• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

I am official station

Ljósmyndir, kvikmyndagagnrýni, ferðasögur, fréttir af Hannesi og annað skemmtilegt :)

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me
You are here: Home / Kvikmyndagagnrýni

Kvikmyndagagnrýni

Kvikmyndagagnrýni (plaköt)

Smá umfjöllun um kvikmyndir sem ég hef séð nýlega… Stutt kvikmyndagagnrýni – ég nenni að skrifa mismikið, fer yfirleitt eftir því hvað mér dettur fyrst í hug – oft bara að hugsa upphátt.

Stjörnugjöf… já, stjörnugjöf er eiginlega svolítið bullshit – ég held að það sé mismikið bakvið stjörnur sem fólk gefur myndum. Hjá mér er það yfirleitt bara gut feeling – hversu skemmtileg/fyndin/spennandi/flott fannst mér myndin. Upplifunin.

Það er ekki eins og ég sé með einhvern ákveðinn skala/staðal eða tékklista – “já, flottur bílaeltingaleikur – 1 stjarna, töff byssubardagi – bætist við 1,5 stjarna…” ;) Síðan getur stjörnugjöfin oft verið svona plús/mínus 1-2 stjörnur.

Hlaðvarp um kvikmyndir  

Það er vert að minnast á að ég og Björn erum með hlaðvarp um kvikmyndir sem við köllum Búnir með poppið. Það er hægt að fylgjast með okkur í gegnum Facebook, Twitter og Instagram – og svo auðvitað hlusta á þættina á Spotify, Apple Podcasts, Google Podcasts og öðrum stöðum þar sem fólk hlustar á hlaðvörp. 

Sort list by: title | rating | view date ↓

  • September, 2013

  • Show the reviewHide the reviewThe World's End (2013) 7/10

    2013-09-18 22:49
    * * * * * * *

    Mjög fyndin mynd :) Spennandi. Fínasta action. Gott fjör. Mjög fín sci-fi skemmtun. Það var alveg smá Shaun of the Dead/Hot Fuzz stemning í þessari mynd. Skrýtið að þessi mynd fari ekki í almenna sýningu í bíóhúsum hérna. En gaman að ná henni á einni af þessum örfáu sérsýningum.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewThe Family (2013) 6/10

    2013-09-13 23:39
    * * * * * *

    Eða "Malavita" eins og hún virðist vera kölluð í Evrópu. Ágætis afþreying. Nokkuð skemmtilegar persónur. Glettilega fyndin á köflum. Mér fannst smá metnaðarleysi í handritinu - þá aðallega í kringum eitt atriði. Ágætlega spennandi.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewElysium (2013) 7/10

    2013-09-08 22:38
    * * * * * * *

    Töff mynd. Spennandi. Gott action. Áhugaverð vísindaskáldsaga - enn og aftur er spáin fyrir framtíðina ekkert rosalega björt ;) Topp afþreying.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewJobs (2013) 7/10

    2013-09-07 23:28
    * * * * * * *

    Skemmtileg mynd og hrífandi. Áhugaverð og mögnuð saga. Fullt af fínum leikurum.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewFalskur Fugl (2013) 5/10

    2013-09-03 23:45
    * * * * *

    Áhugaverð mynd. Spennandi. Twisted. Klikkuð. Ekki alveg feel-good mynd ;) Skemmtilegt að sjá lög með Gísla Pálma í myndinni. Ágætt að hún var bara 76 mín., hefði ekki nennt að horfa á mikið lengri útgáfu af þessari mynd.

    * Ég sá þessa mynd í flugvél.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewRoboCop (1987) 6/10

    2013-09-01 23:41
    * * * * * *

    Spennandi. Ágætis action. Brútal ofbeldi (veit ekki hvort það hafi verið sniðugt að ég hafi verið svona ungur þegar ég sá hana fyrst). Snilldar línur ;) Skemmtilega hallærislega gamaldags. Eldist sæmilega.

    0.3
  • August, 2013

  • Show the reviewHide the reviewBullet to the Head (2012) 5/10

    2013-08-29 23:38
    * * * * *

    Jájá, fín mynd. Action og læti. Sly grjótharður. Enginn topp leikur í gangi.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewSpring Breakers (2012) 5/10

    2013-08-25 23:25
    * * * * *

    Nett klikkuð mynd. Smá spes klipping/flæði - eiginlega eins og flashforwards og flashbacks (audio og/eða visual) fram og til baka. Blandaði söguþræðinum smá saman, en að vissu leyti áhugaverð aðferð, setti smá stíl á myndina. Töff tónlist. Handritið var frekar takmarkað. Sæmileg heilalaus þynnku-mynd.

