Smá umfjöllun um kvikmyndir sem ég hef séð nýlega… Stutt kvikmyndagagnrýni – ég nenni að skrifa mismikið, fer yfirleitt eftir því hvað mér dettur fyrst í hug – oft bara að hugsa upphátt.
Stjörnugjöf… já, stjörnugjöf er eiginlega svolítið bullshit – ég held að það sé mismikið bakvið stjörnur sem fólk gefur myndum. Hjá mér er það yfirleitt bara gut feeling – hversu skemmtileg/fyndin/spennandi/flott fannst mér myndin. Upplifunin.
Það er ekki eins og ég sé með einhvern ákveðinn skala/staðal eða tékklista – “já, flottur bílaeltingaleikur – 1 stjarna, töff byssubardagi – bætist við 1,5 stjarna…” ;) Síðan getur stjörnugjöfin oft verið svona plús/mínus 1-2 stjörnur.
Hlaðvarp um kvikmyndir
Það er vert að minnast á að ég og Björn erum með hlaðvarp um kvikmyndir sem við köllum Búnir með poppið. Það er hægt að fylgjast með okkur í gegnum Facebook, Twitter og Instagram – og svo auðvitað hlusta á þættina á Spotify, Apple Podcasts, Google Podcasts og öðrum stöðum þar sem fólk hlustar á hlaðvörp.
Sort list by: title | rating | view date ↓
April, 2014
-
The Grand Budapest Hotel (2014)
2014-04-06 00:53Mjög fyndin mynd. Fullt af kómískum atriðum og orðasamskiptum. Gott handrit. Skemmtilegar og skrautlegar persónur - og nóg af þeim. Fullt af þekktum og góðum leikurum (sjaldan sem maður sér svona marga þekkta leikara í einni mynd).
0.3
Fínasta keyrsla (flæði) og áhugaverður söguþráður. Spennandi. Leit vel út - skemmtileg stemning, skemmtilegir litir. Þetta var smá eins og barnaævintýri fyrir fullorðna. Mjög vel leikstýrð. Listaverk. Wes Anderson er með einstakan og skemmtilegan stíl. March, 2014
-
2014-03-21 02:03
(Myndin kallast "Dead Snow: Red vs. Dead" á ensku) Fyndin vitleysa. Nokkurs konar Nazi-zombie-splatter grín. Mörg atriði nokkuð fyndin og svo nokkur atriði frekar súr/fáránleg (en þau voru stundum líka bara fyndin). Mjög svartur húmor. Sum atriðin voru frekar brútal (gore). Skrautlegar (og skemmtilegar) persónur. Alltaf gaman að sjá Ísland í bíómyndum og helling af Íslendingum á credit listanum.
0.3 -
2014-03-19 00:52
Mögnuð mynd. Risastór. Virkilega spennandi. Drama. Mjög töff action atriði. Áhugaverður ævintýraheimur. Vel leikin - enda einvala lið leikara. Nick Nolte stóð sig vel sem gamall steinn, röddin mjög viðeigandi.
0.3
Íslenska náttúran var mögnuð í sínu hlutverki - endalaust af fjölbreyttri fegurð. Mér fannst Ísland gera rosalega mikið fyrir þessa mynd - gerði hana að enn meira listaverki. Myndin leit mjög vel út - búningar, umhverfi o.s.frv.
Mér fannst þetta smá ádeila á kjötætur - að öll dýr eigi rétt á að lifa. Svo var þetta líka "áróður" fyrir því að passa upp á náttúruna. -
2014-03-16 01:18
Mér fannst handritið ekki nógu gott. Margt skrýtið/kjánalegt og flæðið á milli atriði var stundum ekki nógu lógískt/eðlilegt. Þar sem þetta er Luc Besson mynd (þ.e.a.s. hann skrifaði handritið og framleiddi) þá voru vissulega franskir bílar í eltingaleik.
0.3
Það voru nokkur atriði sem voru ágætlega fyndin og nokkrar action senur ágætlega kúl. En það var kannski verið að reyna blanda of mörgu saman; action, grín, rómantík, spenna, drama... Hálf stefnulaust - gekk ekki upp. Gaman að sjá Tómas Lemarquis í nokkuð stóru hlutverki. -
2014-03-14 23:57
Skemmtileg vitleysa. Gott grín. Fullt af fínum leikurum. Fínasta afþreying.
