Smá umfjöllun um kvikmyndir sem ég hef séð nýlega… Stutt kvikmyndagagnrýni – ég nenni að skrifa mismikið, fer yfirleitt eftir því hvað mér dettur fyrst í hug – oft bara að hugsa upphátt.
Stjörnugjöf… já, stjörnugjöf er eiginlega svolítið bullshit – ég held að það sé mismikið bakvið stjörnur sem fólk gefur myndum. Hjá mér er það yfirleitt bara gut feeling – hversu skemmtileg/fyndin/spennandi/flott fannst mér myndin. Upplifunin.
Það er ekki eins og ég sé með einhvern ákveðinn skala/staðal eða tékklista – “já, flottur bílaeltingaleikur – 1 stjarna, töff byssubardagi – bætist við 1,5 stjarna…” ;) Síðan getur stjörnugjöfin oft verið svona plús/mínus 1-2 stjörnur.
Hlaðvarp um kvikmyndir
Það er vert að minnast á að ég og Björn erum með hlaðvarp um kvikmyndir sem við köllum Búnir með poppið. Það er hægt að fylgjast með okkur í gegnum Facebook, Twitter og Instagram – og svo auðvitað hlusta á þættina á Spotify, Apple Podcasts, Google Podcasts og öðrum stöðum þar sem fólk hlustar á hlaðvörp.
Sort list by: title | rating ↓ | view date
-
2022-06-20 23:27
Áhugavert concept. Dystopian sci-fi stemning. Handritið hefði getað verið betra. #netflix
0.3 -
2022-02-02 22:18
Áhugavert concept. Handritið hefði getað verið meira spennandi. Ágætis ádeila á stéttaskiptingu. #netflix
0.3 -
2022-01-02 21:51
Áhugaverð saga. Ágætlega töff og spennandi. Brútal. Ekkert súper vel leikin. Handritið var líka smá off.
0.3 -
2021-12-11 23:31
Mikið af "öðruvísi" myndatökum – skotið á ská, snúa myndavélinni í hringi og svona... Hægar og hraðar klippingar - klassískt fyrir svona mynd, þar sem teiknimyndasögur og tölvuleikir eru líklega mikill innblástur. Concept-ið minnir á Nerve (sem kom út sama ár), Death Race 2000, The Running Man og aðrar sambærilegar myndir – það er í raun magnað hvað er búið að gera margar svona "Fólk að keppa upp á líf og dauða á meðan fullt af fólki fylgist spennt með"-myndir. Brútal mynd. Vissulega öðruvísi hlutverk fyrir Harry Potter. Handritið og persónurnar var ekki alltaf toppur – vantaði smá upp á. #amazonprime
0.3 -
Hitman's Wife's Bodyguard (2021)
2021-09-19 15:27Ekki eins góð og fyrri myndin. Handritið hefði geta verið betra. En fínasta afþreying. Alveg spennandi og fyndin.
0.3 -
2021-08-07 21:44
Góð 90’s nostalgía. Fyndin, en líka kjánaleg. Gaman að sjá alla þessa leikara tiltölulega snemma í ferlinum sínum.
0.3 -
2021-04-11 23:13
Fjölskylduvænt léttmeti. Létt grín. Súr húmor inn á milli. Hefði geta verið betur leikin. Handritið var svona "la-la". Allt í lagi sem afþreying. Slatti af fólki sem er vant að búa til myndir saman. #netflix
0.3 -
2021-03-07 23:37
Örlítið hæg í að byggja upp að aðal spennunni… Flæðið var líka smá stirt – hægt og hratt, hægt og hratt... Handritið hefði í raun getað verið betra. En alveg spennandi. #netflix
0.3 -
2020-12-21 21:07
Ekki frábær mynd, en ekki hræðileg. Fyrirsjáanleg og klisjukennd, en mjög fyndin inn á milli. Allt í lagi afþreying. Áhugavert að sjá King Bach (Andrew Bachelor) í fleiri og fleiri myndum – það er vissulega verðmætt að fá áhrifavald með meira en 20 milljón fylgjendur til að tala um kvikmyndina þína 😉 #netflix
0.3 -
2020-11-28 22:35
Áhugavert concept. Fyndin inn á milli. Smá hæg á köflum – ekkert svakaleg action keyrsla. Þar sem "Related movies" voru Spy, The Spy Who Dumped Me og Date Night (sem eru allar í uppáhaldi hjá okkur) þá bjóst ég við öðruvísi mynd – meira action og betra gríni. Þetta var meira svona rom-com með drama.
