Smá umfjöllun um kvikmyndir sem ég hef séð nýlega… Stutt kvikmyndagagnrýni – ég nenni að skrifa mismikið, fer yfirleitt eftir því hvað mér dettur fyrst í hug – oft bara að hugsa upphátt.
Stjörnugjöf… já, stjörnugjöf er eiginlega svolítið bullshit – ég held að það sé mismikið bakvið stjörnur sem fólk gefur myndum. Hjá mér er það yfirleitt bara gut feeling – hversu skemmtileg/fyndin/spennandi/flott fannst mér myndin. Upplifunin.
Það er ekki eins og ég sé með einhvern ákveðinn skala/staðal eða tékklista – “já, flottur bílaeltingaleikur – 1 stjarna, töff byssubardagi – bætist við 1,5 stjarna…” ;) Síðan getur stjörnugjöfin oft verið svona plús/mínus 1-2 stjörnur.
Hlaðvarp um kvikmyndir
Það er vert að minnast á að ég og Björn erum með hlaðvarp um kvikmyndir sem við köllum Búnir með poppið. Það er hægt að fylgjast með okkur í gegnum Facebook, Twitter og Instagram – og svo auðvitað hlusta á þættina á Spotify, Apple Podcasts, Google Podcasts og öðrum stöðum þar sem fólk hlustar á hlaðvörp.
Sort list by: title | rating ↓ | view date
-
Aquaman and the Lost Kingdom (2023)
2023-12-29 00:54Spennandi ofurhetjumynd. Áhugaverður ævintýraheimur. Fínasta action – risastórir bardagar og miklar rústir.
0.3 -
2023-12-22 23:04
Mjög skemmtileg fjölskyldumynd. Fyndin og leit vel út. Flott lög. Gott tempo (keyrsla) og fínasti söguþráður.
0.3
Aníta: 10/10 -
Chicken Run: Dawn of the Nugget (2023)
2023-12-19 19:57Fyndin og spennandi fjölskyldumynd. Mjög flott stop-motion mynd. #netflix
0.3 -
2023-12-17 22:55
Flott myndataka. Spooky, jafnvel gamaldags, tónlist. Stuttar senur, ekki verið að sýna allt þegar það er auðvelt að giska í eyðurnar. Kom mér á óvart að Obama hjónin framleiddu þessa mynd (með fullt af öðru fólki). Mjög áhugaverð saga. Spennandi. Áhugaverð ádeila á Bandaríkin. #netflix
0.3 -
Killers of the Flower Moon (2023)
2023-11-22 00:00Mjög löng mynd. Lengsta mynd sem ég hef séð í bíói – eða síðan ég sá síðustu mynd Martin Scorsese, The Irishman. En hún var ekki langdregin – mikil saga, áhugaverð. Brútal og átakanleg. Vönduð mynd – vel gerð og hellingur af góðum leikurum. Pjúra kvikmyndagerð – engar hraðar klippingar, poppandi tónlist eða stútfullt af tæknibrellum. Mér fannst vera smá vísun í “true crime” hlaðvörp í lokinn – nokkuð skemmtilegt.
0.3 -
2023-11-08 23:53
Spennandi. Fínasta action. Gaman að sjá Eric Cantona leika gangster. Alban Lenoir virðist vera aðal hasarhetja Frakklands – hann var víst með í að skrifa handritið. #netflix
0.3 -
2023-10-19 23:39
Spennandi spæjaramynd. Ágætis plot. Ekta thriller. Fínir leikarar. #amazonprime
0.3 -
2023-09-18 17:21
Áhugaverð frumkvöðlasaga – en brútal hvað hann var óforskammaður til að ná sínu fram. Slatti af góðum leikurum.
0.3 -
2023-09-17 23:20
Hellingur af flottum leikurum. Brútal mynd. Creepy týpur. Spennandi. Áhugaverð saga. Áhugavert að Jack Nicholson í The Departed var að hluta til byggður á Whitey Bulger.
0.3 -
2023-09-16 23:18
Mjög spennandi mynd. Töff saga, fínasta plot. Eitthvað skemmtilega old school við söguna/handritið. Byggt á bók síðan 2014.
