Hvað er í gangi?

February 21st, 2008 @ 1:22

Það sem þú misstir af

Finnst þér langt síðan ég bloggaði síðast? Þá ertu greinilega ekki að fá hinn ráðlagða dagsskammt af Hannesi frá öllum helstu stöðunum. Þetta er ekki eini staðurinn þar sem ég set inn nýtt efni…

Sem dæmi horfði ég á 20 kvikmyndir í desember, 5 í janúar og nú þegar komnar 5 í febrúar og ég er búinn að gefa þeim öllum stjörnur og rita stuttlega um þær. Reyndar finnst maple það of margar myndir - hvað segja aðrir? Of mikið? Of lítið? Reyndar, í desember sá maður líka brot (örugglega allt frá 10-75%) úr slatta af myndum - en ég er ekki að færa þær þarna inn. Þannig að ég sá í rauninni fleiri myndir ;) En ég meina, þetta eru jólin, hvað á maður að gera annað en að tjilla með fjölskyldunni og horfa á bíó? En já, ég hvet fólk til að kommenta ef það hefur eitthvað að segja/bæta við varðandi þessa “kvikmyndagagnrýni”.

Síðan er ég búinn að bæta við nokkrum myndum á flickr.

Svo er maður náttúrulega að örbloggast - microblogging is so hot right now ;)

Að lokum má ekki gleyma Tumblr blogginu sem er nánast að replace-a þetta blogg. Það er bara svo miklu skemmtilegra og auðveldara að blogga á Tumblr. Sem dæmi er það af einhverjum ástæðum búið að taka mig að eilífu að klára þessa færslu… Á Tumblr þá hendi ég bara upp einhverri mynd/video, skrifa smá texta og þá er það komið - maður þarf að hugsa sem allra minnst ;) Ég er t.d. búinn að vera bæta við nýju efni á I am not taxi nánast daglega - og stundum nokkrum sinnum á dag. Nokkur dæmi:

Síðan er líka hægt að skoða safnið. Eða bara notfæra sér þennan gífurlega skemmtilega fídus: farðu á random færslu - þú getur skemmt þér klukkutímum saman :)

Ef þú kíkir reglulega á þetta blogg hérna þá held ég að það væri ekkert vitlaust að tékka líka stundum á Tumblr blogginu ;) Síðan fyrir þá sem eru RSS áskrifendur að þessu bloggi þá er náttúrulega Tumblr líka með RSS - þannig að þið getið fóðrað ykkur hérna.

Smá viðbót (útfrá athugasemd frá Bjössa og þar sem ég held að það séu ekki allir sem lesa alltaf kommentin): En hvað segir fólk, er meiri áhugi fyrir bloggfærslum hérna heldur en kæruleysis færslum á Tumblr? Vill fólk frekar efnismeiri bloggfærslur hérna sem er kannski aðeins meira vit í heldur en einhver fyndin video og aðra vitleysu?

I’m tired of using technology, why don’t you sit down on top of me?
January 26th, 2008 @ 21:02

Hress 2007

Fólk er greinilega alveg æst í að sjá Hress 2007 listann ;)

Já, “Hress Collezion” byrjaði allt með því að ég ætlaði að skrifa nokkur lög á disk seint árið 2002. Ætli ég hafi ekki skrifað þetta til að geta blastað eitthvað þegar ég var að krúsa um borg óttans… Mig vantaði eitthvað nafn til að krota á diskinn og þar sem flest lögin voru nokkuð hress (fjörug, skemmtilegur taktur, koma manni í gott skap…) þá skrifaði ég á diskinn Hress 2002. Árið 2003 hlustaði ég töluvert á þennan disk og var greinilega ekkert að búa til nýjan disk - Hress 2003 er ekki til. Meirihluta 2004 var ég nokkurn veginn tölvulaus [sjá "Stóra Grundtvigs ránið"] þannig að ég var ekki mikið að braska í að skrifa diska eða safna tónlist þá. En 2005 byrjaði ég aftur að safna og bjó til playlista í iTunes sem ég kallaði náttúrulega Hress 2005.

