
Smá umfjöllun um kvikmyndir sem ég hef séð nýlega… Stutt kvikmyndagagnrýni – ég nenni að skrifa mismikið, fer yfirleitt eftir því hvað mér dettur fyrst í hug – oft bara að hugsa upphátt.
Stjörnugjöf… já, stjörnugjöf er eiginlega svolítið bullshit – ég held að það sé mismikið bakvið stjörnur sem fólk gefur myndum. Hjá mér er það yfirleitt bara gut feeling – hversu skemmtileg/fyndin/spennandi/flott fannst mér myndin. Upplifunin.
Það er ekki eins og ég sé með einhvern ákveðinn skala/staðal eða tékklista – “já, flottur bílaeltingaleikur – 1 stjarna, töff byssubardagi – bætist við 1,5 stjarna…” ;) Síðan getur stjörnugjöfin oft verið svona plús/mínus 1-2 stjörnur.
Hlaðvarp um kvikmyndir
Það er vert að minnast á að ég og Björn erum með hlaðvarp um kvikmyndir sem við köllum Búnir með poppið. Það er hægt að fylgjast með okkur í gegnum Facebook, Twitter og Instagram – og svo auðvitað hlusta á þættina á Spotify, Apple Podcasts, Google Podcasts og öðrum stöðum þar sem fólk hlustar á hlaðvörp.
Sort list by: title | rating ↓ | view date
-
2011-06-21 00:31
Töff mynd. Spennandi. Áhugaverðar pælingar (varðandi heilann og getu okkar). Trailer-inn var svolítið villandi, gaf ranga mynd af plot-inu.
0.3 -
2011-05-30 15:36
Mjög fyndin. Algjört rugl. Of mikið rugl jafnvel á köflum (ekki oft samt). Spennandi, en stundum smá fyrirsjáanleg. Apinn var fyndinn.
0.3 -
2011-05-26 13:24
Góð mynd. Spennandi. Hugljúf fjölskyldumynd. Fyndin. Skemmtileg.
0.3 -
2011-04-29 01:01
Áhugaverð heimildamynd. Skemmtilegt að sjá hvað fólk ákvað að gera þegar því var sagt upp.
0.3 -
2011-04-16 01:38
Kúl mynd. Spennandi. Áhugaverð saga. Ég fíla svona quantum physics/sci-fi/alternative universe pælingar. Hefði samt mátt vera meiri HTML kóði ;)
0.3 -
2011-03-14 22:59
Mjög góð mynd. Virkilega góð myndataka - mjög skemmtileg/áhugaverð á köflum. Leit mjög vel út - flott svona svört/hvít. Skemmtilegur punktur: Þar sem myndin var svört/hvít var hægt að nota súkkulaðisíróp sem gerviblóð ;) Þrátt fyrir að það var í raun sýnt takmarkað þá var hún nokkuð scary/skelfileg. Spennandi. Fínasta handrit. Sturtuatriðið var magnað... intense. Tónlistin er geðveik - gerir rosalega mikið fyrir myndina. Manni brá alveg nokkrum sinnum. Hressandi adrenalín-flæði :)
0.3 -
2011-01-02 20:01
Mjög góð mynd. Áhugaverð að ýmsu leyti - sjá hvernig þetta þróaðist (hvernig mismunandi aðilar/stofnanir fréttu af 9/11 og hvernig þær brugðust við). Tók smá á að horfa á seinni partinn. Vel gerð mynd.
0.3 -
2010-12-26 03:30
Góð mynd. Mjög fyndin og skemmtileg. Skemmtilegar persónur. Frakkarnir geta verið svo krúttlegir.
0.3 -
2010-12-11 00:22
Góð mynd. Gott action. Góð spenna. Frændi minn Dwayne (* copyright bj) stendur sig alltaf vel sem harðjaxl. Fullt af þekktum leikurum. Flott myndataka. Töff mynd.
0.3 -
2010-11-08 22:52
Áhugaverð mynd. Sækó thriller. Siðferðislega ögrandi. Góðir leikarar. Svipað og með myndina Unthinkable þá er þetta ádeila á hversu langt er hægt að ganga í stríðinu gegn hryðjuverkum... Myndir sem gerast í svona takmörkuðu rými eru alltaf sérstakar. Smá indie bragur yfir þessari mynd. Nokkuð vel skrifuð. Spennandi.
0.3 -
2010-10-24 00:54
Mjög góð mynd. Leit vel út (kúl "áferð"/filter/eitthvað). Gott handrit. Góðir leikarar - El Jefe/Miguel var töffari, samt kannski aðeins of góðhjartaður fyrir götustrák ;) Spennandi. Stundum gleymdi ég að ég væri að horfa á mynd eftir Baltasar Kormák, fannst einhvern veginn að Tony Scott eða einhver bandarískur leikstjóri væri á bakvið þetta - s.s. mjög vel leikstýrð. Baltasar er alveg að meika það. Mikið af siðferðislegum spurningum... siðferðislega ögrandi mynd ;) Drama. Smá ádeila í gangi...
