Hvað er í gangi?

January 12th, 2010 @ 23:12

Afmæli Óla 2009 eins og fiskarnir sáu það

Óli átti afmæli “um daginn” (nóvember á síðasta ári). Ég var beðinn um að ljósmynda partýið. Ég tók 761 mynd á stóru vélina – veit ekki hvort ég muni setja eitthvað af þeim myndum á netið, þeir helstu ættu að vera búnir að sjá myndirnar. Það er hægt að biðja mig um VIP passa og ég sé til hvað ég get gert.

Ég tók líka með Lomography vélina – alltaf gaman að lomo fisheye partýljósmyndum. Njótið:

Það er sko meira »

October 13th, 2009 @ 1:01

GusGus 24/7 útgáfutónleikar og djamm rugl

Það er nokkuð síðan, en ég fór á útgáfutónleika GusGus. Þeir voru sko að gefa út plötuna 24/7 sem er alveg eðal, virkilega smooth stöff. Þetta voru meira að segja útiútgáfutónleikar – Nikita var að opna “flagship” búðina sína á Laugaveginum og þessi tvö stolt Íslands ákváðu að slá strengjum saman og fagna þessum merku áföngum með tónleikum í bakgarðinum hjá Nikita aka “Nikita garðinum”.

Það var alveg slatti af liði í garðinum, temmilega stappað. Þrátt fyrir frekar slæmt veður þessa viku og fyrr um daginn þá var veðrið nú ekkert að skemma fyrir – einstaka skúrir sem var ekkert til að gera veður út af.

Ég greip tvö video…

GusGus – Add This Song – Live in Nikita’s backyard – Album release concert.

Þeir voru klappaðir upp og tóku Moss:

GusGus – Moss – Live in Nikita’s backyard – Album release concert.

Nokkrar myndir frá tónleikunum og síðan eitthvað frá djamm ruglinu sem fylgdi eftir…

Það er sko meira »

September 13th, 2009 @ 20:58

Mega Lomography Fisheye pakki

Ég fór með 4 filmur í framköllun um daginn… og ég fékk þetta allt saman í einni hrúgu – alveg búið að rugla röðinni á myndunum. Þannig að ég ætla bara að pósta þessu sem einni hrúgu – partý mixast saman en það ætti ekki að vera of hræðilegt.

Þetta er meðal annars myndir úr partý hjá Bjössa, afmælispartýinu mínu og almennar sumarmyndir.

Nokkrir gullmolar þarna inn á milli…

Það er sko meira »

August 2nd, 2009 @ 21:38

Afmæli 2009 – all good things come to an end

Jæja, þá er þetta að verða búið… Síðasti myndapakkinn.

Gott fjör :)

Það er sko meira »

July 30th, 2009 @ 22:55

Afmæli 2009 – let’s get rowdy

Hvað segiru? Viltu sjá fleiri ljósmyndir úr þessu magnaða afmælisteiti?

Ekkert mál, nóg eftir.

Það var svo mikið af fólki að partýið dreifðist út um alla íbúð – m.a. herbergið hans Einars. Eitt leiddi að öðru og einhvern veginn enduðu allir með að máta fötin hans :) Úr því varð fínasta myndasería.

Það er sko meira »

July 30th, 2009 @ 1:05

Afmæli 2009 – water sports

Einar fékk þessa fínu vatnsbyssu í afmælisgjöf og hún var strax tekin í notkun – ýmist við að verja húsið eða ráðast á veislugesti.

Mér finnst slatti af þessum myndum sem ég tók út um gluggann á meðan Hlynur sprautaði út nokkuð töff – kúl gradient í gangi á himninum og stundum náði ég bununni nokkuð vel.

Það er sko meira »

Hannes - Just walkin'... I am official station Pen and paper I am Hannes, I'm a code monkey Aðgangur bannaður fyrir fólk með dökkt hár Iceland Airwaves 2006 - Reykjavik Art Museum Just grillin'... Maple grilling Here fishy, fishy... Attention: Keep gun holstered. FIRE KILLS CHILDREN! Erpur Blazroca - I am Hannes, I'm creative Iceland Airwaves 2005 - Nasa Gin and tonic Mary Jane vodka Inter Rail - Russian train Eiffel Tower Entrance to Internet Hostel Rock am Ring 2004 - Linkin Park Hump cutout postcard Turn me on

 

© 2010 Hannes · Hafðu samband / Contact me