Smá umfjöllun um kvikmyndir sem ég hef séð nýlega… Stutt kvikmyndagagnrýni – ég nenni að skrifa mismikið, fer yfirleitt eftir því hvað mér dettur fyrst í hug – oft bara að hugsa upphátt.
Stjörnugjöf… já, stjörnugjöf er eiginlega svolítið bullshit – ég held að það sé mismikið bakvið stjörnur sem fólk gefur myndum. Hjá mér er það yfirleitt bara gut feeling – hversu skemmtileg/fyndin/spennandi/flott fannst mér myndin. Upplifunin.
Það er ekki eins og ég sé með einhvern ákveðinn skala/staðal eða tékklista – “já, flottur bílaeltingaleikur – 1 stjarna, töff byssubardagi – bætist við 1,5 stjarna…” ;) Síðan getur stjörnugjöfin oft verið svona plús/mínus 1-2 stjörnur.
Hlaðvarp um kvikmyndir
Það er vert að minnast á að ég og Björn erum með hlaðvarp um kvikmyndir sem við köllum Búnir með poppið. Það er hægt að fylgjast með okkur í gegnum Facebook, Twitter og Instagram – og svo auðvitað hlusta á þættina á Spotify, Apple Podcasts, Google Podcasts og öðrum stöðum þar sem fólk hlustar á hlaðvörp.
Sort list by: title | rating | view date ↑
September, 2020
-
2020-09-04 23:17
Svo klisjukennt og fyrirsjáanlegt. Lélegt/skrýtið handrit. Kjánaleg mynd. En stundum er gaman að horfa á lélegar myndir. #netflix
0.3 -
Bill & Ted Face the Music (2020)
2020-09-07 00:15Steikt og kjánaleg mynd – en á skemmtilegan máta. Ekkert verið að taka sig of alvarlega – bara verið að leika sér með tímaflakk. Ágætlega fyndin inn á milli. Nokkur skemmtileg cameos. Fínasta afþreying.
0.3 -
2020-09-07 22:41
Önnur klisjukennd og fyrirsjáanleg mynd. Ekki gott handrit – mikið af vandræðalegum og þvinguðum væmnum atriðum. #netflix
0.3 -
2020-09-11 23:44
Feel-good fjölskylduvæn hasarmynd á léttu nótunum. Mjög fyndin inn á milli. Aðal strákurinn var mjög góð týpa. Ágætlega spennandi. Mjög solid afþreying. #netflix
0.3 -
A Million Ways to Die in the West (2014)
2020-09-17 22:33Mikil vitleysa. En alveg fyndin inn á milli. Ekta Family Guy/Seth MacFarlane húmor. Slatti af fínum leikurum + skemmtilegum cameos. #netflix
0.3 -
2020-09-26 22:17
Spennandi mynd. Skemmtileg. Enola (Millie Bobby Brown) er góð týpa. Gaman af svona spæjara finna-vísbendingar myndum. #netflix
0.3 -
The Secret: Dare to Dream (2020)
2020-09-30 22:39Væmin. Klisjukennd. Frekar fyrirsjáanleg. Ekkert svakalega gott handrit – oft þurr og vandræðaleg samtöl. Fín áminning að það er ýmislegt sem gefur til kynna að það sé betra að horfa á björtu hliðarnar og vona það besta.
0.3 October, 2020
-
2020-10-11 23:49
Skrautlegar persónur. Smá B-mynda bragur. Inn á milli frekar lélegur leikur og jafnvel eins og það sé talsett eftir á fyrir suma leikarana. Mikið ofbeldi. Brútal. Svartur og skrýtinn húmor. Stundum ákveðnar gloppur í handritinu – upp á trúverðugleika, flæði og að meika sense. En alveg spennandi mynd. Langt síðan maður hefur séð eitthvað frá Jonas Åkerlund. Áhugavert að Deadmau5 sá um tónlistina. #netflix
0.3 -
2020-10-13 21:51
Svartur húmor. Smá spes mynd. Slatti af cameos og þekktum leikurum. Spennandi og fyndin. #netflix
0.3 -
2020-10-14 23:52
Töff mynd. Klikkuð og brútal sýn á LA. Spennandi. Var búinn að gleyma að Snoop Dogg, Dr. Dre. og Macy Gray voru með smá hlutverk.