0.3 -
2023-08-27 23:36
Meiri húmor en í öðrum Justice League myndum. Áhugaverðar pælingar með tímaflakk og multiverse. Ágætlega spennandi. Skemmtileg Easter Eggs/cameos. Handritið hefði getað verið meira solid. Alltaf gaman að sjá aukaleikara í svona stórum myndum sem öðluðust frægð með því að gera vídeó á Internetinu (Rudy Mancuso).
0.3 -
Batman v Superman: Dawn of Justice (2016)
2023-08-26 23:32Ég horfði á "Ultimate Edition" útgáfuna. Spennandi. Fínasta action. Áhugaverð saga fyrir þessa tímalínu – var bara búinn að sjá myndirnar gerðar fyrir og eftir þessa. Þung (dark) ofurhetjumynd.
0.3 -
2023-08-26 20:30
Fínasta fjölskyldumynd. Ágætis saga – í takt við aðrar Toy Story sögur. Gaman að sjá gæðamuninn á grafíkinni á þessari og fyrstu. #disneyplus
0.3 -
2023-08-11 20:26
Áhugaverð saga. Gaman að fræðast meira um baksöguna og þennan heim. Mjög spennandi á köflum. Lögin ekki alveg eins góð/skemmtileg og í fyrri myndinni – kannski koma þau betur út á ensku. #disneyplus
0.3 -
2023-07-31 21:08
Skemmtileg fjölskyldumynd. Ágætlega spennandi. Nauðsynlegt að sjá þessa legendary sögu. Töfrandi heimur. Fín lög. Ólafur var sérstaklega skemmtilegur. #disneyplus
0.3 -
2023-07-24 18:17
Skemmtileg mynd. Fyndin á köflum. Aðeins þyngri/alvarlegri og minna grín en ég bjóst við. Vísunin í 2001: A Space Odyssey var skemmtileg.
0.3 -
2023-07-22 23:26
Spennandi mynd. Fínasta action. Smá hægir drama kaflar. #amazonprime
0.3 -
2023-07-21 20:25
Hörkuspennandi fjölskyldumynd. Fínasta saga. Gott action. Fyndin á köflum. #disneyplus
0.3 -
2023-07-18 20:34
Skemmtileg saga. Ánægjuleg fjölskyldumynd. Leit vel út – flott mynd. Hugljúf í lokinn. #disneyplus
0.3 -
2023-06-17 16:54
Mjög áhugaverð saga – svakaleg áhrif sem þau höfðu og þurftu að berjast fyrir því. Flottir leikarar. Töff að Hanz Zimmer og Pharrell Williams sáu um tónlistina. #disneyplus
0.3 -
Spider-Man: Into the Spider-Verse (2018)
2023-06-06 22:53Töff tónlist. Töff teiknimynd – flottur stíll. Fyndin. Spennandi. Hellingur af frægum röddum – nokkur áhugaverð cameos. #disneyplus
0.3 -
2023-05-27 23:56
Magnaður hasar-rússibani nánast allan tímann. Fullt af svakalegum atriðum. Topp afþreying. Nokkuð hefðbundin Fast & Furious mynd. Jason Momoa var skemmtilega klikkaður. Þetta er víst fyrsta myndin af þremur sem þau ætla að gera til að ljúka þessu franchise – endirinn var mjög opinn og fólk þarf að bíða í 2 ár eftir framhaldinu.
0.3 -
Shazam! Fury of the Gods (2023)
2023-05-26 16:11Spennandi mynd. Fínasta ofurhetjumynd – klassísk (týpísk) að mörgu leyti. Smá húmor og kjánaskapur inn á milli. Góð afþreying.
0.3 -
Ant-Man and the Wasp: Quantumania (2023)
2023-05-23 23:07Spennandi. Fyndin. Flottur og áhugaverður heimur þetta Quantum Realm – smá Star Wars vibes (allar þessar verur). Mjög solid action atriði – risastór. #disneyplus
0.3 -
2023-05-19 23:04
Fínasta action. Spennandi mynd. Jennifer Lopez er svakaleg – flott í svona hasar-hlutverki. Solid tónlist. #netflix
0.3 -
2023-04-27 22:27
Spennandi og fyndin mynd. Hasarmynd sem tekur sig ekki alvarlega. Nokkur skemmtileg cameos. Nokkur solid hasaratriði. Það var stundum smá skrýtin/vandræðaleg stemningin á milli þeirra Ana de Armas og Chris Evans.
