Smá umfjöllun um kvikmyndir sem ég hef séð nýlega… Stutt kvikmyndagagnrýni – ég nenni að skrifa mismikið, fer yfirleitt eftir því hvað mér dettur fyrst í hug – oft bara að hugsa upphátt.
Stjörnugjöf… já, stjörnugjöf er eiginlega svolítið bullshit – ég held að það sé mismikið bakvið stjörnur sem fólk gefur myndum. Hjá mér er það yfirleitt bara gut feeling – hversu skemmtileg/fyndin/spennandi/flott fannst mér myndin. Upplifunin.
Það er ekki eins og ég sé með einhvern ákveðinn skala/staðal eða tékklista – “já, flottur bílaeltingaleikur – 1 stjarna, töff byssubardagi – bætist við 1,5 stjarna…” ;) Síðan getur stjörnugjöfin oft verið svona plús/mínus 1-2 stjörnur.
Hlaðvarp um kvikmyndir
Það er vert að minnast á að ég og Björn erum með hlaðvarp um kvikmyndir sem við köllum Búnir með poppið. Það er hægt að fylgjast með okkur í gegnum Facebook, Twitter og Instagram – og svo auðvitað hlusta á þættina á Spotify, Apple Podcasts, Google Podcasts og öðrum stöðum þar sem fólk hlustar á hlaðvörp.
Sort list by: title | rating ↓ | view date
-
2021-03-02 23:05
Spennandi sci-fi mynd. Stundum var tölvugrafíkin aðeins of gervileg – útlit og hreyfingar. Að vissu leyti týpísk/formúlukennd mynd þrátt fyrir að concept-ið sé einstakt. #netflix
0.3 -
2021-02-28 00:40
Miðað við trailer-inn þá bjóst ég við hraðari keyrslu og meiri action. Þar sem myndin heitir The Marksman bjóst ég líka við að hann myndi nýta þá sérstöku hæfileika meira í gegnum myndina. Nokkuð hæg mynd á köflum – bara Liam Neeson og strákurinn að keyra um Bandaríkin og verða meiri vinir 😉 Ákveðnar holur í handritinu – ekki alveg nógu solid. Alveg fín Liam Neeson mynd og spennandi á köflum, en ekki hans besta.
0.3 -
2021-02-24 23:34
Spennandi dystopian action-mynd. Brútal. Alex Garland er greinilega mikið fyrir dystopian framtíðarmyndir.
0.3 -
2021-02-06 23:01
Fínasta grín–spennumynd. Góður húmor og gott action. Solid afþreying.
0.3 -
2021-02-03 00:32
Spennandi löggu-thriller. Skemmtileg old-school/90’s stemning – mikið af skemmtilegum 90’s atriðum sem var hugað að upp á útlitið (sviðsmyndina). Takturinn var líka að vissu leyti gamaldags – svona hæg rannsóknarlöggu-mynd. Flottir leikarar – Jared Leto var mjög góður sem psycho týpan. Tónlistin var líka mjög góð – gerði helling fyrir mörg atriði. Endaði öðruvísi en ég bjóst við – skemmtilega hressandi þegar myndir eru ekki of fyrirsjáanlegar. Mjög gaman að sjá loksins bíómynd í kvikmyndahúsi – alltof langt síðan síðast.
0.3 -
2021-01-18 23:34
Gott action. Spennandi. Áhugavert sci-fi/framtíðar concept. Vantaði kannski örlítið í handritið/söguna. Seinni helmingurinn var ekki alveg eins þéttur og sá fyrri. #netflix
0.3 -
2021-01-06 22:05
Skemmtilega klikkuð mynd. Eins og í Honest Thief þá var Jai Courtney aftur að leika sleazebag. Fín afþreying.
0.3 -
2020-11-03 23:11
Mjög spennandi frönsk löggu & bófa mynd. Smá ruglingslegt hver er að svíkja hvern. Aðeins of dark og WTF á köflum. #netflix
0.3 -
2020-10-25 22:04
Nokkuð hæg mynd – tók smá tíma að ná flugi. Mikið New York vibe – var að fíla það. Quirky húmor – mjög fyndin inn á milli. En líka létt drama. Bill Murray var algjör snillingur – mjög góð týpa.
