Smá umfjöllun um kvikmyndir sem ég hef séð nýlega… Stutt kvikmyndagagnrýni – ég nenni að skrifa mismikið, fer yfirleitt eftir því hvað mér dettur fyrst í hug – oft bara að hugsa upphátt.
Stjörnugjöf… já, stjörnugjöf er eiginlega svolítið bullshit – ég held að það sé mismikið bakvið stjörnur sem fólk gefur myndum. Hjá mér er það yfirleitt bara gut feeling – hversu skemmtileg/fyndin/spennandi/flott fannst mér myndin. Upplifunin.
Það er ekki eins og ég sé með einhvern ákveðinn skala/staðal eða tékklista – “já, flottur bílaeltingaleikur – 1 stjarna, töff byssubardagi – bætist við 1,5 stjarna…” ;) Síðan getur stjörnugjöfin oft verið svona plús/mínus 1-2 stjörnur.
Hlaðvarp um kvikmyndir
Það er vert að minnast á að ég og Björn erum með hlaðvarp um kvikmyndir sem við köllum Búnir með poppið. Það er hægt að fylgjast með okkur í gegnum Facebook, Twitter og Instagram – og svo auðvitað hlusta á þættina á Spotify, Apple Podcasts, Google Podcasts og öðrum stöðum þar sem fólk hlustar á hlaðvörp.
Sort list by: title | rating ↓ | view date
-
2016-06-06 23:49
Fín saga. Smá rómans og kynþokki (sem fylgir oft vampíru-ævintýraheiminum). Upplagt fyrir #NetflixAndChill ;)
0.3 -
Neighbors 2: Sorority Rising (2016)
2016-05-14 23:48(Eða "Bad Neighbours 2" eins og hún er líka kölluð) Fyndin vitleysa. Týpísk framhaldsmynd að því leyti að hún er svipuð og fyrri myndin, bara aðeins "þynnri". En það var hægt að hlæja helling að þessu.
0.3 -
Captain America: Civil War (2016)
2016-05-05 23:50Svo mikið af ofurhetjum. Það var alltaf að bætast við... Klassísk Marvel mynd - flott (og stór) action atriði með nóg af tæknibrellum og eyðileggingu. Sumar ofurhetjurnar voru með meiri húmor en aðrar - sem er fínt til að létta aðeins á stemningunni.
0.3 -
2016-04-10 23:00
Skemmtileg mynd. Nett klikkuð. Fyndin. Fínasta action. Sam Rockwell og Anna Kendrick eru góð í að leika wacky/quirky persónur.
0.3 -
2016-03-05 01:35
Rosaleg vitleysa. Fyndin vitleysa. Fór oft langt yfir strikið 🙈 Það mátti svosem búast við því frá Sacha Baron Cohen. Fínasta action.
0.3 -
2016-02-24 23:00
Alltaf áhugavert að fræðast meira um líf Steve Jobs. Góð mynd. Ekta Aaron Sorkin samtöl. Intense og dramatískt. Áhugaverður vinkill að einbeita sér að nokkrum mikilvægum vörukynningum (launches) og sambandi Steve Jobs við dóttur sína, Lisa.
0.3 -
2016-02-14 01:33
Góð mynd - skemmtileg blanda af gríni og action. Öðruvísi ofurhetjumynd. Mjög fyndin. Brútal ofbeldi. Fjórði veggurinn var brotinn ítrekað. Þessi mynd tók sig ekki mjög hátíðlega - sem var hressandi.
0.3 -
13 Hours: The Secret Soldiers of Benghazi (2016)
2016-02-07 00:39Intense mynd. Mjög spennandi. Svakaleg atburðarás. Mikið af flottum action/bardaga atriðum. Brútal. Ekta Michael Bay mynd að mörgu leyti: Mikið af sprengingum, drama, væmni og 'merica! Löng mynd. Minnir mig á Homeland þættina, bara 100x stærra og meira.
0.3 -
The Man from U.N.C.L.E. (2015)
2016-01-08 22:14Flott byrjun (title credits). Skemmtileg mynd. Töff. Flott action atriði. Smá Lock, Stock/Snatch stíll í sumum atriðum. Góður húmor. Spennandi.
