Smá umfjöllun um kvikmyndir sem ég hef séð nýlega… Stutt kvikmyndagagnrýni – ég nenni að skrifa mismikið, fer yfirleitt eftir því hvað mér dettur fyrst í hug – oft bara að hugsa upphátt.
Stjörnugjöf… já, stjörnugjöf er eiginlega svolítið bullshit – ég held að það sé mismikið bakvið stjörnur sem fólk gefur myndum. Hjá mér er það yfirleitt bara gut feeling – hversu skemmtileg/fyndin/spennandi/flott fannst mér myndin. Upplifunin.
Það er ekki eins og ég sé með einhvern ákveðinn skala/staðal eða tékklista – “já, flottur bílaeltingaleikur – 1 stjarna, töff byssubardagi – bætist við 1,5 stjarna…” ;) Síðan getur stjörnugjöfin oft verið svona plús/mínus 1-2 stjörnur.
Hlaðvarp um kvikmyndir
Það er vert að minnast á að ég og Björn erum með hlaðvarp um kvikmyndir sem við köllum Búnir með poppið. Það er hægt að fylgjast með okkur í gegnum Facebook, Twitter og Instagram – og svo auðvitað hlusta á þættina á Spotify, Apple Podcasts, Google Podcasts og öðrum stöðum þar sem fólk hlustar á hlaðvörp.
Sort list by: title | rating | view date ↓
March, 2017
-
2017-03-17 23:29
Fín low-budget "Made for TV/DVD/VOD/Netflix" mynd (borderline B-mynd). Spennandi. Áhugavert concept. Ég hef alltaf gaman af zombie myndum og sjónvarpsþáttum.
0.3 -
2017-03-13 22:46
Svakaleg mynd! Virkilega góð. Hrikalega spennandi ...og creepy. Mjög frumleg – frábært handrit, kom á óvart að svo mörgu leyti. Góðir leikarar. Jordan Peele skrifaði og leikstýrði, þannig að myndin var vissulega glettilega fyndin inn á milli.
0.3
Svo var þetta óvissusýning, þannig að þetta kom enn skemmtilegra á óvart. -
2017-03-03 23:33
Flott mynd. Mjög spennandi. Góð keyrsla. Töff action. Litla stelpan var svakaleg – badass. Áhugaverð saga. Töluvert meira "dark" (þyngri) heldur en aðrar Marvel myndir. Svo var engin sena í lokinn eins og hjá flestum Marvel myndum :/
0.3 February, 2017
-
2017-02-19 23:47
Spennandi mynd. Svakaleg action/bardaga-atriði. Brútal. Líka nettur húmor inn á milli, alla vega nokkur kómísk atriði. Svipað þema og í fyrstu myndinni – Übermensch á móti öllum vondu köllunum (og konunni). Flott myndataka – slatti af mjög skemmtilegum skotum.
0.3 January, 2017
-
2017-01-29 21:35
Mjög spennandi. Áhugavert að sjá hluta af Pablo Escobar sögunni frá þessu sjónarhorni. Fínir leikarar.
0.3 -
2017-01-14 23:31
Mögnuð mynd. Virkilega vel gerð. Fullt af fínum leikurum. Þau náðu að velja leikara og breyta þeim þannig að flestir voru nokkuð líkir alvöru persónunum. Hádramatísk mynd. Svakalega spennandi. Flott myndataka og góð keyrsla. Flott hvernig alvöru upptökum úr fréttunum var blandað saman við leikið efni – minnti mann enn frekar á að þetta gerðist í alvörunni fyrir ekki svo löngu síðan. Virkilega áhugavert að sjá þessa tímalínu og fræðast nánar um það hvað gerðist þessa örfáu daga. 🏃 💥 💪 🇺🇸
0.3 -
2017-01-01 23:08
Spennandi sci-fi mynd. Fínasta action. Sum atriði minntu mig mikið á tölvuleiki (CGI action).
0.3 December, 2016
-
2016-12-27 00:23
Fínasta afþreying. Skemmtileg töfrabrögð og sjónhverfingar. Gaman að ein persónan hét Hannes :) Áhugavert að sjá að David Copperfield var framleiðandi. Daniel Radcliffe elskar greinilega að leika í töframyndum ;)
0.3 -
Rogue One: A Star Wars Story (2016)
2016-12-21 23:50Mjög spennandi. Gott action. Góður húmor, en nokkrir brandarar voru örlítið þvingaðir. Að vissu leyti klassísk Star Wars mynd. Það er ekkert verið að finna upp hjólið. Það var svona smá eins og ég hefði séð eitthvað svipað áður ;) En það er gaman að sjá meira úr þessum heimi. Flott mynd. Alltaf gaman að sjá Ísland í kvikmyndum.
