Smá umfjöllun um kvikmyndir sem ég hef séð nýlega… Stutt kvikmyndagagnrýni – ég nenni að skrifa mismikið, fer yfirleitt eftir því hvað mér dettur fyrst í hug – oft bara að hugsa upphátt.
Stjörnugjöf… já, stjörnugjöf er eiginlega svolítið bullshit – ég held að það sé mismikið bakvið stjörnur sem fólk gefur myndum. Hjá mér er það yfirleitt bara gut feeling – hversu skemmtileg/fyndin/spennandi/flott fannst mér myndin. Upplifunin.
Það er ekki eins og ég sé með einhvern ákveðinn skala/staðal eða tékklista – “já, flottur bílaeltingaleikur – 1 stjarna, töff byssubardagi – bætist við 1,5 stjarna…” ;) Síðan getur stjörnugjöfin oft verið svona plús/mínus 1-2 stjörnur.
Hlaðvarp um kvikmyndir
Það er vert að minnast á að ég og Björn erum með hlaðvarp um kvikmyndir sem við köllum Búnir með poppið. Það er hægt að fylgjast með okkur í gegnum Facebook, Twitter og Instagram – og svo auðvitað hlusta á þættina á Spotify, Apple Podcasts, Google Podcasts og öðrum stöðum þar sem fólk hlustar á hlaðvörp.
Sort list by: title | rating ↓ | view date
-
2011-08-04 21:38
Virkilega góð mynd. Gott handrit. Góður leikur. Mjög spennandi. Einstaklega gaman af svona frumlegum og öðruvísi kvikmyndum. Mjög skemmtilega útfærð miðað við að hún gerist öll í litlum kassa/kistu.
0.3 -
2011-04-21 16:12
Kúl mynd. Töff tónlist - The Chemical Brothers sáu víst um hana. Sum atriði voru eins og tónlistarmyndband. Góð leikkona (Saoirse Ronan) - mjög skemmtileg persóna. Spennandi. Áhugaverð saga. Gott action. Töff bardagaatriði. Vel leikstýrð. Flott myndataka.
0.3 -
2011-01-08 01:45
Mjög góð mynd. Leit virkilega vel út - neon festival - allt mjög flott. Tónlistin var snilld - Daft Punk kunna þetta alveg - skapaði mjög góða stemningu. Clu (stafræni, ungi Jeff Bridges) var mjög creepy - nett uncanny valley dæmi. Gott action, náttúrulega klikkaðar tæknibrellur/tölvugrafík. Mikið af mjög kúl/flottum atriðum.
0.3 -
2010-11-18 00:42
Virkilega góð mynd. Mjög fyndin. Afbragðs leikarar - Bruce Willis ennþá harður, Helen Mirren mjög töff og John Malkovich var að gera góða hluti sem klikkaði gaurinn. Skemmtilegar persónur. Góð spenna, gott action - flott bardagaatriði, nóg af sprengingum... Flott myndataka og vel klippt. Eitt svalasta atriði sem ég hef séð í bíómynd - ég gjörsamlega missti mig þetta var svo töff (sprenghlægilegt líka af því að þetta kom svo mikið á óvart).
0.3 -
2010-10-31 01:12
Þvílík snilld. Nettur splatter. Virkilega fyndin - ég var algjörlega í kasti eftir eitt atriðið. Nett rugl á köflum. B-mynd (blóð og brjóst) í hæsta gæðaflokki. Fullt af góðum leikurum. Danny Trejo er bara svalur. Gott action - nóg af því. Handritið var frekar "takmarkað" - það er svosem óþarfi að vera með snilldar handrit fyrir svona mynd. Slatti af (góðum) one-liners.
0.3 -
The Social Network (2010) - IMDb
2010-10-19 01:17Virkilega góð mynd. Mjög áhugavert að skyggnast aðeins inn í bakgrunn/sögu Facebook. Góðir leikarar. Spenna, drama og lúmskt fyndin á köflum. Tónlistin var algjör snilld - Trent Reznor er svo sannarlega með þetta á hreinu. Whoa! Armie Hammer lék báða tvíburana - did not see that coming... Tvíburarnir voru snillingar - góðar persónur.
0.3 -
Resident Evil: Afterlife (2010)
2010-09-09 23:03Mjög kúl mynd. Virkilega gott action - góð keyrsla. Góð spenna - zombies sem birtast upp úr þurru kemur alveg adrenalíninu af stað. Leit virkilega vel út - mikið lagt í hana, vönduð. Vissulega slatti af tölvugrafík, sem kom mjög vel út. 3D effect-inn var líka alveg að virka, mjög vel útfærður og nýttur til fullustu í mörgum atriðum. Mjög gaman að þessu, góð afþreying.
