• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

I am official station

Ljósmyndir, kvikmyndagagnrýni, ferðasögur, fréttir af Hannesi og annað skemmtilegt :)

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me
You are here: Home / Kvikmyndagagnrýni

Kvikmyndagagnrýni

Kvikmyndagagnrýni (plaköt)

Smá umfjöllun um kvikmyndir sem ég hef séð nýlega… Stutt kvikmyndagagnrýni – ég nenni að skrifa mismikið, fer yfirleitt eftir því hvað mér dettur fyrst í hug – oft bara að hugsa upphátt.

Stjörnugjöf… já, stjörnugjöf er eiginlega svolítið bullshit – ég held að það sé mismikið bakvið stjörnur sem fólk gefur myndum. Hjá mér er það yfirleitt bara gut feeling – hversu skemmtileg/fyndin/spennandi/flott fannst mér myndin. Upplifunin.

Það er ekki eins og ég sé með einhvern ákveðinn skala/staðal eða tékklista – “já, flottur bílaeltingaleikur – 1 stjarna, töff byssubardagi – bætist við 1,5 stjarna…” ;) Síðan getur stjörnugjöfin oft verið svona plús/mínus 1-2 stjörnur.

Hlaðvarp um kvikmyndir  

Það er vert að minnast á að ég og Björn erum með hlaðvarp um kvikmyndir sem við köllum Búnir með poppið. Það er hægt að fylgjast með okkur í gegnum Facebook, Twitter og Instagram – og svo auðvitað hlusta á þættina á Spotify, Apple Podcasts, Google Podcasts og öðrum stöðum þar sem fólk hlustar á hlaðvörp. 

Sort list by: title | rating | view date ↑

  • July, 2007

  • Show the reviewHide the reviewThe Lookout (2007) 7/10

    2007-07-05 22:40
    * * * * * * *

    Kannski svolítið róleg á köflum en fín spennumynd.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewLive Free or Die Hard (2007) 8/10

    2007-07-14 00:34
    * * * * * * * *

    John McClane er ennþá badass. Fínasta action-mynd og klassískur sumarsmellur.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewDeath Proof (2007) 7/10

    2007-07-19 00:47
    * * * * * * *

    Mögnuð mynd. Tarantino alveg að standa sig.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewThe Simpsons Movie (2007) 9/10

    2007-07-28 00:22
    * * * * * * * * *

    Algjör snilld! Sprenghlægileg. Alveg biðarinnar virði.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewPlanet Terror (2007) 8/10

    2007-07-31 22:47
    * * * * * * * *

    Töff mynd - og bara nokkuð fyndin. Fínasta skemmtun.

    0.3
  • August, 2007

  • Show the reviewHide the reviewTransformers (2007) 8/10

    2007-08-11 00:36
    * * * * * * * *

    Kick ass mynd. Ekta Michael Bay action. Fínasta nostalgía... Samt ekki alveg að kaupa Anthony Anderson sem einhvern mega hakkara ;)

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewRush Hour 3 (2007) 7/10

    2007-08-14 22:15
    * * * * * * *

    Fín grínmynd. Nóg af góðum one-liners. Maður þarf bara að passa sig að hugsa ekki of mikið ;) Skelltu inn skemmtilegu tribute til Who's on first?

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewThe Bourne Ultimatum (2007) 9/10

    2007-08-24 00:37
    * * * * * * * * *

    Non-stop action baby! Já, já... hörku spennumynd. Þriðja myndin er ekki síðri en hinar (bara betri ef eitthvað er). Þetta er alveg efni í mega franchise - James Bond þarf að passa sig ;)

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewNational Security (2003) 2/10

    2007-08-25 23:04
    * *

    Frekar stupid mynd. Martin Lawrence var látinn spila aðeins of mikið út á "það er farið svo illa með mig af því að ég er svartur" - þeir brandarar voru ekki alveg að slá í gegn. Ein af þessum myndum sem maður klárar bara til að sjá hvernig hún endar - þótt hún hafi verið frekar fyrirsjáanleg. Fær 1 stjörnu fyrir sæmileg action atriði og aðra stjörnu af því maður gat hlegið 1-2 sinnum.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewBe Cool (2005) 6/10

    2007-08-26 23:29
    * * * * * *

    John Travolta og Uma Thurman komin aftur í mynd - þau taka meira að segja smá Pulp Fiction dans. Ekkert óskars-handrit eða leikur - en ágæt afþreying.

