
Smá umfjöllun um kvikmyndir sem ég hef séð nýlega… Stutt kvikmyndagagnrýni – ég nenni að skrifa mismikið, fer yfirleitt eftir því hvað mér dettur fyrst í hug – oft bara að hugsa upphátt.
Stjörnugjöf… já, stjörnugjöf er eiginlega svolítið bullshit – ég held að það sé mismikið bakvið stjörnur sem fólk gefur myndum. Hjá mér er það yfirleitt bara gut feeling – hversu skemmtileg/fyndin/spennandi/flott fannst mér myndin. Upplifunin.
Það er ekki eins og ég sé með einhvern ákveðinn skala/staðal eða tékklista – “já, flottur bílaeltingaleikur – 1 stjarna, töff byssubardagi – bætist við 1,5 stjarna…” ;) Síðan getur stjörnugjöfin oft verið svona plús/mínus 1-2 stjörnur.
Hlaðvarp um kvikmyndir
Það er vert að minnast á að ég og Björn erum með hlaðvarp um kvikmyndir sem við köllum Búnir með poppið. Það er hægt að fylgjast með okkur í gegnum Facebook, Twitter og Instagram – og svo auðvitað hlusta á þættina á Spotify, Apple Podcasts, Google Podcasts og öðrum stöðum þar sem fólk hlustar á hlaðvörp.
Sort list by: title | rating | view date ↓
February, 2022
-
2022-02-15 23:44
Mögnuð og sjokkerandi saga. Spennandi. Vel gerð heimildarmynd sem hélt athygli manns. #netflix
0.3 -
2022-02-13 23:18
Skemmtileg mynd. Spennandi. Gaman af svona Indiana Jones og Tomb Raider stemningu – finna vísbendingar, leysa ráðgátur og flýja vonda fólkið. Tom Holland og Mark Wahlberg eru ágætist duo.
0.3 -
2022-02-10 00:07
Þetta var nú meira ruglið. Mjög fyndið – og stundum af því að þetta var svo sjokkerandi (stress-hlátur). Sum atriði voru brútal – margt alveg pínlegt að horfa á. Gaman að sjá slatta af nýjum andlitum taka þátt í vitleysunni. Líka nokkur skemmtileg cameos.
0.3 -
2022-02-04 15:17Men in Black: International (2019)
Ágætis afþreying. Smá Disney útgáfa af MiB. Fínasta sci-fi action. #netflix
0.3 -
2022-02-03 16:19
Áhugaverð hugmynd. Skemmtilegt sci-fi. Gaman að sjá Jóhannes Hauk Jóhannesson í nokkuð stóru hlutverki. Fínasta action inn á milli. La-la handrit. #amazonprime
0.3 -
2022-02-02 22:18
Áhugavert concept. Handritið hefði getað verið meira spennandi. Ágætis ádeila á stéttaskiptingu. #netflix
0.3 -
2022-02-02 15:17Venom: Let There Be Carnage (2021)
Spennandi mynd. Quirky – Venom er skemmtilega skrýtin og fyndin týpa. Handritið var frekar hefðbundið.
0.3 January, 2022
-
2022-01-30 16:11
Fínasta barnamynd. Fallega teiknuð. En margar barnamyndir passa upp á að hafa skemmtanagildi líka fyrir foreldrana – þessi er bara að hugsa um krakkana og gerir það ágætlega.
0.3 -
2022-01-28 23:07Jack Reacher: Never Go Back (2016)
Spennandi mynd. Fínasta action. Nokkur ekta Tom Cruise atriði. #netflix
0.3 -
2022-01-09 23:45
Spennandi mynd. En ekki alveg eins skemmtileg & fyndin og fyrri Kingsman myndirnar. Meira drama. Rhys Ifans var skemmtilegur karakter. Áhugavert að tengja þetta við merkilega viðburði í mannkynssögunni (í kringum fyrri heimsstyrjöldina), en samt breyta helling fyrir þennan söguheim.
0.3 -
2022-01-04 23:00
Spennandi. Töff mynd. Ekta action afþreying. Gott stöff. #amazonprime
0.3 -
2022-01-02 23:58
Dramatísk. Eitthvað arty, vandað, myndrænt við hana… Mikið lagt í tónlistina – Jay-Z framleiddi m.a. myndina. Leikstjórinn (Jeymes Samuel) sá líka um tónlistina og skrifaði handritið – Fun Fact: Hann er bróðir Seal. #netflix
0.3 -
2022-01-02 21:51
Áhugaverð saga. Ágætlega töff og spennandi. Brútal. Ekkert súper vel leikin. Handritið var líka smá off.