0.3 -
2010-10-09 23:54
Mjög góð mynd. Mjög solid - gott handrit, góðir leikarar, vel gerð... Spennandi. Gott action.
0.3 -
2010-10-02 00:53
Mjög góð mynd. Gott handrit - skemmtilegar tilvísanir og endurtekningar (eins konar staðlar...). Frekar "symbólísk" mynd. Áhugaverðar persónur. Nokkuð fyndin á köflum (stundum af því að hún var svo súr). Flott myndataka/sjónarhorn. Mjög róleg og hæg mynd. Nokkuð arty. Fyrsta (og eina?) myndin sem ég sá á RIFF 2010.
0.3 -
2010-09-07 01:17
Meira ruglið :) Klassískt Adam McKay og Will Ferrel stöff. Mjög fyndin og ágætlega spennandi. Fín action atriði inn á milli. Mark Wahlberg og Will Ferrell voru fínt teymi. Mér fannst "drinking with Terry Hoitz" atriðið mjög kúl - skemmtilega útfært. Nett ádeila á bankahrunið/credit collapse og öll þessi bailout og bónusa. Það er atriði alveg í lokinn eftir allan kredit-listann, ágætlega fyndið.
0.3 -
2010-08-27 01:26
Fyndið rugl. Góð skemmtun. Random vitleysa. Var að fíla animation senurnar.
0.3 -
2010-07-20 00:30
Gott action. Nóg af ofbeldi. Blóðugu ofbeldi. Fín spenna. Töff persónur. Kúl mynd, en ekkert meistaraverk.
0.3 -
2010-07-12 21:35
Kúl mynd. Gott action. Góð skemmtun. Ég hef ekki séð The A-Team ennþá en út frá trailer-num þá held ég að plottið sé (að hluta til) svipað - Teymi af sérsveitamönnum sem eru útskúfaðir og þurfa að bjarga sér sjálfir til að hreinsa mannorð sitt með ýmsum (extreme) aðferðum.
0.3 -
2010-07-01 01:11
Gott fjör. Mjög skemmtileg mynd. Pixar kunna þetta. Margar skemmtilegar persónur. Stuttmyndin á undan, Day & Night, var líka mjög skemmtileg. Sá þetta í 3D en maður var ekkert mjög mikið var við auka 3D effect - ekki eins mikið og þegar maður sá Avatar. En hún leit mjög vel út.
0.3 -
2010-06-05 00:47
Virkilega fyndin mynd - fullt af sprenghlægilegum atriðum. Skemmtilegt rugl. Mjög skrautleg (og skemmtileg) persóna þessi Aldous Snow (Russell Brand). Nóg af cameos.
0.3 -
2010-06-01 01:01
Góð mynd. Mjög brútal. Bresk framleiðsla - ekki þessi týpíski Hollywood bragur. Vel gerð. Flott landslag - minnti smá á íslenskt landslag. Mögnuð bardagaatriði - blóð út um allt. Fín saga.
0.3 -
2010-04-18 02:20
Góð grín-spennumynd. Kúl action atriði í bland við góðan húmor. Meira brútal en ég bjóst við. Skemmtilegar persónur - sérstaklega Hit-Girl.
0.3 -
2010-04-15 00:50
Fínasta hryllingsmynd. Mjög spennandi á köflum. Fullt af sjokk-atriðum - maður fékk góðan skammt af adrenalíni og var oft alveg á nálum. Að vissu leyti týpísk vírusmynd. Smá zombie bragur. Þetta er víst endurgerð af samnefndri mynd frá 1973 sem George A. Romero gerði.
0.3 -
2010-04-10 01:10
Gott fjör. Mjög fyndin mynd - ekki við öðru að búast frá Steve Carell og Tina Fey. Hellingur af þekktum leikurum.
0.3 -
2010-04-03 00:49
Mjög fyndin mynd. Eins og við mátti búast var hún mjög silly - eiginlega vitleysa út í gegn. En gott fjör. Ekkert brjálæðislega gott handrit eða söguþráður en það er ekkert nauðsynlegt með svona mynd. Það var nóg af sprenghlægilegum atriðum.