0.3 -
2014-03-01 23:11
Hörku spennumynd. Góður hasar. Liam Neeson er töffari. Fínasta plot, en þetta var að vissu leyti formúlumynd. Ekkert gríðarlega frumleg, en nokkuð vel framkvæmd.
0.3 February, 2014
-
2014-02-26 23:19
Þetta er ekki týpísk afþreying eins og margar bíómyndir eru. Þetta er meira listaverk - voða flott og að vissu leyti vandað, en maður þarf svolítið að spá í því til að átta sig á hvað listamaðurinn/listamennirnir eru að reyna miðla.
0.3
Það var ekki mikil gleði í þessari mynd. Í raun allt ömurlegt hjá þessum gaur. Drama. Þunglyndi. Ágætlega kúl Instagram/vintage filter á myndinni ;) Lúmskt skopleg á köflum. Skemmtilega skrautlegar persónur, eins og eru oft í Coen myndum. Vissir kaflar í sögunni voru áhugaverðir, en á heildina litið þá vantaði einhvern kjarna í söguþráðinn. -
2014-02-23 23:17
Mjög skemmtileg mynd. Fyndin og spennandi. Fínasta saga. Slatti af þekktum leikurum (þeir eru alla vega þekktir núna). Gaman að vera loksins búinn að sjá þessa mynd, maður hefur séð svo oft verið að vísa í hana (á Internetinu). Til dæmis "You keep using that word..." sem er orðið meme og "Hello, my name is Inigo Montoya. You killed my father. Prepare to die.".
0.3
* Kvikmyndaklúbburinn Leslie Halliwell horfði saman á þessa. -
2014-02-21 00:56
Fínasta action mynd. Áhugaverð endurgerð á "klassískri" mynd sem maður sá fyrst þegar maður var alltof ungur ;) Gary Oldman var eiginlega besti leikarinn. Joel Kinnaman var líka töffari sem RoboCop/Alex Murphy. Handritið hefði getað verið betra - vantaði smá "fútt" í þetta.
0.3 -
2014-02-16 18:49
Fyndin mynd. Fínasta afþreying. Hef samt séð skemmtilegri teiknimyndir (með betri sögu/handriti).
0.3 January, 2014
-
The Secret Life of Walter Mitty (2013)
2014-01-25 23:34Mjög skemmtileg mynd. Ég var að fíla "zone out" drauma-atriðin :) Töff special effects. Mjög flott myndataka. Mjög gaman að sjá Ísland og ýmsa íslenska leikara á stóra tjaldinu. Fyndin, hugljúf og smá spennandi á köflum. Skemmtileg saga. Flottir leikarar. Fullt af flottum ljósmyndum frá Íslandi sem birtust með credit listanum.
0.3 -
2014-01-12 01:24
Rosaleg mynd! Mögnuð saga (byggð á sannsögulegum atburðum). Virkilega spennandi. Intense og brútal - sérstaklega eftir hlé. Bardagaatriðin voru rosaleg... mögnuð - komu virkilega vel út, maður lifði sig smá inn í þetta ;) Flott myndataka. Fullt af fínum leikurum. Topp mynd - vönduð. En svona stríð eru klikkuð...
0.3 -
The Wolf of Wall Street (2013)
2014-01-04 01:52Mögnuð saga. Áhugaverður heimur... algjör klikkun. Að þetta sé allt satt gerir þetta enn áhugaverðara/klikkaðara. Virkilega flott mynd (Scorsese er náttúrulega snillingur) og góðir leikarar. Margar skemmtilegar og áhugaverðar persónur. Mjög fyndin á köflum. Drama þar á milli. Martin Scorsese og Leonardo DiCaprio eru frábært teymi, búa til mjög góðar bíómyndir. Jonah Hill var líka mjög góður - lék skemmtilega klikkaðan karakter. Hélt manni ágætlega vel við efnið þrátt fyrir að vera 3 klst. löng.
0.3 -
2014-01-01 23:39
Nett drama. Áhugaverð saga/concept. Maður hefur það á tilfinningunni að þetta sé smá ádeila á hitt og þetta (menningu, fjölmiðla, væntingar...). Flott myndataka og vel klippt. Fínir leikarar.
