
Smá umfjöllun um kvikmyndir sem ég hef séð nýlega… Stutt kvikmyndagagnrýni – ég nenni að skrifa mismikið, fer yfirleitt eftir því hvað mér dettur fyrst í hug – oft bara að hugsa upphátt.
Stjörnugjöf… já, stjörnugjöf er eiginlega svolítið bullshit – ég held að það sé mismikið bakvið stjörnur sem fólk gefur myndum. Hjá mér er það yfirleitt bara gut feeling – hversu skemmtileg/fyndin/spennandi/flott fannst mér myndin. Upplifunin.
Það er ekki eins og ég sé með einhvern ákveðinn skala/staðal eða tékklista – “já, flottur bílaeltingaleikur – 1 stjarna, töff byssubardagi – bætist við 1,5 stjarna…” ;) Síðan getur stjörnugjöfin oft verið svona plús/mínus 1-2 stjörnur.
Hlaðvarp um kvikmyndir
Það er vert að minnast á að ég og Björn erum með hlaðvarp um kvikmyndir sem við köllum Búnir með poppið. Það er hægt að fylgjast með okkur í gegnum Facebook, Twitter og Instagram – og svo auðvitað hlusta á þættina á Spotify, Apple Podcasts, Google Podcasts og öðrum stöðum þar sem fólk hlustar á hlaðvörp.
Sort list by: title | rating ↓ | view date
-
2011-02-09 00:36It's Kind of a Funny Story (2010)
Góð mynd. Krútt/indie/teenage drama. Erfitt að vera til. Smá Juno fílingur. Indie tónlist. Góðir leikarar. Góð/áhugaverð saga.
0.3 -
2011-01-29 01:49
Grín actionmynd. Nokkuð kjánaleg á köflum og handritið/leikurinn var ekki alveg í hæsta gæðaflokki - en stundum var bara fyndið (jafnvel sprenghlægilegt) hvað hún var kjánaleg. Smá B-mynda fílingur. Nokkur kúl action atriði. Fínasta afþreying - ef maður tekur þessu ekki of alvarlega ;)
0.3 -
2011-01-16 02:18
Fín mynd. Ágætlega fyndin og spennandi á köflum. Stundum ekki alveg nógu sannfærandi. Það er alltaf skemmtilegt að horfa á kvikmyndir sem eru teknar upp í borgum sem maður hefur verið í...
0.3 -
2010-12-20 02:07
Fínasta afþreying. Ekta poppkornsmynd/sumarsmellur... Ágætis action og nokkuð fyndin á köflum. Alveg óþarfi að taka svona myndir alltof hátíðlega.
0.3 -
2010-12-02 01:10
Fínasta mynd. Nokkuð fyndin á köflum. Frekar flottar tæknibrellur miðað við að þessi mynd var gerð 1935. Ágætlega áhugaverð saga. Ég væri til í að sjá She's Alive! Creating the Bride of Frankenstein - örugglega mjög fróðlegt.
0.3 -
2010-11-27 01:47
Drama & spenna. Mjög spennandi. Mikið drama. Virkilega solid mynd - góðir leikarar, gott handrit, vel leikstýrð... Vönduð mynd.
0.3 -
2010-11-23 00:44
Algjört rugl. En mjög fyndið rugl - mörg sprenghlægileg atriði. En líka mörg mjög súr/ógeðsleg/sjokkerandi atriði - stundum leið mann bara illa. Að þeir skuli gera sér þetta... en sumir gera greinilega ýmislegt fyrir rétta upphæð. 3D tæknin var oft að virka mjög vel - kom mjög vel út. Ég var sérstaklega að fíla high speed camera atriðin (1000 rammar á sekúndu í slo-mo) - sum voru eiginlega listaverk, mjög töff. Ég hef sjaldan hlegið jafn mikið yfir byrjunar-credit-lista :)
0.3 -
2010-11-15 00:29
Mjög spennandi. Vel leikstýrð - ég fíla svona hraðar klippingar þar sem myndavélin er á fullu eins og Tony Scott er þekktur fyrir. Fínasta afþreying.
0.3 -
2010-11-07 01:22
Fyndið rugl. Zach Galifianakis er alltaf góður. Mér dettur ekkert meira í hug til að segja... Fínasta afþreying.
