• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

I am official station

Ljósmyndir, kvikmyndagagnrýni, ferðasögur, fréttir af Hannesi og annað skemmtilegt :)

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me
You are here: Home / Kvikmyndagagnrýni

Kvikmyndagagnrýni

Kvikmyndagagnrýni (plaköt)

Smá umfjöllun um kvikmyndir sem ég hef séð nýlega… Stutt kvikmyndagagnrýni – ég nenni að skrifa mismikið, fer yfirleitt eftir því hvað mér dettur fyrst í hug – oft bara að hugsa upphátt.

Stjörnugjöf… já, stjörnugjöf er eiginlega svolítið bullshit – ég held að það sé mismikið bakvið stjörnur sem fólk gefur myndum. Hjá mér er það yfirleitt bara gut feeling – hversu skemmtileg/fyndin/spennandi/flott fannst mér myndin. Upplifunin.

Það er ekki eins og ég sé með einhvern ákveðinn skala/staðal eða tékklista – “já, flottur bílaeltingaleikur – 1 stjarna, töff byssubardagi – bætist við 1,5 stjarna…” ;) Síðan getur stjörnugjöfin oft verið svona plús/mínus 1-2 stjörnur.

Hlaðvarp um kvikmyndir  

Það er vert að minnast á að ég og Björn erum með hlaðvarp um kvikmyndir sem við köllum Búnir með poppið. Það er hægt að fylgjast með okkur í gegnum Facebook, Twitter og Instagram – og svo auðvitað hlusta á þættina á Spotify, Apple Podcasts, Google Podcasts og öðrum stöðum þar sem fólk hlustar á hlaðvörp. 

Sort list by: title | rating | view date ↓

  • August, 2019

  • Show the reviewHide the reviewOnce Upon a Time ... in Hollywood (2019) 8/10

    2019-08-18 00:15
    * * * * * * * *

    Virkilega fín mynd. Mjög áhugaverð saga. Alltaf topp gæði hjá Tarantino. Virkilega góðir leikarar – gaman að sjá "usual suspects" (eða börnin þeirra) sem hafa leikið nokkrum sinnum í Tarantino myndum. Ekki eins mikið ofbeldi og oft hjá Quentin, en alveg nóg 😮 🙈

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewDownsizing (2017) 4/10

    2019-08-16 21:42
    * * * *

    Spes mynd. Meira drama en ég bjóst við. Kaldur/svartur/þurr húmor. Áhugavert plot.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewLong Shot (2019) 8/10

    2019-08-14 22:41
    * * * * * * * *

    Mjög fyndin. Skemmtileg. Topp afþreying.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewWidows (2018) 7/10

    2019-08-07 22:50
    * * * * * * *

    Spennandi. Heill hellingur af þekktum/flottum leikurum. Fullt af flottum skotum. Áhugavert handrit.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewFast & Furious Presents: Hobbs & Shaw (2019) 7/10

    2019-08-06 23:23
    * * * * * * *

    Gott stöff. Spennandi. Góð keyrsla. Alveg jafn mikil vitleysa og maður bjóst við. Aðeins öðruvísi dýnamík þegar þetta eru aðallega bara þeir tveir en ekki allt F&F gengið. Var að fíla sci-fi vinkilinn.

    0.3
  • July, 2019

  • Show the reviewHide the reviewSpider-Man: Far from Home (2019) 7/10

    2019-07-30 01:09
    * * * * * * *

    Töff ofurhetjumynd – mjög flottar senur inn á milli. Ágætis söguþráður – fróðlegt að sjá hvernig þetta þróast eftir Avengers: Endgame. Það hafði smá áhrif á upplifunina að sjá myndina í „lélegum“ sal með takmörkuðu surround hljóði.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewShazam! (2019) 6/10

    2019-07-24 23:44
    * * * * * *

    Fín ofurhetjumynd. En það vantaði eitthvað til að gera hana betri – það var eitthvað barnalegt og gamaldags við hana, maður býst við vandaðari ofurhetjumyndum árið 2019. Áhugavert að sjá að Dwayne Johnson var framleiðandi.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewThe Predator (2018) 6/10

    2019-07-07 22:43
    * * * * * *

    Smá B-myndar fílingur – ekkert verið að taka sig of alvarlega. Fullt af þekktum leikurum. Spennandi. Handritið var stundum smá takmarkað. En þetta var fínasta afþreying.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewVice (2018) 7/10