0.3 -
Scott Pilgrim vs. the World (2010)
2010-08-28 01:08Mjög fyndin mynd. Sprenghlægileg á köflum. Frumleg - mjög skemmtilegir (og flottir) effect-ar og flottur stíll á henni. Nóg af skemmtilegum og flottum bardagaatriðum. Hellingur af þekktum leikurum. Nett súr á köflum - ok, köllum þetta "frjótt ímyndunarafl" :)
0.3 -
2010-08-14 01:01
Mjög kúl mynd. Hörku action - góð keyrsla. Nóg af byssubardögum, sprengingum, bíla-action, slagsmálum und zo weiter. Mjög spennandi. Fínasta handrit/plot. Maður fær heldur aldrei leið á því að horfa á Angelina Jolie ;) Hún stendur sig alltaf vel í svona action hlutverkum þar sem hún þarf að lemja frá sér og munda byssur.
0.3 -
2010-07-27 00:03
Mögnuð mynd. Virkilega flott og vel gerð. Góðir leikarar. Góð spenna - fullt af mjög töff atriðum. Skemmtilegar og áhugaverðar pælingar varðandi drauma. Fær mann til að hugsa - alls ekki heilalaus mynd þar sem maður hallar sér aftur og gónir. Gaman af svona frumlegum myndum. Áhugaverð saga/plot - skemmtilegur heimur/heimar sem þetta gerist í. Tónlistin var líka mjög kúl - Hans Zimmer alveg að standa sig - skapaði virkilega flotta stemningu.
0.3 -
2010-05-19 00:04
Góð mynd. Mjög flott - umgjörðin, búningarnir o.s.frv. mjög áhrifamikið. Mjög stór/íburðamikil mynd (á köflum alla vega). Slatti af stórum bardögum. Fullt af góðum leikurum. Aðeins öðruvísi Hróa Hattar saga en maður hefur séð áður - engin Men in Tights ;)
0.3 -
2010-04-07 21:00
Virkilega flott mynd - annað eins hefur ekki sést, einstök mynd. Stútfull af þekktum (og góðum leikurum). Það voru nokkur áhugaverð atriði í Extended útgáfunni en líka atriði sem maður skilur af hverju var sleppt. Á sínum tíma var talað um að þeir ætluðu að gera Sin City 2 og jafnvel 3 líka en maður hefur ekki heyrt neitt um það nýlega.
0.3
Þetta skrifaði ég víst þegar ég sá hana fyrst: "Shit hvað þetta er svöl mynd! Útlitið, persónurnar og samræðurnar eru alveg að gera sig. Mjög skemmtileg saga, hörku action-atriði og fullt af hot gellum. Topp úrval leikara sem voru alveg að skila sínu – sérstaklega Mickey Rourke sem er að koma sterkur inn aftur eftir smá pásu. Mæli eindregið með að sem flestir sjái þessa – gæða mynd í alla staði. Síðan er ekki verra að 2 og 3 eru á leiðinni ..hlakka til." -
2010-03-13 03:06
Mjög töff mynd. Matt Damon alveg að virka í svona super soldier hlutverki (þetta var samt ekki eins extreme og Jason Bourne). Góð action keyrsla... eltingaleikirnir voru intense - hlaupandi á milli húsa á fullu og myndatökumaðurinn þétt á eftir. Mjög flott myndataka. Er að fíla svona urban warfare myndir - eins og Black Hawk Down, Body of Lies o.s.frv. Eitthvað spennandi, öðruvísi og ófyrirsjáanlegt við þannig bardaga.
0.3
Mér fannst umhverfið frekar magnað... mörg skot þar sem sást yfir mjög stórt (stríðshrjáð) svæði og það var nokkuð impressive. Veit ekki hversu miklu var bætt við með tölvugrafík en þetta var ansi trúverðugt. Hefði alveg mátt ljúga því að mér að þetta hefði bara verið tekið upp í Írak - en þetta var víst tekið upp á Spáni og svo í Morokkó.