0.3 -
2010-10-19 21:42Pirates of Silicon Valley (TV 1999) - IMDb
Mjög áhugaverð mynd um uppruna og baráttu Apple og Microsoft. Mikið af atburðum og ákvörðunum (krúsíal viðskiptatækifæri sem fyrirtæki gripu eða misstu af) sem breyttu heiminum. Líka skemmtilegt að sjá þessa mynd núna, þegar hlutirnir hafa breyst töluvert. Nokkuð merkilegt að bæði í þessari mynd og The Social Network er mikið drama í kringum að fólk er að stela hugmyndum (eða "fá lánað") frá öðrum - er það eina leiðin til að verða risastór? ;)
0.3 -
2010-10-04 01:06
Algjört rugl - vitleysa alveg í gegn. En mjög fyndin (sprenghlægileg á köflum). Annað væri nú skrítið með Steve Carell í aðalhlutverki. Fullt af þekktum (og fyndnum) leikurum í aukahlutverkum...
0.3 -
2010-09-30 00:33
Voða ljúf mynd. Nokkuð fyndin. Audrey Hepburn er alveg mega sæt... Þetta var fyrsta myndin hennar (þar sem hún var í stóru hlutverki) og hún gerði sér lítið fyrir og tók heim Óskarinn fyrir þetta hlutverk. Líklega hægt að flokka þetta sem rómantíska grínmynd en Gregory Peck/Joe Bradley var nett creepy/stalkerish í byrjun ;)
0.3 -
2010-09-11 01:46
Alltaf gaman að horfa á svona klassíker. Myndin var mjög fyndin - ekki viss um að hún hafi átt að vera það :) [OK, jú, hún átti kannski stundum að vera fyndin. Ágætis kímni í gangi. En stundum var hún bara fyndin af því að hún var kjánaleg.] Þvílík bardagaatriði. Fullt af gullmolum, eins og: "I couldn't be fonder of you if you were my own son. But, well, if you lose a son, it's possible to get another. There's only one Maltese Falcon.". Góð keyrsla, en stundum datt maður smá út úr (var ekki alveg að fatta). Leikurinn var stundum ekki alveg í hæsta gæðaflokki. En þetta er mynd sem sannir kvikmyndaunnendur vilja ekki missa af :)
0.3 -
2010-08-30 00:55
Mikið drama. Ágæt spenna. Nasty pyntingar. Brútal. Svona að vissu leyti ádeila á þær aðferðir sem er beitt á suma fanga til að fá þá til að tala - siðferði, mannréttindi, hversu langt er hægt að ganga á meðan maður réttlætir að það sé verið að bjarga milljónum manna? Fínir leikarar.
0.3 -
2010-08-23 00:23
Fínasta action. Smá kjánaleg/cheesy á köflum. Handritið hefði getað verið betra. Ekkert fáránlega vel leikin.
0.3 -
2010-06-07 01:52
Kúl mynd. Michael Caine alveg bad-ass. Brútal. Skugglegt ástand í þessu breska ghetto - breskir krakka-gangstas eru kolruglaðir.
0.3 -
2010-04-10 21:37
Post-apocalypse mynd eins og Book of Eli en þessi var töluvert meira niðurdrepandi. Allt mjög grámyglulegt og ömurlegt. En nokkuð áhugaverð saga/ferðalag hjá þessum feðgum. Ágætlega spennandi á köflum.
0.3 -
2010-03-30 16:53
Voða ljúf mynd. Ekki eins væmin og maður gæti búist við. Ágætlega fyndin á köflum. Veit nú ekki alveg með Óskars-leik, en ekki illa leikin - nema kannski litli krakkinn (SJ), smá ofleikur í gangi. Hugljúf fjölskyldumynd.
0.3 -
2010-03-06 00:35
Fín heilalaus skemmtun - gott handrit er ekkert nauðsynlegt fyrir svona myndir. Töff action - góð keyrsla, nánast linnulaust. Nóg af íburðamiklum byssubardögum og sprengingum. Slatti af klassískum Luc Besson bílaeltingaleikjum.
0.3 -
2010-03-01 00:34
Drama alveg í gegn. Vel leikin. Frekar ruglað hvað stríð geta fokkað upp fjölskyldum...
0.3 -
2010-02-17 01:02
Hörkuspennandi ævintýramynd. Nokkuð formúlukennd og cheesy á köflum. Gott gore/splatter action í gangi - nokkuð brútal.
0.3 -
2010-02-17 00:59
Mjög áhugaverð heimildamynd um uppruna þessara gengja (Crips & Bloods) og stríðið á milli þeirra. Meðal annars farið yfir sögu blökkumanna í Bandaríkjunum.
0.3 -
2010-01-25 02:06
Áhugaverð saga... Nokkuð fyndin á köflum. Flott myndataka. Ekkert gífurlega "uplifting" enda er umfjöllunarefnið ekkert mjög hressandi. Tónlistin var frekar indie/Juno-leg.