0.3 -
2023-04-22 23:26
Quirky og skrýtin stemning. Kómísk og ágætlega súr mynd. Fullt af yfirborðskenndu fólki. Ádeila. Mjög fyndin á köflum. Frumleg. Löng. #amazonprime
0.3 -
Operation Fortune: Ruse de Guerre (2023)
2023-04-20 23:25Skemmtileg mynd. Kómísk hasarmynd. Ekki eins hröð og margar Guy Ritchie myndir – ekki þessi klassíska kvikmyndataka og klippingar. En fínasta spenna og action. #amazonprime
0.3 -
Raya and the Last Dragon (2021)
2023-04-16 19:24Spennandi fjölskyldumynd – mikill hasar á köflum. Mjög flott – leit vel út, glæsileg grafík. Góð saga. Fyndin. #disneyplus
0.3 -
The Super Mario Bros. Movie (2023)
2023-04-10 17:46Mjög skemmtileg mynd. Mikil nostalgía – líka í tónlistinni (soundtrack lögunum). Geggjuð grafík. Nokkur skemmtileg "Easter eggs" – vísanir í ýmsa Nintendo leiki. Ekta fjölskyldumynd (hentar mörgum kynslóðum), en alveg smá skelfileg (scary) á köflum.
0.3
← previous 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 next →
List generated by WP Movie Ratings.
Síðast uppfært 19. March, 2024
Bjössi says
þú ert aldeilis fljótur að skrifa um American Gangster. My man, ég er sammála þér með myndina. Töff stöff.
Hannes says
Vei, fyrsta kommentið hérna :)
Já, maður reynir að hafa þetta eins ferskt og hægt er :)
Það er kosturinn við þetta setup – ég hendi bara upp einhverju stuttu review, skelli á þetta einhverjar stjörnur (bara svona gut feeling) og þá er það komið. Ekkert að tefja mig á óþarfa blaðri eða djúpum pælingum.
maple says
mér finnst of mikið af myndum hér með of litlum fresti – horfir of mikið á myndir
Hannes says
hehe… já, sorry – ég skal horfa á færri myndir ;) Væri ein á mánuði of mikið?
En þetta er svona – ég hata ekki að horfa á bíómyndir… I loves it :)
maple says
ein á mánuði ef hún er á bíórásinni
Haukur says
Já ég fór með alltof miklar væntingar á Max kallinn. Myndin var alveg töff en sagan samsvaraði sér alveg ferlega illa. Þetta lyktar eins og gömul skinka.
siggasig says
Öflugur að halda utan um myndirnar sem þú sérð! ;) Nice. Sammála Star Trek umfjölluninni. Frábær mynd! Og hei, líka sammála um Angels and Demons. Ólíkt Da Vinci Code fannst mér myndin betri en bókin.
Hannes says
Takk. Já, mér fannst kominn tími til að hafa smá yfirsýn yfir þær myndir sem ég horfi á þar sem ég horfi á örlítið fleiri en 2 myndir á ári ;)
Já, síðan var líka gaman að sjá í Angels & Demons hvað sumir hlutir voru allt öðruvísi en maður var búinn að ímynda sér þegar maður las bókina :)
Geiri says
Hot Rod: 10*?
Ég hefði smellt 8*.
Hannes says
Jú, skil þig – þegar ég horfði á hana aftur einn þá var þetta ekki alveg eins mikil snilld, en samt fáránlega fyndin. En þegar ég horfði á hana fyrst þá skemmti ég mér alveg konunglega – það var kannski bara stemmningin að horfa á þetta wit da boyz. 10 stjörnur þýðir alls ekki að mér fannst þetta einhver Óskarsverðlaunamynd…
En annars eru þessar stjörnugjafir engan veginn heilagar – oft bara nánast eitthvað skot út í loftið ;)
Sara says
Jæja Nesi, ég er mjög spennt að lesa hvað þú hefur um Shutter Island að segja. Koma svo! Í bíó með þig! ;)
Hannes says
hehe, úff… bara pressa :) Já, ég er svona ennþá að vega og meta hvort ég ætli að sjá Shutter Island í bíó. En ætli maður verði ekki að tékka á þessu, Scorsese stendur alltaf fyrir sínu.