0.3 -
2016-01-03 00:30
Fyndin mynd. Léttklikkuð. Misgóðir kaflar. Endirinn var góður, bjargaði henni fyrir horn. Fínasta afþreying.
0.3 -
2015-12-29 23:32
Mjög fyndin mynd - sérstaklega eftir hlé (þegar allt fer í rugl). Bull og vitleysa - á góðan máta. Tina Fey og Amy Poehler eru snillingar. Slatti af öðrum góðum persónum og leikurum.
0.3 -
The Nightmare Before Christmas (1993)
2015-12-14 00:26Öðruvísi jólamynd :) Gaman af svona stop-motion myndum. Góður húmor og skrautlegar persónur. Áhugavert að Danny Elfman söng fyrir aðalpersónuna, Jack Skellington. Maður þekkir Danny Elfman aðallega fyrir tónlistina sem hann er að semja fyrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti. #LeslieHalliwell
0.3 -
2015-11-13 23:21
Töff mynd. Mjög spennandi. Klassískur Bond með húmor, action, stelpuna og vonda kallinn. Svo má ekki gleyma exótískum stöðum og flottum arkitektúr. Þau virðast vera að gera söguna dýpri og flóknari - tengja allar Daniel Craig myndirnar saman.
0.3 -
2015-11-08 19:44
Góð mynd. Spennandi. Mjög áhugaverð saga. Gaman af svona "disruption" sögum - fólk sem er óhrætt við að prófa eitthvað nýtt, brjóta upp gamla kerfið.
0.3 -
2015-10-24 00:57
Klikkaðir tvíburar - Tom Hardy stóð sig mjög vel við að leika þá báða. Brútal mynd. Áhugaverð saga. Old school gangster mynd alveg í gegn - ofbeldi og drama.
0.3 -
2015-10-16 01:23
Rosaleg hrollvekja! 😬 Ég var stress-borðandi poppið mitt á fullu. Virkilega creepy mynd. Spennandi/stressandi - algjör adrenalín rússíbani. Góðir leikarar. Mjög flott og myndræn kvikmynd - eins og við má búast frá Guillermo del Toro.
0.3 -
2015-09-28 00:06
Létt og skemmtileg mynd. Fínir leikarar. Gaman að sjá Robert De Niro æfa sig fyrir framan spegil aftur - veit ekki hvort þetta átti að vera vísun í Taxi Driver. Startup vinkillinn var áhugaverður.
0.3 -
2015-09-08 01:21
Góð mynd. Mjög áhugaverð saga. Þeir náðu að finna leikara sem eru ágætlega líkir N.W.A. crew-inu. Myndin var nokkuð lengri en ég bjóst við. Nóg af góðri tónlist :)
0.3 -
2015-09-07 01:05
Virkilega spennandi mynd. Rosalega intense! Maður var alveg á taugum á köflum. Nokkuð brútal ofbeldi.
0.3 -
2015-08-24 00:04
Töff mynd. Spennandi. Fínasta action. Gaman af svona persónum með sérstaka eiginleika og ofurkrafta.
0.3 -
2015-08-13 23:20
Bull og vitleysa. Mjög fyndin vitleysa. Slatti af góðum aukaleikurum í litlum og skemmtilegum hlutverkum. Betri mynd en ég bjóst við (var ekki með neinar svakalegar væntingar).
0.3 -
2015-07-23 21:19
Skemmtileg mynd. Fyndin. Spennandi. Skemmtilega kjánaleg (silly).
0.3 -
2015-06-16 22:51
Rosaleg stórslysamynd! Endalaus eyðilegging. Spennandi. Gott action. Tæknibrellur fyrir allan peninginn.
0.3 -
Avengers: Age of Ultron (2015)
2015-05-01 23:24Risastór action mynd. Fullt af mjög flottum atriðum - tæknibrellur to the max. Mjög fyndin á köflum. Spennandi. Marvel heimurinn er áhugaverður - maður er alltaf til í fleiri Marvel myndir.
0.3 -
2015-04-11 01:33
Mjög spennandi mynd. Hörku hasar. Fullt af fínum leikurum. Ég var að fíla ágætlega persónuna sem Common lék - kom ferskur inn. Eitthvað hrátt/old school við stemninguna - að vissu leyti er þetta saga sem hefði getað gerst fyrir 20+ árum.
