Smá umfjöllun um kvikmyndir sem ég hef séð nýlega… Stutt kvikmyndagagnrýni – ég nenni að skrifa mismikið, fer yfirleitt eftir því hvað mér dettur fyrst í hug – oft bara að hugsa upphátt.
Stjörnugjöf… já, stjörnugjöf er eiginlega svolítið bullshit – ég held að það sé mismikið bakvið stjörnur sem fólk gefur myndum. Hjá mér er það yfirleitt bara gut feeling – hversu skemmtileg/fyndin/spennandi/flott fannst mér myndin. Upplifunin.
Það er ekki eins og ég sé með einhvern ákveðinn skala/staðal eða tékklista – “já, flottur bílaeltingaleikur – 1 stjarna, töff byssubardagi – bætist við 1,5 stjarna…” ;) Síðan getur stjörnugjöfin oft verið svona plús/mínus 1-2 stjörnur.
Hlaðvarp um kvikmyndir
Það er vert að minnast á að ég og Björn erum með hlaðvarp um kvikmyndir sem við köllum Búnir með poppið. Það er hægt að fylgjast með okkur í gegnum Facebook, Twitter og Instagram – og svo auðvitað hlusta á þættina á Spotify, Apple Podcasts, Google Podcasts og öðrum stöðum þar sem fólk hlustar á hlaðvörp.
Sort list by: title | rating ↓ | view date
-
2013-05-05 22:25
Skemmtileg vitleysa. Fyndin (á köflum alla vega). Fínasta afþreying. Ég hef alltaf gaman af mynum sem gerast í New York :)
0.3 -
2013-03-26 23:14
Hugljúf mynd :) Ekkert yfirþyrmandi væmin og nokkuð spennandi. Ágætis saga. Smá í lokinn reyndar sem mér fannst skemma smá heildarupplifunina. Fínasta stefnumóta-mynd.
0.3 -
2013-03-08 23:34
Fyndin mynd. Spennandi. Klassískt grín rugl. Melissa McCarthy er snillingur :) Gott stöff.
0.3 -
2013-02-28 22:42
Gott action. Að vissu leyti klassísk Die Hard formúla - vondir kallar, one-liners, byssur, sprengingar, bílaeltingaleikir... En mér fannst eitthvað vanta. Ég bjóst við meira. Handritið var frekar takmarkað. Die Hard 5 er fínasta afþreying samt sem áður.
0.3 -
2013-02-26 20:58
Fyndin. Dash rómantísk. Smá drama. Slatti af fínum leikurum. Ágætis saga/handrit/plot.
0.3 -
2013-02-09 23:59
Ágætlega fyndin mynd. Nett rugluð. Ágætis afþreying - léttmeti. Maður hefur séð þetta concept áður (Freaky Friday, et. al.). Svo er náttúrulega falleg lexía í þessu um lífið og hamingjuna - peningar eru ekki allt und zo weiter.
0.3 -
Hansel & Gretel: Witch Hunters (2013)
2013-02-07 22:17Ágætis splatter mynd. Fínasta action - smá kung-fu bardagar. Áhugaverðar græjur og vopn sem þau voru með. Nokkuð fyndin á köflum - stundum af því að þetta var svo extreme :) Ég var að fíla Edward :) Fínasta afþreying. Leikstjórinn og handritshöfundurinn, Tommy Wirkola gerði líka Dead Snow - maður sá alveg svipaða takt í þessum myndum (skrímsli og gore).
0.3 -
2013-02-02 23:38
Fyndin mynd. Nett rugluð. Samt eitthvað sem vantar... handritið hefði kannski mátt vera betra og persónurnar meira "solid". Jason Segel og Phyllis Smith stóðu sig eiginlega best.
0.3 -
For a Good Time, Call... (2012)
2013-01-29 23:05Fínasta indie mynd. Áhugaverð og skemmtileg saga. Fyndin. Krúttlegur indie bragur. Gaman að sjá Josh Ruben bregða fyrir (sem maður hefur verið að fylgjast með á Tumblr/College Humor).
0.3 -
2013-01-12 01:31
Öðruvísi mynd en ég bjóst við (miðað við hvað trailer-inn gaf til kynna). Meiri rannsóknarlöggu thriller heldur en Jason Bourne action mynd. Ekki eins hröð keyrsla og ég var að vonast eftir. Samt alveg nokkur góð atriði inn á milli. Handritið var ekki æðislegt. Leikurinn heldur ekki mjög góður. Ágætis afþreying - ágætlega spennandi og eitt atriði var sérstaklega fyndið. Ég bjóst samt við meira. Eitthvað við myndina (persónurnar, plot-ið, stemningin, útlitið...) gaf mér það á tilfinninguna að þessi mynd gæti hafa verið gerð fyrir 15 árum síðan. Sem sagt ekki "nýmóðins" mynd ;)
0.3 -
The Five-Year Engagement (2012)
2013-01-10 23:02Meira drama en grín - annað en ég bjóst við út frá trailer-num. Meiri raunveruleiki en bull og vitleysa, miðað við Judd Apatow mynd (hann framleiddi hana reyndar bara). En alveg fyndin á köflum. Löng.