    0.3
  • September, 2007

  • Show the reviewHide the reviewFantastic Four (2005) 6/10

    2007-09-09 17:51
    * * * * * *

    Ágæt superhero mynd, fínt action. Jessica Alba skemmir heldur ekki fyrir ;)

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewA Little Trip to Heaven (2005) 6/10

    2007-09-09 19:29
    * * * * * *

    Ég var ekki alveg að fíla hvað sumir hlutar af myndinni vöru dökkir - mér finnst skemmtilegra að sjá almennilega hvað er að gerast ;) Kannski vildi Baltasar bara hafa sem eðlilegasta lýsingu... Skemmtilegt að sjá hinar ýmsu íslensku byggingar í nýjum hlutverkum. Hin fínasta mynd - maður var reyndar stundum ekki alveg að ná að fylgja nákvæmlega hvað var í gangi...

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewV for Vendetta (2005) 9/10

    2007-09-11 01:00
    * * * * * * * * *

    Mögnuð mynd - virkilega flott. Töff action atriði - smá Matrix stíll í gangi eins og við mátti búast. Natalie Portman brillerar eins og venjulega. Líka skemmtilegar pælingar varðandi hversu mikið vald ríkið á að hafa og hvað þú hefur mikil áhrif ef þú ræður yfir fjölmiðlunum.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewKnocked Up (2007) 8/10

    2007-09-14 23:56
    * * * * * * * *

    Endalaust fyndin mynd. Með betri grínmyndum sem maður hefur séð nýlega.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewVacancy (2007) 7/10

    2007-09-16 00:52
    * * * * * * *

    Bara nokkuð góð mynd. Ef fólk fílar hryllings-spennumyndir þá er þessi málið. Heldur manni alveg á nálum ;)

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewMean Machine (2001) 6/10

    2007-09-16 18:29
    * * * * * *

    Fínasta afþreying. Þeir sem hafa séð Lock, Stock.. ættu að kannast við einn eða tvo leikara ;)

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewAstropia (2007) 7/10

    2007-09-16 22:39
    * * * * * * *

    Fínasta mynd - mjög fyndin og vel gerð. Flott framlag í íslensku kvikmyndaflóruna - meira svona, takk. Þeir þurftu náttúrulega að skella inn smá Leeroy Jenkins brandara sem takmarkaður hópur myndi fatta.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewThe Condemned (2007) 6/10

    2007-09-23 03:08
    * * * * * *

    Mindless violence. Ágæt action/slagsmála-mynd.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewSuperbad (2007) 8/10

    2007-09-29 01:46
    * * * * * * * *

    Hrikalega fyndin. Mikið af vandræðalegum bröndurum ;) Magnaðir karakterar... McLovin maður :)

    0.3
  • October, 2007

  • Show the reviewHide the review3:10 to Yuma (2007) 6/10

    2007-10-07 01:40
    * * * * * *

    Fínasti vestri... samt eitthvað... manni fannst sumir hlutir svolítið skrítnir. En mjög vel gerð - góður leikur og vel leikstýrð.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewEastern Promises (2007) 7/10

    2007-10-27 01:23
    * * * * * * *

    Töff mynd. Frekar brútal á köflum. Gott stöff - góðir karakterar, gott handrit...

