• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

I am official station

Ljósmyndir, kvikmyndagagnrýni, ferðasögur, fréttir af Hannesi og annað skemmtilegt :)

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me
You are here: Home / Kvikmyndagagnrýni

Kvikmyndagagnrýni

Kvikmyndagagnrýni (plaköt)

Smá umfjöllun um kvikmyndir sem ég hef séð nýlega… Stutt kvikmyndagagnrýni – ég nenni að skrifa mismikið, fer yfirleitt eftir því hvað mér dettur fyrst í hug – oft bara að hugsa upphátt.

Stjörnugjöf… já, stjörnugjöf er eiginlega svolítið bullshit – ég held að það sé mismikið bakvið stjörnur sem fólk gefur myndum. Hjá mér er það yfirleitt bara gut feeling – hversu skemmtileg/fyndin/spennandi/flott fannst mér myndin. Upplifunin.

Það er ekki eins og ég sé með einhvern ákveðinn skala/staðal eða tékklista – “já, flottur bílaeltingaleikur – 1 stjarna, töff byssubardagi – bætist við 1,5 stjarna…” ;) Síðan getur stjörnugjöfin oft verið svona plús/mínus 1-2 stjörnur.

Hlaðvarp um kvikmyndir  

Það er vert að minnast á að ég og Björn erum með hlaðvarp um kvikmyndir sem við köllum Búnir með poppið. Það er hægt að fylgjast með okkur í gegnum Facebook, Twitter og Instagram – og svo auðvitað hlusta á þættina á Spotify, Apple Podcasts, Google Podcasts og öðrum stöðum þar sem fólk hlustar á hlaðvörp. 

Sort list by: title | rating | view date ↓

  • May, 2018

  • Show the reviewHide the reviewBig Miracle (2012) 6/10

    2018-05-07 22:06
    * * * * * *

    Skemmtileg og áhugaverð saga. Spennandi á köflum. Krúttleg mynd.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewAvengers: Infinity War (2018) 8/10

    2018-05-04 23:43
    * * * * * * * *

    Svakalega mikið af bardögum – eiginlega bara stanslaust. Mjög spennandi og mjög fyndin á köflum. Gaman að sjá allar ofurhetjurnar saman og hina ýmsu heima blandast saman. Mjög flott mynd og þótt hún sé mjög löng þá var hún grípandi og keyrði þetta þétt áfram. Frábær skemmtun – kvikmyndastórvirki eins og margar Marvel myndir. Erfitt að segja mikið um söguþráðinn án þess að skemma fyrir...

    0.3
  • April, 2018

  • Show the reviewHide the reviewGuardians of the Galaxy Vol. 2 (2017) 7/10

    2018-04-30 22:30
    * * * * * * *

    Mjög spennandi. Mjög fyndin. Gott action. Fullt af atriðum með kreditlistanum.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewPopstar: Never Stop Never Stopping (2016) 5/10

    2018-04-30 14:49
    * * * * *

    Bull og vitleysa to the max. En nokkuð fyndin mynd. Svakalega mikið af cameos.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewThe Interview (2014) 5/10

    2018-04-30 12:58
    * * * * *

    Svakaleg vitleysa. En fyndin vitleysa.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewThe Foreigner (2017) 7/10

    2018-04-28 22:34
    * * * * * * *

    Jackie Chan í nýju ljósi – en samt sami töffarinn ;) Mjög spennandi.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewLogan Lucky (2017) 6/10

    2018-04-20 21:33
    * * * * * *

    Mjög fyndnar persónur. Sveitó stemning. Spennandi – smá eins og sveitó Ocean's 11. Skemmtilega öðruvísi útlit á Daniel Craig.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewGame Over, Man! (2018) 6/10

    2018-04-18 22:32
    * * * * * *

    Slatti af cameos. Spennandi. Fyndin vitleysa.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewThe House (2017) 6/10