0.3 December, 2013
-
2013-12-28 20:57
Mjög spennandi. Áhugaverð saga, sérstaklega þar sem hún er byggð á sannsögulegum atburðum. Fínir leikarar og persónur. Jason Statham er alltaf jafn mikill töffari/harðhaus. Fínt action en umfram allt virkilega spennandi.
0.3 -
The Hobbit: The Desolation of Smaug (2013)
2013-12-28 02:03Virkilega flott mynd. Mjög spennandi. Gott action. Þetta er risastór og magnaður heimur sem er búið að búa til - mögnuð upplifun að horfa á þetta (sérstaklega í 3D og 48 römmum/sek). Flott myndataka og góð keyrsla. Mjög visual/sjónræn mynd - allt leit mjög vel út; búningar, umhverfi, tæknibrellur o.s.frv. Sérlega skemmtileg ævintýramynd. Þótt hún sé mjög löng (161 mín.) þá var hún ekki langdregin - hélt alveg athygli manns. Vissulega framhald af fyrstu Hobbit myndinni í þessum þríleik þannig að hún var að mörgu leyti svipuð. Hlakka til að sjá þriðju myndina - og fá alvöru endi á þessa sögu ;)
0.3 -
Anchorman 2: The Legend Continues (2013)
2013-12-22 00:24Fyndin mynd. Skemmtileg vitleysa. Klassískur Anchorman (Will Ferrell/Adam McKay/Judd Apatow) húmor. Góð skot á Fox News og aðrar innihaldslausar og öfgafullar fréttir. Fullt af snilldar cameos. Það er smá auka brot í lokinn eftir credit listann, ekkert brillíant, en gaman samt að sjá það.
0.3 -
2013-12-16 00:38
Spennandi. Gott action. Ekta Jason Statham mynd (þar sem hann er ótrúlega harður og lemur vondu kallana), klikkar ekki. Kom skemmtilega á óvart að Sylvester Stallone skrifaði handritið (og framleiddi).
0.3 -
The Hunger Games: Catching Fire (2013)
2013-12-04 00:26Mögnuð mynd! Rosalega spennandi - eiginlega allan tímann. Drama & action + smá rómó. Góð saga og áhugaverðar persónur. Magnaður heimur sem er búið að búa til. Þótt myndin sé ca. 2,5 klst. þá var hún langt frá því að vera langdregin - þetta leið mjög hratt - myndin var það spennandi og það góð keyrsla. Hélt manni alveg við efnið :) Hlakka til að sjá restina af þessari seríu.
0.3 November, 2013
-
Ferris Bueller's Day Off (1986)
2013-11-24 23:26Skemmtileg mynd. Gott grín. Skemmtilega súr á köflum. Gaman að sjá loksins þessa klassík.
0.3
* Kvikmyndaklúbburinn Leslie Halliwell horfði saman á þessa. -
2013-11-23 02:54
Spennandi. Gott action. Fullt af flottum tæknibrellum. Alltaf gaman að sjá smá íslenskt landslag í svona risastórum kvikmyndum. By the way, það er smá auka atriði í lokinn eftir credit listann.
0.3 -
2013-11-08 21:16
Spennandi. Áhugavert plot, en smá skrýtið (ruglingslegt). Endirinn var ekki alveg nógu "satisfying". Smá súr kvikmyndastíll.
0.3
* Ég horfði á þessa mynd í flugvél (sem getur skemmt smá upplifunina). October, 2013
-
2013-10-26 21:21
Rosalega spennandi! Intense. Töff tónlist, gerði mikið fyrir stemninguna. Góðir leikarar. Myndin leit vel út. Flott myndataka. Glæsileg tölvugrafík - mjög raunveruleg. 3D var að koma ágætlega út á köflum. Gaman að sjá slatta af Íslendingum á credit listanum. Mögnuð mynd, gott stöff.
0.3 -
2013-10-23 23:10
Áhugaverðar pælingar. Setja sér markmið. Sjá þau fyrir sér og hafa augun opin fyrir tækifærum. Hefur virkað hjá mér að vissu leyti ;)
0.3 -
2013-10-13 23:17
Úff... átakanleg mynd. Dark. Langt frá því að vera hugljúf/happy-go-lucky. En hún var spennandi og vel leikin. Fínt handrit/plot. Fínasta leikstjórn og myndataka. Frekar dökk áferð á myndinni. Það var nokkuð þungt yfir fólki þegar það yfirgaf bíósalinn... Kæmi ekki á óvart ef þessi mynd fengi einhverjar Óskars-tilnefningar.