    2019-07-05 22:42
    * * * * * * *

    Mjög áhugaverð frásögn. Magnað dæmi... frekar klikkað ef þetta er allt satt. Topp leikarar. Á nokkrum köflum fannst mér tónlistin minna á House of Cards tónlistina – veit ekki hvort það var vísvitandi vísun í sambærileg atriði.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewMacGruber (2010) 4/10

    2019-07-04 23:52
    * * * *

    Mjög kjánaleg mynd, eins og við mátti búast – bull & vitleysa. En fyndin á köflum.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewI Am Mother (2019) 6/10

    2019-07-04 21:41
    * * * * * *

    Spennandi og áhugaverð dystopian sci-fi mynd.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewBlacKkKlansman (2018) 6/10

    2019-07-02 23:40
    * * * * * *

    Áhugaverð saga. Spennandi. Fullt af flottum skotum. Skýr skot á pólitíska landslagið núna í USA. Svakalegt að sjá upptökurnar frá 2017 í lokinn. Mér fannst einn leikarinn svo líkur Steve Buscemi – það var sem sagt Michael Joseph bróðir hans.

    0.3
  • June, 2019

  • Show the reviewHide the reviewSpider-Man: Homecoming (2017) 6/10

    2019-06-25 22:37
    * * * * * *

    Klassísk Marvel mynd – spennandi, fyndin og fínt action. En ekki eins mögnuð og margar aðrar Marvel myndir. Áhugavert að það voru 6 gaurar sem skrifuðu handritið – ekki oft sem ég sé svona marga ;) Veit ekki hvort það sé endilega betra – mér fannst alla vega ekkert brillíant flæði/keyrsla. Mér fannst einn leikarinn smá líkur Tom Hardy og var í smá stund að pæla hvort það væri einhver tenging við Venom, origin story eða eitthvað þannig – en svo var ekki, þetta var ekki Tom Hardy ;)

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewBad Times at the El Royale (2018) 7/10

    2019-06-20 23:11
    * * * * * * *

    Spennandi. Áhugaverðar persónur. Flottir leikarar.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewMurder Mystery (2019) 6/10

    2019-06-16 22:30
    * * * * * *

    Fyndin vitleysa. Spennandi. Alltaf gaman að sjá Ólaf Darra. Fínasta afþreying.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewGhostbusters (2016) 7/10

    2019-06-12 22:57
    * * * * * * *

    Mjög fyndin og spennandi mynd. Ég var að dýrka allar vísanirnar í gömlu myndina – og öll þessi cameos. Topp skemmtun.

    0.3
  • May, 2019

  • Show the reviewHide the reviewJohn Wick: Chapter 3 - Parabellum (2019) 8/10

    2019-05-17 23:14
    * * * * * * * *

    Svo. Mikið. Ofbeldi. Svakaleg keyrsla. Keanu Reeves er svo góður í þessu hlutverki. Gaman líka að aðrir fengu að skína í svona "ég ætla að drepa 50 manns á 4 mínútum" rússíbönum. Áhugaverður ævintýraheimur með gamaldags tækni & stíl inn á milli í nútímanum. Skemmtileg listræn stjórnun – mikið um cool vibes.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewThe Limit (2018) 6/10

    2019-05-10 22:37
    * * * * * *

    Skemmtilega nýtt og öðruvísi. Þetta er sem sagt svona POV VR stuttmynd – vissulega kúlfaktor af því að ég hafði ekki horft áður á svona. Handritið var nokkuð takmarkað og klisjukennt en þetta var samt fínasta afþreying. Stundum fannst mér skrýtið þegar þau voru að óþörfu að brjóta POV vegginn – truflaði flæðið smá. En myndin var spennandi á köflum og skemmtilega "immersive" upplifun. Það verður gaman að fylgjast með hvort það komi mikið af svona VR Hollywood myndum í framtíðinni.

    0.3
  • April, 2019

  • Show the reviewHide the reviewAvengers: Endgame (2019) 9/10

    2019-04-29 23:59
    * * * * * * * * *

    E-PÍS-KUR endir! Svakaleg mynd. Geggjuð og risastór action atriði. Mjög spennandi. Líka mjög fyndin ..og dramatísk. Allar tilfinningarnar. Magnað og virkilega gaman að sjá allar þessar persónur saman komnar. Verður spennandi að sjá hvað gerist næst í Marvel heiminum.