Herinn er oft með alls konar kúl tækni... ég var að fíla þyrluna sem flaug yfir borgina og gat greint sjálfkrafa (í myrkri) hvort einhver væri Bandarískur hermaður eða óvinur. -
2010-01-18 23:02
Hörkugóð mynd. Fínasta action og mjög fyndin inn á milli. Robert Downey Jr. er alltaf góður - snillingur í að leika svona wacky persónur. Guy Ritchie kann alveg að búa til skemmtilegar, flottar og fyndnar spennumyndir. Flott myndataka... nokkur ekta Guy Ritchie atriði. Leit mjög vel út - umhverfi, búningar o.s.frv.
0.3 -
2009-10-07 01:26
Mjög fyndin mynd - það hefði nú verið skrítið ef hún hefði ekki verið neitt fyndin ;) Hellingur af sprenghlægilegum bröndurum. Góð saga, gott handrit - en nokkuð löng mynd. Hellingur af cameos... þessir gaurar eru greinilega með smá sambönd. Slatti af drama, en samt bara passlega, ekki of mikið.
0.3 -
2009-09-23 01:02
Mjög góð mynd. Nokkuð frumlegt handrit, öðruvísi saga en ég bjóst við. Góð spenna. Gott action - slatti af töff sprengingum, byssubardögum o.s.frv. Flottar og vandaðar tæknibrellur. Flott sviðshönnun, búningar, special effects make-up...
0.3 -
2009-09-15 23:56
Mjög góð mynd. Voða ljúf ástarsaga, nema hún er vampíra ..og hana þyrstir í blóð. Góð saga. Krakkarnir tveir sem léku aðalhlutverkin voru að standa sig nokkuð vel. Alltaf gaman af góðum myndum frá Norðurlöndunum. Það er samt frekar magnað hvað vampírustöff er vinsælt núna...
0.3 -
The Last House on the Left (2009)
2009-09-08 22:11Klikkað spennandi mynd! Mögnuð mynd. Mjög góð. Vel gerð, vönduð. Gott handrit. Góð keyrsla. Góðir leikarar. Ef maður tekur mark á þessari mynd og Funny Games U.S. þá er ekkert sniðugt að eiga sumarhús við stöðuvatn lengst frá öllu ;) Mér finnst frekar magnað að þessi mynd var tekin upp í Suður-Afríku, hefði aldrei dottið það í hug. Man ekki eftir annarri Hollywood mynd sem er tekin upp í Suður-Afríku.
0.3 -
2009-08-05 01:14
Hörkugóð mynd. Fínasta spenna og gott action. En nokkuð brútal á köflum. Flott myndataka, leit vel út. Vönduð mynd. Góðir leikarar. Áhugaverð saga - gaman að svona rannsóknar-spennumyndum þar sem er verið að púsla saman vísbendingum. Bíð spenntur eftir næstu mynd í þessum þríleik. Gaman að sjá svona ferskar kvikmyndir frá Norðurlöndunum.
0.3 -
2009-06-11 01:16
Klikkað fyndin mynd! Það er snilld hvað þeir lenda í miklu rugli. Fær mann til að langa fara á fyllerí í Las Vegas sem allra fyrst ;) Zach Galifianakis er náttúrulega snillingur - hann lék lang fyndnustu persónuna. Síðan hef ég aldrei hlegið jafn mikið yfir credit lista - bara rugl, kom mjög skemmtilega á óvart. Maður grenjaði af hlátri. Það hefði jafnvel verið ennþá skemmtilegra ef maður hefði ekki séð trailer-inn áður - hann var náttúrulega sprenghlægilegur.
0.3 -
2009-05-14 23:02
Virkilega flott mynd. Stútfull af klikkað flottum tæknibrellum - alveg óaðfinnanlegar. Mjög spennandi, góð action keyrsla. Mjög fyndin á köflum - Simon Pegg klikkar ekki. Góð saga, góðir leikarar... góð mynd. Ekta risastór sumar blockbuster.
0.3 -
2009-04-19 01:52
Góð spennumynd. Ekta thriller. Virkilega spennandi - maður var oft alveg á nálum, bókstaflega "on the edge of my seat". Vel leikin - fullt af góðum leikurum. Gott handrit - svona myndir sem eru ekki stútfullar af flottum tæknibrellum og endalausum action atriðum þurfa að hafa vel skrifað handrit. Gaman að sjá Jason Bateman í svona wacky hlutverkum :)
0.3 -
Part of the Weekend Never Dies (2008)
2009-03-27 23:53Mjög kúl mynd - þetta er s.s. nokkurs konar heimildamynd um Soulwax. Virkilega flott - mikið vision... nett cinematography í gangi. Kick ass tónlist - ekki oft sem maður er hálf dansandi þegar maður er að horfa á kvikmynd ;) Að vissu leyti svipuð og Justice heimildamyndin en töluvert öðruvísi - tekin upp á mun lengri tíma og ekki alveg jafn mikil geðveiki, en þó samt rokkstjörnu-fílingur í gangi með groupies í tour bus-num og allt það... Myndin var líka töluvert vandaðari - vel klippt. Klippur af tónleikum út um allan heim. Inn á milli eru viðtöl við þá og vini þeirra. Skemmtilegt að sjá að þeir voru alltaf að drekka Stella - það kemur náttúrulega ekkert annað til greina en belgískur bjór.