0.3 -
Fantastic Beasts and Where to Find Them (2016)
2016-12-04 23:54Virkilega skemmtileg mynd. Spennandi. Gott action. Flottar tæknibrellur – ekki oft sem 3D tæknibrellur koma svona vel og skemmtilega út. Síðast en ekki síst, mjög fyndin. Gaman þegar vel tekst að flétta húmor saman við spennu og læti. Gaman að skyggnast meira inn í Harry Potter heiminn. Ég hlakka til að sjá fleiri myndir í þessari seríu.
0.3 November, 2016
-
2016-11-26 23:04
Mjög spennandi. Alltaf áhugavert að sjá myndir með fáum leikurum. Gaman að skyggnast nánar inn í Cloverfield heiminn. Ég væri alveg til í að sjá fleiri myndir – en þarf maður að bíða í 8 ár eftir næstu mynd? ;) Áhugavert að fylgjast með hvað mikið af kvikmyndum og sjónvarpsþáttum sem J.J. Abrams kemur nálægt ganga mikið út á dulúð (mystery).
0.3 -
2016-11-25 23:29
Mjög fyndin mynd. Góð vitleysa. Áhugavert að horfa á svona mynd þegar maður er að átta sig á þessu nýja foreldrahlutverki.
0.3 -
2016-11-19 23:35
Mögnuð sci-fi mynd. Virkilega góð. Mjög spennandi. Áhugaverðar pælingar og skemmtilegt plot. Mér finnst alltaf gaman að sjá hvernig fólk sér fyrir sér geimverur og samskipti okkar við þær. Flott myndataka. Tónlistin hjá Jóhanni Jóhannssyni var að gera góða hluti.
0.3 -
2016-11-14 22:01
Fyndin mynd. Áhugavert concept. Silly (skemmtilega rugluð/kjánaleg). Fínasta afþreying.
0.3 October, 2016
-
2016-10-30 22:58
Flott mynd. Spennandi. Magnaðar tæknibrellur til að búa til þennan töfraheim, sem er áhugaverð viðbót við Marvel heiminn. Skemmtilegar pælingar líka varðandi hvað hugurinn er magnaður og hvað er hægt að gera og hafa áhrif á. Góður húmor eins og í mörgum Marvel myndum. Doctor Strange var með skemmtilegan (og óvenjulegan) sidekick.
0.3 -
2016-10-08 23:36
Svakaleg stórslysamynd! Mjög spennandi. Mikið af sprengingum. Mikið drama. Góð keyrsla. Vönduð – vel gerð. Fullt af fínum leikurum.
0.3 -
2016-10-08 18:25
Mikil vitleysa - stundum of mikil vitleysa. Fyndin inn á milli. Svakalega mikið af þekktu fólki (cameos). Gaman að sjá framhaldið af þessari legendary mynd, þótt framhaldið hafi ekki verið nærri því eins gott og fyrsta myndin.
0.3 -
Scouts Guide to the Zombie Apocalypse (2015)
2016-10-07 22:21Fyndin vitleysa/B-mynd. Spennandi. Fínt action. Gott soundtrack. Gaman að sjá Dillon Francis í cameo. Topp afþreying.
0.3 September, 2016
-
2016-09-22 23:52
Mjög áhugaverð saga – frekar klikkuð atburðarás. Það er greinilega hægt að græða helling af peningum ef siðferðið er ekkert að trufla mann ;) Spennandi mynd. Fyndin á köflum.
0.3 August, 2016
-
2016-08-23 23:08
Mjög fyndin og spennandi mynd. Svartur húmor – fullt af (skemmtilega) klikkuðum atriðum. Litla stelpan (Angourie Rice) var algjör snillingur. Góð 70's stemning – búningar, umhverfi og tónlist. Mjög góð skemmtun.
0.3 -
2016-08-22 23:27
Fínasta afþreying. Gott soundtrack – fullt af fínum lögum. Myndin var svona "upp og niður" – stundum vantaði eitthvað... Kannski var það bara betra handrit, betri samtöl. Ég er meiri aðdáandi Marvel myndanna – þær ná meira flugi og hafa meira skemmtanagildi.
0.3 -
2016-08-09 23:18
Mjög spennandi mynd. Magnað action – sérstaklega (klessu)bílaeltingaleikurinn í lokinn. Bourne samsteypan klikkar ekki. Töff stöff. 💪 👊 🚗 🔥 💥 🔫
0.3 -
Tony Robbins: I Am Not Your Guru (2016)
2016-08-06 21:01Kraftmikil mynd. Miklar tilfinningar. Áhugavert að sjá hvernig hann peppar sig upp til að hafa orku til að vera á sviði í 12 tíma, 6 daga í röð.