    0.3
  • Show the reviewHide the review2 Guns (2013) 7/10

    2013-08-21 23:03
    * * * * * * *

    Fínasta afþreying. Fyndin & spennandi. Ágæt saga. Dash af action og dash af gríni - góð blanda. Denzel Washington og Mark Wahlberg eru topp leikarar. Þeir voru góðir saman. Baltasar er með'etta - gaman að sjá hvað hann er að gera góða hluti.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewWe're the Millers (2013) 6/10

    2013-08-17 22:42
    * * * * * *

    Ágætis grínmynd. Fínasta saga, þótt hún hafi verið að vissu leyti formúlukennd (og fyrirsjáanleg). Fínir leikarar.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewOblivion (2013) 7/10

    2013-08-11 01:43
    * * * * * * *

    Áhugaverð vísindaskáldsaga. Nokkuð spennandi. Sagan var reyndar smá ruglingsleg - það hjálpaði að lesa Wikipedia greinina eftirá til að átta sig betur á þessu ;) Tónlistin var nokkuð kúl - flott að fá M83 til að semja tónlistina fyrir myndina, smá elektró í þessu ;) Smá Tron/Daft Punkt stemning, en samt alls ekki eins. Rosalega flott mynd, leit vel út - vandað til verka þar. Alltaf gaman að sjá Ísland í bíómyndum/sjónvarpsþáttum - þetta er svo mögnuð náttúra, mjög myndræn :)

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewThe Queen of Versailles (2012) 5/10

    2013-08-03 23:51
    * * * * *

    Áhugaverð heimildamynd. Sýnir hvað 2008 hrunið breytti öllu - bara aðeins öðruvísi vinkill ;) Áhugaverðar persónur. Smá klikkað að hún hélt áfram að eyða í óþarfa hluti þegar þau voru í óvissu með peningana sína (ættu að vera að spara). Mjög sérstakur lífstíll.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewRed 2 (2013) 6/10

    2013-08-03 01:25
    * * * * * *

    Fínasta afþreying. Ágætt action og nokkuð spennandi á köflum. Fyndin. Nokkur atriði þar sem var smá random (en töff) myndataka/klipping. Flottir leikarar - snilld hvernig John Malkovich getur tjáð sig með svipbrigðum. En það vantaði samt smá upp á heildina, til að gera myndina meira "solid" - betra flæði, betra handrit... eitthvað.

    0.3
  • July, 2013

  • Show the reviewHide the reviewThe Heat (2013) 7/10

    2013-07-24 00:34
    * * * * * * *

    Mjög fyndin mynd. Spennandi. Melissa McCarthy er svo mikill snillingur - leikur alltaf mjög skemmtilegar persónur. Gott handrit - fullt af snilldar línum og atriðum. Topp afþreying.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewWorld War Z (2013) 8/10

    2013-07-13 01:42
    * * * * * * * *

    Rosalega spennandi mynd! Hörku action. Mjög góð keyrsla. Vel leikstýrð, flott myndataka og leit vel út. Nokkur atriði sem komu ágætlega vel/skemmtilega út í 3D. Áhugaverður söguþráður. Mér finnst zombie hugmyndafræðin mjög skemmtileg. Þetta var áhugaverður vinkill - uppvakningarnir í þessari mynd voru brjálaðari, kraftmeiri og árásargjarnari heldur en í öðrum zombie söguheimum (eins og t.d. sjónvarpsþáttunum The Walking Dead). Sem gerði þetta að vissu leyti meira spennandi (af því að það var minni von, meiri hætta, meiri óvissa). Mjög góð mynd. Kúl stöff. Fullt af fínum persónum og leikurum. Brad Pitt var töffari.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewThis Is the End (2013) 7/10

    2013-07-10 00:54
    * * * * * * *

    Mjög spennandi og fyndin. En algjört rugl. Fyndið rugl. Skuggalega súr - allnokkur WTF?! atriði. Fullt af skemmtilegum cameos. Þrátt fyrir töluverðan súrleika þá var þetta umfram allt góð skemmtun :) Líka falleg skilaboð ;)

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewCyrus (2010) 6/10

    2013-07-05 23:07
    * * * * * *

    Vandræðaleg mynd. Duplass bræðurnir eru líklega svolítið fyrir svona vandræðaleg og "raunveruleg" samtöl. Smá drama. Kjánalega fyndin. Indie. Ágætis saga.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewWhite House Down (2013) 7/10

    2013-07-03 00:55
    * * * * * * *

    Mjög spennandi mynd. Hörku action - góð keyrsla. Slatti af þekktum leikurum. Leit vel út - flott myndataka og leikstjórn. Roland Emmerich missti sig reyndar aðeins í væmni og Ameríku-dáð í lokinn (eða sá sem bar ábyrgð á því). Mjög svipað concept og Olympus Has Fallen, en mér fannst þessi kannski aðeins betri - alla vega að sumu leyti.