0.3 -
2009-03-08 01:52
Clint Eastwood er ennþá badass. Kúl mynd, góð saga. Hann var nokkrum sinnum með netta Dirty Harry takta - sérstaklega í eitt skiptið þar sem hann droppaði alveg killer línu: "Ever notice how you come across somebody once in a while you shouldn't have fucked with? That's me.". Vel gerð og vönduð mynd - enda bjóst maður ekki við neinu öðru með Clint Eastwood bakvið stýrið. Já, síðan var líka íslensk stuttmynd á undan - "Aldrei Stríð Á Íslandi" - áhugaverðar pælingar (hverjir myndu fara í stríð við okkur? Borgarastyrjöld?), leit vel út... alltaf gaman að sjá íslenskar stuttmyndir.
0.3 -
2009-02-28 01:53
Mjög kúl mynd. Hörku action/thriller - góð spenna. Þessi mynd var mjög... international ;) Tekin upp út um allan heim - það er sérstaklega skemmtilegt að sjá staði í myndum þar sem maður hefur verið sjálfur að tjilla einhvern tíman... Atriðið í Guggenheim safninu var algjör snilld - mér fannst það frekar impressive. Myndin leit vel út, flott áferð og vönduð mynd.
0.3 -
2009-01-18 16:37
Mjög góð mynd. Drama alveg í gegn. Mjög góður leikur. Flott mynd - góð leikstjórn og flott cinematography. Áhugaverð saga - maður fær svona smátt og smátt að vita hvað er í rauninni í gangi og afhverju.
0.3 -
2009-01-03 15:37
Sérstök mynd... frekar artý og eiginlega svolítið abstrakt. Sérstakur stíll yfir henni - þar sem myndin er um blindu og blint fólk þá eru senur oft mjög hvítar, eiginlega overexposed.
0.3
Mjög vel gerð mynd, lítur vel út, slatti af þekktum leikurum... ekta svona listræn mynd sem leikarar vilja taka þátt í af því að það er svo kúl að taka þátt í svona öðruvísi myndum.
Ég er ekki alveg viss hvar hún átti að gerast - eiginlega eins og hún átti að gerast í framtíðinni... partar af henni voru eins og þetta væri Tókíó, partar eins og New York og partar eins og Brasilía... allir töluðu ensku (einstaka talaði líka spænsku) og umferðarskilti voru á ensku en samt voru bílnúmerin alls ekki bandarísk, frekar evrópsk/suður-amerísk... Ah, ok... skv. Wikipedia: "The producers were able to acquire rights with the condition that the film would be set in an unrecognizable city." - kúl.
Nokkuð áhugaverðar pælingar varðandi hversu mikið lífið manns breytist þegar maður verður allt í einu blindur. -
2008-12-15 01:24
Hörku spennumynd. Smá James Bond/Jason Bourne fílingur - Liam Neeson er one man's army að rústa vondu köllunum í París. Ágætlega þétt action keyrsla... Nokkrir flottir bílaeltingaleikir að hætti Luc Besson. SEMI SPOILER ALERT Skuggalegt að skyggnast inn í þennan mannsals-heim - af því að allt í kvikmyndum er 100% byggt á raunveruleikanum er það ekki?
0.3 -
2008-11-22 01:47
Mjög kúl mynd. Virkilega vel gerð, leit mjög vel út - ekta Ridley Scott mynd. Action atriðin voru mjög flott. Vel leikstýrð... mér fannst satellite kvikmyndatakan nokkuð kúl. Nokkuð gott handrit - áhugaverð saga. Svona Mið-Austurlanda myndir eru líka áhugaverðar af því að maður hefur ekkert kynnst þeim heimshluta og það er alltaf gaman að skyggnast aðeins inn í hann. Hani - yfirmaður Jórdanísku leyniþjónustunnar var náttúrulega langflottasti karakterinn - alltaf í fáránlega flottum jakkafötum og mjög yfirvegaður.