Ég hef svo verið að búa til nýjan lista á hverju ári síðan þá. Án þess að það hafi verið markmiðið þá eru allir listarnir hingað til svipað langir. Þeir innihalda 27-29 lög og eru 1,9-2,2 klst. - alveg upplagt til að gefa út sem tvöfalt albúm ;)

En að Hress 2007. Þetta eru yfirleitt lög sem hafa verið gefin út 2007 - en ekkert endilega… kannski heyrði ég þau fyrst 2007 eða bara var að fíla þau 2007. Þannig að það eru ekkert mjög strangar reglur í kringum þetta, nema kannski að það meikar kannski ekki sens að hafa sama lagið á fleiri en einum lista. Þetta eru mörg mismunandi lög, úr mismunandi tónlistargreinum - en þau eiga eitt sameiginlegt að þau eru öll alveg gífurlega hress :) Sum lögin eru þó hressari en önnur.

Here we go:

Fischerspooner - Emerge

Brazilian Girls - Jique (MSTRKRFT Remix)

Tiga - You Gonna Want Me
- held ég þurfi að gefa hr. partý credit fyrir að kynna mér fyrir þessu

GusGus - Hold You (Hermigervil’s remix)
- sum lögin hef ég nú póstað áður

Simian Mobile Disco - Hustler
- var búinn að pósta video-inu á I am not taxi

Justice - D.A.N.C.E (MSTRKRFT Remix)
- Justice maður… þeir væru örugglega með fleiri lög á listanum ef ég væri búinn kynna mér þá betur, alveg að klikka á þessu - eru einhver lög sem er alveg möst að tékka á betur?

Seal - Amazing (Thin White Duke Main Mix)

Britney Spears - And Then We Kiss (Junkie XL Remix)

Justin Timberlake - What Goes Around… / …Comes Around

Teddybears - Cobrastyle

The O’Jays - Put Your Hands Together
- klárlega elsta lagið á listanum (frá 1973), en ég var að fara í gegnum safnið mitt og áttaði mig á því hvað það er gífurlegur hressleiki í þessu lagi :)

Paulo Nutini - New Shoes

Air - Mer du Japon

Hot Chip - My Piano
- heyrði þetta fyrst hjá Hjalta

Bloc Party - She’s Hearing Voices

Metric - Monster Hospital (MSTRKRFT remix)

Bangers & Cash - Loose
- video á I am not taxi

The Fiery Furnaces - Automatic Husband
- Einar benti mér á þetta

MSTRKRFT - Street Justice

Bloc Party - The Prayer

Kanye West - Stronger

Beyoncé - Upgrade U (Feat. Jay-Z)

Rihanna - Shut Up and Drive

Britney Spears - Piece Of Me

Seal - Amazing

GusGus - Moss

The Prodigy - Goa

GusGus - David (Darren Emerson Mix)
- ég tók mér það bessaleyfi að bæta þessu við listann bara núna - rak augun í þetta þegar ég var að skoða mp3 möppuna á officialstation.com - auðvitað á þetta heima hérna… Ari á heiðurinn af því að plögga þetta lag.

Já, MSTRKRFT komu nokkuð sterkir inn 2007 - eiga eitt lag á listanum og 3 remix. Síðan er GusGus náttúrulega að standa sig nokkuð vel með 3 lög af 28.

Ef fólk er að fíla þennan lista þá er aldrei að vita nema ég sé til í að pósta líka Hress 2002, Hress 2005 og Hress 2006 - hvað segir dómnefnd? Síðan er ég meira að segja líka með lista sem heitir Hress - Rock & Roll ;)

I like it. I like it a lot.
January 15th, 2008 @ 1:49

Ed Harris að auglýsa fyrir SÍBS?

Ég var að tékka á mbl.is og var bara að skrolla niður þegar mér sýndist ég sjá mynd af Ed Harris í auglýsingu þarna… þetta var s.s. auglýsing fyrir Happdrætti SÍBS. Efaðist nú um að SÍBS hefði sama budget og Kaupþing til að fá Hollywood celebrity til að auglýsa fyrir sig - og þegar auglýsingin var búin að rúlla einn hring og myndin af gaurnum kom aftur sá ég nú að þetta var ekki Ed Harris. En finnst ykkur þeir ekki svolítið líkir?

Ed Harris lookalike

Ed Harris

Hey, ein pæling… nú fékk ég svona meh viðbrögð síðast þegar ég tékkaði hvort fólk hefði áhuga á því að ég væri að pósta tónlist. Síðustu ár hef ég í gamni verið að setja saman playlista sem ég kalla “Hress 200#”. Þannig að ég er með á tölvunni þennan gífurlega hressa playlista Hress 2007 - nú er bara spurning hvort einhver þarna úti hafi áhuga á að ég pósti þeim lista (með tóndæmum)?