0.3 -
2020-10-15 21:53
Mikið bull. Kjánalæti í takt við aðrar Adam Sandler myndir – mér fannst ég vera horfa á persónur úr gömlum Sandler myndum. Slatti af cameos og þekktum leikurum í litlum hlutverkum. Alveg smá spennandi og fín afþreying. #netflix
0.3 -
2020-10-18 23:57
Mjög spennandi. Gott action. Ágætis saga og plot. Passlega stutt mynd. #netflix
0.3 -
2020-10-19 23:38
Önnur Kóresk zombie mynd. Skemmtileg nútíma nálgun á zombie mynd. Mjög spennandi og stressandi. Fínasta zombie action. #netflix
0.3 -
2020-10-20 22:00
Missy er mjög klikkuð týpa – alveg skemmtilega klikkuð. Mikið bull. Mikil vitleysa. En betri mynd en ég bjóst við. Slatti af klassískum Happy Madison/Adam Sandler leikurum. #netflix
0.3 -
2020-10-25 22:04
Nokkuð hæg mynd – tók smá tíma að ná flugi. Mikið New York vibe – var að fíla það. Quirky húmor – mjög fyndin inn á milli. En líka létt drama. Bill Murray var algjör snillingur – mjög góð týpa.
0.3 -
The Trial of the Chicago 7 (2020)
2020-10-27 23:05Mjög áhugaverð saga. Spennandi. Fyndin inn á milli. Solid handrit og samræður eins og maður býst við frá Aaron Sorkin. Kraftmiklar persónur. Fullt af fínum leikurum. #netflix
0.3 -
2020-10-29 23:07
Gott stöff. Góðar persónur. Áhugaverð saga. Klikkað hvernig stemningin og virðingarleysið var þarna í 60's. Vel gerð mynd.
0.3 November, 2020
-
2020-11-02 22:39
Mjög spennandi stríðsmynd. Tónlistin og hljóðin voru áhugaverð – gerðu þetta extra spooky/stressandi. Það var líka smá eins og þetta væru dýrahljóð tengd skipunum og kafbátunum. Skemmtilega takmörkuð (prímatív) tækni sem þeir voru að vinna með þarna. Áhugavert að Tom Hanks skrifaði handritið.
0.3 -
2020-11-03 22:10
Hugljúf og væmin 90's mynd. Drama – táningsdrama. Stundum voru frekar takmarkaðir leikarahæfileikar í gangi.
0.3 -
2020-11-03 23:11
Mjög spennandi frönsk löggu & bófa mynd. Smá ruglingslegt hver er að svíkja hvern. Aðeins of dark og WTF á köflum. #netflix
0.3 -
2020-11-16 22:28
Skemmtileg mynd. Fyndin á köflum. Jim Carrey var góð týpa – klassískir taktar hjá honum. Spennandi – ágætlega fjölskylduvænt action. Flottar tæknibrellur.
0.3 -
Borat Subsequent Moviefilm (2020)
2020-11-20 23:34Vel ruglað bull. Oft mjög vandræðaleg (cringey) atriði. Alveg sniðugur (clever) húmor inn á milli. En margt svo rangt. Stundum virtist þetta vera lauslega tengdur söguþráður og meira eins og sería af sketsum – en kannski bara svipað og Borat 1. Dóttir hans (Maria Bakalova) var mjög góð í sínu hlutverki. Kom skemmtilega á óvart að þetta var í rauninni um jafnrétti kynjanna. Áhugavert að sjá fullt af fólki á credit-listanum sem COVID Advisor, COVID Compliance Officers o.s.frv. – munum örugglega sjá meira af því í kringum myndir sem eru teknar upp á þessum tímum.
0.3 -
2020-11-28 22:35
Áhugavert concept. Fyndin inn á milli. Smá hæg á köflum – ekkert svakaleg action keyrsla. Þar sem "Related movies" voru Spy, The Spy Who Dumped Me og Date Night (sem eru allar í uppáhaldi hjá okkur) þá bjóst ég við öðruvísi mynd – meira action og betra gríni. Þetta var meira svona rom-com með drama.