    2018-04-16 21:31
    * * * * * *

    Fyndin vitleysa – mjög fyndin á köflum. Fínasta afþreying.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewThe Titan (2018) 4/10

    2018-04-14 22:29
    * * * *

    Áhugaverð sci-fi mynd og framtíðarpælingar. Spennandi á köflum. En endirinn (seinni hlutinn) var frekar skrýtinn... einkennilegt flæði og atburðarás, eins og það hafi eitthvað verið sparað í handritsvinnunni þar.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewA Quiet Place (2018) 9/10

    2018-04-07 23:32
    * * * * * * * * *

    Svakaleg mynd! Svo góð. Svo spennandi. Skemmtilega frumleg mynd. Þar sem þetta var frekar hljóðlát mynd þá urðu öll smáhljóð enn magnaðari. Svo gerði tónlistin líka mikið til að gera myndina spennuþrungna. Mjög vel leikin – þegar það er takmarkað af samtölum þá þurfa svipbrigði að segja mikið.

    0.3
  • March, 2018

  • Show the reviewHide the reviewHarry Potter and the Deathly Hallows: Part 2 (2011) 8/10

    2018-03-23 22:10
    * * * * * * * *

    Risastór lokakafli í þessari skemmtilegu ævintýrasögu. Mjög spennandi. Gott action. Flottar tæknibrellur.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewHarry Potter and the Deathly Hallows: Part 1 (2010) 7/10

    2018-03-19 22:10
    * * * * * * *

    Mjög spennandi. Það er ekkert verið að eyða miklum tíma í að kynna nýjar persónur eða koma með bakgrunnssögur – bara farið beint í spennu & action = Mjög gott.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewHarry Potter and the Half-Blood Prince (2009) 7/10

    2018-03-18 22:06
    * * * * * * *

    Myndirnar verða alltaf meira og meira "fullorðnari" ásamt persónunum. Spennandi. Fyndnari en fyrri myndirnar.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewAnnihilation (2018) 7/10

    2018-03-17 23:05
    * * * * * * *

    Áhugaverð sci-fi saga. Spennandi. Er enn að melta endinn – þetta varð svolítið "listrænt" í lokinn.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewHarry Potter and the Order of the Phoenix (2007) 8/10

    2018-03-16 22:03
    * * * * * * * *

    Stærsta breytingin er kannski snyrtilegri klipping hjá Harry ;) Spennandi. Töff action – loksins alvöru töfra-bardagar. Dolores Umbridge var ein af hræðilegustu persónunum í Harry Potter myndunum hingað til.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewAlien: Covenant (2017) 8/10

    2018-03-09 23:56
    * * * * * * * *

    Svakalega spennandi mynd. Áhugaverðar sci-fi pælingar og hugmyndir. Ég hefði búist við meira “Þetta er magnað!” og meiri virðingu frá fólki sem lendir á glænýrri plánetu. Það var áhugavert að sjá nokkur atriði (tæknilegar útfærslur o.s.frv.) svipuð/eins og í Passengers – sem kom út nokkrum mánuðum fyrr. Svo eru tvær stuttmyndir sem gerast á undan myndinni.

    0.3
  • February, 2018

  • Show the reviewHide the reviewHarry Potter and the Goblet of Fire (2005) 7/10

    2018-02-21 23:54
    * * * * * * *

    Mjög spennandi. Stemningin orðin aðeins meira “fullorðins” (ekki eins barnaleg).