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewMy Super Ex-Girlfriend (2006) 4/10

    2007-10-28 13:12
    * * * *

    Jahá... með góða (ok, alla veganna vel þekkta) leikara í öllum helstu hlutverkunum er maður eiginlega hálf vonsvikinn að það sé ekki hægt að gera betri mynd. Maður verður eiginlega að kenna handritinu og/eða leikstjóranum um. Myndin átti samt alveg nokkur góð móment - en Uma Thurman var svolítið að ofleika þennan sækó gellu karakter. Síðan var tónlistin aðeins of cheesy - minnti á svona týpíska tónlist sem var ofnotuð í 90's myndum.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewThe Number 23 (2007) 6/10

    2007-10-28 21:15
    * * * * * *

    Varð að tékka á þessari mynd - maður á nú afmæli þann 23. ;) Síðan náttúrulega, Michael Jordan: 23, David Beckham: 23 - talan er alls staðar... :) Já, en með Joel Schumacher bjóst maður nú alveg við nokkuð "dökkri" mynd - en þetta er áhugaverð saga.

    Uppfært: Whoa! Þetta er frekar spooky - Ég var að fatta að þetta er gagnrýni #23 hérna á síðunni! Tilviljun? Kannski, kannski ekki...

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewAnchorman: The Legend of Ron Burgundy (2004) 8/10

    2007-10-30 00:15
    * * * * * * * *

    Þetta er ein af bestu Will Ferrell myndunum - algjör klassík, hægt að horfa á hana aftur og aftur. Steve Carell fer líka alveg á kostum sem vangefni veðurfræðingurinn.

    0.3
  • November, 2007

  • Show the reviewHide the reviewWar (2007) 6/10

    2007-11-01 22:50
    * * * * * *

    ...eða "Rogue Assassin" eins og þeir vilja kalla þetta á Íslandi. Fínasta action mynd - byssur, kung-fu, ninjas og sprengingar. Jason Statham er alltaf badass. Síðan bara sleppa því að taka eftir hvað það er kjánalegt þegar Jet Li talar ensku ;)

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewWild Hogs (2007) 6/10

    2007-11-04 22:20
    * * * * * *

    Ágæt fjölskylduvæn mynd. Nokkuð fyndin... Voða týpísk mynd með happy ending og allt það.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewxXx: State of the Union (2005) 5/10

    2007-11-04 22:34
    * * * * *

    Ágæt action mynd. Flottir bílar, byssur, sprengingar og gellur - formúla sem virkar yfirleitt á mann. Frekar mindless - týpísk mynd sem maður lendir á af því að það er verið að sýna hana á bíórásinni þegar maður er að channel surfa ;) En þeir hafa greinilega hent alveg slatta af peningum í tölvugrafíks-effecta - sumar senur voru greinilega að miklu leyti tölvugerðar. Sérstaklega í lokinn, þegar þetta var reyndar komið út í svolítið rugl...

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewBalls of Fury (2007) 6/10

    2007-11-09 00:03
    * * * * * *

    Maður bjóst nú alveg við súrri mynd... en það getur líka verið gaman að sjá þannig myndir :) Nokkuð fyndin. Ekkert pure brilliance - en fínasta afþreying.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewThe Godfather: Part II (1974) 8/10

    2007-11-11 02:57
    * * * * * * * *

    Þetta er náttúrulega klassísk mynd - mögnuð saga... En hún er í lengri kantinum ;) (yfir 3 tímar).

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewDark Water (2005) 6/10

    2007-11-18 04:13
    * * * * * *

    Spooky mynd. Hún er byggð á japanskri bók & bíómynd og það er svolítið sérstök stemmning eins og er oft í þannig myndum. Endirinn er frekar intense - upplagt ef maður fílar smá adrenalín kick ;) Litla stelpan (Ariel Gade) var að standa sig mjög vel. Jennifer Connelly er náttúrulega líka mjög góð (eins og ávalt).

    0.3

← previous 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 next →

List generated by WP Movie Ratings.