    0.3
  • June, 2013

  • Show the reviewHide the reviewThe Incredible Burt Wonderstone (2013) 6/10

    2013-06-29 21:04
    * * * * * *

    Ágætis afþreying. Ágætlega fyndin. Silly. Mér fannst töluvert verið að skjóta á David Blaine (og aðra sambærilega gaura).

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewMan of Steel (2013) 7/10

    2013-06-27 00:04
    * * * * * * *

    Mjög kúl mynd. Töff action atriði - mörg risastór og áhrifamikil (impressive). Nokkuð fyndin inn á milli (kom smá á óvart). Mér fannst koma ágætlega út hvernig þeir hoppuðu fram og til baka í æsku Clark Kent/Kal-El/Superman. Michael Shannon var góður sem vondi kallinn. Tónlistin var flott - Hans Zimmer er með'etta. Góð saga, skemmtileg útfærsla á Superman heiminum - ég væri til í að sjá meira.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewThe Internship (2013) 6/10

    2013-06-16 23:49
    * * * * * *

    Fyndin. Hugljúf/feel-good mynd. Skemmtileg saga, þótt hún sé að vissu leyti formúlukennd. Ég er forvitinn að vita hversu mikið Google kom að gerð myndarinnar - í raun ágætis auglýsing/branding fyrir Google. Ég er að spá hvort þeir hjá Google hafi séð athyglina sem Facebook fékk í kringum The Social Network og þeir hafi viljað fá sína eigin mynd ;) Mér fannst skemmtilegt hvernig þau notuðu ýmsar Google vörur til að birta credit listann í lokinn.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewWarm Bodies (2013) 6/10

    2013-06-15 21:12
    * * * * * *

    Fyndin vitleysa. Áhugaverð blanda; zombie action spennu rómantísk gamanmynd ;) Spennandi. Sérstakar/skemmtilegar persónur. Ég áttaði mig ekki strax á að þetta er svona smá zombie útgáfan af Rómeó & Júlíu...

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewPain & Gain (2013) 7/10

    2013-06-15 02:00
    * * * * * * *

    Fyndin vitleysa og fínn hasar. Ég var ekki alveg viss með þessa mynd fyrir hlé... var alltaf að bíða eftir meira action, meira fútti, meiri keyrslu. En eftir hlé breyttist þetta í bullandi svarta kómedíu :) Skemmtileg vitleysa - ágætis afþreying. Slatti af fínum leikurum í aukahlutverkum.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewNow You See Me (2013) 7/10

    2013-06-05 00:05
    * * * * * * *

    Mjög spennandi. Skemmtileg saga. Töff trick. Fínasta afþreying.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewThe Hangover Part III (2013) 7/10

    2013-06-02 23:07
    * * * * * * *

    Skemmtileg vitleysa. Spennandi. Gott fjör. Fyndin. Ætti að slá í gegn hjá þeim sem fíluðu hinar myndirnar. En það er held ég bara gott að þetta er síðasta myndinn í seríunni - það væri líklega aðeins of mikið (aðeins of þreytt) ef það væru gerðar fleiri Hangover myndir.

    0.3
  • May, 2013

  • Show the reviewHide the reviewFast & Furious 6 (2013) 7/10

    2013-05-24 23:43
    * * * * * * *

    Gott action. Töff bílaatriði. Spennandi. Fínasta afþreying - maður á líka að horfa á þetta þannig, og ekki láta ótrúverðug atriði og þunnt handrit trufla sig of mikið ;) Myndin missti smá kraft/momentum á köflum - stundum ekki alveg nógu gott flæði.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewStar Trek Into Darkness (2013) 7/10

    2013-05-12 01:59
    * * * * * * *

    Spennandi. Gott action. Að vissu leyti stórslysamynd - sprengingar, eyðilegging og læti. Ég hef gaman af svona sci-fi myndum - áhugaverðar pælingar varðandi hvernig heimurinn verði eftir X mörg ár. 3D effect-arnir voru smá kúl, sérstaklega credit listinn í lokinn. En ég var reyndar orðinn frekar þreyttur í augunum í lokinn, tekur á að horfa á 132 mín. 3D mynd ;)

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewArthur (2011) 6/10

    2013-05-05 22:25
    * * * * * *

    Skemmtileg vitleysa. Fyndin (á köflum alla vega). Fínasta afþreying. Ég hef alltaf gaman af mynum sem gerast í New York :)

    0.3
  • April, 2013

  • Show the reviewHide the reviewMegamind (2010) 7/10

    2013-04-28 23:06
    * * * * * * *

    Skemmtileg mynd. Fyndin. Skemmtileg saga - góðar persónur. Flott - grafíkin leit vel út. Góðir leikarar.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewIron Man 3 (2013) 8/10

    2013-04-27 01:49
    * * * * * * * *

    Rosalegt action. Rosaleg spenna. Rosaleg keyrsla. Rosalega góðir leikarar. Rosaleg mynd. Magnaðar tæknibrellur. Dúndrandi skemmtun. Þessi Marvel heimur er magnaður - alltaf að tengjast meira og meira og bætast við fleiri myndir... Það var vissulega slatti af product placement (vörulaum) eins og gengur og gerist í svona risastórum myndum - en mér fannst áhugavert að sjá SpeedTest.net þarna, kom mér á óvart :) Fyrir þá sem hafa áhuga á því þá er atriði eftir credit-listann - Ekkert must-see, en smá skemmtilegt.