0.3 December, 2020
-
2020-12-21 21:07
Ekki frábær mynd, en ekki hræðileg. Fyrirsjáanleg og klisjukennd, en mjög fyndin inn á milli. Allt í lagi afþreying. Áhugavert að sjá King Bach (Andrew Bachelor) í fleiri og fleiri myndum – það er vissulega verðmætt að fá áhrifavald með meira en 20 milljón fylgjendur til að tala um kvikmyndina þína 😉 #netflix
0.3 -
2020-12-27 22:38
Fín ofurhetjumynd. Spennandi. Kröftug á köflum – það var meiri kraftur í fyrri myndinni. Wonder Woman er töff karakter. Kristen Wiig kom líka fersk inn – aðeins meira en klassísku grín-týpurnar hennar. Stundum vantaði eitthvað – kannski í handritið eða tempóið. Skemmtilegt 80's vibe, en hefði verið best ef þetta hefði verið WW83 😉
0.3 January, 2021
-
2021-01-02 23:39
Spennandi mynd. Ekta hlutverk fyrir Liam Neeson. Ágætis leikaraval (casting). Ekki alveg low-budget mynd, en production skalinn var svona í minna falli – ekkert mjög mikið af leikurum. Að vissu leyti klassískt vibe – eins og maður hafi séð svipaðar myndir áður.
0.3 -
2021-01-06 22:05
Skemmtilega klikkuð mynd. Eins og í Honest Thief þá var Jai Courtney aftur að leika sleazebag. Fín afþreying.
0.3 -
2021-01-14 21:15
Eins og ég bjóst við var þetta ekki æðisleg mynd. Handritið var frekar þunnt. Allt frekar fyrirsjáanlegt. En alveg hægt að hlæja að nokkrum atriðum – mikið silly/crazy í gangi. Sem betur fer mjög stutt mynd.
0.3 -
2021-01-18 23:34
Gott action. Spennandi. Áhugavert sci-fi/framtíðar concept. Vantaði kannski örlítið í handritið/söguna. Seinni helmingurinn var ekki alveg eins þéttur og sá fyrri. #netflix
0.3
← previous 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 next →
List generated by WP Movie Ratings.
Síðast uppfært 19. March, 2024
Bjössi says
þú ert aldeilis fljótur að skrifa um American Gangster. My man, ég er sammála þér með myndina. Töff stöff.
Hannes says
Vei, fyrsta kommentið hérna :)
Já, maður reynir að hafa þetta eins ferskt og hægt er :)
Það er kosturinn við þetta setup – ég hendi bara upp einhverju stuttu review, skelli á þetta einhverjar stjörnur (bara svona gut feeling) og þá er það komið. Ekkert að tefja mig á óþarfa blaðri eða djúpum pælingum.
maple says
mér finnst of mikið af myndum hér með of litlum fresti – horfir of mikið á myndir
Hannes says
hehe… já, sorry – ég skal horfa á færri myndir ;) Væri ein á mánuði of mikið?
En þetta er svona – ég hata ekki að horfa á bíómyndir… I loves it :)
maple says
ein á mánuði ef hún er á bíórásinni
Haukur says
Já ég fór með alltof miklar væntingar á Max kallinn. Myndin var alveg töff en sagan samsvaraði sér alveg ferlega illa. Þetta lyktar eins og gömul skinka.
siggasig says
Öflugur að halda utan um myndirnar sem þú sérð! ;) Nice. Sammála Star Trek umfjölluninni. Frábær mynd! Og hei, líka sammála um Angels and Demons. Ólíkt Da Vinci Code fannst mér myndin betri en bókin.
Hannes says
Takk. Já, mér fannst kominn tími til að hafa smá yfirsýn yfir þær myndir sem ég horfi á þar sem ég horfi á örlítið fleiri en 2 myndir á ári ;)
Já, síðan var líka gaman að sjá í Angels & Demons hvað sumir hlutir voru allt öðruvísi en maður var búinn að ímynda sér þegar maður las bókina :)
Geiri says
Hot Rod: 10*?
Ég hefði smellt 8*.
Hannes says
Jú, skil þig – þegar ég horfði á hana aftur einn þá var þetta ekki alveg eins mikil snilld, en samt fáránlega fyndin. En þegar ég horfði á hana fyrst þá skemmti ég mér alveg konunglega – það var kannski bara stemmningin að horfa á þetta wit da boyz. 10 stjörnur þýðir alls ekki að mér fannst þetta einhver Óskarsverðlaunamynd…
En annars eru þessar stjörnugjafir engan veginn heilagar – oft bara nánast eitthvað skot út í loftið ;)
Sara says
Jæja Nesi, ég er mjög spennt að lesa hvað þú hefur um Shutter Island að segja. Koma svo! Í bíó með þig! ;)
Hannes says
hehe, úff… bara pressa :) Já, ég er svona ennþá að vega og meta hvort ég ætli að sjá Shutter Island í bíó. En ætli maður verði ekki að tékka á þessu, Scorsese stendur alltaf fyrir sínu.