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewKeeping Up with the Joneses (2016) 6/10

    2018-02-19 23:53
    * * * * * *

    Fyndin. Spennandi. Alltaf gaman af svona spæjara action-grínmyndum. Fín afþreying.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewThe Purge: Election Year (2016) 5/10

    2018-02-18 20:35
    * * * * *

    Klikkað og sjúkt concept. Ekkert svakalegur leikur né handrit & flæði. Smá low-budget bragur stundum. En ágætlega spennandi.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewThe Truman Show (1998) 7/10

    2018-02-18 16:07
    * * * * * * *

    Áhugaverð hugmynd. Sérstaklega fyrir samfélagsmiðla og áhrifavalda sem eru nánast sjálfviljug að Truman Show-a lífið sitt. Spennandi mynd.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewGhost in the Shell (2017) 7/10

    2018-02-16 22:04
    * * * * * * *

    Töff sci-fi mynd. Flottar tæknibrellur – áhugaverð og kúl “neon framtíð”, leit vel út. Gott action. Spennandi. Clint Mansell sá um tónlistina – hún var einmitt mjög flott og dramatísk.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewHarry Potter and the Prisoner of Azkaban (2004) 7/10

    2018-02-16 16:01
    * * * * * * *

    Spennandi ævintýramynd. Erfitt að segja meira án þess að fara í spoilers ;)

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewThe Cloverfield Paradox (2018) 7/10

    2018-02-11 23:31
    * * * * * * *

    Mér fannst fyrsta Cloverfield myndin algjör snilld. 10 Cloverfield Lane var líka áhugaverð, spennandi og einstök á sinn máta. Þannig að ég var mjög spenntur að heyra að það væri komið meira af efni frá þessum heimi. Skemmtileg sci-fi mynd. Áhugaverðar vísindapælingar. Gaman að sjá vini J.J. Abrams; Simon Pegg og Greg Grunberg, með smá hlutverk.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewWhen We First Met (2018) 5/10

    2018-02-11 21:59
    * * * * *

    Áhugavert concept – smá blanda af Big og Groundhog Day. Fyndin á köflum. Gaman og áhugavert að sjá Vine-stjörnur eins og King Bach í bíómyndum.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewHarry Potter and the Chamber of Secrets (2002) 7/10

    2018-02-03 21:56
    * * * * * * *

    Fyndin og spennandi. Minnir mig á unglinga-spæjara-bækurnar eins og Frank og Jói (The Hardy Boys), Nancy Drew, Fimm fræknu... nokkuð vinsælt concept fyrir börn og unglinga – Scooby Doo o.s.frv. Hugljúf og skemmtileg ævintýramynd.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewHarry Potter and the Sorcerer's Stone (2001) 7/10

    2018-02-03 15:51
    * * * * * * *

    Fyndin. Spennandi. Þetta er náttúrulega byggt á bók og mér fannst það stundum augljóst í flæðinu – þetta var oft bara nokkur tengd atriði úr einum kafla og svo var bara tekinn fyrir næsti kafli og ekki beint smooth flæði á milli. Skemmtileg ævintýramynd.

    0.3
  • January, 2018

  • Show the reviewHide the reviewxXx: Return of Xander Cage (2017) 5/10

    2018-01-27 22:04
    * * * * *

    Kjánaleg, silly, jafnvel fáránleg... en fyndin, spennandi, gott action og fín afþreying.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewNerve (2016) 7/10

    2018-01-24 22:01
    * * * * * * *

    Kúl myndataka og grafík (hvernig þau blönduðu UI/viðmótinu við myndina). Töff tónlist. Flott „neon future“ stemning. Áhugavert concept og mjög viðeigandi/relevant/current út frá samfélagsmiðlum og öllum gögnunum sem eru til um okkur, hvað við erum að deila mikið af efni, oft í rauntíma. Spennandi. Gaman að sjá Casey Neistat bregða fyrir :) ‘End titles’ grafíkin var snilld – mjög gott tech/internet tribute/homage. Jóhann Jóhannsson var þarna með eitt lag (Nerve Remix).

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewBrave (2012) 5/10

    2018-01-14 21:24
    * * * * *

    Ekta Disney ævintýri. Fyndin. Spennandi. En ég bjóst við skemmtilegri mynd frá Pixar.

    0.3

← previous 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 next →

List generated by WP Movie Ratings.

