Síðustu helgi tók ég þátt í Iceland Startup Weekend og teymið mitt vann að hugmynd sem við köllum KinWins sem er hvatningarleikur á netinu sem sameinar fjölskylduna og gerir hið daglega líf skemmtilegra.
Við unnum keppnina hérna á Íslandi og fengum að halda áfram í alþjóðlega keppni – Global Startup Battle.
Hérna er smá kynningarmyndband sem var gert á 24 klst.:
Það er netkosning í gangi núna (sem lýkur á miðnætti – hugsanlega skv. Bandarísku tímabelti) þannig að ef þú ert að lesa þetta og það er ennþá opið fyrir kosningar væri stórglæsilegt ef þú gætir kosið KinWins (Iceland) á Global Startup Battle síðunni.
Já, það þarf að hafa símann nálægt sér af því að maður fær símtal frá vélmenni – algjör snilld :)
Í vinning er m.a. ferð til San Francisco fyrir teymið þar sem við fáum að kynna hugmyndina frekar. Mig hefur alltaf langað til að fara til Vesturstrandar Bandaríkjanna þannig að þetta væri upplagt tækifæri :)
Þú ert greinilega á undan þinni framtíð
Síðast uppfært 10. February, 2024
Bjössi says
Ég mæli ekkert með vesturströndinni, þá sérstaklega ekki San Francisco. Það er ógeðslega mikið af rónum, krakkhausum, hippum og hommum þar! Auk þess er hún skítug. Ekkert spes borg ;)
Hannes says
Nú, jæja… mig langar samt að fara þangað til þess upplifa það sjálfur og leggja dóm á hvort að vesturströndin sé svona hræðileg :)