0.3 -
2013-01-07 23:41
Eða "Sleepless Night" eins og hún kallast á ensku. Töff mynd. Flott myndataka. Spennandi. Góð keyrsla (fyrri helminginn alla vega). Áhugavert að megnið af myndinni gerist á (risastórum) næturklúbbi. Brútal rugl seinnipartinn. Nett Jack Bauer/Taken stemning (ég er með eitt markmið og mér er sama um allt annað).
0.3 -
Salmon Fishing in the Yemen (2011)
2013-01-04 22:10Áhugaverð saga... áhugavert verkefni. Meira drama heldur en grín. Bresk rómantík (hvað sem það þýðir).
0.3 -
2012-12-28 22:50
Algjört rugl. Bull og vitleysa. En fyndin vitleysa. Klassísk Adam Sandler mynd að vissu leyti - mikið af genginu hans sem er í mörgum af hans myndum.
0.3 -
2012-11-30 23:29
Fyndin mynd. Krúttleg. Áhugaverð saga. En tekur frekar skrýtinn snúning í lokinn... sem skemmir örlítið heildarupplifunina. Nokkuð impressive að aðalleikkonan (Zoe Kazan) skrifaði s.s. handritið.
0.3 -
2012-11-28 23:13
Brútal mynd. Sérstakur kvikmyndastíll - nokkuð töff. Hljóðin voru oft mjög "nákvæm" - sérstaklega í einu bardagaatriðinu, mjög "close-up", eins og maður væri þarna. Áhugaverð tenging við kreppuna - myndin virðist hafa átt að gerast 2008. Allir eru að harka og redda sér. Þannig að þetta var svolítið "þung" mynd, en fyndin á köflum. Skrautlegar persónur.
0.3 -
Seeking a Friend for the End of the World (2012)
2012-11-10 20:45Krúttleg og fyndin mynd. Smá indie bragur - kostaði "einungis" $10.000.000. Áhugaverðar pælingar - fólk bregst mismunandi við því þegar heimurinn er að farast ;)
0.3 -
2012-10-19 22:31
Töff mynd. Mjög spennandi. En Taken 1 var töluvert betri - mun meiri keyrsla (hraði) í fyrri myndinni. Frekar snubbóttur endir.
0.3 -
2012-10-13 00:55
Fyndin og spennandi mynd. Skemmtilegar persónur. Fullt af góðum leikurum. Mér fannst Tom Waits sérstaklega skemmtilegur. Nett klikkuð mynd á köflum.
0.3 -
2012-10-01 23:28
Krúttleg og fyndin indie mynd. Smá drama/lífið. Nokkuð gott handrit.
0.3 -
2012-09-24 02:14
Fínasta action mynd. Spennandi. Nokkuð gott plot. Áhugavert að þetta er víst byggt á sönnum atburðum (bók sem breska ríkisstjórnin afneitar).
0.3 -
2012-09-24 02:05
("The Raid: Redemption" á ensku). Nánast stanslaust (gróft) ofbeldi. Fínasta action. Nokkuð mikið af kung-fu dansatriðum. Ágætlega spennandi.
0.3 -
2012-09-16 23:01
Fyndin mynd - enda skrifaði Tina Fey handritið ;) Skemmtilegt að sjá hvað eru margir leikarar í þessari mynd sem eru orðnir mjög þekktir núna. Fínasta (léttmetis) afþreying.
0.3 -
Resident Evil: Retribution (2012)
2012-09-16 00:22Fínasta sci-fi zombie/skrímsla hrollvekja. Þetta er s.s. Resident Evil 5 - orðið nokkuð gott franchise. Spennandi - manni brá alveg nokkrum sinnum :) Töff action. Byrjunaratriðið var mjög kúl; slow motion + reverse. Kom vel út. Ekkert brjálæðislega góður leikur eða handrit - en það er kannski ekki nauðsynlegt í svona myndum ;) Fínasta afþreying.
0.3 -
2012-09-15 16:11
Mjög áhugaverð mynd um mat, næringu, vítamín, heilsu... Margir góðir punktar - borða óunnum mat, nóg af vítamínum og ekki elda/steikja/hita meirihlutan af matnum þínum.
