Smá umfjöllun um kvikmyndir sem ég hef séð nýlega… Stutt kvikmyndagagnrýni – ég nenni að skrifa mismikið, fer yfirleitt eftir því hvað mér dettur fyrst í hug – oft bara að hugsa upphátt.
Stjörnugjöf… já, stjörnugjöf er eiginlega svolítið bullshit – ég held að það sé mismikið bakvið stjörnur sem fólk gefur myndum. Hjá mér er það yfirleitt bara gut feeling – hversu skemmtileg/fyndin/spennandi/flott fannst mér myndin. Upplifunin.
Það er ekki eins og ég sé með einhvern ákveðinn skala/staðal eða tékklista – “já, flottur bílaeltingaleikur – 1 stjarna, töff byssubardagi – bætist við 1,5 stjarna…” ;) Síðan getur stjörnugjöfin oft verið svona plús/mínus 1-2 stjörnur.
Hlaðvarp um kvikmyndir
Það er vert að minnast á að ég og Björn erum með hlaðvarp um kvikmyndir sem við köllum Búnir með poppið. Það er hægt að fylgjast með okkur í gegnum Facebook, Twitter og Instagram – og svo auðvitað hlusta á þættina á Spotify, Apple Podcasts, Google Podcasts og öðrum stöðum þar sem fólk hlustar á hlaðvörp.
Sort list by: title | rating | view date ↓
April, 2024
-
Godzilla x Kong: The New Empire (2024)
2024-04-07 23:50Flott stórslysa-skrímslamynd – slatti af risastórum bardagaatriðum. Stundum smá „göt“ í handritinu – farið hratt yfir hluti eða atriði sem gengu furðuvel upp… En þetta er ekki mynd þar sem maður ætti að vera að stressa sig of mikið á að allt meiki sense 😉 Fínasta afþreying.
0.3 March, 2024
-
2024-03-29 23:27
Ágætlega spennandi mynd. Áhugavert að sjá Conor McGregor í sínu fyrsta hlutverki – smá að leika sjálfan sig? Post Malone var líka með áhugavert cameo. Smá fyndin inn á milli. En handritið var stundum ekki alveg að smella. Brútal bardagar. Smá 90's stemning að hafa Doug Liman sem leikstjóra og Joel Silver sem framleiðanda. #amazonprime
0.3 -
2024-03-20 23:29
Slatti af WTF stemningu. Arty – klárlega mikið listaverk. Áhugaverð myndataka – slatti af fisheye, nánast eins og að horfa í gegnum skráargat eða öryggismyndavél. Fyndin – frekar súr húmor. Leikrits-stemning (umgjörðin, sviðsmyndin). Forvitnilegur ævintýraheimur. #disneyplus
0.3 -
2024-03-19 23:55
Svakaleg mynd! Epísk. Risastór og mögnuð atriði. Tónlistin og hljóðið var rosalegt – fyrirbæri út af fyrir sig sem gerði svo mikið fyrir stemninguna. Þetta er klárlega mynd sem þarf að upplifa í kvikmyndahúsi. Svo flott kvikmynd – allt við hana er töff: Myndatakan, búningarnir, umhverfið… Meistaraverk. Geggjað stöff.
0.3 -
2024-03-15 22:22
Skemmtileg og spennandi fjölskyldumynd. Nokkuð hefðbundin saga.
0.3
Aníta: 8/10 -
2024-03-09 23:19
Spennandi. Brútal. Góðir leikarar. Creepy stemning. Sumir kaflar frekar hægir.
0.3 -
2024-03-01 23:19
Spennandi sci-fi mynd. Handritið var stundum ekki alveg nógu solid (smá slappt). #netflix
0.3 February, 2024
-
2024-02-27 23:25
Ekta Jason Statham afþreying – uppfyllti klárlega mínar væntingar. Hörku action. Spennandi. Alveg nógu metnaðarfull saga fyrir svona mynd.
