Smá umfjöllun um kvikmyndir sem ég hef séð nýlega… Stutt kvikmyndagagnrýni – ég nenni að skrifa mismikið, fer yfirleitt eftir því hvað mér dettur fyrst í hug – oft bara að hugsa upphátt.
Stjörnugjöf… já, stjörnugjöf er eiginlega svolítið bullshit – ég held að það sé mismikið bakvið stjörnur sem fólk gefur myndum. Hjá mér er það yfirleitt bara gut feeling – hversu skemmtileg/fyndin/spennandi/flott fannst mér myndin. Upplifunin.
Það er ekki eins og ég sé með einhvern ákveðinn skala/staðal eða tékklista – “já, flottur bílaeltingaleikur – 1 stjarna, töff byssubardagi – bætist við 1,5 stjarna…” ;) Síðan getur stjörnugjöfin oft verið svona plús/mínus 1-2 stjörnur.
Hlaðvarp um kvikmyndir
Það er vert að minnast á að ég og Björn erum með hlaðvarp um kvikmyndir sem við köllum Búnir með poppið. Það er hægt að fylgjast með okkur í gegnum Facebook, Twitter og Instagram – og svo auðvitað hlusta á þættina á Spotify, Apple Podcasts, Google Podcasts og öðrum stöðum þar sem fólk hlustar á hlaðvörp.
Sort list by: title | rating ↓ | view date
-
2009-07-21 23:07
Mjög góð mynd - vel gerð, vönduð. Dúndrandi spenna og flott action - temmilega stressandi starf að aftengja sprengjur í Írak, alltaf upp á líf og dauða. Slatti af kúl sprengingum. Góð keyrsla. Klassísk hermynd að ýmsu leyti...
0.3 -
2009-07-21 22:57
Rugl fyndin mynd. Frá gaurunum úr The Whitest Kids U Know (þeir skrifuðu handritið, leikstýrðu og léku aðalhlutverkin) - mjög svipaður húmor og er í sketsunum þeirra. Algjört bull og vitleysa - en sprenghlægilegt á köflum.
0.3 -
2009-07-18 04:01
Fín mynd. Drama með fisléttu gríni. Áhugaverðar persónur. Góðir leikarar. Skemmtileg sambönd/tengsl. Ég fór að spá í að gaurinn er nýkominn úr fangelsi og á ekki í vandræðum með að eignast nýja vini, gott hjá honum... - annars hefði myndin verið helst lítið spennandi ;)
0.3 -
2009-07-15 00:08
Vá, þetta var einn stór kjánahrollur. En sjokkerandi fyndið. Mér finnst magnað að hann og crew-ið hafi ekki verið drepið - það munaði örugglega ekki miklu á köflum. Markmiðið hjá Sacha Baron Cohen var náttúrulega að ganga fram af fólki og hann gerði það svo sannarlega - þetta var algjörlega extreme. Þetta var rugl... maður er eiginlega ennþá í sjokki. Myndin fór yfir strikið fyrstu mínútuna og leit ekki aftur. Svolítið sérstakt að vera hneykslast og hlæja á sama tíma - eiginlega allan tímann.
0.3 -
Transformers: Revenge of the Fallen (2009)
2009-07-01 01:30Já... þú segir það. Ágæt heilalaus afþreying. Söguþráðurinn var kannski ekki upp á marga fiska, vantaði alla vega eitthvað efni til að grípa mann. En myndin leit klárlega vel út og endalaust eytt í stunt atriði, tæknibrellur o.s.frv. - "style over substance" á líklega vel við. Það var vissulega nóg af EXPLOSIONS a la Michael Bay ;) Fínasta summer blockbuster spennumynd (ef maður hugsaði ekki alltof mikið) með nóg af sprengingum, byssubardögum og vélmönnum að slást ...og Megan Fox í slow motion, það þarf ekkert að ræða það frekar. En það fór svona nett í taugarnar á mér að þeir voru að hafa með nokkur svona sidekick vélmenni - vélmenni með alltof mikið af hallærislegum one-liners sem voru oftast frekar lítið fyndnir. Það hefði klárlega mátt leggja meiri vinnu í handritið, það hefði bætt myndina töluvert.