    Ég fór á myndina í 4DX sal (í Orlando) sem var áhugaverð upplifun – stóllinn hreyfðist og titraði, það kom vindur, rigning, „blóðslettur“, snjór og eldingar/flass, maður var „laminn“ í bakið o.s.frv. Gaman að prófa þetta en þetta var smá "gimmicky" – maður var í rauninni kominn í tívolítæki.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewX-Men: First Class (2011) 6/10

    2019-04-18 23:09
    * * * * * *

    Spennandi. Týpísk ofurhetju/X-Men mynd. Horfði á þetta í flugvél og þannig myndir eru oft klipptar öðruvísi, censor-aðar og mér fannst eitt og annað "off" í tengslum við það. Ágætlega áhugaverð "origin" saga. Sumir ofurkraftar hjá krökkunum voru smá fyndnir/spes.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewJurassic World: Fallen Kingdom (2018) 7/10

    2019-04-11 22:37
    * * * * * * *

    Eitthvað Disney-legt við þetta í byrjun – klisjukennt/formúlukennt. En fór svo almennilega í gang. Mjög spennandi á köflum. Dramatísk. Fín afþreying.

    0.3
  • March, 2019

  • Show the reviewHide the reviewMandy (2018) 1/10

    2019-03-26 22:54
    *

    Speisuð og skrýtin mynd. Svo psycho. Margar hægar senur. Mikið af WTF mómentum. Eins og það sé verið að reyna gera artý mynd + low budget, þannig að þetta var smá eins og verkefni hjá listaháskólanemum. Handritið var ekki upp á marga fiska – samtölin voru oft kjánaleg og flæðið á milli atriða var stundum skrýtið. Excessive gore. Fyndið/áhugavert að sjá Elijah Wood sem framleiðanda. Jóhann Jóhannsson gerði tónlistina – fallegt að það kom "In Loving Memory of our friend" í lokinn.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewThe Inventor: Out for Blood in Silicon Valley (2019) 6/10

    2019-03-25 21:34
    * * * * * *

    Mjög áhugaverð saga. Magnað hvað þetta komst langt... "Fake it till you make it" hefur kannski einhver mörk 😉

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewUs (2019) 8/10

    2019-03-23 23:16
    * * * * * * * *

    Virkilega hryllileg hryllingsmynd! Brjálæðislega creepy og ógnvekjandi. Svakalega spennandi. Ég var alveg á nálum 😬🙈 En hún var alveg lúmskt fyndin á köflum – enda Jordan Peele grínsnillingur. Mjög áhugavert handrit – mikið af ósvöruðum spurningum. Gott stöff. Vel gerð.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewTriple Frontier (2019) 7/10

    2019-03-21 22:22
    * * * * * * *

    Mjög spennandi. Áhugavert plot. Gaman að sjá Netflix myndir sem er mikið lagt í.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewBohemian Rhapsody (2018) 7/10

    2019-03-17 22:21
    * * * * * * *

    Mjög áhugaverð saga – ýmislegt sem ég vissi ekki um Freddie Mercury og Queen. Góð tónlist – góð stemning. Drama. Góðir leikarar.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewCaptive State (2019) 6/10

    2019-03-15 00:19
    * * * * * *

    Spennandi sci-fi mynd. Skemmtilega öðruvísi – ekki týpísk Hollywood mynd, heldur meira svona indie-bragur. Smá Cloverfield vibe – eitthvað hrátt við þessa mynd. Áhugavert plot.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewThe Guilty (2018) 8/10

    2019-03-08 22:27
    * * * * * * * *

    Mjög spennandi mynd. Intense. Sniðugt concept – minnti mig á Buried með Ryan Reynolds þar sem allur fókusinn er á einn leikara og svo það sem heyrist í símanum og að þurfa að koma ýmsu á framfæri bara með hljóði. Gott stöff – gott handrit.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewSkyscraper (2018) 6/10

    2019-03-08 21:23
    * * * * * *

    Spennandi – mjög dramatísk og stressandi á köflum. Dwayne frændi er alltaf solid. Skemmtileg tilbreyting að vondi kallinn er skandinavískur, en ekki rússneskur. Nokkuð formúlukennd mynd, en samt ágætlega frumleg stórslysamynd – mögnuð bygging.

