Smá umfjöllun um kvikmyndir sem ég hef séð nýlega… Stutt kvikmyndagagnrýni – ég nenni að skrifa mismikið, fer yfirleitt eftir því hvað mér dettur fyrst í hug – oft bara að hugsa upphátt.
Stjörnugjöf… já, stjörnugjöf er eiginlega svolítið bullshit – ég held að það sé mismikið bakvið stjörnur sem fólk gefur myndum. Hjá mér er það yfirleitt bara gut feeling – hversu skemmtileg/fyndin/spennandi/flott fannst mér myndin. Upplifunin.
Það er ekki eins og ég sé með einhvern ákveðinn skala/staðal eða tékklista – “já, flottur bílaeltingaleikur – 1 stjarna, töff byssubardagi – bætist við 1,5 stjarna…” ;) Síðan getur stjörnugjöfin oft verið svona plús/mínus 1-2 stjörnur.
Hlaðvarp um kvikmyndir
Það er vert að minnast á að ég og Björn erum með hlaðvarp um kvikmyndir sem við köllum Búnir með poppið. Það er hægt að fylgjast með okkur í gegnum Facebook, Twitter og Instagram – og svo auðvitað hlusta á þættina á Spotify, Apple Podcasts, Google Podcasts og öðrum stöðum þar sem fólk hlustar á hlaðvörp.
Sort list by: title | rating ↑ | view date
-
2010-07-19 21:12
Allt í lagi action á köflum. Ekki vel leikin og handritið frekar þunnt. Frekar kjánaleg.
0.3 -
2010-05-24 23:34
Fín mynd. Klassísk löggumynd að ýmsu leyti. Ekkert geðveikt krassandi fyrri partinn en það var góð keyrsla í lokinn, góð spenna. Sögurnar (persónurnar) tengdust ekkert mjög mikið nema alveg í lokinn. Fær mann ekki beint til að vilja vera lögga (í Brooklyn) - persónurnar eru allar í ruglinu.
0.3 -
2010-03-31 15:42
Nokkuð spennandi. Ágætt action inn á milli. Samt eitthvað off - kannski handritið/sagan/plot-ið eða leikurinn. Eða blanda af bæði. Trailer-inn var eiginlega flottari, meira púður í honum.
0.3 -
2010-02-17 21:44
Spennandi hryllingsmynd, heldur manni alveg á nálum. Enginn stórleikur... Frekar dark & twisted eins og flestar myndir sem Joel Schumacher leikstýrir.
0.3 -
2010-02-07 23:35
Voða krúttleg og awkward mynd... nokkuð fyndin á köflum. Indie bragur/low budget...
0.3 -
2010-02-07 23:04
Mjög skrítin mynd... handritið var frekar spes. Tekin upp með RED myndavél, Soderbergh er greinilega að fíla RED í tætlur.
0.3 -
2009-12-31 16:17
Klassísk 90's mynd - hefði samt örugglega verið skemmtilegra að horfa á hana á tíunda áratugnum. Létt grínmynd - engin sprenghlægileg atriði.
0.3 -
2009-12-10 01:33
Brútal mynd. Frekar sjúk (eins og við mátti búast). Ágætis gore/hryllingsmynd. Skemmtilegt að sjá Bláa Lónið (og búningsklefana í Laugum).
0.3 -
2009-12-07 00:24
Fín mynd. Nokkrir góðir brandarar/fyndin atriði. Zooey er náttúrulega voða mikið krútt. Ekki eins væmin og maður myndi kannski búast við.
0.3 -
2009-11-29 22:31
Enn önnur zombie myndin... Ágæt spenna. Persónurnar ekkert alltof krassandi. Hefði mátt vera meira fútt í handritinu. Myndin er líklega ekki gerð með mjög mikinn budget. Nokkuð dark/niðurdrepandi/vonleysi... definitely not a feel-good movie.
0.3 -
2009-10-05 20:40
Nett drama með dash af action. Vantaði kannski smá upp á handritið...
0.3 -
Life Is Hot in Cracktown (2009)
2009-10-03 02:38Hellingur af þekktum leikurum - andlit sem maður kannast við úr ýmsum bíómyndum eða sjónvarpsþáttum... Áhugaverð sýn á krakk-hverfi og fólkið sem býr þar. Það hefði mátt krydda handritið aðeins, vantaði smá fútt í sögurnar...
