Smá umfjöllun um kvikmyndir sem ég hef séð nýlega… Stutt kvikmyndagagnrýni – ég nenni að skrifa mismikið, fer yfirleitt eftir því hvað mér dettur fyrst í hug – oft bara að hugsa upphátt.
Stjörnugjöf… já, stjörnugjöf er eiginlega svolítið bullshit – ég held að það sé mismikið bakvið stjörnur sem fólk gefur myndum. Hjá mér er það yfirleitt bara gut feeling – hversu skemmtileg/fyndin/spennandi/flott fannst mér myndin. Upplifunin.
Það er ekki eins og ég sé með einhvern ákveðinn skala/staðal eða tékklista – “já, flottur bílaeltingaleikur – 1 stjarna, töff byssubardagi – bætist við 1,5 stjarna…” ;) Síðan getur stjörnugjöfin oft verið svona plús/mínus 1-2 stjörnur.
Hlaðvarp um kvikmyndir
Það er vert að minnast á að ég og Björn erum með hlaðvarp um kvikmyndir sem við köllum Búnir með poppið. Það er hægt að fylgjast með okkur í gegnum Facebook, Twitter og Instagram – og svo auðvitað hlusta á þættina á Spotify, Apple Podcasts, Google Podcasts og öðrum stöðum þar sem fólk hlustar á hlaðvörp.
Sort list by: title | rating ↓ | view date
-
The Cloverfield Paradox (2018)
2018-02-11 23:31Mér fannst fyrsta Cloverfield myndin algjör snilld. 10 Cloverfield Lane var líka áhugaverð, spennandi og einstök á sinn máta. Þannig að ég var mjög spenntur að heyra að það væri komið meira af efni frá þessum heimi. Skemmtileg sci-fi mynd. Áhugaverðar vísindapælingar. Gaman að sjá vini J.J. Abrams; Simon Pegg og Greg Grunberg, með smá hlutverk.
0.3 -
Harry Potter and the Chamber of Secrets (2002)
2018-02-03 21:56Fyndin og spennandi. Minnir mig á unglinga-spæjara-bækurnar eins og Frank og Jói (The Hardy Boys), Nancy Drew, Fimm fræknu... nokkuð vinsælt concept fyrir börn og unglinga – Scooby Doo o.s.frv. Hugljúf og skemmtileg ævintýramynd.
0.3 -
Harry Potter and the Sorcerer's Stone (2001)
2018-02-03 15:51Fyndin. Spennandi. Þetta er náttúrulega byggt á bók og mér fannst það stundum augljóst í flæðinu – þetta var oft bara nokkur tengd atriði úr einum kafla og svo var bara tekinn fyrir næsti kafli og ekki beint smooth flæði á milli. Skemmtileg ævintýramynd.
0.3 -
2018-01-24 22:01
Kúl myndataka og grafík (hvernig þau blönduðu UI/viðmótinu við myndina). Töff tónlist. Flott „neon future“ stemning. Áhugavert concept og mjög viðeigandi/relevant/current út frá samfélagsmiðlum og öllum gögnunum sem eru til um okkur, hvað við erum að deila mikið af efni, oft í rauntíma. Spennandi. Gaman að sjá Casey Neistat bregða fyrir :) ‘End titles’ grafíkin var snilld – mjög gott tech/internet tribute/homage. Jóhann Jóhannsson var þarna með eitt lag (Nerve Remix).
0.3 -
2017-12-29 21:48
Áhugaverð blanda af sci-fi, rómantík og spennu. Geimskipið var kúl – ég var sérstaklega að fíla skjöldinn. Bíómyndir með fáum leikurum geta oft verið áhugaverðar... myndi halda að það sé smá krefjandi að búa til áhugaverð mynd þegar það er ekki hellingur af persónum til að vinna með (og gefa myndinni dýpt).
0.3 -
Jumanji: Welcome to the Jungle (2017)
2017-12-27 23:35Virkilega skemmtileg mynd. Fyndin og spennandi. Topp afþreying. Dwayne frændi er alltaf góður :)
0.3 -
2017-12-21 21:41
Góð blanda af húmor og action/spennu. Sem sagt; fyndin og spennandi. Að vissu leyti “buddy cop” mynd. Góð afþreying. Smá auka atriði (blooper) alveg í lokinn á kreditlistanum.
0.3 -
2017-11-26 23:39
Hörku ofurhetjumynd. Fínasta action. Ágætis húmor inn á milli. Nóg af þekktum leikurum. Flott og skemmtilegt teymi – þótt það sé yfirleitt aðeins meiri sjarmi og kraftur í kringum Marvel persónurnar. Það var eitthvað örlítið kjánalegt við vonda kallinn. Alltaf gaman að sjá Íslandi (og íslensku) bregða fyrir í risastórum bíómyndum.