0.3 July, 2016
-
2016-07-31 23:13
Mjög spennandi. Flott action atriði. Flottur ævintýraheimur – umhverfið, gervin/búningarnir... Það var mjög áhugavert að sjá Jeff Bezos (stofnanda Amazon) á credit listanum. Hann er víst mikill Star Trek aðdáandi og fékk að vera í geimverugervi í einu atriði.
0.3 -
2016-07-30 22:35
Vitleysa. Fyndin vitleysa. Fínasta afþreying, en ekki besta mynd Melissa McCarthy.
0.3 -
Mike and Dave Need Wedding Dates (2016)
2016-07-10 00:47Fáránlega fyndin mynd 😂 Algjör vitleysa, en það vel gerð mynd að þetta gekk alveg upp og var mjög góð skemmtun. Góð keyrsla. Góður rythmi. Þessi fjögur eru góð blanda af vitleysingum.
0.3
En ég er mjög forvitinn að vita hvað Apple borgaði fyrir allt vörulaumið (e. product placement). Það var m.a.s. eitt atriði um Apple Pay. -
2016-07-02 01:58
Mjög fyndin vitleysa. Fullt af fínum action atriðum. Dwayne frændi er alltaf skemmtilegur ;) Spennandi. Fínasta afþreying.
0.3 June, 2016
-
The Twilight Saga: Breaking Dawn - Part 2 (2012)
2016-06-26 14:52Áhugavert að sjá muninn á fyrstu myndinni sem var með budget upp á $37 milljón og svo þessari mynd sem var með budget upp á $120 milljón. Spennandi mynd. Fín ævintýra/supernatural saga. Flott action atriði. #NetflixAndChill
0.3 -
The Twilight Saga: Breaking Dawn - Part 1 (2011)
2016-06-22 22:49Meira "production value" en í fyrri myndunum. Eitt atriði með varúlfunum var frekar skrýtið/kjánalegt. Spennandi. Svo er eitt atriði í viðbót eftir fyrri hlutann af credit listanum. #NetflixAndChill
0.3
← previous 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 next →
List generated by WP Movie Ratings.
Síðast uppfært 19. March, 2024
Bjössi says
þú ert aldeilis fljótur að skrifa um American Gangster. My man, ég er sammála þér með myndina. Töff stöff.
Hannes says
Vei, fyrsta kommentið hérna :)
Já, maður reynir að hafa þetta eins ferskt og hægt er :)
Það er kosturinn við þetta setup – ég hendi bara upp einhverju stuttu review, skelli á þetta einhverjar stjörnur (bara svona gut feeling) og þá er það komið. Ekkert að tefja mig á óþarfa blaðri eða djúpum pælingum.
maple says
mér finnst of mikið af myndum hér með of litlum fresti – horfir of mikið á myndir
Hannes says
hehe… já, sorry – ég skal horfa á færri myndir ;) Væri ein á mánuði of mikið?
En þetta er svona – ég hata ekki að horfa á bíómyndir… I loves it :)
maple says
ein á mánuði ef hún er á bíórásinni
Haukur says
Já ég fór með alltof miklar væntingar á Max kallinn. Myndin var alveg töff en sagan samsvaraði sér alveg ferlega illa. Þetta lyktar eins og gömul skinka.
siggasig says
Öflugur að halda utan um myndirnar sem þú sérð! ;) Nice. Sammála Star Trek umfjölluninni. Frábær mynd! Og hei, líka sammála um Angels and Demons. Ólíkt Da Vinci Code fannst mér myndin betri en bókin.
Hannes says
Takk. Já, mér fannst kominn tími til að hafa smá yfirsýn yfir þær myndir sem ég horfi á þar sem ég horfi á örlítið fleiri en 2 myndir á ári ;)
Já, síðan var líka gaman að sjá í Angels & Demons hvað sumir hlutir voru allt öðruvísi en maður var búinn að ímynda sér þegar maður las bókina :)
Geiri says
Hot Rod: 10*?
Ég hefði smellt 8*.
Hannes says
Jú, skil þig – þegar ég horfði á hana aftur einn þá var þetta ekki alveg eins mikil snilld, en samt fáránlega fyndin. En þegar ég horfði á hana fyrst þá skemmti ég mér alveg konunglega – það var kannski bara stemmningin að horfa á þetta wit da boyz. 10 stjörnur þýðir alls ekki að mér fannst þetta einhver Óskarsverðlaunamynd…
En annars eru þessar stjörnugjafir engan veginn heilagar – oft bara nánast eitthvað skot út í loftið ;)
Sara says
Jæja Nesi, ég er mjög spennt að lesa hvað þú hefur um Shutter Island að segja. Koma svo! Í bíó með þig! ;)
Hannes says
hehe, úff… bara pressa :) Já, ég er svona ennþá að vega og meta hvort ég ætli að sjá Shutter Island í bíó. En ætli maður verði ekki að tékka á þessu, Scorsese stendur alltaf fyrir sínu.