• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

I am official station

Ljósmyndir, kvikmyndagagnrýni, ferðasögur, fréttir af Hannesi og annað skemmtilegt :)

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me
You are here: Home / Kvikmyndagagnrýni

Kvikmyndagagnrýni

Kvikmyndagagnrýni (plaköt)

Smá umfjöllun um kvikmyndir sem ég hef séð nýlega… Stutt kvikmyndagagnrýni – ég nenni að skrifa mismikið, fer yfirleitt eftir því hvað mér dettur fyrst í hug – oft bara að hugsa upphátt. 

Stjörnugjöf… já, stjörnugjöf er eiginlega svolítið bullshit – ég held að það sé mismikið bakvið stjörnur sem fólk gefur myndum. Hjá mér er það yfirleitt bara gut feeling – hversu skemmtileg/fyndin/spennandi/flott fannst mér myndin. Upplifunin. 

Það er ekki eins og ég sé með einhvern ákveðinn skala/staðal eða tékklista – “já, flottur bílaeltingaleikur – 1 stjarna, töff byssubardagi – bætist við 1,5 stjarna…” ;) Síðan getur stjörnugjöfin oft verið svona plús/mínus 1-2 stjörnur. 

Hlaðvarp um kvikmyndir  

Það er vert að minnast á að ég og Björn erum með hlaðvarp um kvikmyndir sem við köllum Búnir með poppið. Það er hægt að fylgjast með okkur í gegnum Facebook, Twitter og Instagram – og svo auðvitað hlusta á þættina á Spotify, Apple Podcasts, Google Podcasts og öðrum stöðum þar sem fólk hlustar á hlaðvörp. 

Sort list by: title | rating | view date ↓

  • June, 2020

  • Show the reviewHide the reviewThe Kitchen (2019) 6/10

    2020-06-06 14:37
    * * * * * *

    Gangsta mynd. Gangsta gellur. New York í ruglinu. Spennandi mynd.

    0.3
  • May, 2020

  • Show the reviewHide the reviewThe Lovebirds (2020) 7/10

    2020-05-29 21:36
    * * * * * * *

    Fyndin og spennandi. Svona rom-com með spennu/action twist er formúlan okkar Birnu fyrir date-mynd. #netflix

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewJojo Rabbit (2019) 7/10

    2020-05-21 22:45
    * * * * * * *

    Mjög fyndið bull. Jojo var krúttlega barnalegur (naive). Sam Rockwell var sérstaklega góður og fyndinn. Mjög góð og skemmtileg mynd. En hún var líka alveg smá spennandi, dramatísk og sorgleg – sem er viðeigandi fyrir þetta umræðuefni.

    0.3
  • April, 2020

  • Show the reviewHide the reviewExtraction (2020) 7/10

    2020-04-27 22:32
    * * * * * * *

    Spennandi. Góð keyrsla inn á milli. Töff action myndataka með flottum one-shots. #netflix

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewEscape Room (2019) 6/10

    2020-04-23 22:00
    * * * * * *

    Mjög spennandi. Ágætis saga og plot, en endirinn hefði getað verið örlítið betri. #netflix

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewCoffee & Kareem (2020) 7/10

    2020-04-19 22:20
    * * * * * * *

    Fyndin vitleysa. Spennandi og fínt action. Góð afþreying. #netflix

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewInstant Family (2018) 6/10

    2020-04-08 22:22
    * * * * * *

    Hugljúf mynd. Fyndin á köflum. Drama. Mjög væminn endir.

    0.3
  • March, 2020

  • Show the reviewHide the reviewCode 8 (2019) 6/10

    2020-03-31 22:17
    * * * * * *

    Töff sci-fi mynd. Áhugavert concept. Spennandi. Endirinn hefði getað verið betri – vantaði eitthvað til að gera hann meira solid. Áhugavert að sjá að 4 mínútur af kreditlistanum voru þakkir til þeirra sem styrktu myndina í gegnum Indiegogo 😅

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewBombshell (2019) 7/10

    2020-03-21 21:36
    * * * * * * *

    Svakaleg saga. Magnað hvað þetta virðist hafa verið toxic vinnuumhverfi. Heill hellingur af frábærum leikurum. Sagan var aðeins öðruvísi en trailer-inn og annað markaðsefni gaf í skyn.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewSpenser Confidential (2020) 6/10

    2020-03-14 22:14
    * * * * * *

    Spennandi. Gott löggu & bófa – frekar klassískt/formúlukennt. Áhugavert að sjá Post Malone í smá hlutverki. #netflix

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewThe Invisible Man (2020) 6/10

    2020-03-08 01:00
    * * * * * *

    Umfram allt mjög spennandi mynd. Mjög "creepy" og mikið af spennuþrungnum atriðum sem fengu adrenalínið til að flæða og hélt manni alveg á sætisbrúninni. Elisabeth Moss var klárlega stjarna myndarinnar – náði mjög vel að túlka þessa brotnu taugahrúgu. Kvikmyndataka, tónlist og annað hljóð hjálpaði mikið við að skapa spennuna og manni brá alveg nokkuð oft.

