Hvað er í gangi?

July 18th, 2009 @ 23:45

Keyra frá Sauðárkróki til Reykjavíkur

Sauðárkrókur - Looking back...

Að lokum (alla vega síðustu stafrænu myndirnar) eru nokkrar myndir sem ég tók á stóru myndavélina á leiðinni frá Sauðárkróki til Reykjavíkur.

Já, nokkrir punktar í viðbót varðandi þessa legendary ferð (bara svona for the record): Gammel Dansk með Muggi, vatnsblöðruslagur við einhverja 10 ára gutta fyrir utan húsið, blóðnasir, jello shots, svaf á milli dýnanna… gott stöff :)

Það er sko meira »

July 18th, 2009 @ 21:25

Sauðárkrókur – daginn eftir

Brotna rúðan

Síðan eru hérna nokkrar myndir frá deginum eftir ágætlega viðburðaríkt kvöld.

Við tókum léttan rúnt í kringum Krókinn og héldum síðan heim til Reykjavíkur.

Það er sko meira »

July 5th, 2009 @ 23:32

Sauðárkrókur road trip – Keyra til Sauðárkróks

Myndir úr stóru vélinni sem ég tók á leiðinni á Krókinn.

Algjört möst að stoppa reglulega til að teygja sig og taka nokkrar myndir… Síðan eru náttúrulega líka klassísku stoppin á leiðinni norður: Staðarskáli og Blönduós.

Það er sko meira »

July 2nd, 2009 @ 1:02

Road trip! Ferðalag til Sauðárkróks

Borgarnes

Við félagarnir skelltum okkur til Sauðárkróks um helgina… Alltaf gaman að ferðast smá um landið og upplagt að skella sér í road trip á Krókinn.

Ég kem kannski með meiri details í næstu ljósmyndafærslum sem koma vonandi á næstu dögum en í stuttu orði var þessi ferð snilld – hellingur af hressandi uppákomum. En ég var s.s. með eina eða tvær myndavélar á lofti, jafnvel fjórar ;)

Síðan smá útidúr… ég tók eftir að gæðin á myndunum voru ekki alveg nógu góð eftir að ég minnkaði þær. Þannig að ég tók upp nýtt action í Photoshop sem geymir myndirnar í betri gæðum (quality 10 í staðinn fyrir 8). Ég nota s.s þetta action í Automate > Batch til að minnka allar myndirnar í albúminu í einu. Þannig að núna ættu myndirnar vonandi að líta aðeins betur út… Það þýðir reyndar að myndirnar eru aðeins stærri og gæti tekið smá lengur að birtast – en maður hefur alltaf þolinmæði fyrir fegurð, ekki satt ;)

Það er sko meira »

May 7th, 2009 @ 0:11

Akureyri 2009 – á leiðinni heim til Reykjavíkur

Nokkrar myndir sem ég tók á stóru vélina á leiðinni heim til Reykjavíkur. Nokkrar í Akureyri rétt áður en við lögðum af stað. Síðan stoppuðum við stutt í Borgarnesi – ég steig út til að teygja mig og notaði tækifærið til að smella af nokkrum myndum.

Þá er þessu ferðalagi lokið – keyrði vel yfir 800 km á þessum stutta tíma. Cruise control er snilld :) Maður hafði nú ekki komið oft til Akureyrar en það er greinilega vel hægt að djamma þar til að breyta aðeins til.

Það er sko meira »

May 6th, 2009 @ 20:58

Akureyri 2009 – keyra til Reykjavíkur

Etið á Bautanum

Daginn eftir GusGus tónleikana var það bara að tékka sig út. Fórum síðan í sundlaugina þar sem lékum okkur í rennibrautunum – klikkað fjör :) Eftir að hafa buslað í lauginni fengum við okkur að borða á Bautanum. Ég fékk mér BLT samloku og hún var ekki eins góð og ég bjóst við… Stoppuðum líka til að fá okkur Brynju-ís.

Síðan var það bara að keyra heim. Hlynur co-driver greip í myndavélina og smellti af nokkrum…

Það er sko meira »

Hannes - Just walkin'... I am official station Pen and paper I am Hannes, I'm a code monkey Aðgangur bannaður fyrir fólk með dökkt hár Iceland Airwaves 2006 - Reykjavik Art Museum Just grillin'... Maple grilling Here fishy, fishy... Attention: Keep gun holstered. FIRE KILLS CHILDREN! Erpur Blazroca - I am Hannes, I'm creative Iceland Airwaves 2005 - Nasa Gin and tonic Mary Jane vodka Inter Rail - Russian train Eiffel Tower Entrance to Internet Hostel Rock am Ring 2004 - Linkin Park Hump cutout postcard Turn me on

 

© 2010 Hannes · Hafðu samband / Contact me