Þetta er rosalega stikla/trailer! Virðist vera mjög spennandi og smá öðruvísi zombie mynd… hlakka til :) Kaótískt… apocalypse stemning… þessir uppvakningar virðast ekki vera dofnir og hægir eins og í mörgum myndum – frekar eins og þeir fái auka kraft.
Þessi mynd er víst byggð á bók eftir Max Brooks. Hann skrifaði líka The Zombie Survival Guide sem ég á, rétt búinn að kíkja í hana, en ég þarf klárlega að lesa meira af henni :)
Ég gaf The Expendables 9 stjörnur, enda var þetta algjör snilld – ég gef ekki mörgum myndum 9 stjörnur. Smá brot úr kvikmyndagagnrýninni minni:
Þvílík snilld! Þvílíkar sprengingar! Þvílíkt testosterón! Þetta er alveg mögnuð mynd. Annað eins safn af vöðvabúntum, hasarhetjum og harðhausum hefur ekki sést.
Nú er framhaldið væntanlegt, The Expendables 2 og það eru allar líkur á að þetta verði eitthvað rosalegt. Alla vega miðað við þetta sýnishorn/trailer sem var að detta á Netið:
Ég hlakka mikið til að sjá þessa. Það gæti jafnvel verið að maður sjái hana í lúxussali í góðra vina hópi, það væri snilld.
(via @bearjay / bjorn.jonsson.35)
Don’t you make a sound or some shit is going down.
Já, ég verð að tékka á þessu… lítur út fyrir að vera frekar klikkuð mynd – aðeins meira action, meiri keyrsla heldur en í Reykjavík-Rotterdam. Hún var samt algjör snilld, gaf henni 8 stjörnur og sagði á kvikmyndasíðunni minni:
Mjög töff íslensk action mynd. Virkilega vel gerð. Gott handrit og góðir leikarar. Mjög spennandi á köflum. Ég vil fá fleiri svona íslenskar myndir…
Fullt af flottum leikurum. Baltasar er alveg að meika það… verður spennandi að fylgjast með honum í framtíðinni. Allar líkur á að hann sé bara rétt að byrja feta sig í Hollywood.
Síðan virðist Ólafur Darri Ólafsson líka vera í þessari mynd – honum bregður þarna fyrir í sýnishorninu.
Aldrei að vita nema maður skelli sér á Contraband um helgina.
Ég sá trailer-inn fyrir Borgríki þegar ég fór á Warrior um daginn. Mjög töff. Gaman að sjá svona kúl, íslenskar spennumyndir.
Hérna er trailer (eða stikla eins og það kallast víst á íslensku) fyrir myndina Borgríki:
Annar “teaser”:
Reyndar svolítið síðan ég frétti fyrst af þessari mynd – ég Like-aði þessa forstiklu víst fyrir ~2 árum.
Borgríki er væntanleg í kvikmyndahús þann 14. október. Bíð spenntur…
Já, síðan er þessi bíómynd líka tekin upp á Canon 5D Mark II, sem er frekar kúl. Low budget… Ég er einmitt að gæla við að fá mér 5D Mark III þegar hún kemur á næsta ári.
She’s got me love stoned ..I think that she knows
Þessi færsla hefur eitthvað með græja, trailer að gera.
Nýr flokkur: Kvikmyndir sem mig langar að sjá. Ég hef reyndar áður póstað um bíómyndir sem mig langar að sjá á næstunni en mér fannst ágætt að búa til sér flokk um þetta + markmiðið er að gera meira af því að skella inn stuttum færslum sem eru í raun bara myndbrot/auglýsingar úr kvikmyndum sem ég ætla að sjá (í bíó eða heima).
Verður maður ekki að sjá Hangover 2? Af þessum trailer að dæma gæti hún verið kúl + fyndin. Greinilega með aðeins meiri budget ;)
I love it when you feel like getting nasty
Þessi færsla hefur eitthvað með bloggið, trailer að gera.