0.3 September, 2013
-
The Perks of Being a Wallflower (2012)
2013-09-22 13:19Voða krúttleg, en samt smá þung indie "erfitt að vera táningur" kvikmynd.
0.3 -
2013-09-18 22:49
Mjög fyndin mynd :) Spennandi. Fínasta action. Gott fjör. Mjög fín sci-fi skemmtun. Það var alveg smá Shaun of the Dead/Hot Fuzz stemning í þessari mynd. Skrýtið að þessi mynd fari ekki í almenna sýningu í bíóhúsum hérna. En gaman að ná henni á einni af þessum örfáu sérsýningum.
0.3 -
2013-09-13 23:39
Eða "Malavita" eins og hún virðist vera kölluð í Evrópu. Ágætis afþreying. Nokkuð skemmtilegar persónur. Glettilega fyndin á köflum. Mér fannst smá metnaðarleysi í handritinu - þá aðallega í kringum eitt atriði. Ágætlega spennandi.
0.3
← previous 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 next →
List generated by WP Movie Ratings.
Síðast uppfært 19. March, 2024
Bjössi says
þú ert aldeilis fljótur að skrifa um American Gangster. My man, ég er sammála þér með myndina. Töff stöff.
Hannes says
Vei, fyrsta kommentið hérna :)
Já, maður reynir að hafa þetta eins ferskt og hægt er :)
Það er kosturinn við þetta setup – ég hendi bara upp einhverju stuttu review, skelli á þetta einhverjar stjörnur (bara svona gut feeling) og þá er það komið. Ekkert að tefja mig á óþarfa blaðri eða djúpum pælingum.
maple says
mér finnst of mikið af myndum hér með of litlum fresti – horfir of mikið á myndir
Hannes says
hehe… já, sorry – ég skal horfa á færri myndir ;) Væri ein á mánuði of mikið?
En þetta er svona – ég hata ekki að horfa á bíómyndir… I loves it :)
maple says
ein á mánuði ef hún er á bíórásinni
Haukur says
Já ég fór með alltof miklar væntingar á Max kallinn. Myndin var alveg töff en sagan samsvaraði sér alveg ferlega illa. Þetta lyktar eins og gömul skinka.
siggasig says
Öflugur að halda utan um myndirnar sem þú sérð! ;) Nice. Sammála Star Trek umfjölluninni. Frábær mynd! Og hei, líka sammála um Angels and Demons. Ólíkt Da Vinci Code fannst mér myndin betri en bókin.
Hannes says
Takk. Já, mér fannst kominn tími til að hafa smá yfirsýn yfir þær myndir sem ég horfi á þar sem ég horfi á örlítið fleiri en 2 myndir á ári ;)
Já, síðan var líka gaman að sjá í Angels & Demons hvað sumir hlutir voru allt öðruvísi en maður var búinn að ímynda sér þegar maður las bókina :)
Geiri says
Hot Rod: 10*?
Ég hefði smellt 8*.
Hannes says
Jú, skil þig – þegar ég horfði á hana aftur einn þá var þetta ekki alveg eins mikil snilld, en samt fáránlega fyndin. En þegar ég horfði á hana fyrst þá skemmti ég mér alveg konunglega – það var kannski bara stemmningin að horfa á þetta wit da boyz. 10 stjörnur þýðir alls ekki að mér fannst þetta einhver Óskarsverðlaunamynd…
En annars eru þessar stjörnugjafir engan veginn heilagar – oft bara nánast eitthvað skot út í loftið ;)
Sara says
Jæja Nesi, ég er mjög spennt að lesa hvað þú hefur um Shutter Island að segja. Koma svo! Í bíó með þig! ;)
Hannes says
hehe, úff… bara pressa :) Já, ég er svona ennþá að vega og meta hvort ég ætli að sjá Shutter Island í bíó. En ætli maður verði ekki að tékka á þessu, Scorsese stendur alltaf fyrir sínu.