0.3 -
2020-10-20 22:00
Missy er mjög klikkuð týpa – alveg skemmtilega klikkuð. Mikið bull. Mikil vitleysa. En betri mynd en ég bjóst við. Slatti af klassískum Happy Madison/Adam Sandler leikurum. #netflix
0.3 -
2020-10-19 23:38
Önnur Kóresk zombie mynd. Skemmtileg nútíma nálgun á zombie mynd. Mjög spennandi og stressandi. Fínasta zombie action. #netflix
0.3 -
2020-10-18 23:57
Mjög spennandi. Gott action. Ágætis saga og plot. Passlega stutt mynd. #netflix
0.3 -
2020-10-15 21:53
Mikið bull. Kjánalæti í takt við aðrar Adam Sandler myndir – mér fannst ég vera horfa á persónur úr gömlum Sandler myndum. Slatti af cameos og þekktum leikurum í litlum hlutverkum. Alveg smá spennandi og fín afþreying. #netflix
0.3 -
2020-10-13 21:51
Svartur húmor. Smá spes mynd. Slatti af cameos og þekktum leikurum. Spennandi og fyndin. #netflix
0.3 -
2020-09-26 22:17
Spennandi mynd. Skemmtileg. Enola (Millie Bobby Brown) er góð týpa. Gaman af svona spæjara finna-vísbendingar myndum. #netflix
0.3 -
A Million Ways to Die in the West (2014)
2020-09-17 22:33Mikil vitleysa. En alveg fyndin inn á milli. Ekta Family Guy/Seth MacFarlane húmor. Slatti af fínum leikurum + skemmtilegum cameos. #netflix
0.3 -
2020-08-26 23:28
Spennandi mynd. Skemmtilega evrópskur bragur á action atriðunum – sem voru mörg mjög töff. Fínasta plot/handrit. #netflix
0.3 -
2020-06-06 14:37
Gangsta mynd. Gangsta gellur. New York í ruglinu. Spennandi mynd.
0.3 -
2020-04-23 22:00
Mjög spennandi. Ágætis saga og plot, en endirinn hefði getað verið örlítið betri. #netflix
0.3 -
2020-03-31 22:17
Töff sci-fi mynd. Áhugavert concept. Spennandi. Endirinn hefði getað verið betri – vantaði eitthvað til að gera hann meira solid. Áhugavert að sjá að 4 mínútur af kreditlistanum voru þakkir til þeirra sem styrktu myndina í gegnum Indiegogo 😅
0.3 -
2020-03-14 22:14
Spennandi. Gott löggu & bófa – frekar klassískt/formúlukennt. Áhugavert að sjá Post Malone í smá hlutverki. #netflix
0.3 -
2020-03-08 01:00
Umfram allt mjög spennandi mynd. Mjög "creepy" og mikið af spennuþrungnum atriðum sem fengu adrenalínið til að flæða og hélt manni alveg á sætisbrúninni. Elisabeth Moss var klárlega stjarna myndarinnar – náði mjög vel að túlka þessa brotnu taugahrúgu. Kvikmyndataka, tónlist og annað hljóð hjálpaði mikið við að skapa spennuna og manni brá alveg nokkuð oft.
0.3 -
Birds of Prey: And the Fantabulous Emancipation of One...
2020-02-17 00:01Fín skemmtun. Fínasta action – en mér fannst vanta smá taktinn í sum bardagaatriði, þau voru ekki alltaf nógu trúverðug. Kjarninn í myndinni var aðeins öðruvísi en mér fannst stiklan gefa til kynna. Það var nokkuð áberandi að flestir áttu við geðræn vandamál að stríða – mikið af geðsjúkum persónum. Skemmtilega svartur og klikkaður húmor.
0.3 -
2020-02-12 22:03
Áhugaverð heimildamynd. Taylor er mögnuð listakona. Alltaf gaman að sjá bak við tjöldin, hvernig sköpunarferlið er þegar fólk býr til tónlist.