    0.3
  • Show the reviewHide the reviewCaptain Marvel (2019) 8/10

    2019-03-07 23:45
    * * * * * * * *

    Gott action og góður húmor – topp afþreying. Spennandi. Að vissu leyti hefðbundin Marvel mynd – en þetta er alveg formúla sem virkar. Skemmtileg "origin" saga. Lagði góðan grunn að 'Avengers: Endgame'. Ég var að fíla 90's tónlistina og í rauninni alla 90's stemninguna.

    0.3

← previous 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 next →

List generated by WP Movie Ratings.

Síðast uppfært 13. February, 2022

Share this:

  • Share
  • Facebook
  • Twitter
  • Tumblr
  • Pinterest
  • Reddit
  • LinkedIn
  • Print
  • Email

Reader Interactions

Comments

  1. Bjössi says

    24. November, 2007 at 0:36

    þú ert aldeilis fljótur að skrifa um American Gangster. My man, ég er sammála þér með myndina. Töff stöff.

    Reply
  2. Hannes says

    24. November, 2007 at 1:31

    Vei, fyrsta kommentið hérna :)

    Já, maður reynir að hafa þetta eins ferskt og hægt er :)

    Það er kosturinn við þetta setup – ég hendi bara upp einhverju stuttu review, skelli á þetta einhverjar stjörnur (bara svona gut feeling) og þá er það komið. Ekkert að tefja mig á óþarfa blaðri eða djúpum pælingum.

    Reply
  3. maple says

    11. February, 2008 at 21:28

    mér finnst of mikið af myndum hér með of litlum fresti – horfir of mikið á myndir

    Reply
  4. Hannes says

    13. February, 2008 at 0:30

    hehe… já, sorry – ég skal horfa á færri myndir ;) Væri ein á mánuði of mikið?

    En þetta er svona – ég hata ekki að horfa á bíómyndir… I loves it :)

    Reply
  5. maple says

    13. February, 2008 at 10:59

    ein á mánuði ef hún er á bíórásinni

    Reply
  6. Haukur says

    21. October, 2008 at 10:07

    Já ég fór með alltof miklar væntingar á Max kallinn. Myndin var alveg töff en sagan samsvaraði sér alveg ferlega illa. Þetta lyktar eins og gömul skinka.

    Reply
  7. siggasig says

    27. May, 2009 at 23:26

    Öflugur að halda utan um myndirnar sem þú sérð! ;) Nice. Sammála Star Trek umfjölluninni. Frábær mynd! Og hei, líka sammála um Angels and Demons. Ólíkt Da Vinci Code fannst mér myndin betri en bókin.

    Reply
  8. Hannes says

    28. May, 2009 at 0:34

    Takk. Já, mér fannst kominn tími til að hafa smá yfirsýn yfir þær myndir sem ég horfi á þar sem ég horfi á örlítið fleiri en 2 myndir á ári ;)

    Já, síðan var líka gaman að sjá í Angels & Demons hvað sumir hlutir voru allt öðruvísi en maður var búinn að ímynda sér þegar maður las bókina :)

    Reply
  9. Geiri says

    4. June, 2009 at 16:36

    Hot Rod: 10*?
    Ég hefði smellt 8*.

    Reply
  10. Hannes says

    4. June, 2009 at 23:32

    Jú, skil þig – þegar ég horfði á hana aftur einn þá var þetta ekki alveg eins mikil snilld, en samt fáránlega fyndin. En þegar ég horfði á hana fyrst þá skemmti ég mér alveg konunglega – það var kannski bara stemmningin að horfa á þetta wit da boyz. 10 stjörnur þýðir alls ekki að mér fannst þetta einhver Óskarsverðlaunamynd…

    En annars eru þessar stjörnugjafir engan veginn heilagar – oft bara nánast eitthvað skot út í loftið ;)

    Reply
  11. Sara says

    6. March, 2010 at 14:08

    Jæja Nesi, ég er mjög spennt að lesa hvað þú hefur um Shutter Island að segja. Koma svo! Í bíó með þig! ;)

    Reply
  12. Hannes says

    6. March, 2010 at 15:19

    hehe, úff… bara pressa :) Já, ég er svona ennþá að vega og meta hvort ég ætli að sjá Shutter Island í bíó. En ætli maður verði ekki að tékka á þessu, Scorsese stendur alltaf fyrir sínu.

    Reply

Leave a Reply Cancel reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Primary Sidebar

Leita að efni

Þetta helsta

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me

Önnur verkefni

  • Bulby – Creativity App
  • Don Comodo – Bolir o.s.frv.

Copyright © 2023 Hannes · Hafðu samband / Contact me

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me
 

Loading Comments...