Hvað er í gangi?

Súperman kemur aftur yfir limgerðið

Fór á tvær bíómyndir í síðustu viku…

Superman returns

Maður varð náttúrulega að fara á Superman Returns til að sjá hvernig það tókst hjá þeim að endurvekja Súperman. Það tókst bara nokkuð vel myndi ég segja… fínt Superman action. Það kæmi ekkert gífurlega á óvart ef þeir kæmu með framhald eftir nokkur ár.

Ég fór á hana í Kringlubíó í þessum digital stafræna sal - hafði ekki prófað það áður. Mér fannst nú enginn fáránlega mikill munur… myndin var aðeins skýrari og litirnir sterkari, en hljóðið var ekkert áberandi betra. En fínt samt sem áður ef maður ætlar í Kringlubíó á annað borð.

Over the Hedge - Hammy

Tölvuteiknimyndir hafa verið að gera það gott undanfarið og nú poppa upp fullt af teiknimyndum sem höfða jafnt til ungra sem aldna. Ein ný er Over the Hedge sem ég sá í alveg troðfullum sal - ok, kannski ekki alveg, það voru 8 manns að horfa á myndina.

Þetta var hin fínasta teiknimynd, vel hlægileg - Hannes stendur náttúrulega uppúr, eða Hammy eins og hann heitir í útlensku útgáfunni. Hannes var s.s. hyper íkorni sem var svona ruglaði gaurinn í hópnum og varð super-hyper þegar hann komst í orkudrykki ;)

Pandora er frekar sniðugt dót. Maður kynnist ýmissi nýrri tónlist sem er svipuð og það sem maður fílar. Þar heyrði ég einmitt Hungry með Kosheen: MP3 sem er ljúft og hressandi lag sem er líklega hægt að flokka undir “house” tónlist.

Síðan fann ég líka DJ Tiesto remix: MP3 af laginu.

Ég var að bæta við einni mynd í Töff myndir.

Hamburgers are made of what?

2 athugasemdir varðandi “Súperman kemur aftur yfir limgerðið”

  1. maple hefur þetta að segja:

    eeeeekki sjéns að ég trúi því að það hafi þurft að sérsníða búninginn og digital minnka til að fólki myndi ekki svelgjast á poppi…

    það er algjört kjaftæði, er þessi gaur svartur?
    nei

  2. Kvikmyndir » I am official station hefur þetta að segja:

    [...] kvikmyndum, mér finnst gaman að horfa á kvikmyndir og ég geri töluvert af því… Ég hef stundum skrifað stuttlega um myndir sem ég hef verið að sjá - en reyndar ekki svo mikið upp á [...]

Hannes - Just walkin'... I am official station Pen and paper I am Hannes, I'm a code monkey Aðgangur bannaður fyrir fólk með dökkt hár Iceland Airwaves 2006 - Reykjavik Art Museum Just grillin'... Here fishy, fishy... Attention: Keep gun holstered. FIRE KILLS CHILDREN! Erpur Blazroca - I am Hannes, I'm creative Iceland Airwaves 2005 - Nasa Gin and tonic Mary Jane vodka Turn me on

 

© 2008 Hannes · Hafðu samband / Contact me