0.3 -
2009-09-14 01:23
Mjög hæg mynd. Arty - eða svona indie/minimal... Fjallar um IRA gaura í fangelsi - sem fara svo í hungurverkfall. Nokkuð áhugaverð... Nokkrar langar tökur sem voru frekar impressive.
0.3 -
2009-09-14 01:15
Krakkar svona nett í ruglinu. Frá Larry Clark, sem gerði líka Kids - svipað þema, svipaðar persónur... Nettur indie/low budget bragur...
0.3 -
2009-09-13 00:16
Slatti af þekktum leikurum. Drama alveg í gegn. Minnti mig örlítið á Crash - mikið af mismunandi sögum í gangi, gerist í LA... en alls ekki jafn góð. Í fyrri helmingnum var eins og það var verið að byggja upp geðveika sögu, vinna í karakterum... en síðan datt bara botninn úr þessu - endirinn var frekar slappur. Ekki gott handrit - það var kannski einhver góð pæling í þessu en það var ekki unnið nógu vel úr hugmyndinni. Jessica Biel sem strippari var ekki nóg til að bjarga þessari mynd.
0.3 -
2009-03-16 20:05
Sérstök mynd. Mikill indie bragur (enda kostaði bara $7000 að búa hana til). Eins og svo oft með sjónvarpsþætti/kvikmyndir þar sem er verið að ferðast aftur/fram í tíma þá er myndin svona nett ruglingsleg á köflum... þetta graf útskýrir smá en samt eru vissir hlutir þar sem maður er ekki alveg viss hvað gerðist. En vissulega áhugaverðar pælingar og skemmtilegt að sjá mynd sem er gerð fyrir svona lítinn pening...
0.3 -
2009-01-25 17:33
Uh, yeah... Alltaf eitthvað sjarmerandi við New York myndir.
0.3 -
2009-01-18 20:23
Týpísk zombie-mynd. Reyndar með súper zombies sem hlaupa hratt og geta stokkið hátt. Frekar þunnt handrit. Ágæt spenna inn á milli samt...
0.3 -
2009-01-11 02:30
Áhugaverðar pælingar í þessari mynd sem er byggð á stemmningunni í London eftir sprengingarnar 7/7... Enginn frábær leikur í gangi og síðan var tónlistinn ekki alveg nógu góð - ekki nógu passandi, aðeins of 90's og kæfði stundum samtöl. En ágætlega spennandi á köflum.
0.3 -
2008-12-07 21:39
Ágætlega spennandi mynd. Ekkert brillíant við hana. En áhugaverðar pælingar varðandi hvað það er til mikill sori á netinu - og hvað það er greinilega nægur áhugi fyrir sora.
0.3 -
2008-12-07 16:43
Temmilega freðin mynd. En nokkuð fyndin - frekar steiktur húmor. Framleidd af Adam Sandler (Happy Madison) þannig að það var alveg hellingur af Sandler regulars.
0.3 -
2008-12-01 22:06
Já, þú segir það... horfði svona eiginlega "óvart" á þessa mynd... ætlaði bara að rétta að tékka á henni, sjá hversu mikið rugl þetta væri en síðan horfði ég alltaf meira og meira af henni. Ég held að Anna Faris hálfnakin og aðrar gellur hafi eitthvað haft með það að segja að ég plataðist alltaf til að horfa á aðeins meira af myndinni... Sæmilega fyndin á köflum en síðan á móti skuggalega kjánalega á köflum. Þessi mynd er víst framleidd af Adam Sandler þannig að það bregður fyrir nokkrum Sandler regulars eins og Christopher "I eat pieces of shit like you for breakfast" McDonald. Hugh Hefner og kærusturnar hans fóru líka með leiksigur :)
0.3 -
2007-12-30 07:05
Léttmeti... eða svona, frekar formúlukennt - bjóst alveg við því... Ungt og sexy fólk að leika sér í útlöndum og hvað ætli gerist - jú, einhverjir vondir menn koma og vilja meiða þau - da-DA-RA :) En þetta er frekar creepy plot - fær mann ekkert geðveikt til að langa fara til Brasilíu/Suður-Ameríku ;) Gaman að sjá Desmond Askew úr Go aftur. ***SPOILER ALERT*** (ok, kannski ekki neinn geðveikur spoiler, en ef þú vilt ekki vita neitt um myndina þá geturu bara hætt að lesa núna) Það sem var eiginlega svona "hryllilegast" við þessa hryllingsmynd var eltingaleikurinn í vatnshellinum (eða hvað sem maður getur kallað þetta) - frekar frumlegt, hef ekki séð svona áður. Maður fékk alveg netta innilokunartilfinningu.
