• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

I am official station

Ljósmyndir, kvikmyndagagnrýni, ferðasögur, fréttir af Hannesi og annað skemmtilegt :)

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me
You are here: Home / Archives for Bleh

Bleh

Pólitík er kjaftæði

23. May, 2006 Leave a Comment

Ég var að hlusta á X-ið um daginn og eins og er mikið um núna kom kosningaauglýsing. Þarna var Samfylkingin að auglýsa að þeir ætluðu að bæta aðstöðu aldraðra, að aldraðir muni fá nauðsynlega þjónustu og eitthvað þannig… mér fannst það svona svolítið skrítð – mér fannst það ekki alveg höfða til mín sem hlustanda X-ins.

Síðan seinna kom svona self-plug frá þeim: “X-ið 977 – ekki fyrir afa þinn!”. Nákvæmlega! Markaðsstjórar Samfylkingarinnar eitthvað að kúka á sig – þeir kannski vita ekki alveg hverjir hlusta aðallega á X-ið. Hefði ekki verið nær lagi að benda á hvað þeir ætluðu að gera fyrir ungt fólk?

Já, blessaðar kosningarnar á laugardaginn – munið bara að kjósa rétt og setja X við hüt!

– – –

Hvaðan kom þessi vetur?! Lét einhver gaurinn uppi fá vitlaust dagatal – það er lok maí sko, það er eiginlega að koma sumar – þá er sko oftast heitt… Núna er maður í svona semi-útivinnu og þetta er bara ekkert sniðugt. Það er skítakuldi og rokrassgat. Ég meina, vörubílar eru að fjúka út í móa! Ég ætla rétt að vona að þetta verði mun betra í næstu viku svo maður geti farið að djamma á nærbrókunum einum fata.

random quote | You’re not your fucking khakis!

Filed Under: Bleh Tagged With: pólitík, veður

Syndicated Columnist

22. September, 2005 Leave a Comment

Yes! Ég er núna opinberlega orðinn hüt motherfucker. Ég þurfti að ganga í gegnum strangt inntökuferli þar sem ég þurfti meðal annars að skrifa 50 bls. ritgerð hvers vegna ég væri verðugur þessa merka titils. Síðan þurfti ég að fara í 5 klst. langt viðtal þar sem ég var spurður spjörunum úr (bókstaflega). Eftir það var ég krúnurakaður, færður í föðurland, sett poka á hausinn minn, settur í skott á einhverjum bíl og fluttur á ótilgreindan stað. Þar var ég, í föðurlandinu einna klæða, látinn fara í leðjuglímu við drukkinn apa. Í lokinn var svo fórnað unglambi á altari hüt sem ég var látinn borða hrátt í kappáti við úlf… á meðan dynjandi death metal tónlist var blöstuð í hátalarakerfinu. En ég náði prófinu og komst inn í þennan merka underground saumaklúbb. Ég ætla bara að vona að ég verði aldrei hüt til skammar og “hverfi” eins og Ólafur.

En það sem ég vildi sagt hafa… ég skellti inn færslu á hüt, óþarfi að endurbirta hana hérna þannig að ég bendi fólki bara á þennan link.

random quote | My best mates are going to Vegas this weekend…

Filed Under: Bleh

Róleguz á gufunni, djeng!

10. August, 2005 Leave a Comment

Það er fátt meira afslappandi en að skella sér í gufu eftir góða líkamsrækt. Bara sitja þarna og skipuleggja hvernig maður getur upprætt hungur heimsins…

En það eru sumir sem vilja endilega auka gufuna þótt það sé nú þegar góður hiti. OK, ég fór í gufuna til að slaka á, ekki sjóða af mér fituna. Shiiiiiit.

Þegar maður er bókstaflega byrjaður að brenna sig þá er maður ekki alveg að ná optimal zen moment. Þannig að maður nær bara að vera þarna í stuttan tíma – ekki kúl.

Jamm, þessi sérhönnuðu debetkort eru kannski svolítið sniðug en ein auglýsingin frá Landsbankanum finnst mér svolítið sérstök. Erum við að tala um alveg geðveika stalker-týpu? Fá lánaðan einhvern hund, elta hana og finna hvar hún vinnur… – er það sem virkar á svona hot gellur?

Það mætti halda að Málinu sé stjórnað af fyrrverandi Verzlingum – Ingunn ‘súpermódel’ Eiríks nýlega á forsíðunni og núna Silja ‘stílisti/ljósmyndari’ Magg.

Maður er að sjá meira og meira af liði sem maður þekkir í hinum ýmsu fjölmiðlum landsins – það er kannski að maður ætti að fara skrifa pistil einhvers staðar. Alla vegann miðað við vinsældir þessa bloggs þá myndi það klárlega slá í gegn. Toppurinn væri náttúrulega ef eitthvað blað myndi quote-a mig þegar ég er að missa mig yfir einhverjum sjónvarpsþætti.

Filed Under: Bleh

Bloggandi fyrir peninga

18. September, 2004 Leave a Comment

Úff, Mr. Usman er orðinn reiður, ég vil nú ekki að bankastjóri African International Bank Limited sé reiður þannig að hér kemur hinn vikulegi bloggskammtur.