0.3 -
2024-02-22 23:07
Íslenski titillinn: Villibráð. Skemmtilega eðlileg samtöl – ekki ónáttúrulega formleg. Var að fíla öll B-roll skotin úr Vesturbænum. Tengingin við eldgosið var líka áhugavert. Sum atriðin frekar erfið og vandræðaleg (sem er vissulega megin concept-ið). Fyndin inn á milli. #rúv
0.3 -
Peter Rabbit 2: The Runaway (2021)
2024-02-19 20:05Fyndin og skemmtileg fjölskyldumynd. Fín framhaldsmynd – svipað dæmi.
0.3 -
2024-02-11 23:05
Fínasta ofurhetjumynd. Skemmtileg. Flott. Endirinn var frekar basic – smá eins og endir á sjónvarpsþætti og að það komi kraftmeiri endir næst. Mjög augljóst að þetta er bara brot úr stærri sögu, stærri heimi – mikið af persónum úr mismunandi söguþráðum að blandast saman. #disneyplus
0.3 -
2024-02-10 20:04
Skemmtileg fjölskyldumynd. Fyndin. Flottar tæknibrellur/tölvugrafík.
0.3 -
2024-02-06 18:36
Skemmtileg fjölskyldumynd. Ágætlega fyndin. Einfalt (barnvænt) handrit, en nokkrir brandarar sem fullorðnu fatta bara. #netflix
0.3 -
2024-02-03 22:33
Mjög skemmtileg mynd. Spennandi. Fyndin. Gott plot. Fullt af flottum leikurum. Fínustu action atriði. Leit vel út.
0.3 January, 2024
-
2024-01-31 23:31
Smá spennandi, en missti stundum taktinn. Ekkert mjög metnaðarfullt handrit – frekar basic. Það vantaði eitthvað meira til að taka þetta á næsta stig. #amazonprime
0.3 -
Indiana Jones and the Dial of Destiny (2023)
2024-01-21 21:29Skemmtileg nostalgía. Slatti af klassískri Indiana Jones stemningu og atriðum – svipað og í hinum myndunum. Ágætlega spennandi. #disneyplus
0.3 -
2024-01-20 23:28
Áhugaverð sci-fi mynd, áhugaverður heimur. Ágætlega spennandi. Flottar tæknibrellur. #disneyplus
0.3 -
2024-01-14 21:27
Ágætlega spennandi mynd. Fínir leikarar. Lúkkaði vel - flottir tökustaðir og töff myndataka. Fínasta létt-action afþreying. #netflix
0.3 -
2024-01-12 20:18
Mjög skemmtileg fjölskyldumynd. Fyndin. Hrífandi persónur. #disneyplus
0.3 -
2024-01-05 19:17
Mjög fyndin fjölskyldumynd. Virkilega skemmtileg. Flott lög. Góðar persónur.
0.3 December, 2023
-
Rebel Moon: Part One - A Child of Fire (2023)
2023-12-29 23:16Mjög gaman að sjá Ingvar E. Sigurðsson í ágætlega stóru hlutverki í svona stórri mynd. Áhugaverð tenging við Norðurlöndin/víkinga. Töff sci-fi heimur. Ekki alltaf geggjað vel leikin. Ágætlega spennandi. #netflix
0.3 -
Aquaman and the Lost Kingdom (2023)
2023-12-29 00:54Spennandi ofurhetjumynd. Áhugaverður ævintýraheimur. Fínasta action – risastórir bardagar og miklar rústir.
0.3 -
2023-12-27 16:54
Skemmtileg ævintýramynd. Töfrandi og fyndin. Feel-good mynd með skemmtilegum persónum – upplagt til að sjá í jólafríinu.
0.3 -
2023-12-22 23:04
Mjög skemmtileg fjölskyldumynd. Fyndin og leit vel út. Flott lög. Gott tempo (keyrsla) og fínasti söguþráður.
0.3
Aníta: 10/10 -
Chicken Run: Dawn of the Nugget (2023)
2023-12-19 19:57Fyndin og spennandi fjölskyldumynd. Mjög flott stop-motion mynd. #netflix
0.3 -
2023-12-18 17:56
Fínasta grín-action. Ágætlega spennandi. Smá kjánaleg stundum og frekar hefðbundinn söguþráður – en fín afþreying.