0.3 December, 2021
-
2021-12-29 19:49
Hugljúf fjölskyldumynd. Mjög týpísk Disney teiknimynd. Söngur, dans og fallegur endir. #disneyplus
0.3 -
2021-12-29 16:47
Fyndin – Anna Kendrick er góð týpa eins og svo oft áður. Betri mynd en ég bjóst við. En alveg væmin í lokinn. #disneyplus
0.3 -
2021-12-29 00:21The Matrix Resurrections (2021)
Geggjuð mynd. Ég var að elska allar vísanirnar (reference/tribute) til fyrstu Matrix myndarinnar. Ýmsir skemmtilegir meta brandarar líka. Mikill nostalgíu rússíbani – sem ég kunni að meta. Spennandi. Ekki eins mikið af mind-blowing action atriðum – en það er vissulega yfirleitt flottara þegar maður sér þannig fyrst. Djúpar heimspekilegar pælingar og skilaboð eins og áður. Smá zombie stemning – sem kom á óvart.
0.3 -
2021-12-26 22:32
Fyndin og quirky/skrýtin mynd – svartur húmor og drama. Fullt af fínum leikurum. Áhugaverð ádeila á samfélagið og hvað sumir hópar trúa ekki vísindafólki. #netflix
0.3 -
2021-12-21 22:31
Skemmtileg mynd. Ekta Disney afþreying. Spennandi. Fyndin. Flottar tæknibrellur. Fínasta saga – en nokkuð hefðbundin. #disneyplus
0.3 -
2021-12-11 23:31
Mikið af "öðruvísi" myndatökum – skotið á ská, snúa myndavélinni í hringi og svona... Hægar og hraðar klippingar - klassískt fyrir svona mynd, þar sem teiknimyndasögur og tölvuleikir eru líklega mikill innblástur. Concept-ið minnir á Nerve (sem kom út sama ár), Death Race 2000, The Running Man og aðrar sambærilegar myndir – það er í raun magnað hvað er búið að gera margar svona "Fólk að keppa upp á líf og dauða á meðan fullt af fólki fylgist spennt með"-myndir. Brútal mynd. Vissulega öðruvísi hlutverk fyrir Harry Potter. Handritið og persónurnar var ekki alltaf toppur – vantaði smá upp á. #amazonprime
0.3 -
2021-12-08 22:29
Spennandi, skemmtileg, quirky og fyndin. Áhugavert prequel fyrir Army of the Dead – léttara yfir þessari, ekki eins ofbeldisfull og miklu minna um zombie stress. Fínasta afþreying. #netflix
0.3 November, 2021
-
2021-11-20 16:04
Gott action. Svakaleg keyrsla. Mjög spennandi. Hélt alveg athyglinni hjá manni.
0.3 -
2021-11-19 23:03
Spennandi. Áhugavert concept. Aðeins of fake umhverfi – svo augljóslega tekið upp í studio. En kannski átti það að passa inn í þessa teiknimyndasögu (comic book) stemningu.
0.3 -
2021-11-17 00:33
Flott mynd. Spennandi og skemmtileg. Áhugaverður nýr heimur/saga sem er verið að kynna. Risastór bardagaatriði eins og svo oft í Marvel myndum. Fullt af flottum leikurum – sumir sem maður hefði ekki endilega séð fyrir sér í ofurhetjumyndum. Löng mynd – sem maður tekur sérstaklega eftir þegar það er ekkert hlé 😉
0.3 -
2021-11-14 23:28
Mjög góð mynd. Spennandi og fyndin. Gott action. Fullt af plot twists. Skemmtilegt leikaraúrval. Big-budget Netflix mynd. Topp afþreying. #netflix
0.3 -
2021-11-13 23:27
Töff stöff. Spennandi. Skemmtilega klikkaðar (brotnar) og quirky persónur. Danskur svartur húmor.
0.3 -
2021-11-11 23:25
Spennandi. Ágætis thriller/action. Stundum var leikurinn/handritið smá off. Ekki topp gæði, en ágætis afþreying. Já, svo heitir þessi mynd "SAS: Rise of the Black Swan" á Netflix til að rugla ekki við Netflix myndina "Red Notice" sem kom líka út á þessu ári. #netflix
0.3 October, 2021
-
2021-10-16 01:14
Ekta Bond mynd með öllu þessu helsta. Töff og spennandi. Dramatísk líka. Bond var sérstaklega berskjaldaður. Slatti af geggjuðum atriðum. Allt leit mjög vel út (töff stíll). Frekar löng. Rami Malek passaði vel inn sem illmennið. Nýja 007 var líka kúl.
