• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

I am official station

Ljósmyndir, kvikmyndagagnrýni, ferðasögur, fréttir af Hannesi og annað skemmtilegt :)

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me
You are here: Home / Archives for Bleh

Bleh

Þessar hvalveiðar…

27. October, 2006 Leave a Comment

Mér er nú nett sama hvort það sé verið að veiða einhverja hvali eða ekki, sé reyndar ekki alveg ástæðuna fyrir að byrja að veiða þessa hvali núna. En þegar þetta er farið að hafa áhrif á velgengni Nylon þá er nóg komið…

Það er alla veganna kenningin mín út frá þessari frétt sem var á mbl:

Ég varð strax mjög hugsi í síðustu viku þegar samstarfsfólk mitt hérna úti fór að tala um að taka allt “Icelandic” út úr auglýsingaherferðinni.

Bretarnir eru víst ekki alveg sáttir með að Íslendingar séu byrjaðir að veiða hvali og það lítur út fyrir að þeir vilji ekkert endilega tengja Nylon við hvalveiðar ;)

Pæling…

I reckon you’re about an 8 or a 9 – maybe even 9 and a half in four beers time.

Filed Under: Bleh Tagged With: Ísland, fréttir

Ostakaka í morgunmat…

3. August, 2006 1 Comment

Stundum vaknar maður aðeins of seint og hefur ekki alveg tíma fyrir allt vakna-ferlið. Þannig að maður þarf að sleppa einhverju eða láta það taka rosalega stuttan tíma… Ég nennti ekki að fara í vinnuna með alveg tóman maga þannig að ég leit í ískápinn og þar var þessi fína ostakaka. Tók mér væna skeið af vanillu og súkkulaði ostaköku og skolaði því niður með Sprite Zero. Umm… hollur og næringaríkur morgunmatur – þetta er nú einu sinni mikilvægasta máltíðin.

Í fréttum er þetta helst… ég er að fara í ferðalag til Slóveníu og Króatíu – og ég flýg til London eftir rúmlega 31 tíma. Frá London fljúgum við til Slóveníu þar sem við ætlum að lifa eins og kóngar í Ljubljana. Síðan er förinni haldið til strandarbæjar í Króatíu þar sem við ætlum að flatmaga í nokkra daga. Maður endar þetta síðan með verslunaræði í London.

Möguleiki að maður bloggi eitthvað á meðan maður er úti.

Let me get some action from the back section

Filed Under: Bleh, Ferðalög

I am station, I am official station…

2. July, 2006 6 Comments

Loksins, loksins! Loksins eitthvað nýtt, ferskt og spennandi á netinu! Núna hefur maður einhverja ástæðu fyrir að kveikja á tölvunni…

Já, fólk er aldeilis ánægt með að fá nýtt blogg á netið. Netið er náttúrulega búið að vera nokkurn veginn eins síðan 1998.

Ég var búinn að fá leið á brinkster blogginu og vildi bara breyta til þannig að ég flutti mig hingað. Undir húddinu leynist WordPress sem er bara nokkuð töff blogg-græja. Ég byggði template-ið mitt á default dótinu en hreinsaði það með smá hjálp. Þetta er auðvitað CSS-að í köku og fer eftir öllum helstu stöðlum.

Það tók nú alveg slatta tíma að koma þessu template-i í almennilegt form. Alls konar fifferingar, fullkomnunarárátta, böggar milli Firefox og Internet Explorer – hlutir ekki að birtast eins og bleh, bleh. En þetta er komið fínt í bili, bara opna kvikindið og fiffa í þessu síðar meir.

Mér finnst alveg möst að vefsíður séu með link á hvaða síðu sem er sem færir fólk aftur á “byrjunarreit” – eðlilegasti staðurinn er logo eða bara texta-linkur í efra vinstri horninu. Þar finnið þið einmitt » official station sem tekur ykkur aftur á aðalsíðuna – svona ef þið týnist.

Vinstra megin eru líka linkar á svalasta fólkið á netinu. Þar sem linkarnir eru eins og börnin mín þá elska ég þá alla jafn mikið – þess vegna er totally random röð á þessu, meira að segja ný röð í hvert skipti sem þú refreshar.

Síðan ætla ég að finna mér eitthvað sniðugt plug-in eða eitthvað til að birta nokkrar myndir hérna – jafnvel Kýpur myndirnar sem ég er búinn að lofa í 3 ár ;)

Fasti dagskrárliðurinn random quote hefur fengið fallegt pláss í ramma í lok hverrar færslu.

Ef þið rekist á einhverjar villur eða lendið í einhverju böggi endilega látið mig vita.
– ég veit um einn bögg og sá sem er fyrstur að finna hann er greinilega ekki að nota réttan vafra.

Ef fólk er að undra sig á léninu þá mun ég útskýra það síðar…

We tight like dreadlocks.

Filed Under: Bleh

17.9.2003 – 2.7.2006

2. July, 2006 Leave a Comment

[Þessi færsla var tekin frá gamla blogginu mínu]

Nei, ég ætla nú ekki alveg að taka kallarnir.is á þetta. Ég er bara búinn að færa mig á betri stað.

Maður er búinn að blogga hérna í tæplega 3 ár – eða s.s. frá því að maður var í lýðháskólanum og þurfti að reporta heim.

Ég kveð hér með takmarkanir og vesen og kynni með stolti: OfficialStation.com

random quote | Screw you guys, I’m going home!

Filed Under: Bleh Tagged With: bloggið

Sumarið loksins komið…

22. June, 2006 Leave a Comment

Já, það virðist sem sumarið sé loksins komið – dúndrandi sól, engin rigning og fínn hiti bara 2 daga í röð – aldeilis lúxus. Meira svona…

Eins og hausinn segir er nýja bloggið á leiðinni – þið megið búast við byltingu á netinu. En ég er ennþá að redda ýmsum fínpússingum þannig að þið verðið að bíða örlítið lengur.

random quote | No soup for you!

Filed Under: Bleh Tagged With: webdev

97000 m

2. June, 2006 Leave a Comment

Ég keyrði 97 km í dag, víííí… Út og suður um allan bæ.

Það lítur út fyrir að sumarið sé loksins komið – ef þetta helst svona þá er ég nokkuð sáttur. Fyrst að veðrið er búið að skána er aldrei að vita nema maður verði dansandi á lendarskýlunum á Reykjavík Trópík í kvöld og um helgina.

random quote | Silicon parts are made for toys!

Filed Under: Bleh Tagged With: bíll, tónleikar, veður, vinnan

  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Page 6
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Leita að efni

Þetta helsta

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me

Önnur verkefni

  • Bulby – Brainstorming App
  • Don Comodo – Bolir o.s.frv.
  • Remote Sparks – Async Work

Copyright © 2025 Hannes · Hafðu samband / Contact me

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me