Síðast uppfært 13. February, 2022

Share this:

  • Share
  • Facebook
  • Twitter
  • Tumblr
  • Pinterest
  • Reddit
  • LinkedIn
  • Print
  • Email

Reader Interactions

Comments

  1. Bjössi says

    24. November, 2007 at 0:36

    þú ert aldeilis fljótur að skrifa um American Gangster. My man, ég er sammála þér með myndina. Töff stöff.

    Reply
  2. Hannes says

    24. November, 2007 at 1:31

    Vei, fyrsta kommentið hérna :)

    Já, maður reynir að hafa þetta eins ferskt og hægt er :)

    Það er kosturinn við þetta setup – ég hendi bara upp einhverju stuttu review, skelli á þetta einhverjar stjörnur (bara svona gut feeling) og þá er það komið. Ekkert að tefja mig á óþarfa blaðri eða djúpum pælingum.

    Reply
  3. maple says

    11. February, 2008 at 21:28

    mér finnst of mikið af myndum hér með of litlum fresti – horfir of mikið á myndir

    Reply
  4. Hannes says

    13. February, 2008 at 0:30

    hehe… já, sorry – ég skal horfa á færri myndir ;) Væri ein á mánuði of mikið?

    En þetta er svona – ég hata ekki að horfa á bíómyndir… I loves it :)

    Reply
  5. maple says

    13. February, 2008 at 10:59

    ein á mánuði ef hún er á bíórásinni

    Reply
  6. Haukur says

    21. October, 2008 at 10:07

    Já ég fór með alltof miklar væntingar á Max kallinn. Myndin var alveg töff en sagan samsvaraði sér alveg ferlega illa. Þetta lyktar eins og gömul skinka.

    Reply
  7. siggasig says

    27. May, 2009 at 23:26

    Öflugur að halda utan um myndirnar sem þú sérð! ;) Nice. Sammála Star Trek umfjölluninni. Frábær mynd! Og hei, líka sammála um Angels and Demons. Ólíkt Da Vinci Code fannst mér myndin betri en bókin.

    Reply
  8. Hannes says

    28. May, 2009 at 0:34

    Takk. Já, mér fannst kominn tími til að hafa smá yfirsýn yfir þær myndir sem ég horfi á þar sem ég horfi á örlítið fleiri en 2 myndir á ári ;)

    Já, síðan var líka gaman að sjá í Angels & Demons hvað sumir hlutir voru allt öðruvísi en maður var búinn að ímynda sér þegar maður las bókina :)

    Reply
  9. Geiri says

    4. June, 2009 at 16:36

    Hot Rod: 10*?
    Ég hefði smellt 8*.

    Reply
  10. Hannes says

    4. June, 2009 at 23:32

    Jú, skil þig – þegar ég horfði á hana aftur einn þá var þetta ekki alveg eins mikil snilld, en samt fáránlega fyndin. En þegar ég horfði á hana fyrst þá skemmti ég mér alveg konunglega – það var kannski bara stemmningin að horfa á þetta wit da boyz. 10 stjörnur þýðir alls ekki að mér fannst þetta einhver Óskarsverðlaunamynd…

    En annars eru þessar stjörnugjafir engan veginn heilagar – oft bara nánast eitthvað skot út í loftið ;)

    Reply
  11. Sara says

    6. March, 2010 at 14:08

    Jæja Nesi, ég er mjög spennt að lesa hvað þú hefur um Shutter Island að segja. Koma svo! Í bíó með þig! ;)

    Reply
  12. Hannes says

    6. March, 2010 at 15:19

    hehe, úff… bara pressa :) Já, ég er svona ennþá að vega og meta hvort ég ætli að sjá Shutter Island í bíó. En ætli maður verði ekki að tékka á þessu, Scorsese stendur alltaf fyrir sínu.

    Reply

Leave a Reply Cancel reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Primary Sidebar

Leita að efni

Þetta helsta

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me

Önnur verkefni

  • Bulby – Creativity App
  • Don Comodo – Bolir o.s.frv.

Copyright © 2023 Hannes · Hafðu samband / Contact me

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me
 

Loading Comments...