0.3 -
2020-11-03 22:10
Hugljúf og væmin 90's mynd. Drama – táningsdrama. Stundum voru frekar takmarkaðir leikarahæfileikar í gangi.
0.3 -
2020-10-11 23:49
Skrautlegar persónur. Smá B-mynda bragur. Inn á milli frekar lélegur leikur og jafnvel eins og það sé talsett eftir á fyrir suma leikarana. Mikið ofbeldi. Brútal. Svartur og skrýtinn húmor. Stundum ákveðnar gloppur í handritinu – upp á trúverðugleika, flæði og að meika sense. En alveg spennandi mynd. Langt síðan maður hefur séð eitthvað frá Jonas Åkerlund. Áhugavert að Deadmau5 sá um tónlistina. #netflix
0.3 -
Bill & Ted Face the Music (2020)
2020-09-07 00:15Steikt og kjánaleg mynd – en á skemmtilegan máta. Ekkert verið að taka sig of alvarlega – bara verið að leika sér með tímaflakk. Ágætlega fyndin inn á milli. Nokkur skemmtileg cameos. Fínasta afþreying.
0.3 -
2019-12-26 22:44
Spennandi thriller. Að vissu leyti áhugaverð saga og áhugaverður heimur. En mjög dark og brútal – meira en ég bjóst við.
0.3 -
2019-03-05 21:53
Fyndin vitleysa. Skemmtilegt grín að öllum þessum rom-com klisjum.
0.3 -
2019-03-01 22:22
Spennandi vigilante mynd. Á köflum var handritið ekki alveg nógu metnaðarfullt. Smá gore – enda Eli Roth að leikstýra. Það var áhugavert að sjá að það komu 4 framhaldsmyndir af upprunalegu myndinni frá 1974 með Charles Bronson.
0.3 -
2019-02-20 22:45
Fínasta action/stórslysamynd. En nokkuð einfalt handrit – formúlukennt... Góð afþreying.
0.3 -
2019-02-14 21:24
Áhugaverð frásögn um þetta fyrirbæri. Gott dæmi um hvað er hægt að gera með samfélagsmiðlum og áhrifavöldum – þessi lína var í lokinn: "We're living in an era in which you can convince millions of people to do anything just on marketing alone." Magnað hvað þetta fór langt og hvað þetta voru miklar lygar og blekkingar.
0.3 -
2019-02-04 22:23
Kúl sci-fi action atriði. Áhugaverð saga og sci-fi heimur. Rómantísku samtölin (daðrið) voru smá vandræðaleg. Önnur samtöl voru líka stundum ekki alveg nógu smooth. Það vantaði eitthvað til að gera þessa mynd meira solid...
0.3 -
Black Mirror: Bandersnatch (2018)
2019-01-03 21:53Áhugaverð upplifun. Dark og súrt. Gaman að prófa svona interactive bíómynd. Söguþráðurinn/plottið var skemmtilega "meta".
0.3 -
2018-12-25 15:49
Spennandi á köflum, en missti stundum dampinn – vantaði smá á keyrsluna/flæðið. Handritið var stundum ekki alveg nógu solid. Fínn húmor. Fínasta afþreying.
0.3 -
2018-12-03 22:47
Ágætlega spennandi. Smá lengi af stað – vantaði smá ryþma/keyrslu. Stundum vantaði smá upp á handritið. Alicia Vikander var ágætlega töff.