0.3 -
2007-12-15 16:14
Bull og vitleysa - en maður bjóst alveg við því :) Alveg hægt að hlæja að þessu. Líka áhugaverðar pælingar - hvaða "þjóðhópar" eru að fjölga sér mest? Það er ekkert endilega "survival of the fittest" sem gildir lengur...
0.3 -
Futurama: Bender's Big Score (2007) (V)
2007-12-10 21:41Voða klassískt Futurama dót - eiginlega bara eins og mjög, mjög langur þáttur. Ekkert brillíant eða stanslaust fyndið, en alveg hægt að hafa gaman að þessu...
0.3
← previous 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 next →
List generated by WP Movie Ratings.
Síðast uppfært 19. March, 2024
Bjössi says
þú ert aldeilis fljótur að skrifa um American Gangster. My man, ég er sammála þér með myndina. Töff stöff.
Hannes says
Vei, fyrsta kommentið hérna :)
Já, maður reynir að hafa þetta eins ferskt og hægt er :)
Það er kosturinn við þetta setup – ég hendi bara upp einhverju stuttu review, skelli á þetta einhverjar stjörnur (bara svona gut feeling) og þá er það komið. Ekkert að tefja mig á óþarfa blaðri eða djúpum pælingum.
maple says
mér finnst of mikið af myndum hér með of litlum fresti – horfir of mikið á myndir
Hannes says
hehe… já, sorry – ég skal horfa á færri myndir ;) Væri ein á mánuði of mikið?
En þetta er svona – ég hata ekki að horfa á bíómyndir… I loves it :)
maple says
ein á mánuði ef hún er á bíórásinni
Haukur says
Já ég fór með alltof miklar væntingar á Max kallinn. Myndin var alveg töff en sagan samsvaraði sér alveg ferlega illa. Þetta lyktar eins og gömul skinka.
siggasig says
Öflugur að halda utan um myndirnar sem þú sérð! ;) Nice. Sammála Star Trek umfjölluninni. Frábær mynd! Og hei, líka sammála um Angels and Demons. Ólíkt Da Vinci Code fannst mér myndin betri en bókin.
Hannes says
Takk. Já, mér fannst kominn tími til að hafa smá yfirsýn yfir þær myndir sem ég horfi á þar sem ég horfi á örlítið fleiri en 2 myndir á ári ;)
Já, síðan var líka gaman að sjá í Angels & Demons hvað sumir hlutir voru allt öðruvísi en maður var búinn að ímynda sér þegar maður las bókina :)
Geiri says
Hot Rod: 10*?
Ég hefði smellt 8*.
Hannes says
Jú, skil þig – þegar ég horfði á hana aftur einn þá var þetta ekki alveg eins mikil snilld, en samt fáránlega fyndin. En þegar ég horfði á hana fyrst þá skemmti ég mér alveg konunglega – það var kannski bara stemmningin að horfa á þetta wit da boyz. 10 stjörnur þýðir alls ekki að mér fannst þetta einhver Óskarsverðlaunamynd…
En annars eru þessar stjörnugjafir engan veginn heilagar – oft bara nánast eitthvað skot út í loftið ;)
Sara says
Jæja Nesi, ég er mjög spennt að lesa hvað þú hefur um Shutter Island að segja. Koma svo! Í bíó með þig! ;)
Hannes says
hehe, úff… bara pressa :) Já, ég er svona ennþá að vega og meta hvort ég ætli að sjá Shutter Island í bíó. En ætli maður verði ekki að tékka á þessu, Scorsese stendur alltaf fyrir sínu.