þetta að segja:

    hehe, jú, kassi af bjór lagar náttúrulega öll vandamál ;)

Skildu eftir skilaboð eftir bípið

Hannes - Just walkin'... I am official station Pen and paper Aðgangur bannaður fyrir fólk með dökkt hár Iceland Airwaves 2006 - Reykjavik Art Museum Just grillin'... Here fishy, fishy... Attention: Keep gun holstered. FIRE KILLS CHILDREN! Iceland Airwaves 2005 - Nasa Gin and tonic Mary Jane vodka Turn me on

 

© 2008 Hannes