0.3 -
2012-09-15 00:11
Fyndin vitleysa. Nett rugluð - jafnvel of mikið rugl á köflum. Að vissu leyti svipaður húmor og maður myndi búast við þegar Will Ferrell og Zach Galifianakis koma saman. Þeir eru nokkuð gott combo. Ég hef samt séð fyndnari/skemmtilegra myndir. Áhugavert að þrátt fyrir að margt varðandi pólitíkina í myndinni væri út í hött þá var það oft ekki svo langt frá raunveruleikanum. En það er kannski það sem gerir þetta smá fyndið ;) #funnybecauseitstrue
0.3 -
2012-09-03 23:44
Mjög áhugaverð mynd. Góðir punktar varðandi heilsu og mataræði. - sumt sem maður vissi (góð áminning) og sumt sem maður vissi ekki. Mér fannst kjarninn vera að borða óunninn mat (sem næst "upprunanum") - það sem forfeður okkar borðuðu í "gamla daga".
0.3 -
2012-08-30 23:40
Fínasta mynd. Skemmtilega frumleg (2 sögur í gangi kriss/kross). Spennandi. Áhugaverðar pælingar. Smá rómantísk á köflum.
0.3 -
2012-08-19 23:01
Áhugaverð mynd. Hún var um það að ekki endilega elta "Ameríska drauminn" eða eitthvað sem er ætlast af þér, heldur elta ástríðuna þína og láta draumana rætast. Gaman að sjá hvernig fólk eltir mismunandi drauma og fær það til að ganga upp. Skemmtilegar sögur.
0.3
← previous 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 next →
List generated by WP Movie Ratings.
Síðast uppfært 19. March, 2024
Bjössi says
þú ert aldeilis fljótur að skrifa um American Gangster. My man, ég er sammála þér með myndina. Töff stöff.
Hannes says
Vei, fyrsta kommentið hérna :)
Já, maður reynir að hafa þetta eins ferskt og hægt er :)
Það er kosturinn við þetta setup – ég hendi bara upp einhverju stuttu review, skelli á þetta einhverjar stjörnur (bara svona gut feeling) og þá er það komið. Ekkert að tefja mig á óþarfa blaðri eða djúpum pælingum.
maple says
mér finnst of mikið af myndum hér með of litlum fresti – horfir of mikið á myndir
Hannes says
hehe… já, sorry – ég skal horfa á færri myndir ;) Væri ein á mánuði of mikið?
En þetta er svona – ég hata ekki að horfa á bíómyndir… I loves it :)
maple says
ein á mánuði ef hún er á bíórásinni
Haukur says
Já ég fór með alltof miklar væntingar á Max kallinn. Myndin var alveg töff en sagan samsvaraði sér alveg ferlega illa. Þetta lyktar eins og gömul skinka.
siggasig says
Öflugur að halda utan um myndirnar sem þú sérð! ;) Nice. Sammála Star Trek umfjölluninni. Frábær mynd! Og hei, líka sammála um Angels and Demons. Ólíkt Da Vinci Code fannst mér myndin betri en bókin.
Hannes says
Takk. Já, mér fannst kominn tími til að hafa smá yfirsýn yfir þær myndir sem ég horfi á þar sem ég horfi á örlítið fleiri en 2 myndir á ári ;)
Já, síðan var líka gaman að sjá í Angels & Demons hvað sumir hlutir voru allt öðruvísi en maður var búinn að ímynda sér þegar maður las bókina :)
Geiri says
Hot Rod: 10*?
Ég hefði smellt 8*.
Hannes says
Jú, skil þig – þegar ég horfði á hana aftur einn þá var þetta ekki alveg eins mikil snilld, en samt fáránlega fyndin. En þegar ég horfði á hana fyrst þá skemmti ég mér alveg konunglega – það var kannski bara stemmningin að horfa á þetta wit da boyz. 10 stjörnur þýðir alls ekki að mér fannst þetta einhver Óskarsverðlaunamynd…
En annars eru þessar stjörnugjafir engan veginn heilagar – oft bara nánast eitthvað skot út í loftið ;)
Sara says
Jæja Nesi, ég er mjög spennt að lesa hvað þú hefur um Shutter Island að segja. Koma svo! Í bíó með þig! ;)
Hannes says
hehe, úff… bara pressa :) Já, ég er svona ennþá að vega og meta hvort ég ætli að sjá Shutter Island í bíó. En ætli maður verði ekki að tékka á þessu, Scorsese stendur alltaf fyrir sínu.