Orðinn alvöru ljósmyndari
Já, það lítur út fyrir að ljósmyndanámið í Danmörku hafi borgað sig ;) Er maður ekki orðinn alvöru ljósmyndari þegar það er búið að “gefa út” mynd sem maður tók? Aglavegna… bæklingurinn er kominn á netið: PDF á Fordham síðunni. Síðan er hérna PDF í betri gæðum sem þau sendu mér. Myndin mín er þarna í hægra neðra horninu á fyrstu síðunni [hérna er hún á flickr].
Síðan er ég búinn að henda nokkrum nýjum myndum inn á flickr:
Nenni ekki að hafa þetta lengra. Hef ekkert tíma til að bulla endalaust - annað en sumir ;) - maður er á lokasprettinum með lokaverkefnið… Skilum 14. maí og síðan sýning 16. Ég held að kassinn af bjór sem ég vann í pókermótinu ætti að koma sér vel eftir þetta allt saman ;)
I need to get my drink on
May 8th, 2007 at 0:40
Listanörd, viltu ekki bara flytja í kommúnu og gerast hippi??
Besta myndin er af London Eye, enda er ég á henni eins og öllu flottu myndunum.
May 8th, 2007 at 9:22
töffari, nafnið þitt er fáránlega áberandi á myndinni í bæklingnum. En það er bara töff fyrir þig.
May 8th, 2007 at 12:44
Jamm, mjög flott, congrats.
May 8th, 2007 at 14:17
Takk, takk.
Já, ég held alveg að næsta skref sé bara að flytja í kommúnu. Er ekki málið að stofna íslenska Kristíaníu? Örugglega áhugi fyrir því…
Hmm… já, ég skil ekki hvernig þér tekst að vera á flest öllum flottu myndunum Bjössi. Eða kannski eru myndirnar töff af því að þú ert á þeim - pæling… ;)
May 8th, 2007 at 15:15
Nesi, þessari pælingu þinni er auðsvarað, svo auðsvarað að það er óþarfi að eyða tíma í að svara henni…..
Svo er greinilegt að þeir sem stúdera lögfræði vita hvað eru flottar myndir þegar þeir sjá þær, sbr. starfsfólk Fordham Law School.
May 9th, 2007 at 12:42
djöfull ertu röglaður, setja eitthvað art museum á flikker, þú verður að ákveða - annaðhvort verðuru graffari eða forritari, ekki hægt að vera bæði.
May 9th, 2007 at 21:20
Nú, má maður ekki vera bæði? Damn… en ég veit um alveg nokkra forritara/graffara.
Jæja, þá verð ég víst að hætta við að vera forritari…
November 29th, 2007 at 1:03
[...] verður Hlynur alveg brjálaður - neyðir mig örugglega til að segja upp… En já, það virðist sem maður sé [...]
September 13th, 2008 at 2:21
[...] það eru ekki bara lögfræðiskólar og listasöfn sem vilja nota myndirnar mínar [...]