    0.3
  • February, 2020

  • Show the reviewHide the reviewBirds of Prey: And the Fantabulous Emancipation of One... 6/10

    2020-02-17 00:01
    * * * * * *

    Fín skemmtun. Fínasta action – en mér fannst vanta smá taktinn í sum bardagaatriði, þau voru ekki alltaf nógu trúverðug. Kjarninn í myndinni var aðeins öðruvísi en mér fannst stiklan gefa til kynna. Það var nokkuð áberandi að flestir áttu við geðræn vandamál að stríða – mikið af geðsjúkum persónum. Skemmtilega svartur og klikkaður húmor.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewMiss Americana (2020) 6/10

    2020-02-12 22:03
    * * * * * *

    Áhugaverð heimildamynd. Taylor er mögnuð listakona. Alltaf gaman að sjá bak við tjöldin, hvernig sköpunarferlið er þegar fólk býr til tónlist.

    0.3
  • January, 2020

  • Show the reviewHide the reviewThe Gentlemen (2019) 9/10

    2020-01-25 23:37
    * * * * * * * * *

    Virkilega töff mynd. Back to basics hjá Guy Ritchie – í anda 'Lock, Stock and Two Smoking Barrels' og 'Snatch' með mjög gott handrit, skemmtilegar og áhugaverðar persónur og töff löng UK gangster samtöl & monologues. Mjög fyndin og spennandi – Guy Ritchie nær svo vel að blanda saman action og breskum húmor. Vel sett upp og góð keyrsla – hélt athygli manns vel.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewBad Boys for Life (2020) 6/10

    2020-01-24 22:34
    * * * * * *

    Góð skemmtun. Góð nostalgía – þetta togaði alveg í réttu strengina með sömu töktunum, sömu tónlistinni o.s.frv. Töluvert meiri keyrsla og betra action eftir hlé – og þetta var alveg frekar gott action. Fínn húmor inn á milli.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewPAW Patrol: Mighty Pups (2018) 6/10

    2020-01-19 23:04
    * * * * * *

    Ánægjuleg mynd. Fínn húmor. Góð keyrsla. Stutt og laggóð – hentugt fyrir fyrstu bíóferð Anítu. Íslenska þýðingin er "Hvolpasveitin: Ofur-Hvolpar".

    0.3
  • Show the reviewHide the review1917 (2019) 10/10

    2020-01-14 23:40
    * * * * * * * * * *

    Geggjuð myndataka! Þessi löngu skot eru svakaleg! Hef ekki séð annað eins. Metnaður. Listaverk. Bravissimo! Þessi myndataka gerði það að verkum að manni fannst maður vera með þeim í þessu – “immersive” upplifun sem var alveg mögnuð. Mjög spennandi. Flottir leikarar. Átakanlegt hvað stríð er klikkað dæmi – algjör bilun. Svo vel gerð og vönduð mynd – allt umhverfið virkar mjög “authentic”. Meistarastykki! Svo sannarlega mynd sem skilur eitthvað eftir – ég var alveg dolfallinn eftir þetta.

    0.3
  • December, 2019

  • Show the reviewHide the reviewUpgrade (2018) 8/10

    2019-12-29 22:56
    * * * * * * * *

    Áhugaverð dystopian sci-fi mynd. Spennandi. Fín keyrsla. Töff bardagaatriði og myndataka. Skemmtilegar tæknipælingar.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewParasite (2019) 7/10

    2019-12-29 17:46
    * * * * * * *

    Mjög áhugaverð mynd. Frumleg. Kom mikið á óvart – hressandi þegar margar myndir eru oft nokkuð fyrirsjáanlegar. Fyrri hlutinn var ágætlega hægur og viðburðalítill, en svo tóku þau þetta á næsta level, skiptu alveg um gír. Góður húmor inn á milli. Alltaf gaman að sjá myndir sem fylgja ekki týpískum Hollywood formúlum.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewRed Sparrow (2018) 5/10

    2019-12-26 22:44
    * * * * *

    Spennandi thriller. Að vissu leyti áhugaverð saga og áhugaverður heimur. En mjög dark og brútal – meira en ég bjóst við.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewIn the Shadow of the Moon (2019) 6/10