0.3 -
2010-01-30 02:29
Kúl mynd. Töff áferð á henni, allt frekar brún/gráleitt - setti viðeigandi tón fyrir svona eftir-heimsendi (post-apocalytic) mynd. Denzel eitursvalur eins og venjulega. Mjög flott slagsmálaatriði. Mila Kunis var líka nokkuð kúl - það þarf ekkert að fara nánar út í það hvað hún er fiiine. Það er greinilegt að í framtíðinni er bráðnauðsynlegt að eiga flott sólgleraugu ;) Nokkur skemmtileg product placements - iPod Classic sem var ennþá alive and kicking og svo Beats by Dr. Dre heyrnatól (2 mismunandi týpur). Það var nett kúrekastemning - lone drifter walking through town, smábær í eiðimörkinni, bar/hóruhús sem höfuðstöðvar vonda kallsins...
0.3 -
2010-01-11 00:23
Virkilega scary mynd... Vissulega smá Blair Witch Project fílingur - allt tekið upp með myndavél aðalpersónanna og svona. Gaman að horfa á svona öðruvísi myndir. Nú vona ég bara að ég nái að sofna ;)
0.3 -
2009-12-27 23:00
Mjög fyndin. Georg var ekki eins leiðinlegur/þreytandi og ég hefði alveg búist við. Ólafur Ragnar/Pétur Jóhann sló náttúrulega í gegn - bara fyndin persóna. Slatti af dramatík en ekki eins mikið/yfirþyrmandi og maður hefði búist við miðað við suma Vaktar-þættina. Nokkuð góður endir á söguheimi sem var svona aðeins farinn að þreytast (mér fannst Fangavaktin engin snilld þótt það væru nokkrir góðir sprettir).
0.3 -
2009-12-26 18:16
Áhugaverð og skemmtileg heimildamynd. Lil' Wayne er skrautleg persóna... Gaman að skyggnast bak við tjöldin.
0.3 -
2009-12-19 01:28The Bad Lieutenant: Port of Call - New Orleans (2009)
Nicolas Cage er langbestur þegar hann leikur svona klikkaðar persónur (eins og t.d. í Face/Off). Frekar klikkuð mynd - aðallega af því að megnið af persónunum voru nett klikkaðar. Mjög fyndin á köflum, vegna þess hve klikkað liðið var (eða s.s. aðallega Nicolas Cage). Já, svona þrálátir bakverkir geta farið illa í mann...
0.3
← previous 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 next →
List generated by WP Movie Ratings.
Síðast uppfært 18. May, 2023
þú ert aldeilis fljótur að skrifa um American Gangster. My man, ég er sammála þér með myndina. Töff stöff.
Vei, fyrsta kommentið hérna :)
Já, maður reynir að hafa þetta eins ferskt og hægt er :)
Það er kosturinn við þetta setup – ég hendi bara upp einhverju stuttu review, skelli á þetta einhverjar stjörnur (bara svona gut feeling) og þá er það komið. Ekkert að tefja mig á óþarfa blaðri eða djúpum pælingum.
mér finnst of mikið af myndum hér með of litlum fresti – horfir of mikið á myndir
hehe… já, sorry – ég skal horfa á færri myndir ;) Væri ein á mánuði of mikið?
En þetta er svona – ég hata ekki að horfa á bíómyndir… I loves it :)
ein á mánuði ef hún er á bíórásinni
Já ég fór með alltof miklar væntingar á Max kallinn. Myndin var alveg töff en sagan samsvaraði sér alveg ferlega illa. Þetta lyktar eins og gömul skinka.
Öflugur að halda utan um myndirnar sem þú sérð! ;) Nice. Sammála Star Trek umfjölluninni. Frábær mynd! Og hei, líka sammála um Angels and Demons. Ólíkt Da Vinci Code fannst mér myndin betri en bókin.
Takk. Já, mér fannst kominn tími til að hafa smá yfirsýn yfir þær myndir sem ég horfi á þar sem ég horfi á örlítið fleiri en 2 myndir á ári ;)
Já, síðan var líka gaman að sjá í Angels & Demons hvað sumir hlutir voru allt öðruvísi en maður var búinn að ímynda sér þegar maður las bókina :)
Hot Rod: 10*?
Ég hefði smellt 8*.
Jú, skil þig – þegar ég horfði á hana aftur einn þá var þetta ekki alveg eins mikil snilld, en samt fáránlega fyndin. En þegar ég horfði á hana fyrst þá skemmti ég mér alveg konunglega – það var kannski bara stemmningin að horfa á þetta wit da boyz. 10 stjörnur þýðir alls ekki að mér fannst þetta einhver Óskarsverðlaunamynd…
En annars eru þessar stjörnugjafir engan veginn heilagar – oft bara nánast eitthvað skot út í loftið ;)
Jæja Nesi, ég er mjög spennt að lesa hvað þú hefur um Shutter Island að segja. Koma svo! Í bíó með þig! ;)
hehe, úff… bara pressa :) Já, ég er svona ennþá að vega og meta hvort ég ætli að sjá Shutter Island í bíó. En ætli maður verði ekki að tékka á þessu, Scorsese stendur alltaf fyrir sínu.