Síðast þegar ég skildi við ykkur þá var vísindaferð næst á dagskrá. Útkoman var eitt af skemmtilegustu bæjarferðum í langan tíma. Maður byrjaði upp í Kópavogi þar sem maður fræddist um þráðlaus net o.s.frv. á meðan maður naut gylltra veiga. Eftir það var bara beint á Pravda þar sem hjúkrunarfræðingar voru að grilla pylsur, maður sníkti vissulega pulsu af því að maður var ekkert búinn að borða. Síðan var það bara inn í stemmninguna. Fólk tók að flykkjast að og innan skamms var allt troðfullt af tölvunarfræðingum, verkfræðingum og hjúkrunarfræðingum.

Þrátt fyrir mjög góða stemmningu á Pravda vildi maður tékka á öðrum stöðum og rölti út (maður var nú búinn að vera þarna í ca. 6 klst.). Tékkuðum á Hverfis, Ara… og síðan var það pulsa og heim. Eitt sem gerði þetta kvöld sérstaklega skemmtilegt var hvað það voru margir í bænum sem maður þekkti, svona á þetta að vera.

Annars er það bara skólinn, ekkert spes að gerast þar.

Fjölskyldan skellti sér í myndatöku í dag, kominn tími til, orðin nokkur ár frá síðustu fjölskyldumyndatöku. Nokkuð töff græjur sem gaurinn var með, allt digital og þetta fór strax í tölvuna þannig að hann gat bara lagið lýsinguna og svona eftir því sem hann sá á skjánum.

Það gæti verið að ég neyðist til að blogga oftar en einu sinni í viku til að halda Mr. Usman Musa Shehu rólegum. Ég ætla að reyna að ná því.

Maður er víst að fara í cuhrazy Catan-partý í Garðabænum núna þannig að ég hef þetta ekki lengra.

.spam dagsins | Generic Xanax is Better and Cheaper! Canadian Generic Drugstore
.beib dagsins | Gisele Bundchen | sponz : potb.com

Filed Under: Bleh Tagged With: djamm, Pravda

College boy…

1. September, 2004 Leave a Comment

Fyrsta vikan í háskóla liðin og rúmlega það. Mér líkar bara nokkuð vel við þetta, góður hópur sem maður er með og áhugaverð fög – góður fílingur.

Fyrsta vísindaferðin var líka síðasta föstudag í boði KB Banka og EJS. Það var nóg af veigum og snæðingi í höfuðstöðvum KB Banka þar sem við hlýddum á smá kynningar. Skemmtilegt að sjá hvernig KB Banki er að standa sig í útlöndum. Eftir KB var haldið upp á 9. hæð Kringluturnsins þar sem veigarnar fengu einnig að fljóta. Síðan skelltu flestir sér á Pravda þar sem aðal stemmningin var víst þetta kvöld, t.d. algjörlega dautt á Hvebbanum.

Síðan eru bara hörku viðræður milli HR og THÍ – Það er aldrei að vita nema við Óli verðum í sama skóla innan skamms…

Nú þegar maður er byrjaður í háskóla geri ég ekki ráð fyrir að blogga oftar en þegar ég var bara að vinna. Svona ca. einu sinni í viku kannski, nema eitthvað spes sé til umfjöllunar eða eitthvað örblogg.

.spam dagsins | Dossiers on 211 mil. U.S. citizens for sale!
.beib dagsins | Laetitia Casta | sponz : potb.com

Filed Under: Bleh Tagged With: Pravda, skóli

Sprengt egg

5. February, 2004 Leave a Comment

Ég hef ákveðið að gera nokkrar vísindalegar tilraunir. Ég ætla að athuga hvað vissir hlutir þurfa langan tíma í örbylgjuofni áður en þeir springa.
Nú þegar hef ég komist að þeirri niðurstöðu að hálfsoðið egg þarf rúmlega mínútu í örbylgjuofni til að það springi ;) Næst mun ég athuga með kettlinga – áætlaður tími er kringum 10 mínútur. Geri svo ráð fyrir að ég muni líka gera könnun á möðkum, appelsínum og mjólkurfernum. Eini gallinn við þessar tilraunir er að þetta getur orðið svolítið messy og erfitt að þrífa eftir sig.

Síðan er bara byrjað að snjóa. Hvaðan kom þessi snjór eiginlega, það er búið að vera nokkuð þurrt síðustu daga og maður var næstum laus við klakann… en, nei ekki alveg. Skíðadýrkendur eru örugglega himinlifandi, en ég held varla að ég nenni að fara standa á tveim spýtum uppi á fjalli – not my cup of tea.

Það var allt að verða vitlaust hjá Einari út af þessum Stellu leik, en núna er víst búið að leysa málið. Keppnin var s.s. um hver þekkti mitt blurrað andlit á mynd sem Hlynur tók í afmæli Bjössa, en Hlynur var einn af fáum sem vissi svarið þótt hann var ekki alveg að fatta þetta fyrst ;) Síðan frétti ég að nafn mitt hafi ekki verið í pottinum þrátt fyrir að ég hafi giskað, og það rétt. Hneyksli! Bara af því ég var ekki á staðnum – mér finnst að ég ætti að fá skaðabótaverðlaun, jafnvel eina Stellu ;)

Fátt annað að segja, maður er bara hérna í hádegishléi í vinnunni að melta 1944 rétt sem maður var að borða.

Leiter…

Filed Under: Bleh Tagged With: vísindi, veður

  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Page 6
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Leita að efni

Þetta helsta

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me

Önnur verkefni

  • Bulby – Brainstorming App
  • Don Comodo – Bolir o.s.frv.
  • Remote Sparks – Async Work

Copyright © 2025 Hannes · Hafðu samband / Contact me

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me