All I want to do is be more like me and be less like you
December 31st, 2007 @ 8:00

Gleðilega hátíð

Christmas lights

Ætlaði nú að vera löngu búinn að henda inn kveðju hingað, en whatever…: Gleðilega hátíð! Maður er bara búinn að vera svo upptekinn við að troða í sig kalkúni, riz a la mandé og öðru gúmmilaði, spila Cluedo, horfa á bíómyndir og síðan var ég nett veikur (örugglega eftir allt þetta át).

En já, sei, sei… það voru bara hvít jól eftir allt saman - alltaf jólalegra þegar jörðin er þakin snjó. [insert obligatory white christmas photo]:

white christmas

Síðan komu bara þrumur og eldingar þegar maður var nýbyrjaður að borða jólamatinn - frekar magnað.

Ég er líka búinn að vera leika mér svolítið með nýja leikfangið mitt:

My new toy - Canon EF 35mm f/2 prime lens

Ég stefni á að taka mun fleiri myndir árið 2008 heldur en ég gerði í ár. Aldrei að vita nema ég fjárfesti í fleiri linsum og öðrum myndavélagræjum.

Hérna eru nokkrar jólamyndir í viðbót:

christmas tree

christmas ornaments

Hvað segiði, er þetta flickr material? Ætti ég að setja eitthvað af þessum myndum á flickr?

Jæja, sjáumst á nýju ári og passið ykkur að fjúka ekki í burtu ;)

I’m smiling because I have no idea what’s going on
December 12th, 2007 @ 2:06

Töff tónlist

Mér finnst alltaf gaman að uppgötva nýja og góða tónlist. Það er eins og að finna gullmola þegar maður (oft fyrir tilviljun) rekst á eitthvað sem manni finnst algjör snilld. Til að (vonandi) hjálpa lesendum að uppgötva nýja tónlist þá eru hérna nokkur lög sem ég hef rekist á…

Teddybears - Cobrastyle
Þetta var intro lagið í pilot-num á Chuck (sem eru btw frekar góðir þættir). Gífurlega hressandi lag.

Bangers & Cash - Loose
Eitthvað skemmtilegt við þetta lag - mikill kraftur í þessu - kannski ekki ósvipað og annað sem Spank Rock hefur verið að gera (hann er s.s. annar helmingurinn af Bangers & Cash).

She Wants Revenge - Tear You Apart
Heyrði þetta í The Number 23 - passaði mjög vel við myndina.

Róisín Murphy - Dear Miami
Þetta er víst gellan úr Moloko. Seiðandi lag…

Hún er nú búin að klúðra nokkurn veginn öllu sem hún gat klúðrað, þannig að það kom mér svolítið á óvart hvað ég var að fíla þetta lag… Ég held að þetta lag gæti alveg virkað í góðu hljóðkerfi á einhverjum klúbbi með dúndrandi bassa:

Britney Spears - Piece Of Me

Bjössi kom reyndar með góðan punkt:

Tónlistarmenn búa til betri tónlist þegar þeir eru á eiturlyfjum…

(eða eitthvað þannig). Þannig að kannski er hún á réttri braut? Neh…

Talandi um eiturlyf… hérna er smá craziness:
Yo Majesty - Club Action (Chris Bagraiders Sailing to Baltimore Edit)
og meira: Herve & Yo Majesty - Get Low Club Action (Scattermish Timid Fuckup edit)

Snoop Dogg - Sensual Seduction
og dirty útgáfan af laginu: Sexual Eruption
Eins og ég sagði á I am not taxi þá skiptir ekki máli hvað Snoop Dogg gerir, það er alltaf pimp.

Seal - Amazing
Gífurlegur hressleiki í gangi. Síðan er ég líka til gamans með Kaskade Remix og Thin White Duke Main Mix

Var þetta nokkuð of mikið af lögum? :)
Ætti ég að gera meira af svona?

I think I’m destined to be a single, not an album.
Hannes - Just walkin'... I am official station Pen and paper Aðgangur bannaður fyrir fólk með dökkt hár Iceland Airwaves 2006 - Reykjavik Art Museum Just grillin'... Here fishy, fishy... Attention: Keep gun holstered. FIRE KILLS CHILDREN! Iceland Airwaves 2005 - Nasa Gin and tonic Mary Jane vodka Turn me on

 

© 2008 Hannes