Archives for January 2012
Contraband – endurgerð af Reykjavík-Rotterdam
Trailer-inn fyrir Contraband:
Já, ég verð að tékka á þessu… lítur út fyrir að vera frekar klikkuð mynd – aðeins meira action, meiri keyrsla heldur en í Reykjavík-Rotterdam. Hún var samt algjör snilld, gaf henni 8 stjörnur og sagði á kvikmyndasíðunni minni:
Mjög töff íslensk action mynd. Virkilega vel gerð. Gott handrit og góðir leikarar. Mjög spennandi á köflum. Ég vil fá fleiri svona íslenskar myndir…
Fullt af flottum leikurum. Baltasar er alveg að meika það… verður spennandi að fylgjast með honum í framtíðinni. Allar líkur á að hann sé bara rétt að byrja feta sig í Hollywood.
Síðan virðist Ólafur Darri Ólafsson líka vera í þessari mynd – honum bregður þarna fyrir í sýnishorninu.
Aldrei að vita nema maður skelli sér á Contraband um helgina.
Food & hip-hop. Doesn’t get much better than this.
Classic Nintendo games #retro #nostalgia #goodtimes
Donating… #trueblood
9 mánuðir af Hannesi – Everyday verkefni í vinnslu
Ég er ennþá að taka mynd af mér á hverjum degi :) Orðið fínasta safn… 9 mánuðir:
Þetta er s.s. komið í 55 sekúndur, kringum 270 myndir og nokkuð áhugavert að horfa á hröðu útgáfuna (hin myndböndin eru gerð með “Slow” stillingunni í Everyday app-inu):
9 mánuðir á 18,3 sekúndum :)
Þetta er svo skemmtilegt project að ég sé ekkert fram á að hætta þessu á næstunni ;)