    0.3

← previous 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 next →

List generated by WP Movie Ratings.

Síðast uppfært 13. February, 2022

Share this:

  • Share
  • Facebook
  • Twitter
  • Tumblr
  • Pinterest
  • Reddit
  • LinkedIn
  • Print
  • Email

Reader Interactions

Comments

  1. Bjössi says

    24. November, 2007 at 0:36

    þú ert aldeilis fljótur að skrifa um American Gangster. My man, ég er sammála þér með myndina. Töff stöff.

    Reply
  2. Hannes says

    24. November, 2007 at 1:31

    Vei, fyrsta kommentið hérna :)

    Já, maður reynir að hafa þetta eins ferskt og hægt er :)

    Það er kosturinn við þetta setup – ég hendi bara upp einhverju stuttu review, skelli á þetta einhverjar stjörnur (bara svona gut feeling) og þá er það komið. Ekkert að tefja mig á óþarfa blaðri eða djúpum pælingum.

    Reply
  3. maple says

    11. February, 2008 at 21:28

    mér finnst of mikið af myndum hér með of litlum fresti – horfir of mikið á myndir

    Reply
  4. Hannes says

    13. February, 2008 at 0:30

    hehe… já, sorry – ég skal horfa á færri myndir ;) Væri ein á mánuði of mikið?

    En þetta er svona – ég hata ekki að horfa á bíómyndir… I loves it :)

    Reply
  5. maple says

    13. February, 2008 at 10:59

    ein á mánuði ef hún er á bíórásinni

    Reply
  6. Haukur says

    21. October, 2008 at 10:07

    Já ég fór með alltof miklar væntingar á Max kallinn. Myndin var alveg töff en sagan samsvaraði sér alveg ferlega illa. Þetta lyktar eins og gömul skinka.

    Reply
  7. siggasig says

    27. May, 2009 at 23:26

    Öflugur að halda utan um myndirnar sem þú sérð! ;) Nice. Sammála Star Trek umfjölluninni. Frábær mynd! Og hei, líka sammála um Angels and Demons. Ólíkt Da Vinci Code fannst mér myndin betri en bókin.

    Reply
  8. Hannes says

    28. May, 2009 at 0:34

    Takk. Já, mér fannst kominn tími til að hafa smá yfirsýn yfir þær myndir sem ég horfi á þar sem ég horfi á örlítið fleiri en 2 myndir á ári ;)

    Já, síðan var líka gaman að sjá í Angels & Demons hvað sumir hlutir voru allt öðruvísi en maður var búinn að ímynda sér þegar maður las bókina :)

    Reply
  9. Geiri says

    4. June, 2009 at 16:36

    Hot Rod: 10*?
    Ég hefði smellt 8*.

    Reply
  10. Hannes says

    4. June, 2009 at 23:32

    Jú, skil þig – þegar ég horfði á hana aftur einn þá var þetta ekki alveg eins mikil snilld, en samt fáránlega fyndin. En þegar ég horfði á hana fyrst þá skemmti ég mér alveg konunglega – það var kannski bara stemmningin að horfa á þetta wit da boyz. 10 stjörnur þýðir alls ekki að mér fannst þetta einhver Óskarsverðlaunamynd…

    En annars eru þessar stjörnugjafir engan veginn heilagar – oft bara nánast eitthvað skot út í loftið ;)

    Reply
  11. Sara says

    6. March, 2010 at 14:08

    Jæja Nesi, ég er mjög spennt að lesa hvað þú hefur um Shutter Island að segja. Koma svo! Í bíó með þig! ;)

    Reply
  12. Hannes says

    6. March, 2010 at 15:19

    hehe, úff… bara pressa :) Já, ég er svona ennþá að vega og meta hvort ég ætli að sjá Shutter Island í bíó. En ætli maður verði ekki að tékka á þessu, Scorsese stendur alltaf fyrir sínu.

    Reply

Leave a Reply Cancel reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Primary Sidebar

Leita að efni

Þetta helsta

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me

Önnur verkefni

  • Bulby – Creativity App
  • Don Comodo – Bolir o.s.frv.

Copyright © 2023 Hannes · Hafðu samband / Contact me

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me
 

Loading Comments...