0.3 -
2020-01-24 22:34
Góð skemmtun. Góð nostalgía – þetta togaði alveg í réttu strengina með sömu töktunum, sömu tónlistinni o.s.frv. Töluvert meiri keyrsla og betra action eftir hlé – og þetta var alveg frekar gott action. Fínn húmor inn á milli.
0.3 -
PAW Patrol: Mighty Pups (2018)
2020-01-19 23:04Ánægjuleg mynd. Fínn húmor. Góð keyrsla. Stutt og laggóð – hentugt fyrir fyrstu bíóferð Anítu. Íslenska þýðingin er "Hvolpasveitin: Ofur-Hvolpar".
0.3 -
In the Shadow of the Moon (2019)
2019-12-25 22:52Áhugaverð saga. Skemmtilegt sci-fi. Spennandi. Tímaflakk er flókið fyrirbæri – oft erfitt að skrifa handrit sem gengur alveg upp og meikar sense. En ágætis concept.
0.3 -
2019-11-21 22:13
Frekar klikkuð mynd. Algjört rugl – mikið af WTF atriðum. Fyndin. Spennandi. Plot-ið minnir mig á aðrar myndir sem ég hef séð – t.d. Very Bad Things.
0.3
← previous 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 next →
List generated by WP Movie Ratings.
Síðast uppfært 19. March, 2024
Bjössi says
þú ert aldeilis fljótur að skrifa um American Gangster. My man, ég er sammála þér með myndina. Töff stöff.
Hannes says
Vei, fyrsta kommentið hérna :)
Já, maður reynir að hafa þetta eins ferskt og hægt er :)
Það er kosturinn við þetta setup – ég hendi bara upp einhverju stuttu review, skelli á þetta einhverjar stjörnur (bara svona gut feeling) og þá er það komið. Ekkert að tefja mig á óþarfa blaðri eða djúpum pælingum.
maple says
mér finnst of mikið af myndum hér með of litlum fresti – horfir of mikið á myndir
Hannes says
hehe… já, sorry – ég skal horfa á færri myndir ;) Væri ein á mánuði of mikið?
En þetta er svona – ég hata ekki að horfa á bíómyndir… I loves it :)
maple says
ein á mánuði ef hún er á bíórásinni
Haukur says
Já ég fór með alltof miklar væntingar á Max kallinn. Myndin var alveg töff en sagan samsvaraði sér alveg ferlega illa. Þetta lyktar eins og gömul skinka.
siggasig says
Öflugur að halda utan um myndirnar sem þú sérð! ;) Nice. Sammála Star Trek umfjölluninni. Frábær mynd! Og hei, líka sammála um Angels and Demons. Ólíkt Da Vinci Code fannst mér myndin betri en bókin.
Hannes says
Takk. Já, mér fannst kominn tími til að hafa smá yfirsýn yfir þær myndir sem ég horfi á þar sem ég horfi á örlítið fleiri en 2 myndir á ári ;)
Já, síðan var líka gaman að sjá í Angels & Demons hvað sumir hlutir voru allt öðruvísi en maður var búinn að ímynda sér þegar maður las bókina :)
Geiri says
Hot Rod: 10*?
Ég hefði smellt 8*.
Hannes says
Jú, skil þig – þegar ég horfði á hana aftur einn þá var þetta ekki alveg eins mikil snilld, en samt fáránlega fyndin. En þegar ég horfði á hana fyrst þá skemmti ég mér alveg konunglega – það var kannski bara stemmningin að horfa á þetta wit da boyz. 10 stjörnur þýðir alls ekki að mér fannst þetta einhver Óskarsverðlaunamynd…
En annars eru þessar stjörnugjafir engan veginn heilagar – oft bara nánast eitthvað skot út í loftið ;)
Sara says
Jæja Nesi, ég er mjög spennt að lesa hvað þú hefur um Shutter Island að segja. Koma svo! Í bíó með þig! ;)
Hannes says
hehe, úff… bara pressa :) Já, ég er svona ennþá að vega og meta hvort ég ætli að sjá Shutter Island í bíó. En ætli maður verði ekki að tékka á þessu, Scorsese stendur alltaf fyrir sínu.