0.3 -
2023-12-17 22:55
Flott myndataka. Spooky, jafnvel gamaldags, tónlist. Stuttar senur, ekki verið að sýna allt þegar það er auðvelt að giska í eyðurnar. Kom mér á óvart að Obama hjónin framleiddu þessa mynd (með fullt af öðru fólki). Mjög áhugaverð saga. Spennandi. Áhugaverð ádeila á Bandaríkin. #netflix
0.3 -
2023-12-09 22:54
Nokkuð kjánaleg – silly grín. Ágætis tæknibrellur og áhugaverður sci-fi heimur með dash af cyberpunk og 80's vibes. Fínasta action inn á milli.
0.3 -
2023-12-02 23:42
Spennandi mynd. Fínasta action. Nokkuð hefðbundin hefndar-mynd, en með einu áberandi sem gerði hana einstaka – það voru engin samtöl, lítið sem ekkert sagt. Bjóst við örlítið epískari John Woo mynd og meiri jólastemningu.
0.3
← previous 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 next →
List generated by WP Movie Ratings.
Síðast uppfært 19. March, 2024
Bjössi says
þú ert aldeilis fljótur að skrifa um American Gangster. My man, ég er sammála þér með myndina. Töff stöff.
Hannes says
Vei, fyrsta kommentið hérna :)
Já, maður reynir að hafa þetta eins ferskt og hægt er :)
Það er kosturinn við þetta setup – ég hendi bara upp einhverju stuttu review, skelli á þetta einhverjar stjörnur (bara svona gut feeling) og þá er það komið. Ekkert að tefja mig á óþarfa blaðri eða djúpum pælingum.
maple says
mér finnst of mikið af myndum hér með of litlum fresti – horfir of mikið á myndir
Hannes says
hehe… já, sorry – ég skal horfa á færri myndir ;) Væri ein á mánuði of mikið?
En þetta er svona – ég hata ekki að horfa á bíómyndir… I loves it :)
maple says
ein á mánuði ef hún er á bíórásinni
Haukur says
Já ég fór með alltof miklar væntingar á Max kallinn. Myndin var alveg töff en sagan samsvaraði sér alveg ferlega illa. Þetta lyktar eins og gömul skinka.
siggasig says
Öflugur að halda utan um myndirnar sem þú sérð! ;) Nice. Sammála Star Trek umfjölluninni. Frábær mynd! Og hei, líka sammála um Angels and Demons. Ólíkt Da Vinci Code fannst mér myndin betri en bókin.
Hannes says
Takk. Já, mér fannst kominn tími til að hafa smá yfirsýn yfir þær myndir sem ég horfi á þar sem ég horfi á örlítið fleiri en 2 myndir á ári ;)
Já, síðan var líka gaman að sjá í Angels & Demons hvað sumir hlutir voru allt öðruvísi en maður var búinn að ímynda sér þegar maður las bókina :)
Geiri says
Hot Rod: 10*?
Ég hefði smellt 8*.
Hannes says
Jú, skil þig – þegar ég horfði á hana aftur einn þá var þetta ekki alveg eins mikil snilld, en samt fáránlega fyndin. En þegar ég horfði á hana fyrst þá skemmti ég mér alveg konunglega – það var kannski bara stemmningin að horfa á þetta wit da boyz. 10 stjörnur þýðir alls ekki að mér fannst þetta einhver Óskarsverðlaunamynd…
En annars eru þessar stjörnugjafir engan veginn heilagar – oft bara nánast eitthvað skot út í loftið ;)
Sara says
Jæja Nesi, ég er mjög spennt að lesa hvað þú hefur um Shutter Island að segja. Koma svo! Í bíó með þig! ;)
Hannes says
hehe, úff… bara pressa :) Já, ég er svona ennþá að vega og meta hvort ég ætli að sjá Shutter Island í bíó. En ætli maður verði ekki að tékka á þessu, Scorsese stendur alltaf fyrir sínu.