0.3 -
2015-04-04 23:04
Þetta eru skemmtilega klikkaðar og ótrúlegar myndir :) Flott myndataka. Töff action atriði. Spennandi. Nóg af bad ass fólki og bad (ass) one-liners. Fínasta afþreying. Skemmtilegt að horfa á svona mynd á Selfossi ;)
0.3 -
2015-03-27 00:15
Mjög fyndin vitleysa. Will Ferrell er snillingur. Kevin Hart var líka fyndinn. Að vissu leyti klassísk Will Ferrell og Adam McKay (Gary Sanchez Productions) mynd - sem sagt, fínasta afþreying.
0.3 -
2015-02-15 23:45
Töff mynd. Spennandi. Gott action. Töff tónlist. Fullt af fínum leikurum í minni hlutverkum. Töff hvernig textinn fyrir rússneskuna (subtitles) var birtur. Áhugavert að sjá að Eva Longoria var ein af framleiðendunum. Svo sá ég "CCP Games" í "Special Thanks To" - það var víst verið að spila leikinn "EVE: Legion" í myndinni. Ágætt "vörulaum" :)
0.3
← previous 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 next →
List generated by WP Movie Ratings.
Síðast uppfært 19. March, 2024
Bjössi says
þú ert aldeilis fljótur að skrifa um American Gangster. My man, ég er sammála þér með myndina. Töff stöff.
Hannes says
Vei, fyrsta kommentið hérna :)
Já, maður reynir að hafa þetta eins ferskt og hægt er :)
Það er kosturinn við þetta setup – ég hendi bara upp einhverju stuttu review, skelli á þetta einhverjar stjörnur (bara svona gut feeling) og þá er það komið. Ekkert að tefja mig á óþarfa blaðri eða djúpum pælingum.
maple says
mér finnst of mikið af myndum hér með of litlum fresti – horfir of mikið á myndir
Hannes says
hehe… já, sorry – ég skal horfa á færri myndir ;) Væri ein á mánuði of mikið?
En þetta er svona – ég hata ekki að horfa á bíómyndir… I loves it :)
maple says
ein á mánuði ef hún er á bíórásinni
Haukur says
Já ég fór með alltof miklar væntingar á Max kallinn. Myndin var alveg töff en sagan samsvaraði sér alveg ferlega illa. Þetta lyktar eins og gömul skinka.
siggasig says
Öflugur að halda utan um myndirnar sem þú sérð! ;) Nice. Sammála Star Trek umfjölluninni. Frábær mynd! Og hei, líka sammála um Angels and Demons. Ólíkt Da Vinci Code fannst mér myndin betri en bókin.
Hannes says
Takk. Já, mér fannst kominn tími til að hafa smá yfirsýn yfir þær myndir sem ég horfi á þar sem ég horfi á örlítið fleiri en 2 myndir á ári ;)
Já, síðan var líka gaman að sjá í Angels & Demons hvað sumir hlutir voru allt öðruvísi en maður var búinn að ímynda sér þegar maður las bókina :)
Geiri says
Hot Rod: 10*?
Ég hefði smellt 8*.
Hannes says
Jú, skil þig – þegar ég horfði á hana aftur einn þá var þetta ekki alveg eins mikil snilld, en samt fáránlega fyndin. En þegar ég horfði á hana fyrst þá skemmti ég mér alveg konunglega – það var kannski bara stemmningin að horfa á þetta wit da boyz. 10 stjörnur þýðir alls ekki að mér fannst þetta einhver Óskarsverðlaunamynd…
En annars eru þessar stjörnugjafir engan veginn heilagar – oft bara nánast eitthvað skot út í loftið ;)
Sara says
Jæja Nesi, ég er mjög spennt að lesa hvað þú hefur um Shutter Island að segja. Koma svo! Í bíó með þig! ;)
Hannes says
hehe, úff… bara pressa :) Já, ég er svona ennþá að vega og meta hvort ég ætli að sjá Shutter Island í bíó. En ætli maður verði ekki að tékka á þessu, Scorsese stendur alltaf fyrir sínu.