May 22nd, 2009 @ 0:37 |
fisheye fisheye fisheye lomo lomo lomo
Nýjasti fisheye lomo pakkinn…
Það voru nokkrar myndir í byrjun (sem ég tók áður en ég framkallaði síðustu lomo myndirnar) sem eru eiginlega ónýtar, nánast bara gráar og sást ekkert hvað var í gangi. En núna ætti ég að vera búinn að læra á þetta og get vonandi komið í veg fyrir skemmdar myndir í framtíðinni. Ég prófaði nú að taka eina mynd með þreföldu multiple exposure (MX) þar sem það var takmörkuð birta til að sjá hvort það gæti reddað því, en svo var ekki – var bara grá klessa :)
Ég var töluvert að leika mér með multiple exposure (mynd tekin ofan á mynd) á þessari filmu og það kemur oft frekar skemmtilega út.
Var líka smá að testa long exposure (Bulb stillingin og síðan bara halda inni takkanum) – kom misvel út. Þarf að muna að reyna hafa myndavélina helst stöðuga á einhverjum fleti.
- Vaska upp
- Graffiti flip
- Fisheye brunahani
- Ekki hugmynd hvað þetta er
- Nova í Nova MX
- Bekkur og hafið MX
- Too much light
- Brunahana flip
- KR leikur
- Traffík
- Nova traffic
- Byggingarkrani MX
- VW Touareg
- Light trails og bolti
- Á rauðu ljósi
- Hlynur uppi á Esju
- Esjan long exposure
- Umferð fyrir neðan Esjuna
- Trex rúta
- Traffic light trails
- Sumardagur MX
- Túlipani MX
- Reykjavík brunahani
- Bensínstöð MX
- Bækur mínus 30-90%
- Multiple exposure madness
- 4 corners




