    2019-12-25 22:52
    * * * * * *

    Áhugaverð saga. Skemmtilegt sci-fi. Spennandi. Tímaflakk er flókið fyrirbæri – oft erfitt að skrifa handrit sem gengur alveg upp og meikar sense. En ágætis concept.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewStar Wars: The Rise of Skywalker (2019) 7/10

    2019-12-20 00:17
    * * * * * * *

    Spennandi mynd. Virkilega flott – glæsilegar tæknibrellur. Stórfengleg mynd. Solid mynd fyrir Star Wars aðdáendur – topp afþreying. Þetta var fínn endir á þessari sögu, þessum Star Wars kafla – náðu að loka þessu ágætlega. Sci-fi nördinn í mér hefur alltaf gaman af öllum þessum plánetum í Star Wars heiminum með mismunandi dýrum og geimverum. Sum atriði og samtöl voru smá "Disney-leg" – smá kjánaleg/vandræðaleg að reyna að vera of krúttleg eða fyndin. Gaman og áhugavert að sjá hvað J.J. Abrams er duglegur að redda hlutverkum fyrir vini sína sem hann hefur unnið með í sjónvarpsþáttunum sínum.

    0.3
  • Show the reviewHide the review6 Underground (2019) 7/10

    2019-12-17 22:27
    * * * * * * *

    Töff mynd. Spennandi. Góð keyrsla. Svakaleg byrjun – intense & over the top. En gaman að þessu. Fylgir alveg Michael Bay formúlunni: Nóg af sprengingum, eldi, slow-motion, blóðslettum á sterum, rokktónlist, byssubardögum, bílaeltingaleikjum... og smá vörulaum (product placement). Handritið var smá takmarkað á köflum.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewJumanji: The Next Level (2019) 7/10

    2019-12-13 00:03
    * * * * * * *

    Mjög spennandi og mjög fyndin mynd. Topp afþreying. Frekar svipaður söguþráður og í síðustu mynd – með smá auka viðbót sem var alveg áhugavert og skemmtilegt.

    0.3
  • Show the reviewHide the review21 Bridges (2019) 8/10

    2019-12-03 23:43
    * * * * * * * *

    Mjög spennandi mynd. Góð keyrsla. Fínasta saga, þótt ég hafi alveg séð sambærilegt plot áður. Eitthvað hrátt við hana – hún var ekki stútfull af tæknibrellum eins og margar myndir núna. Smá old school stemning við þessa mynd – New York löggur að elta bófa og svo eru náttúrulega einhverjar spilltar löggur. Solid mynd. Hélt athyglinni vel – ekki mikið af dauðum punktum. Flottir leikarar.

    0.3
  • November, 2019

  • Show the reviewHide the reviewThe Irishman (2019) 8/10

    2019-11-24 00:49
    * * * * * * * *

    Mjög góð mynd. Virkilega áhugaverð saga. Spennandi. Hún var ekki langdregin þótt hún var 3,5 klst – það var frá svo mörgu að segja. Magnað leikaraúrval – unaður að sjá þessi legends í þessum hlutverkum. Áhugavert að sjá hvernig það var búið að yngja þá upp – næstum því trúverðugt/fullkomið, en stundum örlítið creepy (uncanny valley). Mikið af löngum og hægum (yfirveguðum) mafíósasamtölum. Fyrsta Netflix myndin sem ég sé í bíó 😉

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewRough Night (2017) 6/10

    2019-11-21 22:13
    * * * * * *

    Frekar klikkuð mynd. Algjört rugl – mikið af WTF atriðum. Fyndin. Spennandi. Plot-ið minnir mig á aðrar myndir sem ég hef séð – t.d. Very Bad Things.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewShaun of the Dead (2004) 7/10

    2019-11-17 21:41
    * * * * * * *

    Klassísk zombie mynd. Spennandi. Fyndin. Hún var meiri snilld í minningunni – en ég var með mega inflúensu þegar ég horfði á hana, þannig að kannski hafði það áhrif á upplifunina.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewBlack Panther (2018) 7/10

    2019-11-16 22:36
    * * * * * * *

    Áhugaverð saga. Áhugaverðar pælingar með Wakanda og Vibranium. Spennandi. Fínt action.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewTerminator: Dark Fate (2019) 7/10

    2019-11-05 23:14
    * * * * * * *

    Mjög spennandi. Gott action. Linda Hamilton var badass! Gaman að fá meira Terminator efni og sérstaklega skemmtilegt að fá Sarah Connor og T-800 aftur saman. Handritið var frekar týpískt – en ég hafði gaman af þessu.

