Hvað er í gangi?

Safnið fyrir July, 2008

July 28th, 2008 @ 1:52

Afmæli 2008

Þar sem maður átti víst stórafmæli í vikunni þá fannst mér viðeigandi að halda smá upp á að vera orðinn kvartöldungur og bauð til veislu. Það var grillað hið fínasta ungnauta rib eye og á meðan tókum við nett myndasession…

Grill photo session

Þetta var bara rétt byrjunin - yfir kvöldið voru teknar kringum 400 myndir og eru þær komnar hingað. Takkinn “festist” stundum inni þannig að inn á milli koma svona 10-30 myndir af sama hlutinum ;) Yfirleitt þegar ég set inn myndir þá hendi ég út auka myndum sem eru frekar svipaðar eða af sama hlutinum - en ekki í þetta skiptið… þetta er bara allur pakkinn. Ég ætlaði reyndar fyrst að setja þessar myndir inn á Facebook til að geta taggað þær alveg í klessu en eftir að hafa prófað svona 6 sinnum og fá alltaf “Upload Failed. Please try again.” þá gafst ég upp - Facebook er nú kúl síða en mynda fídusinn þeirra fær ekki alveg 10 stjörnur.

Eftir matinn (sem var virkilega góður) var pakkatími. Ég fékk snilldargjafir - Svona Fisheye Lomography myndavél sem ég hef verið að spá í að fá mér nokkuð lengi - mér finnst lomo myndir frekar kúl og líka fisheye myndir, þannig að þetta er brillíant combo :)

Fisheye2

Fisheye2 camera

Þetta gerir myndavél númer 5 sem ég eignast - maður er kominn með nokkuð gott myndavéla arsenal ;) Langt síðan maður hefur tekið á filmu - verður spennandi að leika sér með það inn á milli. Strákarnir voru reyndar búnir að taka 18 myndir á filmuna áður en þeir mættu - verður spennandi að sjá hvað kemur út úr því… Ég ætlaði með filmuna í framköllun í dag en lókal búðin er ekki opin á sunnudögum - þá fer ég bara first thing in the morning.

Síðan fékk ég Courvoisier VSOP koníak sem er náttúrulega bara pimp :)

Le Cognac de Napoleon

Þá er náttúrulega við hæfi að skella inn smá tóndæmi:

Busta Rhymes - Pass the Courvoisier

Enda var þetta lag spilað þegar ég opnaði pakkann :)

Þótt margar af myndunum í þessu albúmi séu svona nokkuð random þá eru alveg frekar margar nokkuð flottar þarna inn á milli. Besta trikkið til að mynda partý er að skilja myndavélina eftir einhvers staðar þannig að hver sem er getur gripið hana og smellt nokkrum af - þannig að ég á ekki heiðurinn af nema litlum hluta af þessum myndum.

Já, ég segi bara takk fyrir mig - maður þarf klárlega að gera svona aftur fljótlega…

We got food everywhere as if the party was catered.
Hannes - Just walkin'... I am official station Pen and paper I am Hannes, I'm a code monkey Aðgangur bannaður fyrir fólk með dökkt hár Iceland Airwaves 2006 - Reykjavik Art Museum Just grillin'... Here fishy, fishy... Attention: Keep gun holstered. FIRE KILLS CHILDREN! Erpur Blazroca - I am Hannes, I'm creative Iceland Airwaves 2005 - Nasa Gin and tonic Mary Jane vodka Turn me on

 

© 2008 Hannes · Hafðu samband / Contact me