0.3 -
2017-10-27 22:28
Mjög fyndin vitleysa. Skemmtilega klikkuð. Fullt af góðum persónum – mikið í gangi.
0.3 -
2017-09-09 23:03
Spennandi mynd. Klikkuð saga – magnaður karakter, svakaleg ævintýri sem hann hefur lent í. Ég er á kafi í Narcos þáttunum, þannig að það er mjög fróðlegt að sjá meira frá þessu sjónarhorni.
0.3 -
War for the Planet of the Apes (2017)
2017-07-25 23:28Spennandi og flott mynd. Virkilega flottar tæknibrellur – aparnir voru nánast óaðfinnanlegir. Áhugaverð saga – það er alveg hægt að líkja þessu stríði við eitt og annað í mannkynssögunni þar sem fólk var hrætt við breytingar, fólk sem er öðruvísi o.s.frv. Steve Zahn var mjög góður sem Bad Ape – mjög fínt "comic relief" :)
0.3 -
2017-07-08 23:00
Mjög spennandi mynd. Fullt af fínum leikurum. Fínar action senur.
0.3 -
2017-06-19 23:37
Spennandi. Fín action keyrsla inn á milli. Áhugavert concept/plot. Góður húmor. Anna Kendrick var góð sem "comic relief".
0.3 -
2017-05-21 22:45
Spennandi. Góðir leikarar. Skemmtileg nútíma-kúreka stemning. Töff að Nick Cave sá um tónlistina (soundtrack-ið).
0.3 -
The Fate of the Furious (2017)
2017-04-20 20:07Mjög skemmtileg mynd. Spennandi. Svakalegt action – mjög góð keyrsla/rússíbani á köflum. Góður húmor líka. Vel gerð (gott production – það er búið að sýna að þetta franchise virkar, þannig að fólk er ekki hrætt við að dæla peningum í þetta). Fínasta handrit/plot (miðað við F&F mynd). Charlize Theron var töff villain.
0.3 -
2017-03-19 23:37
Mjög spennandi ævintýra-stórslysa-skrímslamynd. Gott action. Fín keyrsla. Fullt af góðum leikurum. John C. Reilly lék mjög góðan (fyndinn) karakter. Töff tónlist – gott 60s/70s vibe. Tæknibrellur nútildags eru oft nánast óaðfinnanlegar – frekar magnað.
0.3 -
2017-02-19 23:47
Spennandi mynd. Svakaleg action/bardaga-atriði. Brútal. Líka nettur húmor inn á milli, alla vega nokkur kómísk atriði. Svipað þema og í fyrstu myndinni – Übermensch á móti öllum vondu köllunum (og konunni). Flott myndataka – slatti af mjög skemmtilegum skotum.
0.3 -
2017-01-29 21:35
Mjög spennandi. Áhugavert að sjá hluta af Pablo Escobar sögunni frá þessu sjónarhorni. Fínir leikarar.
0.3 -
2016-12-27 00:23
Fínasta afþreying. Skemmtileg töfrabrögð og sjónhverfingar. Gaman að ein persónan hét Hannes :) Áhugavert að sjá að David Copperfield var framleiðandi. Daniel Radcliffe elskar greinilega að leika í töframyndum ;)
0.3 -
Rogue One: A Star Wars Story (2016)
2016-12-21 23:50Mjög spennandi. Gott action. Góður húmor, en nokkrir brandarar voru örlítið þvingaðir. Að vissu leyti klassísk Star Wars mynd. Það er ekkert verið að finna upp hjólið. Það var svona smá eins og ég hefði séð eitthvað svipað áður ;) En það er gaman að sjá meira úr þessum heimi. Flott mynd. Alltaf gaman að sjá Ísland í kvikmyndum.
0.3 -
2016-11-26 23:04
Mjög spennandi. Alltaf áhugavert að sjá myndir með fáum leikurum. Gaman að skyggnast nánar inn í Cloverfield heiminn. Ég væri alveg til í að sjá fleiri myndir – en þarf maður að bíða í 8 ár eftir næstu mynd? ;) Áhugavert að fylgjast með hvað mikið af kvikmyndum og sjónvarpsþáttum sem J.J. Abrams kemur nálægt ganga mikið út á dulúð (mystery).
0.3 -
2016-11-25 23:29
Mjög fyndin mynd. Góð vitleysa. Áhugavert að horfa á svona mynd þegar maður er að átta sig á þessu nýja foreldrahlutverki.
0.3 -
2016-10-30 22:58
Flott mynd. Spennandi. Magnaðar tæknibrellur til að búa til þennan töfraheim, sem er áhugaverð viðbót við Marvel heiminn. Skemmtilegar pælingar líka varðandi hvað hugurinn er magnaður og hvað er hægt að gera og hafa áhrif á. Góður húmor eins og í mörgum Marvel myndum. Doctor Strange var með skemmtilegan (og óvenjulegan) sidekick.