0.3 -
2009-06-08 21:25
Kúl mynd. Góður thriller. Flott myndataka. Spennandi saga. Byggt á bók eftir Elmore Leonard eins og Jackie Brown, Out of Sight og aðrar góðar myndir.
0.3 -
2009-05-30 01:20
Mjög fyndin mynd. Nokkuð steiktur húmor. Nett feel-good mynd... Skemmtilegir karakterar. Skemmtileg saga.
0.3 -
2009-05-26 23:33
Hörku spenna. Fínasta action - sprengingar og byssubardagar... alltaf í kapp við tímann. Gaman af svona spennumyndum þar sem er verið að leysa ráðgátu með því að leita að vísbendingum hér og þar. Ég var reyndar búinn að lesa bókina en það er svo langt síðan að ég mundi ekki öll plottin nákvæmlega - þannig að það skemmdi ekkert mikið fyrir. Myndin leit mjög vel út - mjög vönduð. Líka topp leikarar.
0.3 -
The Girlfriend Experience (2009)
2009-05-25 20:43Áhugaverð kvikmynd um escort stelpu... mjög arty/indie (gerð fyrir $1.3M) - svolítið sérstök mynd þar sem Soderbergh notaði eiginlega bara náttúrulega lýsingu allan tímann, setti svolítið öðruvísi svip á myndina. Hún var líka tekin upp með RedOne myndavélinni sem er fáránlega kúl græja. Síðan skemmir ekki að myndin gerist í New York ;) Smá fróðleiksmoli: Sasha Gray, sem leikur aðalhlutverkið, er víst actually klámstjarna...
0.3 -
2009-04-22 00:21
Vá, þetta er klikkuð mynd - eins og í fyrri myndinni er bara stanslaus keyrsla allan tíman - endalaus adrenalín rússíbanaferð. Virkilega fyndin. Mögnuð myndataka og hröðustu klippingar sem maður hefur séð síðan... ja, Crank 1. Temmilega súr og random á köflum - en það er bara fyndið... Mjög brútal, stanslaust ofbeldi. Jason Statham er náttúrulega bara töffari. Þessi mynd er svolítið sér á báti - ýmislegt sem kom mér á óvart og sem ég býst ekki við að sjá í annarri bíómynd á næstunni. Skemmtilega frumleg að því leyti.
0.3 -
2009-04-13 00:53
Góð mynd. Áhugaverðar pælingar um lífið og tilveruna... Flott myndataka. Góðir leikarar. Nokkuð mögnuð saga (þetta er s.s. sönn saga).
0.3 -
2009-04-04 00:43
Maður er búinn að bíða eftir þessari mynd frekar lengi - það var alltaf einhver orðrómur um að það ætti að fara búa hana til, síðan var eitthvað vesen... en það hafðist loksins. Það er svolítið sérstakt að fara á mynd sem er byggð á bók og maður er búinn að lesa bókina - ekki oft sem það gerist. Reyndar svolítið langt síðan ég las bókina en ég held að þeir hafi fylgt henni nokkuð vel. Mjög fyndin mynd - en frekar twisted húmor eins og er oft hjá Chuck Palahniuk. Mjög skrautlegir karakterar að hætti Chuck. Sagan er svolítið sérstök - svolítið "out there" á köflum - en skemmtileg.
0.3 -
2009-03-22 01:40
Töff mynd. Mjög flott. Nóg af ofbeldi - ekkert verið að skafa af því, nóg af blóði og maður heyrði hvert bein brotna.
0.3 -
2009-03-15 23:12
Temmilega scary mynd. Kúl zombie thriller. Þetta er s.s. myndin sem Quarantine er byggð á... Nettur Blairwitch Project og Cloverfield fílingur þar sem maður sér þetta bara í gegnum eina myndavél (sem camera gaurinn hjá fréttastofunni heldur á).
0.3 -
The Curious Case of Benjamin Button (2008)
2009-02-22 23:27Góð saga - áhugaverðar pælingar... Flott og vönduð mynd. Það ætti kannski ekki að koma á óvart að mynd sem fjallar um alla ævi persónunnar sé tæplega 3 tímar ;)
0.3 -
2009-02-07 01:30
Nokkuð góð mynd. Kúl stríðsmynd. Nokkuð spennandi - þótt maður vissi nokkurn veginn hvernig hún myndi enda ;) Fullt af góðum leikurum. Leikumgjörð - búningar, umhverfi o.s.frv. mjög flott. Vönduð mynd - leit vel út.