0.3
Eitt sem var reyndar að bögga mig örlítið - þegar það var tekið fram að núna værum við á nýjum stað, í nýju landi þá kom alltaf texti fyrir neðan með staðsetningunni. En þetta var bara eins og annar undirtexti en ekki í einhverjum kúl font og með einhverju töff animation (eins og ég geri ráð fyrir að sé í útgáfunni sem er sýnd í Bandaríkjunum). Mér finnst eiginlega eins og það sé að fjarlægja smá hluta af myndinni þannig að hún er ekki sýnd eins og leikstjórinn vildi hafa hana.
Síðan eitt sem ég tók eftir - ný tegund af product placement - þegar það var verið að sýna eitthvað gerast í einhverri tölvu þá hljómuðu ýmis Microsoft hljóð - en það var ekkert annað sem gaf til kynna að verið væri að vinna í Windows. Ég held alla vega að þetta hafi verið product placement sem Microsoft hefur borgað fyrir - skil ekki af hverju það ætti annars að vera troða inn fullt af Microsoft hljóðum þarna (New Mail Notification, Default Beep, etc.). En kannski er það bara ég og nokkrir aðrir sem taka eftir þessu... en undirmeðvitundin hjá öðrum tekur kannski eftir þessu - er það ekki yfirleitt markmiðið með product placement?. But I digress... :) Flott og spennandi mynd. -
2008-10-14 00:47
Mjög töff íslensk action mynd. Virkilega vel gerð. Gott handrit og góðir leikarar. Mjög spennandi á köflum. Ég vil fá fleiri svona íslenskar myndir...
0.3
← previous 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 next →
List generated by WP Movie Ratings.
Síðast uppfært 19. March, 2024
Bjössi says
þú ert aldeilis fljótur að skrifa um American Gangster. My man, ég er sammála þér með myndina. Töff stöff.
Hannes says
Vei, fyrsta kommentið hérna :)
Já, maður reynir að hafa þetta eins ferskt og hægt er :)
Það er kosturinn við þetta setup – ég hendi bara upp einhverju stuttu review, skelli á þetta einhverjar stjörnur (bara svona gut feeling) og þá er það komið. Ekkert að tefja mig á óþarfa blaðri eða djúpum pælingum.
maple says
mér finnst of mikið af myndum hér með of litlum fresti – horfir of mikið á myndir
Hannes says
hehe… já, sorry – ég skal horfa á færri myndir ;) Væri ein á mánuði of mikið?
En þetta er svona – ég hata ekki að horfa á bíómyndir… I loves it :)
maple says
ein á mánuði ef hún er á bíórásinni
Haukur says
Já ég fór með alltof miklar væntingar á Max kallinn. Myndin var alveg töff en sagan samsvaraði sér alveg ferlega illa. Þetta lyktar eins og gömul skinka.
siggasig says
Öflugur að halda utan um myndirnar sem þú sérð! ;) Nice. Sammála Star Trek umfjölluninni. Frábær mynd! Og hei, líka sammála um Angels and Demons. Ólíkt Da Vinci Code fannst mér myndin betri en bókin.
Hannes says
Takk. Já, mér fannst kominn tími til að hafa smá yfirsýn yfir þær myndir sem ég horfi á þar sem ég horfi á örlítið fleiri en 2 myndir á ári ;)
Já, síðan var líka gaman að sjá í Angels & Demons hvað sumir hlutir voru allt öðruvísi en maður var búinn að ímynda sér þegar maður las bókina :)
Geiri says
Hot Rod: 10*?
Ég hefði smellt 8*.
Hannes says
Jú, skil þig – þegar ég horfði á hana aftur einn þá var þetta ekki alveg eins mikil snilld, en samt fáránlega fyndin. En þegar ég horfði á hana fyrst þá skemmti ég mér alveg konunglega – það var kannski bara stemmningin að horfa á þetta wit da boyz. 10 stjörnur þýðir alls ekki að mér fannst þetta einhver Óskarsverðlaunamynd…
En annars eru þessar stjörnugjafir engan veginn heilagar – oft bara nánast eitthvað skot út í loftið ;)
Sara says
Jæja Nesi, ég er mjög spennt að lesa hvað þú hefur um Shutter Island að segja. Koma svo! Í bíó með þig! ;)
Hannes says
hehe, úff… bara pressa :) Já, ég er svona ennþá að vega og meta hvort ég ætli að sjá Shutter Island í bíó. En ætli maður verði ekki að tékka á þessu, Scorsese stendur alltaf fyrir sínu.