Hvað er í gangi?

Þetta er kolefnisjafnað blogg

Það er allt að verða vitlaust. Fólk er alveg fáránlega grænt og ógeðslega mikið að hugsa um náttúruna og kolefnisjafna allt og alla. Maður getur örugglega kolefnisjafnað ömmu sína ef maður hefur áhuga á því… En þetta er allt gott og blessað, það þarfa að passa upp á þessa blessuðu plánetu ef við viljum lifa hérna eitthvað örlítið lengur. Ég vil nú ekki vera minni maður og vil stoltur tilkynna að þetta blogg er sko þokkalega grænt:

Green Web Hosting! This site hosted by DreamHost.
(Það er hægt að smella til að staðfesta það sko.)

En er fólk að kaupa þetta Kolviðar dæmi? Þetta er nú ekki góðgerðarstofnun - hvað ætli fari mikill hluti í að virkilega planta trjám? Þessar auglýsingar eru nú ekki ókeypis og starfsmennirnir þurfa að fá sín laun (þeir eru samt líklega ekki mjög margir). En þetta er sniðugt, voða trendy - það er til alveg slatti af svona batterýum erlendis. Íslendingar þurfa nú líka að vera með í að bjarga þessari plánetu frá glötun. Ætli við séum ekki nú þegar að kolefnisjafna mest í heimi? (…miðað við höfðatölu)

They say jump, you say how high?

4 athugasemdir varðandi “Þetta er kolefnisjafnað blogg”

  1. Bjössi hefur þetta að segja:

    Það er ekki séns að ég fari að borga 200 kr. meira fyrir flugmiðann minn til þess að gróðursetja eitthvað helvítis tré. Flugmiðinn er nægilega dýr fyrir!

  2. maple hefur þetta að segja:

    HVAÐ ER AÐ ÞÉR BJÖSSI!! er þér skítsama um allt og alla?? ekkert svona, náttúran er æði og við þurfum að hugsa um hana og vera góð við hana og þannig.

  3. Hannes hefur þetta að segja:

    Öss… síðan kostar 1324 kr. aukalega að fljúga með Icelandair til Orlando
    - fyrst að flugfélögin vilja vera svona græn, af hverju koma þau ekki á móts við viðskiptavinina og borga 50% af kolefnisjöfnuninni?

    Já, svo er Dogbert orðinn grænn ráðgjafi - nokkuð góð ráð hjá honum :)

  4. Random thoughts… » I am official station hefur þetta að segja:

    [...] marga daga í röð. Svona á þetta að vera. Ég held að fólk ætti alveg að sleppa því að kolefnisjafna sig - þessi gróðurhúsaáhrif eru að gera góða hluti ;) Það er nú búið að hóta manni verra [...]

Skildu eftir skilaboð eftir bípið

XHTML: Það er hægt að nota þetta til að skreyta komment: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Hannes - Just walkin'... I am official station Pen and paper I am Hannes, I'm a code monkey Aðgangur bannaður fyrir fólk með dökkt hár Iceland Airwaves 2006 - Reykjavik Art Museum Just grillin'... Here fishy, fishy... Attention: Keep gun holstered. FIRE KILLS CHILDREN! Erpur Blazroca - I am Hannes, I'm creative Iceland Airwaves 2005 - Nasa Gin and tonic Mary Jane vodka Turn me on

 

© 2008 Hannes · Hafðu samband / Contact me