0.3 -
Justice - A Cross The Universe (2008)
2009-01-26 20:44Pjúra geðveiki... Fylgst með Justice í 20 daga á meðan þeir eru að túra Norður-Ameríku. Gaspard og Xavier alveg að taka rokkstjörnu-pakkann á þetta. Frekar hraðar klippingar - stundum er eins og maður sé bara að horfa á mjög langt tónlistarmyndband. Byssubrjálaði tour manager-inn þeirra, Bouchon er líka frekar sérstakur karakter.
0.3 -
2008-12-31 00:46
Fucking creepy mynd. Crazy, psycho hrollvekja með fullt af spennu/thriller og bú! atriðum...
0.3 -
2008-12-22 01:04
Mjög kúl mynd. Guy Ritchie virðist vera kominn aftur... Kannski ekki alveg jafn góð og Lock, Stock and Two Smoking Barrels og Snatch - en mjög svöl action mynd með sama gamla Guy Ritchie stílnum, ásamt nokkrum nýjum trick-um. Flottar klippingar og töff sjónarhorn. Mjög skemmtilegar persónur og glettilega fyndin á köflum.
0.3 -
2008-12-17 01:03
Mjög sérstök mynd... quirky, en mjög fyndin. Jack Black í sínum venjulega wacky karakter sem hann gerir alltaf vel og Mos Def að sanna enn og aftur að hann sé ekki bara rappari sem langaði að prófa að vera leikari heldur nokkuð góður leikari. Hefði reyndar mátt sleppa því að hafa Danny Glover smámæltan/málhaltan - var svona örlítið að bögga mig - sá ekki alveg tilganginn með því. Feel good movie alveg í gegn - öll dýrin í skóginum vinir og allir að hjálpast að.
0.3 -
The Day the Earth Stood Still (2008)
2008-12-15 23:07Ágæt sci-fi mynd. Ágætlega spennandi. Hellingur af tæknibrellum. Áhugaverðar pælingar varðandi hvað mannkynið er að rústa jörðinni... Mér finnst ég hafa séð áður svona plot varðandi "þið eruð að fara svo illa með jörðina að þið eigið ekki skilið að búa hérna - við ætlum að taka hana af ykkur" - man bara ekki alveg í hvað mynd... Fifth Element? Kannski smá... War of the Worlds? Hmm... jú, gæti verið. Alltaf gaman að fara á myndir með Jennifer Connelly - hún er alveg ridiculously good looking...
0.3 -
Zack and Miri Make a Porno (2008)
2008-11-30 00:49Fínasta grínmynd. Seth Rogen alltaf góður. Hellingur af fyndnum atriðum. Sprenghlægileg á köflum... Nett væmin í lokinn en það er víst partur af Hollywood formúlunni.
0.3 -
2008-11-27 00:27
Maður er búinn að bíða frekar lengi eftir þessari sjónvarpsmynd. Þeir ákvaðu að gera þetta af því að skipulagið fór allt í rugl út af verkfalli handritshöfunda. Gerist á 2 tímum - í rauntíma. Ekta 24 fílingur - slatti af sprengingum og byssubardögum. En þetta er engin crazy heavy-action mynd - þetta er ennþá bara á sjónvarpsmynda-budget og að vissu leyti takmarkað þar sem allt gerist á rauntíma. En nokkuð gott stöff - hjálpar manni að þrauka aðeins lengur þangað til að 24 byrjar aftur í janúar. Mér fannst fyndnast þegar þeir ætluðu að pynta Jack Bauer til að fá hann til að tala - Jack Bauer fær sér pyntingar í morgunmat, það myndi virka jafn vel að kalla hann ljótum nöfnum.
0.3 -
2008-11-08 23:21
Ekta James Bond - stórar sprengingar, flottir bílar, flottar gellur, slagsmál, bílaeltingaleikar og eitursvalur Bond. Góð action keyrsla.
0.3 -
2008-11-02 01:37
Góð action keyrsla... Áhugaverðar pælingar varðandi hvað tæknin hefur opnað nýjar leiðir til að fylgjast með manni og hvað ríkisstjórnin getur leyft sér með alls konar hryðjuverkalögum. Fullt af kúl action atriðum. Ekta summer blockbuster ..að vetri til.