Síðast uppfært 13. February, 2022

Share this:

  • Share
  • Facebook
  • Twitter
  • Tumblr
  • Pinterest
  • Reddit
  • LinkedIn
  • Print
  • Email

Reader Interactions

Comments

  1. Bjössi says

    24. November, 2007 at 0:36

    þú ert aldeilis fljótur að skrifa um American Gangster. My man, ég er sammála þér með myndina. Töff stöff.

    Reply
  2. Hannes says

    24. November, 2007 at 1:31

    Vei, fyrsta kommentið hérna :)

    Já, maður reynir að hafa þetta eins ferskt og hægt er :)

    Það er kosturinn við þetta setup – ég hendi bara upp einhverju stuttu review, skelli á þetta einhverjar stjörnur (bara svona gut feeling) og þá er það komið. Ekkert að tefja mig á óþarfa blaðri eða djúpum pælingum.

    Reply
  3. maple says

    11. February, 2008 at 21:28

    mér finnst of mikið af myndum hér með of litlum fresti – horfir of mikið á myndir

    Reply
  4. Hannes says

    13. February, 2008 at 0:30

    hehe… já, sorry – ég skal horfa á færri myndir ;) Væri ein á mánuði of mikið?

    En þetta er svona – ég hata ekki að horfa á bíómyndir… I loves it :)

    Reply
  5. maple says

    13. February, 2008 at 10:59

    ein á mánuði ef hún er á bíórásinni

    Reply
  6. Haukur says

    21. October, 2008 at 10:07

    Já ég fór með alltof miklar væntingar á Max kallinn. Myndin var alveg töff en sagan samsvaraði sér alveg ferlega illa. Þetta lyktar eins og gömul skinka.

    Reply
  7. siggasig says

    27. May, 2009 at 23:26

    Öflugur að halda utan um myndirnar sem þú sérð! ;) Nice. Sammála Star Trek umfjölluninni. Frábær mynd! Og hei, líka sammála um Angels and Demons. Ólíkt Da Vinci Code fannst mér myndin betri en bókin.

    Reply
  8. Hannes says

    28. May, 2009 at 0:34

    Takk. Já, mér fannst kominn tími til að hafa smá yfirsýn yfir þær myndir sem ég horfi á þar sem ég horfi á örlítið fleiri en 2 myndir á ári ;)

    Já, síðan var líka gaman að sjá í Angels & Demons hvað sumir hlutir voru allt öðruvísi en maður var búinn að ímynda sér þegar maður las bókina :)

    Reply
  9. Geiri says

    4. June, 2009 at 16:36

    Hot Rod: 10*?
    Ég hefði smellt 8*.

    Reply
  10. Hannes says

    4. June, 2009 at 23:32

    Jú, skil þig – þegar ég horfði á hana aftur einn þá var þetta ekki alveg eins mikil snilld, en samt fáránlega fyndin. En þegar ég horfði á hana fyrst þá skemmti ég mér alveg konunglega – það var kannski bara stemmningin að horfa á þetta wit da boyz. 10 stjörnur þýðir alls ekki að mér fannst þetta einhver Óskarsverðlaunamynd…

    En annars eru þessar stjörnugjafir engan veginn heilagar – oft bara nánast eitthvað skot út í loftið ;)

    Reply
  11. Sara says

    6. March, 2010 at 14:08

    Jæja Nesi, ég er mjög spennt að lesa hvað þú hefur um Shutter Island að segja. Koma svo! Í bíó með þig! ;)

    Reply
  12. Hannes says

    6. March, 2010 at 15:19

    hehe, úff… bara pressa :) Já, ég er svona ennþá að vega og meta hvort ég ætli að sjá Shutter Island í bíó. En ætli maður verði ekki að tékka á þessu, Scorsese stendur alltaf fyrir sínu.

    Reply

Leave a Reply Cancel reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Primary Sidebar

Leita að efni

Þetta helsta

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me

Önnur verkefni

  • Bulby – Creativity App
  • Don Comodo – Bolir o.s.frv.

Copyright © 2023 Hannes · Hafðu samband / Contact me

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me
 

Loading Comments...