0.3 -
Scouts Guide to the Zombie Apocalypse (2015)
2016-10-07 22:21Fyndin vitleysa/B-mynd. Spennandi. Fínt action. Gott soundtrack. Gaman að sjá Dillon Francis í cameo. Topp afþreying.
0.3 -
2016-09-22 23:52
Mjög áhugaverð saga – frekar klikkuð atburðarás. Það er greinilega hægt að græða helling af peningum ef siðferðið er ekkert að trufla mann ;) Spennandi mynd. Fyndin á köflum.
0.3 -
2016-07-31 23:13
Mjög spennandi. Flott action atriði. Flottur ævintýraheimur – umhverfið, gervin/búningarnir... Það var mjög áhugavert að sjá Jeff Bezos (stofnanda Amazon) á credit listanum. Hann er víst mikill Star Trek aðdáandi og fékk að vera í geimverugervi í einu atriði.
0.3 -
2016-07-02 01:58
Mjög fyndin vitleysa. Fullt af fínum action atriðum. Dwayne frændi er alltaf skemmtilegur ;) Spennandi. Fínasta afþreying.
0.3 -
The Twilight Saga: Breaking Dawn - Part 2 (2012)
2016-06-26 14:52Áhugavert að sjá muninn á fyrstu myndinni sem var með budget upp á $37 milljón og svo þessari mynd sem var með budget upp á $120 milljón. Spennandi mynd. Fín ævintýra/supernatural saga. Flott action atriði. #NetflixAndChill
0.3 -
The Twilight Saga: Breaking Dawn - Part 1 (2011)
2016-06-22 22:49Meira "production value" en í fyrri myndunum. Eitt atriði með varúlfunum var frekar skrýtið/kjánalegt. Spennandi. Svo er eitt atriði í viðbót eftir fyrri hlutann af credit listanum. #NetflixAndChill
0.3
← previous 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 next →
List generated by WP Movie Ratings.
Síðast uppfært 19. March, 2024
Bjössi says
þú ert aldeilis fljótur að skrifa um American Gangster. My man, ég er sammála þér með myndina. Töff stöff.
Hannes says
Vei, fyrsta kommentið hérna :)
Já, maður reynir að hafa þetta eins ferskt og hægt er :)
Það er kosturinn við þetta setup – ég hendi bara upp einhverju stuttu review, skelli á þetta einhverjar stjörnur (bara svona gut feeling) og þá er það komið. Ekkert að tefja mig á óþarfa blaðri eða djúpum pælingum.
maple says
mér finnst of mikið af myndum hér með of litlum fresti – horfir of mikið á myndir
Hannes says
hehe… já, sorry – ég skal horfa á færri myndir ;) Væri ein á mánuði of mikið?
En þetta er svona – ég hata ekki að horfa á bíómyndir… I loves it :)
maple says
ein á mánuði ef hún er á bíórásinni
Haukur says
Já ég fór með alltof miklar væntingar á Max kallinn. Myndin var alveg töff en sagan samsvaraði sér alveg ferlega illa. Þetta lyktar eins og gömul skinka.
siggasig says
Öflugur að halda utan um myndirnar sem þú sérð! ;) Nice. Sammála Star Trek umfjölluninni. Frábær mynd! Og hei, líka sammála um Angels and Demons. Ólíkt Da Vinci Code fannst mér myndin betri en bókin.
Hannes says
Takk. Já, mér fannst kominn tími til að hafa smá yfirsýn yfir þær myndir sem ég horfi á þar sem ég horfi á örlítið fleiri en 2 myndir á ári ;)
Já, síðan var líka gaman að sjá í Angels & Demons hvað sumir hlutir voru allt öðruvísi en maður var búinn að ímynda sér þegar maður las bókina :)
Geiri says
Hot Rod: 10*?
Ég hefði smellt 8*.
Hannes says
Jú, skil þig – þegar ég horfði á hana aftur einn þá var þetta ekki alveg eins mikil snilld, en samt fáránlega fyndin. En þegar ég horfði á hana fyrst þá skemmti ég mér alveg konunglega – það var kannski bara stemmningin að horfa á þetta wit da boyz. 10 stjörnur þýðir alls ekki að mér fannst þetta einhver Óskarsverðlaunamynd…
En annars eru þessar stjörnugjafir engan veginn heilagar – oft bara nánast eitthvað skot út í loftið ;)
Sara says
Jæja Nesi, ég er mjög spennt að lesa hvað þú hefur um Shutter Island að segja. Koma svo! Í bíó með þig! ;)
Hannes says
hehe, úff… bara pressa :) Já, ég er svona ennþá að vega og meta hvort ég ætli að sjá Shutter Island í bíó. En ætli maður verði ekki að tékka á þessu, Scorsese stendur alltaf fyrir sínu.