0.3 -
2010-01-24 22:00X-Men Origins: Wolverine (2009)
Fínasta action. Handritið var ekki upp á marga fiska en það er kannski ekki nauðsynlegt fyrir svona myndir sem keyra bara á stórum action atriðum. Í credit listanum var Hávamál nefnt sem eitt af lögunum. Ekki viss hvenær það var notað en fannst áhugavert að taka eftir þessu.
0.3 -
2010-01-12 01:03
Mjög súr mynd. Coen-bræður eru nú oft með sérstakar myndir með skrítnum persónum en þetta var svona... já, öðruvísi. Maður var ekki alveg viss hvert hún var að fara fyrri helminginni. Seinni part myndarinnar fóru hlutirnir aðeins meira að gerast. En vel gerð mynd - mjög góð kvikmyndaleg frásögn... Fyndið að sjá í lokinn: "No Jews were harmed in the making of this motion picture."
0.3 -
2010-01-02 21:02
Sérstök mynd... eiginlega svolítið skrítin. Ég held að maður þurfi kannski að horfa á myndina aftur og jafnvel hlusta á commentary hjá leikstjóranum til að fatta betur hvað var nákvæmlega í gangi, púsla þessu saman... Þetta er fyrsta myndin sem John August leikstýrir - gaurinn sem skrifaði Go. Þannig að ég varð að tékka á henni. Áhugaverð mynd, fær mann til að hugsa... leit vel út. Áhugaverðar persónur...
0.3 -
2010-01-02 05:27The Last King of Scotland (2006)
Áhugaverð mynd um klikkaðan forseta. Nokkuð gott action og spenna inn á milli.
0.3
← previous 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 next →
List generated by WP Movie Ratings.
Síðast uppfært 18. May, 2023
þú ert aldeilis fljótur að skrifa um American Gangster. My man, ég er sammála þér með myndina. Töff stöff.
Vei, fyrsta kommentið hérna :)
Já, maður reynir að hafa þetta eins ferskt og hægt er :)
Það er kosturinn við þetta setup – ég hendi bara upp einhverju stuttu review, skelli á þetta einhverjar stjörnur (bara svona gut feeling) og þá er það komið. Ekkert að tefja mig á óþarfa blaðri eða djúpum pælingum.
mér finnst of mikið af myndum hér með of litlum fresti – horfir of mikið á myndir
hehe… já, sorry – ég skal horfa á færri myndir ;) Væri ein á mánuði of mikið?
En þetta er svona – ég hata ekki að horfa á bíómyndir… I loves it :)
ein á mánuði ef hún er á bíórásinni
Já ég fór með alltof miklar væntingar á Max kallinn. Myndin var alveg töff en sagan samsvaraði sér alveg ferlega illa. Þetta lyktar eins og gömul skinka.
Öflugur að halda utan um myndirnar sem þú sérð! ;) Nice. Sammála Star Trek umfjölluninni. Frábær mynd! Og hei, líka sammála um Angels and Demons. Ólíkt Da Vinci Code fannst mér myndin betri en bókin.
Takk. Já, mér fannst kominn tími til að hafa smá yfirsýn yfir þær myndir sem ég horfi á þar sem ég horfi á örlítið fleiri en 2 myndir á ári ;)
Já, síðan var líka gaman að sjá í Angels & Demons hvað sumir hlutir voru allt öðruvísi en maður var búinn að ímynda sér þegar maður las bókina :)
Hot Rod: 10*?
Ég hefði smellt 8*.
Jú, skil þig – þegar ég horfði á hana aftur einn þá var þetta ekki alveg eins mikil snilld, en samt fáránlega fyndin. En þegar ég horfði á hana fyrst þá skemmti ég mér alveg konunglega – það var kannski bara stemmningin að horfa á þetta wit da boyz. 10 stjörnur þýðir alls ekki að mér fannst þetta einhver Óskarsverðlaunamynd…
En annars eru þessar stjörnugjafir engan veginn heilagar – oft bara nánast eitthvað skot út í loftið ;)
Jæja Nesi, ég er mjög spennt að lesa hvað þú hefur um Shutter Island að segja. Koma svo! Í bíó með þig! ;)
hehe, úff… bara pressa :) Já, ég er svona ennþá að vega og meta hvort ég ætli að sjá Shutter Island í bíó. En ætli maður verði ekki að tékka á þessu, Scorsese stendur alltaf fyrir sínu.