0.3 -
2008-09-14 01:49
Kúl mynd. Ekta macho action-mynd með hraðskreiðum bílum, gellum, byssum og sprengingum. Formúla sem virkar algjörlega...
0.3 -
2008-08-13 22:37
Mjög fyndin mynd. Steve Carell klikkar ekki... Fullt af fínum leikurum. Kúl action atriði. Góð skemmtun.
0.3 -
2008-07-16 00:52
Kúl action mynd - nóg af töff sprengingum og byssubardögum. Opnunar/titil-senan (e. opening credit sequence) var virkilega flott - kúl typography effect-ar í gangi (minnti mig örlítið á Pulp Caption video-ið). Líka áhugavert að fræðast aðeins um tengslin milli Bandaríkjanna og Sádí-Arabíu.
0.3 -
2008-07-12 01:35
Mjög fyndin teiknimynd - Jack Black klikkar ekki... pöndu karakterinn var alveg sniðinn að honum. Myndin leit líka mjög vel út - mörg kúl action atriði... töff close-up, freeze-frame camera-turn effecta-ar (eða hvað sem maður á að kalla svona Matrix stíl) og bara vönduð mynd. Kemur alltaf skemmtilega á óvart hvað maður hefur í rauninni gaman af bíómyndum sem eru "bara" teiknimyndir.
0.3
← previous 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 next →
List generated by WP Movie Ratings.
Síðast uppfært 19. March, 2024
Bjössi says
þú ert aldeilis fljótur að skrifa um American Gangster. My man, ég er sammála þér með myndina. Töff stöff.
Hannes says
Vei, fyrsta kommentið hérna :)
Já, maður reynir að hafa þetta eins ferskt og hægt er :)
Það er kosturinn við þetta setup – ég hendi bara upp einhverju stuttu review, skelli á þetta einhverjar stjörnur (bara svona gut feeling) og þá er það komið. Ekkert að tefja mig á óþarfa blaðri eða djúpum pælingum.
maple says
mér finnst of mikið af myndum hér með of litlum fresti – horfir of mikið á myndir
Hannes says
hehe… já, sorry – ég skal horfa á færri myndir ;) Væri ein á mánuði of mikið?
En þetta er svona – ég hata ekki að horfa á bíómyndir… I loves it :)
maple says
ein á mánuði ef hún er á bíórásinni
Haukur says
Já ég fór með alltof miklar væntingar á Max kallinn. Myndin var alveg töff en sagan samsvaraði sér alveg ferlega illa. Þetta lyktar eins og gömul skinka.
siggasig says
Öflugur að halda utan um myndirnar sem þú sérð! ;) Nice. Sammála Star Trek umfjölluninni. Frábær mynd! Og hei, líka sammála um Angels and Demons. Ólíkt Da Vinci Code fannst mér myndin betri en bókin.
Hannes says
Takk. Já, mér fannst kominn tími til að hafa smá yfirsýn yfir þær myndir sem ég horfi á þar sem ég horfi á örlítið fleiri en 2 myndir á ári ;)
Já, síðan var líka gaman að sjá í Angels & Demons hvað sumir hlutir voru allt öðruvísi en maður var búinn að ímynda sér þegar maður las bókina :)
Geiri says
Hot Rod: 10*?
Ég hefði smellt 8*.
Hannes says
Jú, skil þig – þegar ég horfði á hana aftur einn þá var þetta ekki alveg eins mikil snilld, en samt fáránlega fyndin. En þegar ég horfði á hana fyrst þá skemmti ég mér alveg konunglega – það var kannski bara stemmningin að horfa á þetta wit da boyz. 10 stjörnur þýðir alls ekki að mér fannst þetta einhver Óskarsverðlaunamynd…
En annars eru þessar stjörnugjafir engan veginn heilagar – oft bara nánast eitthvað skot út í loftið ;)
Sara says
Jæja Nesi, ég er mjög spennt að lesa hvað þú hefur um Shutter Island að segja. Koma svo! Í bíó með þig! ;)
Hannes says
hehe, úff… bara pressa :) Já, ég er svona ennþá að vega og meta hvort ég ætli að sjá Shutter Island í bíó. En ætli maður verði ekki að tékka á þessu, Scorsese stendur alltaf fyrir sínu.