0.3 -
2021-10-10 19:29
Mjög skemmtileg mynd. Spennandi og fyndin – góð blanda. Töff action atriði og flottar tæknibrellur. Sniðugt concept að sögu í kringum battle royale og open world leiki – slatti af streamer cameos úr þeim heimi. Líka Hollywood leikarar með cameos. Margar skemmtilegar vísanir í hina ýmsa tölvuleiki. Áhugaverðar pælingar í kringum leikjahönnun, gervigreind og "simulation hypothesis" – jafnvel heimspekilegt á köflum.
0.3 September, 2021
-
2021-09-25 01:25Shang-Chi and the Legend of the Ten Rings (2021)
Örlítið öðruvísi Marvel mynd – smá asísk goðafræði (mythology) og slatti af kung fu. Öðruvísi ævintýraheimur en margar Marvel myndir, en það var alveg smá tenging við aðrar Marvel myndir. Slatti af húmor – Awkwafina og Ben Kingsley sáu aðallega um það. Flott bardagaatriði – bæði kung fu „dansarnir“ og stóru Marvel bardagarnir.
0.3 -
2021-09-21 23:35
Mögnuð mynd! Virkilega falleg. Algjört listaverk. Tónlistin var svakaleg – skapaði magnþrungna stemningu. Spennandi og áhugaverð mynd. Fullt af geggjuðum leikurum. Epísk tragedía full af mystík. Mjög vönduð kvikmynd.
0.3
← previous 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 next →
List generated by WP Movie Ratings.
Síðast uppfært 18. May, 2023
þú ert aldeilis fljótur að skrifa um American Gangster. My man, ég er sammála þér með myndina. Töff stöff.
Vei, fyrsta kommentið hérna :)
Já, maður reynir að hafa þetta eins ferskt og hægt er :)
Það er kosturinn við þetta setup – ég hendi bara upp einhverju stuttu review, skelli á þetta einhverjar stjörnur (bara svona gut feeling) og þá er það komið. Ekkert að tefja mig á óþarfa blaðri eða djúpum pælingum.
mér finnst of mikið af myndum hér með of litlum fresti – horfir of mikið á myndir
hehe… já, sorry – ég skal horfa á færri myndir ;) Væri ein á mánuði of mikið?
En þetta er svona – ég hata ekki að horfa á bíómyndir… I loves it :)
ein á mánuði ef hún er á bíórásinni
Já ég fór með alltof miklar væntingar á Max kallinn. Myndin var alveg töff en sagan samsvaraði sér alveg ferlega illa. Þetta lyktar eins og gömul skinka.
Öflugur að halda utan um myndirnar sem þú sérð! ;) Nice. Sammála Star Trek umfjölluninni. Frábær mynd! Og hei, líka sammála um Angels and Demons. Ólíkt Da Vinci Code fannst mér myndin betri en bókin.
Takk. Já, mér fannst kominn tími til að hafa smá yfirsýn yfir þær myndir sem ég horfi á þar sem ég horfi á örlítið fleiri en 2 myndir á ári ;)
Já, síðan var líka gaman að sjá í Angels & Demons hvað sumir hlutir voru allt öðruvísi en maður var búinn að ímynda sér þegar maður las bókina :)
Hot Rod: 10*?
Ég hefði smellt 8*.
Jú, skil þig – þegar ég horfði á hana aftur einn þá var þetta ekki alveg eins mikil snilld, en samt fáránlega fyndin. En þegar ég horfði á hana fyrst þá skemmti ég mér alveg konunglega – það var kannski bara stemmningin að horfa á þetta wit da boyz. 10 stjörnur þýðir alls ekki að mér fannst þetta einhver Óskarsverðlaunamynd…
En annars eru þessar stjörnugjafir engan veginn heilagar – oft bara nánast eitthvað skot út í loftið ;)
Jæja Nesi, ég er mjög spennt að lesa hvað þú hefur um Shutter Island að segja. Koma svo! Í bíó með þig! ;)
hehe, úff… bara pressa :) Já, ég er svona ennþá að vega og meta hvort ég ætli að sjá Shutter Island í bíó. En ætli maður verði ekki að tékka á þessu, Scorsese stendur alltaf fyrir sínu.