    0.3

← previous 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 next →

List generated by WP Movie Ratings.

Síðast uppfært 16. February, 2025

Share this:

  • Share
  • Click to share on Facebook (Opens in new window) Facebook
  • Click to share on X (Opens in new window) X
  • Click to share on Tumblr (Opens in new window) Tumblr
  • Click to share on Pinterest (Opens in new window) Pinterest
  • Click to share on Reddit (Opens in new window) Reddit
  • Click to share on LinkedIn (Opens in new window) LinkedIn
  • Click to print (Opens in new window) Print
  • Click to email a link to a friend (Opens in new window) Email

Reader Interactions

Comments

  1. Bjössi says

    24. November, 2007 at 0:36

    þú ert aldeilis fljótur að skrifa um American Gangster. My man, ég er sammála þér með myndina. Töff stöff.

    Reply
  2. Hannes says

    24. November, 2007 at 1:31

    Vei, fyrsta kommentið hérna :)

    Já, maður reynir að hafa þetta eins ferskt og hægt er :)

    Það er kosturinn við þetta setup – ég hendi bara upp einhverju stuttu review, skelli á þetta einhverjar stjörnur (bara svona gut feeling) og þá er það komið. Ekkert að tefja mig á óþarfa blaðri eða djúpum pælingum.

    Reply
  3. maple says

    11. February, 2008 at 21:28

    mér finnst of mikið af myndum hér með of litlum fresti – horfir of mikið á myndir

    Reply
  4. Hannes says

    13. February, 2008 at 0:30

    hehe… já, sorry – ég skal horfa á færri myndir ;) Væri ein á mánuði of mikið?

    En þetta er svona – ég hata ekki að horfa á bíómyndir… I loves it :)

    Reply
  5. maple says

    13. February, 2008 at 10:59

    ein á mánuði ef hún er á bíórásinni

    Reply
  6. Haukur says

    21. October, 2008 at 10:07

    Já ég fór með alltof miklar væntingar á Max kallinn. Myndin var alveg töff en sagan samsvaraði sér alveg ferlega illa. Þetta lyktar eins og gömul skinka.

    Reply
  7. siggasig says

    27. May, 2009 at 23:26

    Öflugur að halda utan um myndirnar sem þú sérð! ;) Nice. Sammála Star Trek umfjölluninni. Frábær mynd! Og hei, líka sammála um Angels and Demons. Ólíkt Da Vinci Code fannst mér myndin betri en bókin.

    Reply
  8. Hannes says

    28. May, 2009 at 0:34

    Takk. Já, mér fannst kominn tími til að hafa smá yfirsýn yfir þær myndir sem ég horfi á þar sem ég horfi á örlítið fleiri en 2 myndir á ári ;)

    Já, síðan var líka gaman að sjá í Angels & Demons hvað sumir hlutir voru allt öðruvísi en maður var búinn að ímynda sér þegar maður las bókina :)

    Reply
  9. Geiri says

    4. June, 2009 at 16:36

    Hot Rod: 10*?
    Ég hefði smellt 8*.

    Reply
  10. Hannes says

    4. June, 2009 at 23:32

    Jú, skil þig – þegar ég horfði á hana aftur einn þá var þetta ekki alveg eins mikil snilld, en samt fáránlega fyndin. En þegar ég horfði á hana fyrst þá skemmti ég mér alveg konunglega – það var kannski bara stemmningin að horfa á þetta wit da boyz. 10 stjörnur þýðir alls ekki að mér fannst þetta einhver Óskarsverðlaunamynd…

    En annars eru þessar stjörnugjafir engan veginn heilagar – oft bara nánast eitthvað skot út í loftið ;)

    Reply
  11. Sara says

    6. March, 2010 at 14:08

    Jæja Nesi, ég er mjög spennt að lesa hvað þú hefur um Shutter Island að segja. Koma svo! Í bíó með þig! ;)

    Reply
  12. Hannes says

    6. March, 2010 at 15:19

    hehe, úff… bara pressa :) Já, ég er svona ennþá að vega og meta hvort ég ætli að sjá Shutter Island í bíó. En ætli maður verði ekki að tékka á þessu, Scorsese stendur alltaf fyrir sínu.

    Reply

Leave a Reply Cancel reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Primary Sidebar

Leita að efni

Þetta helsta

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me

Önnur verkefni

  • Bulby – Brainstorming App
  • Don Comodo – Bolir o.s.frv.
  • Remote Sparks – Async Work

Copyright © 2025 Hannes · Hafðu samband / Contact me

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me
 

Loading Comments...