0.3 -
2018-08-31 22:17
Fyndin mynd. Nett skrýtin/rugluð/súr og svo væmin á köflum.
0.3 -
Popstar: Never Stop Never Stopping (2016)
2018-04-30 14:49Bull og vitleysa to the max. En nokkuð fyndin mynd. Svakalega mikið af cameos.
0.3 -
The Purge: Election Year (2016)
2018-02-18 20:35Klikkað og sjúkt concept. Ekkert svakalegur leikur né handrit & flæði. Smá low-budget bragur stundum. En ágætlega spennandi.
0.3 -
2018-02-11 21:59
Áhugavert concept – smá blanda af Big og Groundhog Day. Fyndin á köflum. Gaman og áhugavert að sjá Vine-stjörnur eins og King Bach í bíómyndum.
0.3 -
xXx: Return of Xander Cage (2017)
2018-01-27 22:04Kjánaleg, silly, jafnvel fáránleg... en fyndin, spennandi, gott action og fín afþreying.
0.3
← previous 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 next →
List generated by WP Movie Ratings.
Síðast uppfært 19. March, 2024
Bjössi says
þú ert aldeilis fljótur að skrifa um American Gangster. My man, ég er sammála þér með myndina. Töff stöff.
Hannes says
Vei, fyrsta kommentið hérna :)
Já, maður reynir að hafa þetta eins ferskt og hægt er :)
Það er kosturinn við þetta setup – ég hendi bara upp einhverju stuttu review, skelli á þetta einhverjar stjörnur (bara svona gut feeling) og þá er það komið. Ekkert að tefja mig á óþarfa blaðri eða djúpum pælingum.
maple says
mér finnst of mikið af myndum hér með of litlum fresti – horfir of mikið á myndir
Hannes says
hehe… já, sorry – ég skal horfa á færri myndir ;) Væri ein á mánuði of mikið?
En þetta er svona – ég hata ekki að horfa á bíómyndir… I loves it :)
maple says
ein á mánuði ef hún er á bíórásinni
Haukur says
Já ég fór með alltof miklar væntingar á Max kallinn. Myndin var alveg töff en sagan samsvaraði sér alveg ferlega illa. Þetta lyktar eins og gömul skinka.
siggasig says
Öflugur að halda utan um myndirnar sem þú sérð! ;) Nice. Sammála Star Trek umfjölluninni. Frábær mynd! Og hei, líka sammála um Angels and Demons. Ólíkt Da Vinci Code fannst mér myndin betri en bókin.
Hannes says
Takk. Já, mér fannst kominn tími til að hafa smá yfirsýn yfir þær myndir sem ég horfi á þar sem ég horfi á örlítið fleiri en 2 myndir á ári ;)
Já, síðan var líka gaman að sjá í Angels & Demons hvað sumir hlutir voru allt öðruvísi en maður var búinn að ímynda sér þegar maður las bókina :)
Geiri says
Hot Rod: 10*?
Ég hefði smellt 8*.
Hannes says
Jú, skil þig – þegar ég horfði á hana aftur einn þá var þetta ekki alveg eins mikil snilld, en samt fáránlega fyndin. En þegar ég horfði á hana fyrst þá skemmti ég mér alveg konunglega – það var kannski bara stemmningin að horfa á þetta wit da boyz. 10 stjörnur þýðir alls ekki að mér fannst þetta einhver Óskarsverðlaunamynd…
En annars eru þessar stjörnugjafir engan veginn heilagar – oft bara nánast eitthvað skot út í loftið ;)
Sara says
Jæja Nesi, ég er mjög spennt að lesa hvað þú hefur um Shutter Island að segja. Koma svo! Í bíó með þig! ;)
Hannes says
hehe, úff… bara pressa :) Já, ég er svona ennþá að vega og meta hvort ég ætli að sjá Shutter Island í bíó. En ætli maður verði ekki að tékka á þessu, Scorsese stendur alltaf fyrir sínu.