Hvað er í gangi?

Sjarmerandi seríalmorðingi

Ég held að það séu ekki margir sjónvarpsþættir sem hafa fengið mig til að lesa bækur… En síðasta haust ákvað ég að tékka á nýjum þætti sem átti að lofa góðu - Dexter. Hann var með nokkuð skemmtilegt plot - aðalpersónan er lögregla í Miami, nánar tiltekið sérfræðingur í blóðskvettum. Hann gerir mikið í því að vera viðkunnanlegur og líta út fyrir að vera venjulegur, sem hann er alls ekki. Á kvöldinn fer nefninlega hinn persónuleikinn á stjá og þá fer hann að drepa “vonda fólkið” - hann s.s. drepur bara þá sem hann er viss um að “eiga það skilið”.

Dexter

Ég er s.s. búinn að horfa á þessa þætti og hafði gaman af - þeir eru bæði spennandi og fyndnir. En þessir þættir eru víst byggðir á bók eftir Jeff Lindsay sem kallast Darkly Dreaming Dexter. Þegar ég fór til New York keypti ég þessa bók og bók númer 2 í Dexter seríunni: Dearly Devoted Dexter. Ég er búinn með fyrstu bókina og næstum búinn með seinni. Síðan kemur þriðja út í haust: Dexter in the Dark. Geri fastlega ráð fyrir að ég kaupi 3. bókina þar sem þessar bækur eru alls ekki slæmar - þótt þetta sé vissulega ekki alveg eins og í þáttunum. Það er ekki alveg eins mikið action í bókunum, ekki alltaf jafn mikið að gerast og síðan er gaurinn líka aðeins meira psycho í bókunum. Líka skemmtilegt að sjá hvað þeir notuðu úr bókunum og hvað ekki. En síðan er jú það skemmtilega við bækur að þú ert “leikstjórinn” ;) Þannig að þetta er fín afþreying á meðan maður bíður eftir 2. seríunni af þáttunum sem kemur í haust.

Skjár 1 er víst að sýna Dexter á sunnudögum ef fólk vill tékka á þessum þáttum. Síðan er svona skemmtilegur Dexter leikur á netinu sem er gaman að tékka á.

Don’t you want to hear my last words? …I just did.

5 athugasemdir varðandi “Sjarmerandi seríalmorðingi”

  1. Ella hefur þetta að segja:

    Þetta eru svo freaky góðir þættir.. oj lojk them!
    Svo er maður farinn að halda með dýrinu þarna í lokin! Now that’s good characterisation!

  2. Bjössi hefur þetta að segja:

    Ha? þú hefur ekki tíma til að blogga en svo hefuru tíma til að lesa bækur, sem ekki eru námsbækur. Þetta finnst mér léleg forgangsröðun. Hér með tek ég ekkert mark á því þegar þú segist hafa mikið að gera.

    Ég hef séð þrjá þætti af Dexter, þeir voru ágætir.

  3. nezi hefur þetta að segja:

    Bjössi - Ja, það fer nú ekki mikill tími í þetta - maður les bara nokkrar blaðsíður fyrir svefninn. Fínt að sofna út frá því að lesa um limlestingar og annað skemmtilegt - góðir draumar, ó já.

    En já, ég skal leggja allt annað til hliðar svo ég geti bloggað meira.

    Ella - já, hann er náttúrulega aðalpersónan þannig að hann er eiginlega “góði gæinn” - maður heldur alla veganna alltaf með honum :)

  4. maple hefur þetta að segja:

    éég hef aldrei neitt að segja

  5. Dexter kominn til Íslands » I am official station hefur þetta að segja:

    [...] Hann er s.s. “sérfræðingur í blóðferlum” - nú er bara spurning hvort hann sé sjarmerandi seríalmorðingi eins og Dexter Morgan? [...]

Skildu eftir skilaboð eftir bípið

Hannes - Just walkin'... I am official station Pen and paper Aðgangur bannaður fyrir fólk með dökkt hár Iceland Airwaves 2006 - Reykjavik Art Museum Just grillin'... Here fishy, fishy... Attention: Keep gun holstered. FIRE KILLS CHILDREN! Iceland Airwaves 2005 - Nasa Gin and tonic Mary Jane vodka Turn me on

 

© 2008 Hannes